Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 45
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Síðustu ár hefur Spánn blómstrað semmikil miðstöð hönnunar af öllum toga, oghreykja Spánverjar sér raunar við hverttækifæri af því hvernig hönnuðum
þeirra hefur tekist að raka inn verðlaunum og
viðurkenningum síðustu ár.
Þegar afraksturinn af nýlokinni tískuviku í
Madríd er skoðaður sést að það er innistæða fyr-
ir grobbinu, og raunar mesta furða að nöfn
þeirra hönnuða sem sýnt hafa sköpunarverk
sín skuli ekki vera orðin íslenskum heims-
borgurum jafntöm og nöfn margra þeirra
sem sýnt hafa flíkur í Mílanó, London og
New York á árinu.
Spænskur þokki
Á heildina litið voru flíkurnar sem
voru til sýnis í Madríd klæðilegar og
hefðbundinn þokki ráðandi. Spænsku
hönnuðirnir virðast ekki vera sér-
staklega hrifnir af „fríkí“ fatnaði og
„abstrakt“ sniðum, þó vissulega
hafi stöku óvenjuleg flík læðst
með og vitaskuld hafi ekki skort á
hugmyndaauðgina í þeim tilbrigðum
sem gerð voru við hefðbundin þemu.
Áberandi er líka að spænskir hönnuðir
virðast ekki sérstaklega hrifnir af því að hafa
konur í buxum. Pils í ýmsum lengdum og útfærslum voru
ráðandi, en varla ein einasta buxnaskálm sjáanleg á spíg-
sporunarpöllunum.
Á stöku stað gætti örlítið hippalegra tóna sem birtust
bæði í formi sterkra og líflegra lita og blómabarnalegum
höfuðklútum og hárgreiðslum, en hefðbundinn smekkur
og um leið kröftugur sumartónn ráðandi.
Það er ljóst að sýningin í Madríd gefur tískumeðvit-
uðum Íslendingum tilefni til að fylgjast vel með því sem
kemur frá Spáni næstu misserin.
Svo er bara að bíða og vona að gengi krónu og evru
verði ekki sérstaklega óhagstætt þegar flíkurnar koma í
verslanir.
Amaya Arzuaga
Alma Aguilar
Elio
Berhanyer
Juana Martin
Francis Montesinos
Kröftugir straumar
Ana Locking Angel Schlesser
Sumartískan 2009 sýnd á
Cibeles Madrid Fashion Week
R
eu
te
rs
Vanessa Soria Lima
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 45
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Föstudagur 26. september kl. 19.30
Eldur og ís - tónleikar utan raða
Íslensk efnisskrá sem verður einnig flutt í tónleikaferð
hljómsveitarinnar til Japan í október. Einstakt tækifæri til
að hlýða á nokkur áheyrilegustu tónverk íslenskrar
tónlistarsögu.
Stjórnandi: Petri Sakari
Einleikarar: Ari Þór Vilhjálmsson og Hallfríður Ólafsdóttir
Jón Leifs: Þrjú óhlutræn málverk
Jórunn Viðar: Eldur
Hafliði Hallgrímsson: Poemi
Þorkell Sigurbjörnsson: Columbine
Áskell Másson: Rún
Atli Heimir Sveinsson: Icerapp 2000
■ Laugardagur 27. september kl. 17.00
Bandarískt brass - kristaltónleikar í
Þjóðmenningarhúsinu
Málmblásarasveit hljómsveitarinnar hefur leikinn í
kammertónleikaröðinni Kristalnum með alkunnum
glæsibrag.
■ Fimmtudagur 2. október kl. 19.30
Í austurvegi
■ Föstudagur 3. október kl. 21.00
Heyrðu mig nú - Gamelan
STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
UPPSELT
ÖRFÁ SÆTI LA
US
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER KL. 17
TÖFRAR Í TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR
INESSA GALANTE OG JÓNAS INGIMUNDARSON
Tónleikar í samstarfi við BM VALLÁ, SKIPTI OG SAMTÖK IÐNAÐARINS
SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER kl. 20:30
HÁTÍÐARTÓNLEIKAR:
ATLI HEIMIR SVEINSSON SJÖTUGUR
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER kl. 20
KINKI – SKEMMTIKRAFTUR AÐ SUNNAN
KERTALJÓSAKONSERT
TÓNLIST OG TExTI BENÓNÍ ÆGISSON
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER KL. 17
TÖFRAR Í TÍBRÁ: KLARINETTUTÓNLEIKAR
EINAR JÓHANNESSON OG MARTIN BERKOFSKY
Tónleikar í samstarfi við BM VALLÁ, SKIPTI OG SAMTÖK IÐNAÐARINS
EKVADOR – SUÐUR – AMERÍSK MENNINGARHÁTÍÐ Í
KÓPAVOGI 4. – 11. OKTÓBER 2008
MIÐASALA Á SÝNINGAR JACCHIGUA-HÓPSINS
HEFST MÁNUDAGINN 22. SEPTEMBER KL. 10
Gömludansarnir
Gömludansanámskeið
hefjast mánudaginn 22 sept . kl. 20.00
Upplýsingar í síma 587 1616
Þjóðdansafélag Reykjavíkur Álfabakka 14a