Morgunblaðið - 28.08.2008, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.08.2008, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur Enska með gátum og skrýtlum Skemmtilegar verkefnabækur handa byrjendum í enskunámi. Pantanir: barnabokautgafan@hive.is eða í síma 862 2077. Gisting Sumarfríið eða helgin 2 - 3 herb. vel búnar íbúðir á Akureyri. www.gista.is S: 694-4314. Íbúð til leigu í Kaupmannahöfn Íbúð fullbúin húsgögnum, svefnpláss fyrir 4. Verðdæmi, 4500 DKK fyrir vik- una. Hafið samband: michael@har- toft-nielsen.com eða 822 4841. Heilsa Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og öflugur. Engin örvandi efni notuð. Dóra - 869-2024, www.dietkur.is Heimilistæki Þvottavél til sölu Hágæðaþvottavél til sölu. Whirlpool AWO 9966, 6th sense, 6 kg, 1600 snún., orkuflokkur A+. Notuð í 4 mánuði. Selst vegna flutn. Verð aðeins 35 þúsund. S. 660 9498. Húsnæði í boði Flat on Geneva Lake 30sqm+balcony, summer & alpinpa- radise in Thonon, 30km from Geneva. http://thonon.blogdog.se, price 144.000 Euro. 3.5 hours by train to Paris or Milano. Tel.+46.8.205156 . Til leigu 2 herbergja íbúð í Kópavogi Íbúðin er 58 fm og skiptist í stofu, svefnherbergi, hol, baðherbergi, eldhús og þvottahús. Laus frá 1.sept. Leiguverð er 110.000. Áhugasamir hafi samband á katlatr@visir.is Glæsileg 2 herb. íbúð í Keflavík til leigu Innifalið er hiti og rafmagn, öryggiskerfi, ný og flott húsgögn og sameignarsjóður. Tryggingavíxill skilyrði. Laus strax. 130 þús. á mán. S. 849 5810. Til leigu í Bjallavaði 1-3 110 Rvík Glæsileg 3ja herbergja íbúð til af- hendingar strax. Sérinngangur, bíl- geymsla og lyfta í húsinu. Langtíma- leigusamningur, sjá www.leigulidar.is eða 517-3440. Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvík. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Sumarhús Glæsilegt sumarhús til leigu Til leigu 97 fm sumarhús, þar af 25 fm milliloft. Húsið er staðsett í Brekkuskógi, um 15 mínútna akstur frá Laugarvatni. Heitur pottur. Upplýsingar í síma 841 0265. Sumarhús til leigu í Borgarfirði Nýr 8-10 manna sumarbústaður til leigu í Borgarfirði, nálægt Húsafelli. Heitur pottur og gönguleiðir í fallegu umhverfi. Útsýni frábært. Uppl. í síma 435-1394 og 864-1394. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Tungumál Spænka, enska, ítalska. Japanska, arabíska, kínverska. Franska, þýska, danska. Icelandic for foreigners, Islandzki dla polakow. www.lingva.is, s. 561-0315. Laugavegur 170. Óska eftir Óska eftir að kaupa! Notaða þvottavél og/eða þurrkara og notað gott rúm. Allt skoðað. Sími 844 1319. Viðskipti Skelltu þér á námskeið í netviðskiptum! Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk- ingu til að búa þér til góðar tekjur á netinu. Við kennum þér nákvæmlega hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com og kynntu þér málið. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Málningarvinna Þaulvanur málari ætlar að bæta við sig verkefnum í sumar. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann- gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Blómakór. Margir litir. Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr. og barnaskór 500 kr. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 12. Sími 562 2466. Ný sending af Hello Kitty og Dora vörunum. Bakpokar, húfur, vettlingar, skartgripir og margt fleira Skarthúsið, Laugavegi 12, sími 562 2466. Nýtt, Nýtt Slaufur i hár frá kr. 290 - 1290. Sumarhálsklútarnir eru komnir. Mikið úrval. Skarthúsið, Laugavegi 12. sími 562 2466. LAGERSALA Lín Design Mikið úrval rúmteppa, púða, dúka, rúmfatnaðar ásamt mörgu öðru með allt að 80% afslætti. Úrvalið hefur aldrei verið meira. Grár rúmfatnaður með 75% afslætti Brún sængurver með 70% afslætti Malarhöfða 8, fyrir aftan Ingvar Helgason. Opið fimmtudag & föstudag 15-20, laugardag & sunnudag 11-16. www.lindesign.is Spangarlaus en þétt aðhald í CD skálum á kr. 2.950,- Spangarlaug, teygjanlegur og mjúkur í DE skálum á kr. 2.950,- Spangarlaus í BCD skálum á kr. 2.950,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. Bílar Námsmannabílinn Nissan Almera, árg'99. ek.128 þús km. Beinskiptur. Vetrar-og sumardekk fylgja. Sparneytinn eðalkaggi í skólann. Verð 300 þús. Nánari upplýsingar í síma 696-0915. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Mótorhjól Hjólhýsi Hjólhýsi til leigu Með uppbúnum rúmum og tilheyr- andi. Helgar- eða vikuleiga. Sendum - sækjum. Til sýnis við Gistiheimilið Njarðvík. Sniðugt að geyma auglýs- inguna. Upplýsingar í símum 421 6053, 898 7467 og 691 6407. www.gistiheimilid.is Húsviðhald Ertu leið á eldhúsinu? breytum og bætum. Upplýsingar í s: 899- 9825. Einkamál Stefnumót.is Kynntu þér vandaðan stefnumóta- og samskiptavef fyrir fólk sem gerir kröfur. ✝ Björg Jóhanns-dóttir fæddist 25. mars 1926. Hún lést á Öldrunardeild Landspítalans í Fossvogi 21. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jóhann Guðmunds- son kaupmaður frá Gíslakoti, f. 14.10. 1893, d. 27.2. 1974 og Jónína Jóns- dóttir húsmóðir frá Rauðsbakka, f. 9.12. 1900, d. 12.3. 1992. Systkini Bjargar eru Guðbjörg, f. 31.5. 1924, d. 27.1. 2007, Jón Mar- inó, f. 25.9. 1928, d. 14.5. 1938, Anna, f. 7.11. 1929, Guðmunda, f. 18.5. 1933 og Jóna Margrét Ragna, f. 18.2. 1942. Dóttir Bjargar og Leif Refdahl, f. 19.3. 1922, er Guðbjörg Jóna Jóhanns, f. 23.5. 1958. Hún á fjög- ur börn, Vilhjálm Ragnar, f. 23.7. 1977, sambýliskona Elísabet Mar- teinsdóttir, f. 21.1. 1979, dóttir hennar er Gyða Stefanía, f. 6.5. 2002. Björgvin Frey, f. 3.8. 1979, sambýliskona Gróa Helga Eggerts- dóttir, f. 28.3. 1980, dóttir þeirra er Arna Liv, f. 4.6. 2006. Ingibjörgu Jó- hönnu, f. 1.3. 1982, sambýlismaður hennar er Sigurður Jón Ásbergsson, f. 13.2. 1984, dóttir þeirra er Sigríður Jóna, f. 12.9. 2005. Berglindi Ósk, f. 14.9. 1993. Fyrrver- andi maður Guð- bjargar Jónu og faðir barna henn- ar er Vilhjálmur Birgir Þorvalds- son, f. 26.9. 1956. Sambýlismaður Bjargar til nokkurra ára var Jón Oddsson, f. 30.9. 1935, d. 23.5. 1994. Björg starfaði og bjó mestalla starfsævi sína eða yfir 40 ár á Víf- ilsstöðum. Á síðari árum starfs- ævi sinnar bjó hún og var hús- vörður í Fannborg 1 í Kópavogi. Útför Bjargar fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Mig langar í nokkrum orðum að minnast elskulegrar móður minnar sem lést eftir erfið veikindi. Veit ég að vel hefur verið tekið á móti henni af Gauju mömmu, Gunnari pabba og ömmu. Síðustu dagana talaðir þú oft um að þau væru hjá þér. Hugur minn hefur reikað síð- ustu daga og minningar streyma fram en það er einhvern veginn svo erfitt að koma þeim á blað. Einar helstu æskuminningar mínar eru um ferðir okkar mæðgna í bæinn. Þá var það fastur liður að við fórum saman í strætó í bæinn, oftast á þriðjudögum og löbbuðum niður Laugaveginn. Alltaf var stoppað í kjötbúðinni Borg og keypt soðin svið og flatkökur sem við gæddum okkur á þegar heim var komið. Oftar en ekki fékk ég góðgæti eða leikföng í þessum bæj- arferðum. Í minningum mínum sé ég hana fyrir mér stökkva upp í búð þegar hrópað var ,,bíll í búð“. En í sveitinni sinni leið henni alltaf vel og átti hún margar ánægjulegar stundir þar. Ég man líka hvað hún var vinnusöm og sat aldei auðum höndum. Öll handavinna lék í hönd- um hennar og var það sama hvort það var saumaskapur, hekl, perlur eða postulínsmálun. Hún var sérlega iðin hin síðari ár að sækja félagsstarf aldraðra sem fram fór í Gjábakka, Kópavogi. Mörg meistaraverkin liggja eftir dugnað hennar. Ekki má gleyma bingóferðunum sem hún var dugleg að stunda og oft kom hún heim með smávinninga. Hún iðaði öll þegar bingódagarnir runnu upp og það þurfti mikið til að hún hætti við bingóferð. Skemmtilegast af öllu þótti henni að ferðast, jafnt innanlands sem ut- an. Dugleg var hún að ferðast með hinum ýmsu hópum s.s stéttar- félaginu Sókn og ógleymanlegar ferðir átti hún með systrum sínum til sólarlanda. Þær ferðir sem hún átti með okkur fjölskyldunni eru mér ógleymanlegar. Þá sérstaklega ferð okkar til Kanaríeyja 1996 en ferðin var farin í tilefni 70 ára af- mælis hennar. Þar fór hún á kost- um með einstökum fíflalátum eins og hennar var von og vísa. Börnin mín tala enn um hversu gaman hafði verið hjá okkur. Oft talaði hún um að þetta þyrfti að end- urtaka. Hún hafði mjög gaman af að koma með okkur í sumarbústað- inn sem við áttum í Svínó. Eyddum við mamma mörgum ánægjulegum stundum þar. Gott fannst mömmu að fá grillaðan mat eftir erilsaman dag og skola honum niður með öli. Í þessum ferðum var handavinnan alltaf meðferðis. Þegar bústaðurinn var seldur fannst mömmu það mjög sárt því hún unni ferðum okkar þangað. Lítil börn bræddu hjarta mömmu og lifnaði yfir andliti henn- ar þegar þau komu í heimsókn. Sérstaklega glöddu litlu langömm- ustelpurnar hana. Ekki má gleyma honum Ara mínum sem oftar en ekki kom með mér í heimsókn til hennar bæði í Gullsmárann og á spítalann og talaði hann alltaf um ömmuna. Mamma var um tíma á dagdeild fyrir heilabilaða í Roðasölum 1 í Kópavogi en vegna enn meiri heilsubrests þurfti hún að hætta þar. Fluttist hún í kjölfarið á sam- býlið í Gullsmára 11 í Kópavogi dvaldist þar í eitt og hálft ár. Undi hún hag sínum vel þar meðan heils- an leyfði. Síðustu tvo mánuðina dvaldi hún á öldrunardeild Land- spítalans í Fossvogi. Vil ég nota þetta tækifæri og þakka starfsfólki þessara stofnana fyrir óeigingjarnt starf í mömmu þágu. Ég vil senda elskulegri mömmu minni þakklæti fyrir það sem hún hefur kennt mér, alla hennar hjálp, alla hlýjuna og allar gleðistundirn- ar sem við áttum saman. Minning hennar lifir um ókomna tíð. Þín dóttir Jóna. Elsku amma. Mig langar að þakka þér fyrir allar þær góðu minningar sem þú skilur eftir í hjarta mér nú þegar þú hefur yfirgefið þennan heim, fullsnemma að mér þykir. Ég var nú svo heppinn að vera skírður í höfuðið á þér og er það mér mikill heiður að fá að bera nafn þitt með- an ég lifi. Mínar fyrstu minningar með þér eru þegar ég var lítill drengur og fékk að fara með þér og Jóni afa í útilegu á litla Fíatinum ásamt þeim ferðum sem ég fór með þér til lang- ömmu undir Eyjafjöllum. Það var líka alltaf gaman að heimsækja þig í Fannborgina og vissi ég að alltaf var til ís í frystinum. Eflaust átt þú mikinn þátt í því að mér finnst fátt betra en ís með súkkulaðisósu. Einnig rennur mér seint úr minni ferðin þegar við fórum öll saman til Kanarí og við bræðurnir vorum svo heppnir að vera með þér í herbergi. Þú varst alltaf sofnuð snemma á kvöldin þannig að við gátum læðst út og kíkt aðeins á lífið. Björg Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.