Morgunblaðið - 28.08.2008, Side 14

Morgunblaðið - 28.08.2008, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þjóðhátíð fyrir þjóðhetjur Morgunblaðið/Frikki Varnarjaxlinn Sigfús Sigurðsson heilsar syni sínum innilega. Morgunblaðið/Ómar Koss Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir fögnuðu liðinu við Kjarvalsstaði. Heiðursflug Þota Icelandair fór útsýnisflug yfir Reykjavík. Þá flaug hún lágflug yfir flugvöllinn áður en lent var. Rauði dregillinn beið silfurdrengjanna útbreiddur á jörðu niðri. Morgunblaðið/Frikki Börnin Sverre Jakobsson hefur oft haft stærri menn í fanginu. ÞEGAR Boeing 757-vél Icelandair lenti á Reykjavík- urflugvelli um fimmleytið í gærdag, með handboltalands- liðið innanborðs, var komið að miklum fagnaðarfundum. Fjölskyldur liðsmanna fengu forskot á sæluna og biðu í eftirvæntingu inni á flugvallarsvæðinu. Ekkert var til sparað, enda veittu þyrlur Landhelg- isgæslunnar og „þristurinn“ Páll Sveinsson þotunni heið- ursvörð í aðfluginu. Áhöfn þotunnar var heldur ekki af verri endanum. Flugstjóri var Bjarni Frostason, fyrrver- andi landsliðsmarkvörður í handbolta. Honum til halds og trausts var áhöfnin sem ekki klæddist hefðbundnum ein- kennisbúningi að þessu sinni, heldur landsliðstreyjum. Það var langt úthald að keppa til úrslita á Ólympíu- leikunum og eflaust lýjandi að taka á pólskum, spænskum og frönskum varnarjöxlum. Tilfinningarnar leyndu sér því ekki þegar liðsmenn hittu maka sína og börn á ný. Því næst var haldið að Kjarvalsstöðum þar sem borg- arstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra veittu liðinu formlegar móttökur. Fagnaðarfundir eftir langa ferð Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Áritun Flugfreyjur vildu eiginhandaráritun Guð- jóns Vals Sigurðssonar sem varð glaður við því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.