Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
!" #
$
% %
# % &
' (
)
$ # % % '
+
$
,
'
* # &
, '% #
% * ---* * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
VERIÐ er að ljúka við hleðslu á sökkli Ziemsen-
hússins í Kvosinni og verður það sett á sökkulinn
innan tveggja vikna. Unnið er jafnframt að við-
gerð á húsinu sjálfu þar sem það er geymt úti á
Granda. Er því reiknað með að húsið komi full-
klætt að utan á sinn stað í Kvosina. Stefnt er að
því að framkvæmdinni í heild sinni ljúki í maí
eða júní á næsta ári en sótt var um leyfi til að
endurbyggja húsið og innrétta það sem versl-
unar-, veitinga- og skrifstofuhús.
Um átta manns vinna um þessar mundir að
verkefninu. orsi@mbl.is
Sökkull Ziemsenhússins senn tilbúinn
Morgunblaðið/G.Rúnar
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HUGMYNDIR eru uppi um að flytja fimleikadeild og
karatedeild Fylkis í Árbæ í fyrrverandi húsnæði Mest á
Norðlingabraut 12. Kjartan Magnússon, formaður
stjórnar íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar,
segir ýmsa kosti til skoðunar og þetta sé einn þeirra.
„Þetta er góð hugmynd og við skoðum hana betur en það
hefur ekkert verið ákveðið.“ Hann bendir jafnframt á að
skoðuð hafi verið önnur hús undir starfsemina og ekki sé
búið að útiloka að reisa fimleikahús.
Guðrún Ósk Jakobsdóttir, formaður fimleikadeildar
Fylkis, segir núverandi aðstöðu skelfilega. „Við erum að
slást við handboltann um sal og erum oft aðeins með hálf-
an sal. Til að mynda erum við með um 120 börn í hálfum
sal á þriðjudögum og fimmtudögum.“ Félagið getur því
ekki tekið við fleiri börnum, ekki frekar en önnur fim-
leikafélög á höfuðborgarsvæðinu.
Guðrún segir eina ókost Mest-hússins að það sé ekki
nægilega breitt og aðstaða fyrir áhorfendur yrði því slæ-
leg. Örn Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Fylkis, bendir
á að farið verði yfir málin með arkitekt hússins eftir
helgina og þá komi betur í ljós hvernig starfsemi íþrótta-
félags fellur að húsnæðinu. „Við þurfum að skoða hvort
þetta húsnæði, sem hannað er sem byggingavöruverslun,
geti hentað sem íþróttahús. Það er ekki nákvæmlega eins
í laginu og sá salur sem við vorum búin að sjá fyrir okkur
og því þarf að skoða hvort hægt sé að koma starfsemi
fimleikadeildar og karatedeildar þarna fyrir.“
Breytist byggingavöru-
verslun í fimleikahús?
Eitt sinn Mest Steypustöðin Mest opnaði bygginga-
vöruverslun sína í Norðlingaholti í mars á sl. ári.
SEGLBÍLAKAPPARNIR Jón Ólaf-
ur Magnússon og Sigmundur Sæ-
mundsson óku bíl sínum seglum
þöndum frá Reykjavík til Hafnar í
Hornafirði í gær til styrktar lands-
söfnun Mænuskaðastofnunar Ís-
lands sem náði hámarki í gær. Ferð
þeirra ökuþóra sóttist vel og náðu
þeir til Hafnar kl. 20 í gær, eftir 16
tíma ferð.
Suðvestanrok og rigning og
logn undir Eyjafjöllunum
Bílar af þessu tagi nefnast upp á
ensku Blocart og lentu bílstjórarnir í
ýmsum veðrum. „Við lentum í suð-
vestanroki og rigningu en undir
Eyjafjöllunum var logn,“ segir Jón
Ólafur. „Við náðum allt að 70 km
hraða og tókst að hagnýta okkur
vindinn.“
Hugmyndin að bíltúrnum kvikn-
aði fyrir tveimur árum en varð að
veruleika þegar landssöfnuninni var
hleypt af stokkunum. „Okkur fannst
alveg tilvalið að hjálpa til við söfn-
unina. Það var því slegið til,“ segir
Jón Ólafur.
Mænuskaðastofnun Íslands var
stofnuð 11. desember á síðasta ári og
er markmið stofnunarinnar að stuðla
að því með öllum tiltækum ráðum að
lækning á mænuskaða verði að veru-
leika. orsi@mbl.is
Óku segl-
bílnum
til Hafnar
70 km hámarkshraði
Ljósmynd/Jónas Erlendsson
Kappar Jón Ó. Magnússon og
Sigmundur Sæmundsson.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
SJÁLFVIRKAR mælingar Vega-
gerðarinnar sýna að dregið hefur úr
umferðarhraða á vegum landsins á
undanförnum árum. Þeir sem best
til þekkja segja að ástæðurnar séu
fyrst og fremst tvær. Í fyrsta lagi
stórhækkun sekta fyrir of hraðan
akstur og í öðru lagi stórhækkun á
eldsneytisverði.
Aka inn í segulsvið
Vegagerðin er með sjálfvirkar
mælingar á þjóðvegunum víða um
land. Á meðfylgjandi töflu má sjá
meðalhraðann á þremur stöðum á
landinu, á Reykjanesbraut, á Hellis-
heiði og í Langadal í Austur-
Húnavatnssýslu. Á öllum þessum
stöðum hefur dregið úr hraðanum ár
frá ári. Á Reykjanesbraut hefur
meðalhraðinn minnkað um 3,5%, um
3,2% á Hellisheiði og um 3,9% í
Langadal.
Mælingarnar fara þannig fram að
hver bíll fyrir sig er mældur. Bílarn-
ir aka inn í segulsvið og tækjabún-
aðurinn mælir hvenær þeir fara inn í
sviðið og út úr því. Með þessum
hætti er hægt að reikna úr með-
alhraðann.
Þegar gögn Vegagerðarinnar eru
skoðuð má greinilega sjá að með-
alhraðinn er yfirleitt minni eftir því
sem umferðin er þyngri.
Gögnin bera það einnig með sér að
dregið hefur umtalsvert úr umferð
milli ára. Þannig fóru rúmlega 403
þúsund bílar um Reykjanesbrautina
í ágúst í fyrra en rúmlega 384 þús-
und bílar fóru um Reykjanesbraut í
núliðnum ágúst. Í ágúst í fyrra óku
rúmlega 49 þúsund bílar um Langa-
dal en rúmlega 44 þúsund bílar óku
þarna um í ágúst á þessu ári.
Kreppir að bensínfætinum
! "
#
$"
$%
$&
$
$
! % ' "
( )
Ástæður fyrir minni meðalhraða sagðar
hækkun sekta og hærra eldsneytisverð