Morgunblaðið - 06.09.2008, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 15
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
JOHN McCain lagði áherslu á að
breyttir og betri tímar væru í nánd
í Washington í ræðu sem hann
flutti á landsfundi repúblikana þeg-
ar hann varð formlega forsetaefni
flokksins í kosningunum í nóvem-
ber.
Í ræðunni lagði McCain allt kapp
á að sannfæra bandaríska kjós-
endur um að gamlir vendir sópuðu
best: þótt hann væri orðinn 72 ára
gamall og hefði setið á Bandaríkja-
þingi í aldarfjórðung væri hann
betur til þess fallinn að hreinsa til í
Washington en Barack Obama,
sem er 47 ára og var kjörinn í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings fyrir
tæpum fjórum árum.
McCain gagnrýndi flokkadrætt-
ina í Washington og umbótasinna í
eigin flokki, sem hann sagði hafa
farið til höfuðborgarinnar til að
knýja fram breytingar en breyst
sjálfir.
„Ég er sagður einfari, maður
sem gengur í takt við eigin trumbu-
slátt,“ sagði McCain. „Stundum er
það meint sem hrós og stundum
ekki. Það sem þetta þýðir í raun er
að ég skil fyrir hvern ég vinn, ég
vinn ekki fyrir flokk, ekki í þágu
sérhagsmuna, ekki fyrir sjálfan
mig – ég vinn fyrir ykkur öll.“
Líktist stjórnarandstæðingi
Í ræðunni leitaðist McCain við
að halda sér í hæfilegri fjarlægð frá
óvinsælli stjórn George W. Bush
Bandaríkjaforseta án þess að
styggja harðasta kjarnann í
Repúblikanaflokknum sem styður
enn forsetann. Á köflum var engu
líkara en McCain hefði verið í
stjórnarandstöðu síðustu átta árin.
Ljóst er þó að hann er í erfiðri
stöðu sem boðberi breytinga í
kosningabaráttunni því hann er
þegar öllu er á botninn hvolft for-
setaefni flokks, sem hefur verið við
völd í Hvíta í tvö kjörtímabil, og
tekur við keflinu af mjög óvinsæl-
um forseta. „Það eina sem Obama
þarf að segja er „Bush-McCain,
Bush-McCain,“ sagði einn af póli-
tískum ráðgjöfum demókrata.
McCain er þó betur til þess fall-
inn en nokkur annar forystumaður
repúblikana að boða breytingar
vegna þess að hann hefur getið sér
orð fyrir að vera sjálfstæður og
ekki eins bundinn á klafa flokksins.
Obama hefur dregið í efa að þetta
orðspor standist því að McCain
hefur tekið afstöðu með meirihluta
repúblikana í nær 90% tilvika í at-
kvæðagreiðslum á þinginu.
Í ræðunni beindi McCain orðum
sínum fyrst og fremst að óháðum
kjósendum og miðjumönnum úr
röðum demókrata, kjósendahópum
sem talið er að ráði úrslitum í kosn-
ingunum í nóvember.
AP
Boðar umbætur John McCain á landsfundi repúblikana þegar hann var formlega tilnefndur forsetaefni flokksins í kosningunum í nóvember.
„Breyting er í vændum“
McCain reynir að sannfæra bandaríska kjósendur um að nýir vendir sópi ekki
alltaf best og hann sé betur til þess fallinn en Obama að knýja fram umbætur
RÆÐA McCains þótti mjög lágstemmd og tilþrifalítil,
jafnvel leiðinleg, í samanburði við háfleygt málskrúð
ræðusnillingsins Baracks Obama á landsfundi demó-
krata í vikunni sem leið.
Ræða McCains var einnig í andstöðu við kröftugt
ávarp sem varaforsetaefni hans, Sarah Palin, flutti á
landsfundi repúblikana í fyrradag. Palin tendraði þá
loga í brjóstum landsfundarmanna með kaldhæðnis-
legri gagnrýni á Obama og álitsgjafa sem telja að hún
hafi ekki næga reynslu til að geta gegnt embætti
varaforseta. Palin er sögð hafa blásið nýju lífi í
Repúblikanaflokkinn og renna stoðum undir þann málflutning McCains
að breytinga sé að vænta í Hvíta húsinu fari þau með sigur af hólmi í
kosningunum. Margir repúblikanar telja það kost að hún hefur aldrei
starfað í Washington og hún yrði fyrsta konan til að gegna embætti
varaforseta í Bandaríkjunum.
Ólík kröftugri ræðu Palin
Sarah Palin
CONDOLEEZZA Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, kom í gær
til Trípolí í Líbýu þar sem hún mun
eiga fund með
Moammar Gadd-
afi, leiðtoga
landsins. Var um
að ræða fyrsta
áfangann í ferð
hennar til ríkja í
Norður-Afríku.
Bandarískur
utanríkisráð-
herra hefur ekki
komið til Líbýu í
hálfa öld. Talið er, að með heimsókn-
inni vilji Rice sýna stjórnvöldum í Ír-
an og Norður-Kóreu, að það sé í
þeirra eigin þágu að semja sátt við
vestræn ríki og fara að dæmi Líb-
ýumanna, sem hafa fallið frá áform-
um um smíði kjarna-, lífefna- og
efnavopna.
Bandaríkjamenn hættu öllum
samskiptum við Líbýustjórn 1981 og
sökuðu hana um að styðja hryðju-
verkastarfsemi. Þótti hún síðan
sanna það sjálf er útsendarar hennar
grönduðu bandarískri þotu yfir
Lockerbie í Skotlandi. svs@mbl.is
Rice til
fundar við
Gaddafi
Óbein skilaboð til
Írans og N-Kóreu
Condoleezza Rice
ÁKÖF neyðaróp frá konu, „hjálp,
hjálp, hjálp“, bárust frá húsi nokkru
í New Jersey í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum dögum og voru nágrann-
arnir þá ekki seinir á sér að kalla á
lögregluna.
Er laganna verði bar að knúðu
þeir dyra en þegar enginn varð til að
opna brutu þeir upp útihurðina.
Þegar inn var komið var þar ekki
sálu að sjá, þ.e.a.s. engan nema páfa-
gauk, sem öskraði í sífellu á hjálp.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
blaðurskjóðan Luna, sem er 10 ára
gömul, kemst í kast við lögin ef svo
má segja. Fyrir sjö árum heyrðist
mikill barnsgrátur í húsinu, tím-
unum saman, og þá var að sjálfsögðu
kallað á fulltrúa barnaverndar-
nefndar.
Eigandinn segir, að úr vöndu sé
að ráða því að Luna tíni upp úr sjón-
varpinu alls kyns hljóð og eigi síðan
til að festast í sumum, sem henni lík-
ar trúlega vel við. svs@mbl.is
Bara bull í
blaðurskjóðu
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
MIKIÐ verður um dýrðir í Svasí-
landi um helgina en þá eiga kóngur-
inn, hann Mswati III, og ríkið sjálft
40 ára afmæli. Talan 40 á raunar
einkar vel við í Svasílandi: Þar er at-
vinnuleysið 40%, 40% fullorðins
fólks eru eyðnismituð og aðeins einn
af hverjum fjórum landsmönnum er
líklegur til að ná 40 ára aldri.
„Upp á hvað erum við að halda?
600.000 manns, 60% landsmanna,
svelta. Við eigum heimsmet í eyðni-
smiti og heilbrigðis- og skólakerfið
eru hrunin til grunna. Af hverju höf-
um við að státa?“
Þannig spyr Philile Mlotshwa,
baráttumaður fyrir bættum hag
eyðnismitaðra, en hann hefur beitt
sér fyrir mótmælum gegn fjáraustr-
inum í afmælishátíðina.
Opinberlega er sagt, að hátíða-
höldin muni kosta um 220 millj. ísl.
kr. en talið er, að þau verði fimmfalt
dýrari. Munu margir afrískir leið-
togar, t.d. Robert Mugabe, forseti
Zimbabwe, koma til landsins og
vegna þess hafa stjórnvöld tekið á
leigu stóran flota af lúxuskerrum.
Mlotshwa og samherjum hans finnst
þó einna blóðugast, að átta af 13 eig-
inkonum konungsins skuli hafa farið
með þotu til Dubai í innkaupaferð.
„Á sama tíma er fólk að deyja úr
hungri og sjúkdómum,“ segir
Mlotshwa en 70% landsmanna, sem
eru ein milljón, eru undir fátæktar-
mörkum. Fimmti hver maður lifir á
því, sem alþjóðlegar hjálparstofn-
anir miðla honum. Frá 1998 hafa lífs-
líkur landsmanna næstum helm-
ingast og eru nú innan við 31 ár.
10.000 berbrjósta stúlkur
Mswati tók við konungdómi af
föður sínum, Sobhuza II, 1986 og
hefur raunar þótt fremur mildur
stjórnandi. Hann hefur hins vegar
ekki aflýst lögum um neyðarástand,
sem faðir hans setti 1973, en sam-
kvæmt þeim er starfsemi stjórnar-
andstöðuflokka bönnuð.
Þótt ástandið sé slæmt er allt með
kyrrum kjörum í Svasílandi og
landsmenn eru hreyknir af menn-
ingu sinni, ekki síst hinum árlega
reyrdansi. Þá dansa 10.000 ber-
brjósta stúlkur fyrir kónginn og hér
áður var hann vanur að velja eina úr
hópnum sem næstu eiginkonu. Það
þótti þó ekki lengur viðeigandi í
þessu eyðnihrjáða landi.
„Upp á hvað erum við að halda?“
Talan 40 verður í sviðsljósinu í hátíðahöldunum í Svasílandi um helgina
AP
Mótmæli Hér segir, að afmælistertan frá Taívan muni kosta 22 m. ísl. kr.
ÞÆR fyrirætlanir norsku ríkis-
stjórnarinnar að draga verulega úr
straumi flóttamanna til Noregs virð-
ast njóta mikils stuðnings meðal
landsmanna.
Í skoðanakönnun, sem birtist í
norskum fjölmiðlum í gær, kemur
fram, að 67% norskra kjósenda eru
hlynnt tillögum stjórnvalda og vilja
draga úr straumi flóttamanna til
landsins. 18% voru þeim andvíg og
14% höfðu ekki gert upp hug sinn.
Harðari afstaða Jens Stoltenbergs
forsætisráðherra og leiðtoga jafnað-
armanna hefur aukið vinsældir hans
og Verkamannaflokksins. Kemur
það fram í könnun um fylgi flokk-
anna en Verkamannaflokkurinn nýt-
ur nú aftur mests fylgis og fær
28,8%. Framfaraflokkurinn, sem
hefur verið efstur á blaði hjá norsk-
um kjósendum um hríð, dalar nokk-
uð og fær 27,9%. Eftir sem áður
fengju borgaraflokkarnir meirihluta
á þingi væri kosið nú. svs@mbl.is
Norðmenn
vilja færri
flóttamenn