Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 23
Morgunblaðið/Anna Sigríður Einarsdóttir Gourmet Gr. Kambans gøtu 13, Tórshavn Sími: 298 322525 netfang: gourmet@post.olivant.fo vefsíða: www.gourmet.fo sykur 15 belgbaunir rjómi púrrulaukur kaldpressuð repjuolía Kartöfluravíólíið er búið til með því að kartöflurnar eru skornar í þunnar hringlaga sneiðar, t.d. með trufflu- járni. Sneiðunum er þá dýft í sjóðandi vatn í ca. fjórar sekúndur og því næst í kalt vatn. Vatnið er síðan þerrað af þeim og örsmár skammtur af harð- fiski og skötusel lagður á miðju hverrar skífu. Brúnirnar er þá pensl- aðar með eggjarauðu öðrum megin og hinn hluti skífunar því næst beygður varlega yfir svo úr verði hálfmáni. Kartöfluskífurnar eru síðan geymdar í olíu-ediklegi þar til á að nota þær. Sveppirnir eru steiktir í olíu og smjöri. Þeir eru síðan kryddaðir eftir smekk og 3 msk. balsamikediki og ½ msk. sykri bætt saman við. Sveppina má laga nokkrum dögum fyrir notkun. Því næst er sósan búin til. Smá skammtur af harðfiski er látinn liggja í hálfum lítra af kjúklingaseyði yfir nótt. Soðið með hálfum púrrulauk og 1½ stórri kartöflu, þar til kartöflurn- ar eru við það að verða soðnar. 2½ dl af rjóma er þá bætt saman við og látið malla smástund. Blandað saman í matvinnsluvél og smakkað til með salti og pipar og e.t.v. örlitlu af harð- fiski. Sveppirnir og sósan eru hituð upp hvort í sínum pottinum. Hörpuskelin er því næst sett í sjóðandi vatn, raví- ólíinu bætt í pottinn einni mínútu síð- ar og baunirnar loks settar í pottinn einni mínútu eftir það. Látið sjóða í hálfa mínútu áður en þetta er sett á disk ásamt sósunni og sveppunum og borið fram. Það fer vel um farþegana á skonn-ortunni Norðlýsið þar sem húnvaggar letilega á leið sinni milli Þórshafnar og Nólsoy. Við stýrið er skip- stjórinn Birgir Enni og jú, eftir því sem einn samferðamanna minna tjáir mér þá er hann frændi tónlistarmannsins Brands Enni. Ég veit ekki hvort Birgir býr yfir sömu tónlistarhæfileikum og frændi hans, en honum er engu að síður margt til lista lagt. Auk skipstjórahlutverksins er Birgir nefnilega listakokkur sem í ofanálag kaf- ar sjálfur eftir sumu því hráefni sem hann býður gestum á Norðlýsinu upp á. Þennan dag býður Birgir upp á kræk- ling, öðuskel og risakrabba og klærnar eru raunar svo stórar að íslensku gest- irnir reka upp stór augu. Maturinn renn- ur ljúflega niður og skyldi engan undra, því Birgir hefur getið sér gott orð víða um heim, m.a. í Japan, fyrir meðferð sína á sjávarfangi. Og það er ekki amalegt að gæða sér á slíkum krásum á sólríkum haustdegi á sjó. Birgir Enni Vílar ekki fyrir sér að vera kokkur, kapteinn og kafari.Hnossgæti Beint úr sjónum. Vaggandi veisla tómstundir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 23 Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Ertu tannlæknir, verð-bréfamiðlari, kennari eðapípulagningamaður enhefur alltaf gengið með leikara í maganum? Það er aldrei of seint að láta drauminn rætast, ef marka má Ólöfu Sverrisdóttur leik- konu sem heldur nú í annað skipti leiklistarnámskeið fyrir „fullorðna“ ásamt leikkonunum Ástu Sighvats Ólafsdóttur og Þóreyju Sigþórs- dóttur. „Ég hef svo oft heyrt í fólki sem langar í leiklist en er kannski yfir þrí- tugt svo það hefur ekki mikil tækifæri til þess,“ segir hún. „Í fyrra datt mér því í hug að setja upp leiklistar- námskeið fyrir fullorðna, þ.e. 16 ára og eldri, og það fylltist eins og skot.“ Ólöfu finnst ekki erfitt að fá fólk til að sleppa fram af sér beislinu. „Það er yfirleitt enginn vandi því þegar fólk er komið af stað lætur það bara gossa. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað fólk nýtur sín og finnst þetta gaman.“ Hún segist hafa á tilfinningunni að það vanti stað fyrir fólk til að fá útrás fyrir ýmiskonar sköpun sem allir hafi í sér. „Maður er með þessa hæfileika frá barnæsku en mótast svo af uppeld- inu og reglum þjóðfélagsins. Í raun- inni er maður alltaf að keppast við að haga sér eins og á að gera en þegar fólk fær tækifæri geta flestir látið vaða. Það tekur kannski mislangan tíma en yfirleitt er fólk til í hvað sem er í lok námskeiðsins.“ Frá 16 upp í 60 Og það er fjölbreyttur hópur fólks sem sækir í að daðra við leiklistar- gyðjuna. „Það kemur úr öllum starfsstéttum. Í fyrra voru til að mynda hjá okkur bankastarfsmenn, viðskiptafræðingar og íslenskufræðingur. Þeir sem voru í yngri kantinum voru kannski meiri listatýpur og þannig voru nokkrir ungir dansarar og ungt fólk sem var að sækja um leiklistarskóla á nám- skeiðinu í fyrra. En almennt er þetta alls konar fólk.“ Leiklistin spyr heldur ekki að aldri, ef marka má Ólöfu. „Aldursbilið var frá 16 og upp í 60 í fyrra og það virkaði mjög vel. Stundum þegar maður er að kenna unglingahópum vill verða svo- lítið agaleysi en þarna stilltu ungling- arnir sig inn á að hlusta og fylgjast vel með eins og fullorðna fólkið svo það varð meira úr tímunum fyrir vikið.“ Morgunblaðið/G.Rúnar Við kennslu Leiklistarnámskeið Ólafar fyrir fullorðna fá góðar viðtökur. Allir með einhverja sköpun í sér

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.