Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 11
LAUGARDAGUR 18. apríl 2009
Garðveislur, tónar og fallegir kjólar,
sandalar, sundföt og gleraugu sólar.
Komdu í heimsókn
Frambjóðendur á faraldsfæti
GÖNGUM HREINT TIL VERKS
Kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins
á eftirtöldum stöðum eru opnar alla virka
daga frá klukkan 16 - 22 og um helgar frá
klukkan 10 - 17.
» Norðurbakka 1a í Hafnarfirði
» Austurströnd 3 á Seltjarnarnesi
» Garðatorgi 7 í Garðabæ
» Háholti 23 í Mosfellsbæ
SJÁLFSTÆÐISMENN Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI » WWW.XD.IS
ÁLFTANES » GARÐABÆR » HAFNARFJÖRÐUR » KJÓS » KÓPAVOGUR » MOSFELLSBÆR » SELTJARNARNES
Hlökkum til að sjá þig!
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi eru á ferð og flugi um helgina
og verða viðstaddir eftirfarandi viðburði:
Laugardagurinn 18. apríl
Morgunverðarspjall á Seltjarnarnesi, Austurströnd 3, kl. 10.00
Hádegisverðarspjall í Garðabæ, Garðatorgi 7, kl. 12.00
Kaffispjall í Hafnarfirði, Norðurbakka 1a, kl. 14.00
Kaffispjall á Álftanesi, Haukshúsum, kl. 15.30
Sunnudagurinn 19. apríl
Hádegisverðarspjall í Kópavogi, Dalvegi 18, kl. 12.00
Kaffispjall í Mosfellsbæ, Háholti 23, kl. 14.00
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í vistun á viðeigandi
stofnun og til greiðslu skaðabóta
vegna kynferðisbrots gegn dreng
sem þá var tólf ára.
Stjúpfaðir drengsins leitaði
til félagsmálayfirvalda eftir að
grunur vaknaði um athæfið gegn
drengnum.
Í Barnahúsi sagði drengurinn
að hann hefði farið út að ganga
með hund sem hann átti. Hund-
urinn hefði sloppið frá honum
og maður byrjað að öskra á sig í
framhaldinu. Drengurinn skildi
íslensku ekki vel þar sem hann
hafði verið búsettur erlendis.
Hann kvaðst hafa reynt að biðj-
ast afsökunar og maðurinn þá
róast. Hann bauð drengnum pen-
ing fyrir nammi, sem sá síðar-
nefndi kvaðst ekki hafa kunnað
við að þiggja. Maðurinn spurði
hann þá hvort hann væri ekki til
í að fara út með smá rusl fyrir
sig. Drengurinn samþykkti það
og lokkaði maðurinn hann þá inn
í hús til að sækja það. Þar kom
maðurinn vilja sínum fram við
fórnarlambið.
Maðurinn hefur verið í lækn-
ismeðferð vegna geðsjúkdóms.
Hann var dæmdur til að greiða
drengnum 1,5 milljónir í miska-
bætur og tæpar tvær milljónir í
sakarkostnað. - jss
SELFOSS Héraðsdómur Suðurlands á
Selfossi kvað upp dóminn.
Dæmdur til vistunar á viðeigandi stofnun:
Nauðgaði tólf ára dreng
STJÓRNMÁL Landskjör-
stjórn úrskurðaði á
fundi sínum í gær að
framboðslistar Lýð-
ræðishreyfingarinnar
í Reykjavíkurkjördæm-
um suður og norður
væru gildir. Ástráður
Haraldsson, formaður
landskjörstjórn-
ar, segir niðurstöð-
una hafa komið eftir
miklar umræður kjör-
stjórnarmanna. Lýðræðishreyf-
ingin hafði kært úrskurð yfirkjör-
stjórna Reykjavíkurkjördæmanna,
þar sem framboðslistarnir voru
úrskurðaðir ógildir, til lands-
kjörstjórnar. Lands-
kjörstjórn ógilti þann
úrskurð. Þá krafð-
ist hreyfingin þess að
oddviti yfirkjörstjórn-
ar Reykjavíkur norð-
ur, Erla S. Árnadóttir,
viki sæti. Þeirri kröfu
var hafnað af lands-
kjörstjórn. Í þriðja
lagi var þess krafist
að kjörstjórnarmenn
beggja yfirkjörstjórna
í Reykjavík upplýstu um tengsl sín
við stjórnmálaflokka og útrásar-
fyrirtæki. Þeirri kröfu vísaði
landskjörstjórn frá.
- ss
Landskjörstjórn fundaði vegna L-lista:
Framboðin leyfð
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON