Morgunblaðið - 18.09.2008, Side 17

Morgunblaðið - 18.09.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 17 MENNING UPPBOÐI á verkum Pietro Psaier sem fara átti fram í London í gær var frestað um viku á meðan upp- boðshaldarinn reyndi að sanna að listamaðurinn hefði verið til. Sagan segir að Psaier hafi fæðst á Ítalíu árið 1936, flutt til Banda- ríkjanna sem ungur maður og kom- ist þar í kynni við Andy Warhol og lagt stund á myndlist undir hans verndarvæng. Seinni hluta ævinnar á hann að hafa sokkið í eitur- lyfjaneyslu og flakkað um heiminn þar til að hann lést í flóði á Srí Lanka árið 2004. Síðustu tólf árin hafa verk hans selst ágætlega, ekki síst vegna tengslanna við Warhol. Verk hans hafa verið boðin upp hjá Christie’s og Sotheby’s, en í gær var það upp- boðshaldarinn John Nicholson sem ætlaði að selja verk eftir hann. Það voru starfsmenn vefsíðunnar war- holstars.org sem hófu þá að rann- saka þennan dularfulla listamann og tókst ekki að finna nokkrar traustar heimildir fyrir því að mað- urinn hefði verið til, hvað þá unnið með Andy Warhol. Tilvist listamanns dregin í efa Hver var Pietro Psaier í raun? Ráðgáta Brot úr verki eftir Psaier. Á LAUGARDAGINN klukkan 17 opnar Kristinn Már Pálmason sýningu í DaLí galleríi á Akureyri. Sýningin nefnist Gæðaplán- etan X og samanstendur af röð sex nýrra málverka. Verkin eru unnin með olíu á þykkan birkikrossvið. Kristinn sækir innblástur í pólitík og merking- arfræði, tímahugtakið og áberandi fortíðardýrkun samtímans. Kristinn útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1994 og lauk meist- aranámi frá The Slade School of Fine Arts árið 1998. Hann á að baki 12 einkasýningar auk þátt- töku í fjölda samsýninga. Myndlist Gæðaplánetan X á Akureyri Eitt verka Kristins. TRÍÓIÐ Túpílakar, sem er þau Margrét Sverrisdóttir leik- kona, Sigurður Ill- ugason málari og Oddur Bjarni Þor- kelsson úr Ljótu hálfvitunum, hélt upp á tíu ára afmæli sitt nýlega með því að gefa út geisladiskinn Túpílakar. Af því tilefni ætla þau að gleðja sig og gesti sína á nýopnuðu Café Rósen- berg á laugardagskvöldið með tónleikum sem hefjast klukkan níu. Tónlist Túpílaka er glaðvær og hafa ýmis lög hljómað í útvarpinu að undanförnu með þeim, þá helst „Brennið þið hálfvitar“. Tónlist Túpílakar fagna tíu ára afmæli Túpílakarnir Sigurður og Oddur. BROT úr ýmsum skáldverkum sem von er á frá Forlaginu hanga nú upp í vögnum Strætó og geta farþegar stytt sér stundir með því að lesa sýn- ishorn af væntanlegu jóla- bókaflóði. Meðal bóka sem koma út á næstu vikum og er hægt að fá forsmekkinn af í strætó, eru Dimmar rósir eftir Ólaf Gunn- arsson, Sjöundi sonurinn eftir Árna Þórarinsson, Ódáðahraun eftir Stefán Mána, Skaparinn eftir Guðrúnu Evu Mín- ervudóttur, Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur og Annarskonar sæla eftir Kristínu Eiríksdóttur. Bókmenntir Skáldverk í strætisvögnum Guðrún Eva Mínervudóttir Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is VIÐ höfum fastan hóp áskrifenda, harðan kjarna sem kemur á tón- leikana ár eftir ár. Það eru um 220 manns, sem eru í fastri áskrift. Einnig seljum við lausa miða við inn- ganginn,“ segir Runólfur Þórðarson, einn stjórnarmanna í Kammermús- íkklúbbnum. 52. starfsár klúbbsins hefst á sunnudagskvöld, klukkan 20.00, en þá leikur hið pólsk- japanska Bellarti-tríó. „Tveir hljóðfæraleikaranna, selló- leikarinn Pawel Panasiuk og píanó- leikarinn Agnieszka Panasiuk, búa og starfa hér á landi. Með þeim leikur japanskur fiðlu- leikari en þau voru öll skólafélagar í London og mynduðu þar þetta tríó. Þau hafa spilað heilmikið saman,“ segir Runólfur. „Það er gaman að bjóða af og til upp á góða erlenda flytjendur en oft- ast er tónlistarfólkið íslenskt.“ Hann segir klúbbfélaga yfirleiit leggja óskir um efnisskrá fyrir flytj- endur. „Hér áður fyrr má segja að við höfum tekið því sem bauðst, en nú er landslagið gjörbreytt. Vissu- lega kemur tónlistarfólkið með ábendingar. Samtal á sér stað og úr því verður efnisskrá. Fyrir nokkrum árum tókum við það upp að flytja alla strengjakvar- tetta Shostakovich. Það hefur tekið nokkuð mörg ár og í vetur flytur Camerarctica þann fjórtánda af fimmtán. Um tíma var verið að flytja alla seinni kvartetta Beethovens. Við höfum einnig reynt að víkka sviðið út. Höfum til dæmis farið út í eldri tónlist. Í vetur verður á einum tónleikunum tónlist eftir J.S. Bach og syni hans. Þá fengum við Kristin Árnason gítarleikara til að setja saman dagskrá, en það er í fyrsta sinn sem gítarleikari ber uppi efnis- skrána hjá okkur. Þessir hefð- bundnu strengjakvartettar eru með í bland.“ „Þetta er hugsjón,“ svarar Run- ólfur þegar hann er spurður að því hvað knýi klúbbfélaga áfram á 52. starfsári Kammermúsíkklúbbsins. „Þetta er sjálfboðavinna og hugsjón. Við erum unnendur og neytendur tónlistarinnar.“ Vetrarstarf Kammermúsíkklúbbsins hefst með tónleikum Bellarti-tríósins Hefðbundnir kvartettar í bland Morgunblaðið/Frikki Tríó Bellarti Agnieszka Panasiuk, Chihiro Inda og Pawel Panasiuk leika á fyrstu tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í vetur. Í HNOTSKURN »Á fyrstu tónleikum Kamm-ermúsíkklúbbsins í vetur leikur Belarti-tríóið verk eftir Arensky, Miki og Beethoven. »Tónleikarnir eru í Bústaða-kirkju og hefjast klukkan 20.00 á sunnudagskvöldið. »Fimm tónleikar eru á dag-skrá vetrarins og boðið upp á fjölbreytilega kammertónlist. ÍRSKI rithöfund- urinn Eoin Colf- er hefur fengið það eftirsókn- arverða verkefni að skrifa sjöttu bókina um Leið- arvísi putta- ferðalangsins um himingeiminn, þ.e. Hitchhiker’s Guide to the Galaxy, og halda þar með áfram starfi Douglas heitins Adams. Colfer segir í samtali við dag- blaðið Guardian að þetta sé líkt því að fá ofurkrafta að eigin vali. Ekkja Adams, Jane Belson, bað um það að Colfer væri fenginn til verksins. Sjötta bókin mun heita And Another Thing…, eða Og eitt enn ... og kemur út í október á næsta ári á vegum Penguin. Aðdáendur bóka Adams munu ef- laust vonast til þess að lesa á ný um hetjurnar sínar, þ.e. Arthur Dent, Trillian og Ford Prefect. Í lok fimmtu bókarinnar, Mostly Harm- less, voru þau reyndar sprengd í loft upp en þar sem heimur Adams er ekki beinlínis raunsær ætti það ekki að koma að sök. Colfer er höfundur barna- og unglingabókanna um Artemis Fowl. Þær munu vera í miklu uppá- haldi hjá Belson og hafa orðið til þess að hún valdi hann til að skrifa sjöttu bókina. Fimmta bókin þykir heldur gleðisnauð og sagði Adams eitt sinn í viðtali að hann myndi lík- lega skrifa sjöttu bókina og þá á heldur glaðlegri nótum. Auk þess væri talan 6 betri en 5. Sjötta bókin á leiðinni Eoin Colfer Í ÁR eru 100 ár liðin frá fæðingu skáldsins Steins Steinars og 75 ár frá andláti annars skálds, Stefáns frá Hvítadal. Af þessu tilefni leit- aði Sögufélag Dalamanna til myndlistarmannsins Jóns Sig- urpálssonar um gerð minnisvarða um skáldin tvö og eitt til viðbótar og ekki síður sögufrægt, sagnarit- arann Sturlu Þórðarson. Öll tengj- ast skáldin Dölunum. Minnisvarð- arnir voru afhjúpaðir að Tjarnarlundi í Saurbæ í Dala- byggð 23. ágúst sl. Frá þeim stað sést heim að þeim þremur bæjum sem skáldin tengjast, heim til þeirra svo að segja. „Þegar leitað var til mín með þetta gerði ég mönnum það ljóst að ég væri ekki portrettmynd- höggvari. Ég fór aðeins að lesa mér til um þá, kafaði nú svo sem ekki mjög djúpt en skynjaði nú fljótt ákveðin karaktereinkenni sem ég reyndi svo að yfirfæra í stál og gler,“ segir Jón um upphaf verkefnisins. Hinn aldni höfðingi Sturla gnæfi yfir hina tvo og Stein hafi hann túlkað sem hornóttan og brothættan. Stefán svolítið innilokaður „Allir hafa þeir þennan sama massa, það er mikið af járni og gleri í þeim öllum. Þetta er allt í kassaformi, formið er kassi eða ferningur og svo fannst mér Stef- án vera svolítið innilokaður,“ segir Jón um minnisvarðana sem eru innbyrðis ólíkir, þó efniviðurinn sé sá sami. Hart stálið mætir tæru glerinu. Spurður að því hvort ekki hafi verið mikill heiður að gera minnisvarða um þessa heið- ursmenn segir Jón vissulega svo vera og samvinnan hafi verið ánægjuleg við Sigurð Þórólfsson í Innri-Fagradal. helgisnaer@mbl.is Skáld í gler og stál Steinn Minnisvarði um Stein Stein- arr í Tjarnarlundi í Saurbæ. Minnisvarðar reistir um Dalaskáldin, Stefán, Sturlu og Stein Í HNOTSKURN » Steinn fæddist 13. október1908 á Laugalandi við Ísa- fjarðardjúp. Hann fór á öðru ári með móður sinni suður í Saurbæ og ólst þar upp, lengst af í Miklagarði. » Stefán fæddist á Hólma-vík 11. október 1887. Hann fór ársgamall í fóstur að Stóra-Fjarðarhorni og þaðan með fósturforeldrum sínum að Hvítadal, þegar hann var 14 ára. 18 ára hleypti hann heim- draganum og dvaldi lítið eftir það á Hvítadal, en var seinna bóndi á Krossi á Skarðsströnd og síðustu 10 ár sín í Bessa- tungu í Saurbæ, d. 1933. » Sturla fæddist 29. júlí1214. Hann átti bú á Stað- arhóli, bjó þar lengstum og fékk þar hinstu hvílu 1284.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.