Morgunblaðið - 18.09.2008, Síða 21
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2008 21
- kemur þér við
Landsvirkjun og land-
eigendur berjast um
afnot af Bjarnarflagi
Fangaklefar fyllast af
hælisleitendum
Hörkukeppni í hand-
boltanum
Trommar til heilsu-
bótar
Stuttmyndagerð í kappi
við tímann
Margrét Rós komin
heim á RÚV
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Það var á laugardegi fyrir skömmu.
„Gerist ekki betra,“ sagði maður sem
ég hitti. Hann var staddur í rútu með
hóp á vegum fyrirtækisins, leiðin lá
um Drottningarbraut. Fólkið hafði
ekki augun af Pollinum, þar sem and-
arnefjurnar búa, og ekki eyrun af út-
varpstækinu því Íslendingar voru að
keppa við Norðmenn í Osló. „Hvað
heldurðu að hafi gerst? Um leið og
Eiður Smári jafnaði og útvarpsmað-
urinn öskraði, stukku báðar and-
arnefjurnar tignarlega upp úr sjón-
um beint fyrir framan bílinn. Þetta
var fullkomið. Verður aldrei toppað!“
Gamla knattspyrnukempan, Hlynur
Birgisson, lagði skóna á hilluna um
síðustu helgi, fertugur að aldri og
saddur. Þegar Birgir, sjö ára sonur
Hlyns, spurði pabba sinn hvort það
væri rétt sem krakkarnir hefðu sagt í
skólanum að hann væri að hætta að
keppa og svarið var játandi, spurði sá
stutti: Af hverju, vill þjálfarinn ekki
leyfa þér að vera með lengur?
Bigga finnst eflaust svo gaman í
fótbolta að menn eigi aldrei að hætta.
Fallegt tafl, mikill hagleiksgripur,
barst nýlega Iðnaðarsafninu að gjöf.
Það var Eggert Stefánsson sem smíð-
aði taflið og var um 38 dagsverk skv.
upplýsingum á heimasíðu safnsins.
Það er smíðað úr kopar og eir. Egg-
ert lærði vélvirkjun og rennismíði í
Vélsmiðjunni Mars á Akureyri og
varð síðan framkvæmdastjóri Vel-
smiðjunnar Atla hér í bænum langt
árabil. Gefendur taflsins eru börn
Eggerts þau Pétur, Eggert, Ingi-
björg, Sveinn, Brynja og Ásta.
Listasafnið á Akureyri er 15 ára um
þessar mundir eins og greint hefur
verið frá hér í blaðinu. Af því tilefni
lét Hannes safnstjóri útbúa hálfgert
Víetnam-minnismerki, fjögurra
metra hátt, og kom fyrir í anddyrinu.
Þar má sjá nöfn allra þeirra 700 lista-
manna sem hafa átt verk á safninu.
„Það má segja að þetta sé listi yfir
fallna og særða listamenn,“ sagði
Hannes við mig um daginn.
Annars er það helst að frétta að and-
arnefjunum okkar, sem fjölgaði um
tvær á dögunum, fækkaði hugsanlega
um eina í fyrrakvöld. Hún er talin
hafa fest sig í bauju og síðan horfið
með öllu, því einungis þrjár sáust við í
gær. Ég verð að játa á mig þá synd að
kíkja ekki á staðinn – var eitthvað ut-
an við mig – en ég treysti heimasíðu
bæjarins.
Skrifari á heimasíðunni segir getum
leitt að því að fjórða andarnefjan hafi
farið sér að voða, e.t.v. drukknað „en
vonandi birtist hún aftur fljótlega
sprækari en nokkru sinni fyrr.“
Fjörið hefst í kvöld á ný á hand-
boltavöllum landsins. Heimaleikir
Akureyrar verða í Íþróttahöllinni í
vetur, en salur Hallarinnar var í sum-
ar lagður parketgólfi. Vert er að
benda músíkölskum handbolta-
áhugamönnum á að mæta snemma í
kvöld, vegna þess að Háskólabandið,
hljómsveit starfsmanna HA, spilar í
anddyrinu fyrir leik!
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hve margar? Þær stökkva stundum fallega, andarnefjurnar á Pollinum.
Nú velta menn fyrir sér hvort þær eru enn fjórar eða ein hafi drukknað.
Bónus
Gildir 18. - 21. sepember verð nú verð
áður
mælie. verð
Frosnar ísl. kjúklingabringur ........ 1.498 1.698 1.498 kr. kg
Holta kjúklingabringur Piri piri ..... 1.679 2.239 1.679 kr. kg
Frosnar nautalundir ................... 2.998 3.598 2.998 kr. kg
Ferskt ísl. nautahakk .................. 798 898 798 kr. kg
Ferskt ísl. nautagúllas ................ 1.498 1.698 1.498 kr. kg
Ferskt ísl. nautasnitsel ............... 1.498 1.698 1.498 kr. kg
Ali ferskur svínabógur ................. 498 598 498 kr. kg
Ali ferskt svínagúllas .................. 1.127 1.692 1.127 kr. kg
Ali ferskt svínasnitsel ................. 1.127 1.692 1.127 kr. kg
Ali ferskt svínahakk .................... 530 747 530 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 18. - 20. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambalæri af nýslátruðu ............. 1.289 0 1.289 kr. kg
Lambahryggur af nýslátruðu........ 1495 0 1.495 kr. kg
Blandað súpukjöt kjötborð.......... 598 698 598 kr. kg
Lambalifur kjötborð.................... 198 298 198 kr. kg
Lambahjörtu kjötborð................. 198 498 198 kr. kg
Lambanýru kjötborð ................... 125 225 125 kr. kg
Hamborgarar, 2x115g................ 298 376 298 kr. pk.
Matfugl ferskur kjúklingur, 1/1.... 559 899 559 kr. kg
Nýjar íslenskar kartöflur.............. 119 198 119 kr. kg
Nýjar íslenskar gulrætur.............. 189 298 189 kr. kg
Krónan
Gildir 18. - 21. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambaskrokkur 1/1................... 769 849 769 kr. kg
Bautabúrs bjúgu ........................ 399 589 399 kr. kg
Lambalifur ................................ 229 329 229 kr. kg
Lambahjörtu ............................. 229 467 229 kr. kg
Lambanýru................................ 99 198 99 kr. kg
Móa kjúklingur ferskur, 1/1 ........ 498 899 498 kr. kg
Opal seafood reyktur lax, ............ 1 2 1 kr. kg
Efstibær kartöflur net, 2,5 kg ...... 247 419 247 kr. kg
Soccerade cold blue/orange ...... 99 159 99 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 18. - 24. september verð nú verð
áður
mælie. verð
7up, 7up Free, 2 ltr.................... 149 219 75 kr. ltr
Aunt Mabel muffins, 100 g ......... 139 159 1.390 kr. kg
Nóa Siríus 70%, 100 g............... 169 209 1.690 kr. kg
Nóa Siríus 56%, 100 g............... 169 209 1.690 kr. kg
Capri Sonne Safari, 5x200 ml..... 225 279 45 kr. stk.
Champion rúsínur, 500 g............ 169 255 338 kr. kg
Granini gulrótarsafi, 500 ml........ 215 265 430 kr. ltr
Ultje hunangsrist. hnetur, 150 g.. 219 285 1.460 kr. kg
Pekanhnetu- og karam.st., 45 g .. 139 179 3.089 kr. kg
Ora tómatsósa, 680 g................ 159 189 234 kr. kg
Lambakjöt af nýslátruðu
úr bæjarlífinu
KONUR fá frekar martraðir en
karlar og draumar þeirra eru
einnig tilfinningaþrungnari. Í ný-
legri rannsókn sem greint var frá
á vefmiðli BBC kom í ljós að 30%
kvenna, en aðeins 19% karla, úr
170 manna hópi sem tók þátt í
rannsókninni, fengu martraðir.
Aðrar rannsóknir hafa sýnt að al-
gengara sé hjá konum en körlum
að svefn þeirra raskist eða rofni.
Ein ástæða þess er talin geta verið
hitabreyting sú sem verður í lík-
ama kvenna vegna tíðahringsins.
Dr. Jennifer Parker, lektor í sál-
fræði við University of the West of
England, segir að lengi hafi verið
vitað að þegar konur eru á því
tímabili í tíðahringnum þar sem
fyrirtíðaspenna kemur fram, séu
draumfarir þeirra meiri.
Þær konur sem tóku þátt í rann-
sókninni voru einnig líklegri en
karlarnir til að dreyma drama-
tíska og áfallatengda drauma, eins
og til dæmis ástvinamissi. Virtust
þær frekar hafa tilhneigingu til að
taka óútkljáð tilfinningamál með
sér inn í draumalandið.
Dr. Chris Idzikowski, yfirmaður
hjá Svefnrannsóknarstofnun í Ed-
inborg, segist ekki hissa á því að
þessi kynjamunur hafi komið í ljós,
en aftur á móti sé erfiðara að
mæla hvort konur fá frekar mar-
traðir en karlar – eða hvort ástæð-
an sé sú að þær muni drauma sína
e.t.v. betur en karlar. „Þetta kem-
ur heim og saman við það sem
stendur í bókunum, að konur glími
frekar við truflun á svefni sem og
svefnleysi, heldur en karlar. Það
eitt að vakna oftar á nóttunni get-
ur orðið til þess að konur muna
drauma sína betur. En einnig get-
ur truflaður svefn stuðlað að
slæmum draumförum.“ Hann bæt-
ir við að sennilega séu martraðir
mun algengari hjá fólki almennt
en það gerir sér grein fyrir. Flest-
ir gleymi þeim hins vegar bara
strax.
Ólíkar
draumfarir
kynjanna
Martraðakennt Fáir óska þess að
mæta slíkri skepnu í svefni.