Morgunblaðið - 06.09.2008, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er laugardagur 6. september-
, 250. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Þú hefur elskað réttlæti
og hatað ranglæti. Því hefur Guð,
þinn Guð, smurt þig gleðinnar olíu
fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.)
Víkverji telur sig lausan við for-dóma, veit í það minnsta ekki af
eigin fordómum ef einhverjir eru.
Hann kaupir sér hiklaust erlent
grænmeti, þó svo íslenskt standi til
boða, og ræður þá bæði verð og
bragð. Erlent grænmeti er oftast
nær ódýrara en það íslenska, og hví
skyldi Víkverji eyða meiru en þarf í
grænmeti?
x x x
Víkverji hefur orðið var við for-dóma í garð erlends grænmetis.
Hvers á grænmeti að gjalda? Er
grænmeti ekki bara grænmeti, hvort
sem það er frá Spáni eða Íslandi?
Margir virðast óttast erlent græn-
meti, hræddir við að fá af því maga-
pest eða jafnvel matareitrun. Ein-
hverra hluta vegna heldur fólk að
íslenskt grænmeti sé miklu betra en
það erlenda, og rökstyður með því að
það viti þó hvaðan það kemur.
x x x
Víkverji botnar ekkert í þessu.Hvers vegna í ósköpunum ætti
grænmeti frá sólarlöndum að vera
verra en grænmeti frá landi þar sem
aðstæður eru mun verri til rækt-
unar? Hver trúir því að íslenskur
tómatur sé betri á einhvern hátt en
spænskur eða grískur? Hafa þeir
sem óttast erlent grænmeti einhvern
tíma borðað erlent grænmeti? Taka
þeir íslenskt grænmeti með sér til út-
landa?
x x x
Víkverji vill auðvitað styrkja ís-lenska garðyrkjubændur og
snæðir ósjaldan Flúðasveppi. Hann
vildi þó feginn hafa enn betri aðgang
og úrval að erlendu grænmeti, að Ís-
lendingar fengju að kynnast almenni-
lega því gnægtaborði jarðar.
Víkverji fyllist fortíðarþrá þá sjald-
an hann kemst í bragðmikinn, eld-
rauðan tómat, minnist sólríkra ára er
hann ungur nam og starfaði í gós-
enlandi grænmetis og ávaxta við Mið-
jarðarhafið, þar sem ólífuolía drýpur
af hverju strái. Þar sem hollur matur
er hluti af daglegu lífi en ekki rándýr
lúxusvara. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Reykjavík Kristjana Kría
Lovísa fæddist 29. júní. Hún
vó 3.260 g (13 merkur) og var
51 cm löng. Foreldrar hennar
eru Marta Guðrún Jóhann-
esdóttir og Bjarni Þórisson.
Reykjavík Ninna Þórey
fæddist 28. júlí kl. 11.17. Hún
vó 16 merkur og var 53 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Björn Róbert Jensson og
Stefanía Kjartansdóttir.
Reykjavík Áki Valur fæddist
26. apríl. Hann vó rúmar 14
merkur og var 52,5 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru Alma
Jónsdóttir og Ágúst G. Vals-
son.
Keflavík Fjölnir Zóphónías
fæddist 24. júní kl. 15.15.
Hann vó 3.535 g og var 52 cm
langur. Foreldrar hans eru
Þröstur Gylfason og Teresa
B. Björnsdóttir.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 frítíma, 8
gangbraut, 9 nabbar, 10
spil, 11 afhenti, 13 rjóða,
15 dæld,18 trufla, 21 að-
stoð, 22 káta, 23 sívinn-
andi, 24 markmið.
Lóðrétt | 2 rangt, 3 lét,
4 lét sér lynda, 5 dósar, 6
mynni, 7 hafa fyrir satt,
12 hreinn, 14 elska, 15
komma, 16 óhreinkaði,
17 fáni, 18 guð, 19 málm-
inum, 20 smábita.
leifi, 20 ækið, 21 illt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þukla, 4 gegnt, 7 kúgað, 8 féleg, 9 afl, 11 tása,
13 kurr, 14 skæra, 15 þökk, 17 rugl, 20 æði, 22 klökk, 23
lubbi, 24 tapað, 25 tíðni.
Lóðrétt: 1 þykkt, 2 kuggs, 3 arða, 4 gafl, 5 guldu, 6 tog-
ar, 10 frægð, 12 ask, 13 kar,15 þekkt, 16 klöpp, 18 um-
boð, 19
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Bf5
5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3 Rd7 8. h5 Bh7
9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 e6 11. Bd2 Rgf6
12. O–O–O Dc7 13. Re4 O–O–O 14. g3
Rxe4 15. Dxe4 Rf6 16. De2 Hd5 17. c4
Hxh5 18. Bf4 Dd8 19. Hhe1 Bb4 20. Re5
De7 21. Hg1 g5 22. g4 Hh3 23. Df1 Ha3
24. bxa3 Bxa3+ 25. Kc2 gxf4 26. Hd3
Bd6 27. Dc1 h5 28. gxh5 Hxh5 29. Dxf4
c5 30. Hg5 Hxg5 31. Dxg5 cxd4 32. f4
Bc7 33. Hh3 Bd8 34. Hh8 Kc7
Staðan kom upp í keppni milli sveitar
ungra stórmeistara og upprennandi
stórstjarna gegn liði reyndari og stór-
meistara sem lauk fyrir skömmu í
Amsterdam. Ungi hollenski stórmeist-
ari Daniel Stellwagen (2616) hafði hvítt
gegn Rússanum Evgeny Bareev (2655).
35. Rxf7! Dxf7 36. Dc5+ Kd7 37. Dxd4+
Rd5 38. cxd5 exd5 39. Dd3 Bf6 40.
Df5+ Kd6 41. Hh6 Ke7 42. Hh7 Bg7 43.
Dg5+ og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þræðingur.
Norður
♠1065
♥D97
♦1054
♣10532
Vestur Austur
♠743 ♠98
♥ÁG1086543 ♥K2
♦2 ♦DG876
♣6 ♣G987
Suður
♠ÁKDG2
♥--
♦ÁK93
♣ÁKD4
Suður spilar 6♠.
Suðri er mikið gefið, en vandi fylgir
vegsemd hverri. Eftir alkröfuopnun
hindraði vestur með 4♥ og norður
doblaði til að sýna afleit spil (eins kon-
ar afmelding). Vond staða, suður axlaði
ábyrgð með stökki í 6♠. Hjartaás út.
Sagnhafi nýtti sér vel upplýsandi
sagnir og hjálplegt útspil. Hann tromp-
aði ♥Á hátt, tók þrisvar tromp og end-
aði í borði. Innkomuna notaði hann til
að trompa hjarta og fella kóng austurs.
Tveir efstu í laufi sýndu leguna þar og
nú var allt klappað og klárt fyrir loka-
áfangann: að spila tígulníu að heiman.
Austur var upptalinn með 2–2–5–4 og
gat ekki komist hjá því að hleypa blind-
um inn á aðra láglitatíuna.
E.S. Ef vestur reynist eiga stakt
mannspil í tígli verður hann að spila
hjarta á drottninguna og við það
þvingast austur!
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert skarpur og uppfinninga-
samur og þarfnast ekki mikillar leiðsagn-
ar. Þér finnst gaman að leika og vinna þar
sem reglur eru lausar í böndunum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hafðu trú á að gangur mála sé rétt-
ur. Þú ert á góðu róli og líka ef hlutirnir
breytast. Ef þú veist það djúpt í sálu þinni
getur þú tekið skemmtilegar áhættur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sem mikil félagsvera finnst þér
þú bera ábyrgð á því að fólk skemmti sér.
Núna er það allt of þreytandi verk. Sjáðu
frekar til þess að þú skemmtir þér sjálfur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú getur sogað í þig tilfinningar
fólksins í kringum þig eins og svampur.
Þú værir til í að skrúfa fyrir þennan hæfi-
leika í kvöld til að vernda eigin upplifun.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Lokaðu á liðið. Settu símsvarann á
og skildu gemsann eftir heima. Þú þarf
ekki að svara öllu sem heimtar athygli.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hvort sem það er vinna, samningur
eða samband, þá ertu spenntur yfir því.
Ekki sýna ákefðina – vertu svalur. Orðið
„skuldbinding“ má ekki heyrast.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Stundum eru tilfinningar manns nei-
kvæðar. Það þarf ekki að endast lengi.
Reyndu eitthvað nýtt, þegar aðferðir þín-
ar duga ekki til að leysa vandann.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert ákveðinn í að breyta
góðum hlut í mun betri. Það sem þú bjóst
við að tæki langan tíma, gerist mun hrað-
ar. Framfarir eiga sér þegar stað nú þeg-
ar þú lest þetta.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur alltaf verið ofurhress
í viðureign þinni við lífið, og það hefur
hentað þér hingað til. Nú ertu tilbúinn til
að slaka aðeins á. Hvers vegna ekki að
kveikja á kerti?
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Líttu í kringum þig og finndu
eitthvað nýtt til að fíla. Sýndu vænt-
umþykju á nýja vegu og hagnastu á nýjan
hátt. Þú verður mjög ánægður með breyt-
ingarnar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hefur fundið leið til að elska
þá sem hafa gert þér rangt til. Munu þeir
gera það aftur? Þú getur samþykkt og
sýnt samúð en samt sett mörk.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Spennandi fundur með aðila sem
þú lítur upp til er eins og viti í myrkrinu.
Hann vísar þér réttu áttina til að hefja
ferðina í. Þú skalt bregðast strax við.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
6. september 1914
Benedikt G. Waage, síðar for-
seti ÍSÍ, synti fyrstur manna,
svo vitað sé, úr Viðey til lands
á tæpum tveimur tímum.
„Mesta sund er sögur fara af á
Íslandi síðan á Grettisdögum,“
sagði Morgunblaðið.
6. september 1943
Íslandsklukk-
an eftir Hall-
dór Kiljan
Laxness kom
út. Ekkert
verka Hall-
dórs hefur
fengið jafn
góðar viðtökur. Þetta var
fyrsta bók af þremur sem sam-
an eru nefndar Íslandsklukk-
an. Hinar eru Hið ljósa man og
Eldur í Kaupinhafn.
6. september 1952
Iðnsýning var opnuð í Reykja-
vík. Hana sóttu um 73 þúsund
manns eða annar hver Íslend-
ingur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist þá …
Ólafía Guðrún
Ásgeirsdóttir frá
Krossnesi, Norð-
urfirði á Strönd-
um, Kjarrhólma
30, Kópavogi,
sem dvelur nú á
sambýlinu í Gull-
smára 11, Kópa-
vogi, verður ní-
ræð 8. september næstkomandi. Í
tilefni þess tekur hún á móti gest-
um í dag, laugardaginn 6. sept-
ember kl. 15-18, í félagsheimilinu í
Gullsmára 13, Kópavogi. Ólafía
vonast eftir að sem flestir ættingjar
og vinir komi og fagni þessum tíma-
mótum með henni og þiggi kaffi að
hætti Strandamanna. Ólafía af-
þakkar gjafir en söfnunarbaukur
verður á staðnum fyrir þá sem vilja
gleðja hana með því að styrkja við-
gerð á gamla húsinu í Ófeigsfirði.
90 ára
Bræðurnir Gunnar Magnús og
Grétar, kenndir við Hávarsstaði í
Leirársveit, eiga sjötugsafmæli 8.
septermber. Í tilefni þess verður
gestum og gangandi boðið upp á
kaffi og meðlæti á Árbakka, Háv-
arsstöðum, sunnudaginn 7. sept-
ember frá kl. 14 til 19.
70 ára
ELSTI Hafnfirðingurinn fagnar í dag 99 ára af-
mæli sínu og er þannig aðeins einu ári yngri en
heimabærinn. Sigurveig Kristín Sólveig Guð-
mundsdóttir. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Flens-
borg og fullnaðarprófi frá Kvennaskólanum. Árið
1933 lauk hún kennaranámi og kenndi lengi í
barnaskólum bæði í Hafnarfirði og á Patreksfirði.
Sigurveig og eiginmaður hennar, Sæmundur
Jóhannesson, eignuðust sjö börn. Aðspurð segist
Sigurveig ekki hafa tölu á afkomendunum. „Þeir
eru um 50, ég er ekki með það á hreinu, það er
alltaf að koma nýtt og nýtt barn.“ Það er greini-
legt að kennsla og menntun eiga enn hug Sigurveigar allan. Hún
hlustar mikið á hljóðbækur, þá helst „námsbækurnar sem unga fólkið
er að læra í efri skólunum. Ég er t.d. núna með jarðfræðina. Ég vil
vita hvað unga fólkið er að læra.“ Sigurveig hefur einnig kynnt sér
sagnfræði, kirkjusögu og heimspeki en henni finnst sú síðastnefnda
og mannkynsagan einna áhugaverðustu fögin. Þessi mikli áhugi Sig-
urveigar á kennslu varð til þess að 1. janúar 2005 var hún sæmd ridd-
arakrossi fyrir störf í þágu mennta- og uppeldismála.
Sigurveig heldur upp á afmæli sitt í dag með fjölskyldu og vinum í
Haukahúsinu í Hafnarfirði kl. 15 til 17. Hún segist gjarnan vilja halda
upp á stórafmæli svo afkomendurnir haldi hópinn en hluti þeirra býr í
Noregi. „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.“ | ylfa@mbl.is
Sigurveig Guðmundsdóttir 99 ára
Hlustar á jarðfræði
;)
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd,
og nafn foreldra,
á netfangið barn@mbl.is