Morgunblaðið - 18.09.2008, Side 36

Morgunblaðið - 18.09.2008, Side 36
Hér er allt hrátt, og andi brugghússins svífur enn yfir vötnum … 39 » reykjavíkreykjavík LEIKSTJÓRINN Ragnar Braga- son, sem stýrði Dagvaktinni líkt og Næturvaktinni, segist ekki geta metið hvort nýja þáttaröðin sé fyndnari en sú fyrri, þar sem fyndni sé afstæð, en hún sé í það minnsta dramatískari og harmrænni. „Um leið held ég að það sé fyndn- ara, alla vega finnst mér þetta fyndnara,“ segir Ragnar um hand- ritið. „Það sem hefur e.t.v. breyst frá Næturvaktinni er að það er meiri söguþráður í gangi yfir heildina. Meðan Næturvaktin var kannski að díla við hversdaginn, leiðindi hvers- dagsins þá er Dagvaktin miklu meira ferðalag, svona grískur harm- leikur. Grunnsöguþráðurinn varð til um leið og við gerðum Næturvakt- ina, þegar við vorum að vinna í því handriti, þannig að þetta er alveg í beinu framhaldi, það eru engin stökk í stíl eða neinu slíku. Við erum alveg trúir bæði forminu og persónunum.“ Endastöð Er uppgjör í þáttunum? „Já, þetta er hugsað sem enda- stöð, við erum ekki að fara að gera þriðju seríuna. Eins og ég segi, þetta er grískur harmleikur og miklu ep- ískara en Næturvaktin var.“ Ragnar segir þáttaraðirnar báðar spretta að miklu leyti upp úr þeirri vinnuaðferð sem hann hafi beitt mik- ið í leikstjórn seinustu ár, að leyfa leikurunum að móta sínar persónur og skrifa handritið í spunaferli. Hann fari ekki hina hefðbundnu leið í handritsskrifum eða æfingum eftir niðurnegldu handriti. „Þetta er búið til í spuna með leikurum, bæði aðal- leikurum og öðrum sem koma að.“ Ragnar segir þessa aðferð skila sér í þrívíðari persónum sem séu ekki staðlaðar, ekki stereótýpur. „Persónulega finnst mér þetta alltaf bæta við ákveðinni vídd og dýpt, þegar þessari vinnuaðferð er beitt.“ Ragnar segir enn verið að ganga frá þáttaröðinni, eftirvinnsluferlið sé u.þ.b. hálfnað og ljúki væntanlega í október. Hvað við tekur hjá honum segir hann óvíst, hann geti vel hugs- að sér að taka því rólega í vetur eftir miklar annir undanfarin ár. helgisnaer@mbl.is Grískur harmleikur Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir Gamandrama Ragnar Bragason leikstjóri skoðar tökur á Dagvaktinni í sumar. Hann segir kómík að finna í aukinni dramatík. Tryggð er haldið við form og persónur í Dagvaktinni  Íslenska kvik- myndin Astrópía verður í kvöld sýnd á kvik- myndahátíðinni Fantastic Fest sem hefst í Austin í Texas í dag. Hátíð- in sem er eins- konar nördahátíð er haldin árlega í þessu lista-mekka suðursins en Aust- in er einnig fræg fyrir tónlistarhá- tíðina South by Southwest sem þar fer fram í mars ár hvert. Eftir því sem næst verður komist verður Astrópía sýnd tvisvar á há- tíðinni í The Alamo Drafthouse Cin- ema en kvikmyndahúsið var valið besta kvikmyndahús Bandaríkjanna af Entertainment Weekly. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins fara handritshöfundarnir Ottó Geir Borg og Ævar Grímsson út með myndinni ásamt leikstjóranum Gunnari B. Guðmundssyni og fram- leiðandanum Ingvari Þórðarsyni. Sýningin mun að hluta vera styrkt af leikjaframleiðandanum með dónalega nafnið, Gamecock. Til stóð að Ragnhildur Steinunn færi með til Austin en hún sá sér að lokum ekki fært að mæta sökum anna uppi í Sjónvarpi en þar und- irbýr hún nýjan spjallþátt sem öll þjóðin býður í ofvæni eftir. Astrópía sýnd í kvöld í Austin í Texas  Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins mun Arnaldur Indriða- son vera á loka- sprettinum með tólftu spennu- sögu sína sem von er á í bókabúðir innan fárra vikna. Myrká mun vera heiti bókarinnar og hefst hún á morði á ungum manni í Reykjavík. Að þessu sinni er það hins vegar ekki Erlendur sem stendur að rannsókn málsins, heldur Elínborg aðstoðarkona hans. Sigurður Óli, samstarfs- maður þeirra kemur þá einnig við sögu, sem og matargerð þó það sé ekki útskýrt nánar. Myrkraverk í Myrká Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is PÉTUR Jóhann Sigfússon sló í gegn í vetur sem einfeldningurinn Ólafur Ragnar í þáttunum Næturvaktin. Aðdáendur þáttanna bíða ábyggilega með óþreyju eftir framhaldi þáttanna, Dagvaktinni, en fyrsti þátturinn verð- ur sýndur nú á sunnudaginn. Pétur vinnur þessa dagana að gerð einleiks með Sigurjóni Kjartanssyni og er sú vinna vel á veg komin. Einleikurinn verður frumsýndur á næsta ári í Borgarleikhúsinu. „Ég er bara búinn að ganga með þessa hugmynd í maganum í mörg, mörg ár, frá því ég byrjaði í standöppi eiginlega, 1999, hefur langað að vera með mína eigin sýningu,“ segir Pétur um einleikinn. Hugmyndina hafi þó alltaf vantað. En hver er hugmyndin? „Ég myndi segja að þetta væri, eins og nafnið gefur til kynna, sannleik- urinn. Sýningin heitir Sannleikurinn og þar liggur í rauninni það sem hún er um. Þú kemur til með að vera skrefi nær sannleikanum ef þú ferð á þessa sýningu. Sannleikanum um lífið og tilveruna …“ Það er ekkert annað! „Nei, nei, það er ekkert annað, kall- inn minn.“ Er þetta sannleikurinn frá a til ö? „Sannleikurinn myndi ég segja að væri bara, jú, um lífið og tilveruna, af hverju við erum hérna, hver er til- gangur lífsins. Þetta er þessi spurn- ing sem hefur leitað á mannkynið frá því við munum eftir okkur. Ég er náttúrlega með lykilinn, skilurðu, ég veit sannleikann. Ég ákvað að vera með sýningu frekar en að fara með þetta í Ísland í bítið.“ Söngvarinn Pétur Jóhann Pétur segist brjóta þessar alvar- legu vangaveltur upp í sýningunni með frumsömdum tónlistaratriðum, sex eða sjö. Þess vegna sé einleik- urinn í sex eða sjö hlutum. Hann ætli að taka lagið í fyrsta sinn á leiksviði. „Þannig að þetta verður bara alls- herjarrugl, sko, þannig …“ útskýrir Pétur. „Heldurðu að þetta verði ekki spennandi?“ spyr hann svo blaða- mann. Jú, mjög spennandi, svarar blaðamaður. „Ég heyri á þér að þú hlakkar meira til að sjá þetta en Dag- vaktina …“ bætir Pétur við hlæjandi og talið berst að sjónvarpsþáttunum, einkum hinum óborgan-lega Ólafi Ragnari. Hefur Ólafur Ragnar þroskast eitt- hvað? „Nei. Hann er búinn að ná fullum þroska, enda orðinn 36 ára gamall.“ Maður þroskast ekkert upp úr því, sem sagt? „Nei, ég vil meina það með mann- fólkið yfirhöfuð. Þú nærð bara ein- hverjum þroska og svo bara stend- urðu í stað. Svo eldistu … en inni í þér ertu alltaf sami vitleysingurinn.“ Spurður að því hvaðan persóna Ólafs Ragnars sé fengin segir Pétur fyrir- myndirnar einkum fólk sem hann kynntist þegar hann vann í útvarpi. „Þeim finnst þetta voða gaman,“ seg- ir Pétur um viðbrögð þessara fyr- irmynda. Hann segir handritið að Dagvaktinni betra en handritið að Næturvaktinni. Jafnfyndið, ef ekki fyndnara. Og það er sko fyndið. Alltaf sami vitleysingurinn  Pétur Jóhann ætlar að syngja og segja sannleikann í einleik í Borgarleikhúsinu  Einfeldningurinn Ólafur Ragnar hefur náð fullum þroska, enda 36 ára Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir Búðarlokan Ólafur Ragnar afgreiðir ekki bensín lengur og er á dagvakt. Úr Dagvaktinni Georg: Hefurðu ekkert lært um al- menna umgengni og mannasiði? Ólafur Ragnar: Hvað gerði ég? Georg: Hvað er þetta? Ólafur Ragnar: Klósett? Georg: ÞVAGDROPAR! Ólafur Ragnar: Ég var ekkert að pissa hérna. Georg: Náðu í klósettpappír og þrífðu þetta. Ólafur Ragnar: Ok... Georg: Gerðu þetta almennilega. Ekki dreifa þessu út um allt. Og framvegis Ólafur, þegar þú kastar af þér þvagi, þá gerir þú það sitjandi. Um þvaglát

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.