Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 21 fjárfestingastarfsemi. Það á að vera eitt fyrsta verk okkar á þingi að samþykkja lög um að- greiningu á viðskiptastarfsemi bankanna ann- ars vegar og fjármálastarfsemi þeirra hins veg- ar, eins og ég hef lagt til frá árinu 2003.“ Hugsunarháttur græðginnar Nú er þjóðin að upplifa mikla efnahagserf- iðleika en var ekki alltaf ljóst að verið væri að fara of geyst? „Ekki var öllum það ljóst. Þeir sem haldið hafa um stjórnartaumana á undanförnum árum sáu ekki hvað framundan var og því miður hafa fjölmiðlar um of manað upp ranghugmyndir með því að mæra fjárfestingar spekúlanta út í hið óendanlega. Það var talað af geysilegri lotn- ingu um útrásarvíkingana sem voru að kaupa og yfirtaka stórfyrirtæki víðs vegar um heim- inn á lántökum. Núna þegar aðgengi að lánum á heimsmarkaði er ekki það sama og áður var þá blasir við að spilaborgin getur hrunið. Við höldum niðri í okkur andanum í von um að svo verði ekki. Ég orðaði einhvern tíma þá hugsun að ef ég stæði frammi fyrir því að senda annaðhvort þotuliðið úr landi eða íslenska jafnaðarmanna- samfélagið þá myndi ég frekar vilja að þotu- mannskapurinn hefði sig á brott. Þá fékk ég það til baka að ég vildi alla bankastarfsemi úr landi. Það er af og frá. Ég vildi úr landi þann hugsunarhátt græðginnar sem leitt hefur til geigvænlegrar misskiptingar í samfélaginu. Ég er fylgismaður þess að við rekum hér öfluga, trausta og góða viðskiptabanka og er alls ekki andvígur því að til séu fjárfestingasjóðir. En ég vil hafa skýr greinarmörk þarna á milli. Eins og stendur eru íslensku bankarnir að lang- stærstum hluta fjárfestingarsjóðir, sem róa líf- róður. Þeir geta ekki sinnt viðskiptabanka- hlutverki sínu og soga til sín allan gjaldeyri til að standa skil á eigin skuldum. Staðan í banka- og gjaldeyrismálum er svo myrk í augnablik- inu, þokan mikil, sögusagnirnar margar. Það þarf að rannsaka gjaldeyrisviðskiptin þegar í stað. Íslenskir fjármálamenn þurfa að fá tæki- færi til að afsanna þann áburð að þeir séu að vinna að veikingu krónunnar. “ NATÓ aldrei hættulegra Verða Vinstri-grænir ekki að viðurkenna að það sé gott mál að vera í NATÓ og varn- arsamstarf sé nauðsynlegt? „Ég held að NATÓ hafi aldrei verið hættu- legri félagsskapur en einmitt núna. Ég byggi það á því að NATÓ hefur breyst í eðli sínu. Í varnarsáttmála NATÓ segir að árás á eitt ríki jafngildi árás á annað. NATÓ hefur þróast frá þessu fyrirkomulagi yfir í allt aðra hugsun. Í stað þess að sagt sé að árás á eitt ríki sé árás á öll er sagt að ógnun við eitt ríki sé ógnun við þau öll. Samhliða þessu er talað um fyrir- byggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir ógn og síðan árás. Þessara fyrirbyggjandi aðgerða megi grípa til hvar sem er á jarðkringlunni. Þá spyr ég: Hverjum er líklegast til að verða ógn- að í heiminum nú um stundir? Gæti það verið sá aðili sem ásælist hráefni, olíu og auðlindir ann- arra ríkja? Ætli stórveldin séu ekki þar fremst í flokki. Formúlan er orðin sú að við eigum allt okkar undir því hver stýrir för í Bandaríkj- unum og því hversu árásargjarn og yfirgang- samur hann er í heiminum. Ef honum er ógnað þá er okkur líka ógnað og við tökum þátt í öllum þeim fyrirbyggjandi aðgerðum og í kjölfarið árásarstríðum sem honum þóknast að grípa til. Þá spyr ég: Er þetta líklegasta leiðin til að gæta varnarhagsmuna Íslands? Ég held ekki. Ég held að það sé til önnur leið sem er miklu vænlegri og hún er sú að fylgja réttlátum mál- stað.“ Það eru deildar meiningar um Evrópusam- bandið hjá Vinstri grænum en fer ekki svo að stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar muni hafa sigur í því máli? „Ég skal ekki um það segja hver þessi þróun verður. Verkstjórarnir í efnahagsmálum á und- angengnum tveimur áratugum, og þá horfi ég til Sjálfstæðisflokksins, hafa sett hér allt á hvolf í efnahagslífinu. Menn leita leiða til að end- urreisa samfélag okkar og efnahagslíf og líta til Evrópusambandsins sem töfralausnar sem öllu eigi að bjarga. Við getum aldrei og eigum ekki að reyna að flýja okkur sjálf. Vandinn er að uppistöðu til hér innanlands. Hér á landi eru allar aðstæður til að reka mjög kröftugt sam- félag. Við höfum farið út af brautinni með óhófi og ekki sést fyrir í allri þessari einka- og mark- aðsvæðingu og með því að gefa græðginni og þotuliðinu lausan tauninn. Að þessu eigum við að beina sjónum okkar. Við megum heldur ekki gleyma því að innan Evrópusambandsins, eins og reyndar víða um heim, er fólk að glíma við gríðarleg vandamál. Umræðan um evruna er allt of einfölduð enda þjónar slíkt tilteknum valdahagsmunum. Tökum dæmi. Hérlendis hefur hingað til verið sátt um að það sé for- gangsverkefni að halda fullri atvinnu. Á evru- svæðinu má segja að atvinnuleysi sé nánast notað sem hagstjórnartæki. Þar er langtum meira atvinnuleysi en hér. Viljum við slíkt?“ Dómgreindarleysi í stóriðjustefnu Þú ert virkjanaandstæðingur. Hvað viltu gera til að efla efnahagslífið ef ekki á að virkja? „Virkjanir eru ekki skynsamleg lausn í efna- hagslegu tilliti. Staðreyndin er sú að virðisauk- inn af álframleiðslu í eigu erlendra auðhringa er miklu minni en af nánast allri annarri at- vinnustarfsemi. Varnaðarorð okkar í Vinstri- grænum voru á þann veg að ef geysilegum fjár- munum yrði hent í stóriðju skapaðist þensla sem myndi þrýsta vaxtastiginu upp og þar með ryðja annarri atvinnustarfsemi út. Þetta er allt að ganga eftir. Það hafa verið að birtast mjög athyglisverðar greinar, í Morgunblaðinu til dæmis, þar sem menn vara við að haldið sé áfram á þessari braut. Ragnar Önundarson, Þröstur Ólafsson og Jónas Haralz hafa meðal annarra skrifað á þennan veg. Fjölmargir sem eru ekki endilega á sömu pólitísku línunni sjá dómgreindarleysið í áframhaldandi stór- iðjustefnu.“ Ertu alfarið á móti virkjunum eða skiptir máli til hvers er virkjað? „Við eigum að draga andann djúpt og ekki ráðast í frekari virkjanir fyrr en sátt hefur náðst um náttúruvernd og rammaáætlun um nýtingu orkunnar. Slíkt þarf tíma, yfirlegu og vönduð vinnubrögð. Orkuauðlindir okkar verða bara dýrmætari með árunum, náttúru- gersemar sömuleiðis. Við eigum ekki að ana áfram út í fenið og verðum að gæta okkur á því að gerast ekki of frek gagnvart öðrum kyn- slóðum. Hér er verið að virkja og festa orkuna áratugi fram í tímann og það nánast eingöngu í álframleiðslu. Það er ekki skynsamlegt.“ Þjórsá heldur með okkur Þú ert formaður BSRB. Það hefur verið gagnrýnt að BSRB hafi boðið sérfræðingum í heilbrigðismálum hingað til lands, sérfræð- ingum sem sagðir eru vinstri sinnaðir og sam- mála Vinstri-grænum. „Mér finnst uggvænlegur sá ofsi sem rís vegna gesta sem hafa komið í boði okkar í BSRB til að upplýsa um reynslu annarra. Menn leyfa sér að gera lítið úr þeim, jafnvel sverta mannorð þeirra og gera þeim upp skoð- anir í stað þess að mæta þeim með rökum. Hjá BSRB erum við að gera nákvæmlega það sama og verkalýðshreyfingin í heiminum öllum sem lætur sig samfélagið varða, framtíð þess, skipulag og hvort við höfum velferðarkerfi sem er skynsamlega fjármagnað eða kerfi sem er ávísun á mismunun í samfélaginu.“ Það er stundum talað um stjórnmálamenn eins og þeir tilheyri spilltri stétt. Hvernig eiga þingmenn að losa sig undan slíkum stimpli? „Það sem mér finnst skipta mestu máli er að upplýsingar um fjármálatengsl, hagsmuna- tengsl og pólítísk tengsl séu uppi á borðinu. Það er besta vörnin. Þegar við horfum nú upp á markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins þá þurf- um við að vita hver tengslin eru út á markaðinn og inn í þingið, inn í borgarstjórn, inn í bæj- arstjórnirnar. Þetta á allt að liggja uppi á borði. Ég hvet fjölmiðla til að knýja þá stjórn- málaflokka sem þráast við til að opinbera öll sín tengsl og fylgja því eftir með kortlagninu. Stærstu hætturnar felast í upplýsingaleynd – í þögninni. Í skjóli leyndar þróast spilling. Síðan er náttúrlega hitt að stjórnmálamenn mega aldrei falla í þá gryfju að nota aðstöðu sína til að hygla sjálfum sér. Þannig eru eftirlaunalög- in svartur blettur sem verður að þvo af Al- þingi“ Eiga Vinstri grænir erindi í ríkisstjórn? Er- uð þið ekki bara stjórnarandstöðuflokkur sem getur haldið í prinsipp í stjórnarandstöðu en yrði að víkja frá þeim í ríkisstjórn? „Ég held að það sé rangt að stilla þessu svona upp. Hverjir hafa verið hinir ábyrgu að- ilar í efnahagsmálum, í fjármálum ríkisins og skattamálum? Það erum við. Við höfum fylgt mjög ábyrgri stefnu og höfum aldrei verið með yfirboð. Varðandi umhverfismál þá held ég að flestir myndu skrifa upp á það að stefna okkar er ábyrg og yfirveguð. Ég er auk þess sann- færður um að Þjórsá heldur með okkur og hefði ekkert á móti því að við færum í rík- isstjórn.“ En er ekki nokkuð þreytandi til lengdar að vera í stjórnarandstöðu? „Það er þreytandi að horfa upp á vanhugs- aðar hugmyndir keyrðar í gegn með offorsi. Mér finnst hins vegar ekki erfitt að lúta tíma- bundið í lægra haldi. Ég er vanur því að eiga við fólk og virði leikreglur lýðræðisins. Ef ég verð undir eftir átök og upplýsta umræðu þá verð ég að taka því. Ég held áfram og gefst ekki upp. Mér finnst hins vegar óþolandi þegar upplýst umræða fær aldrei að eiga sér stað. Það gerist iðulega þegar við trúmenn markaðs- hyggjunnar er að glíma. Þeir horfa fjarrænum augum út í loftið og segja: Þetta er best komið í höndum markaðarins. Hvort heldur er að baða gamla konu, taka við slösuðum manni á bráða- vakt, reka kaffihús eða róa til fiskjar. Sumt á heima á markaði og sumt ekki. En það er ekki hægt að tala við ofsatrúarfólk. Það horfir framhjá manni og endurtekur trúarjátninguna. Ef maður meðtekur ekki fagnaðarerindið þá er maður vantrúaður. Á móti öllu. Stalínisti. Í svona ástandi er erfitt að halda uppi upplýstri umræðu. Þegar menn eru komnir í þrot þá eru uppnefnin ein eftir. Reductio ad Stalinum, myndi það kallast á latínu, að trompa með Stal- ín héti það á íslensku. Ég er fyrst og fremst í þessari pólitísku bar- áttu vegna þess að ég get ekki annað. Ég yrði alveg óþolandi ef ég yrði settur í pólitískt bind- indi. Ef einhver stendur í þeirri trú að ég vilji kyrrstöðu þá er það misskilningur. Ég vil kraft og líf á öllum sviðum þjóðlífsins, endurnýjun og nýsköpun. Ég er fylgjandi margbreytileik- anum og vara við einsleitninni. Með einkavæð- ingu og markaðsvæðingu er því miður verið að keyra okkur inn í slíkan farveg. Gildismat okk- ar verður að vera byggt á heilbrigðum og sann- gjörnum grunni til frambúðar. Jöfnuði og jafn- rétti má aldrei aftur fórna á altari græðgi, spákaupmennsku og auðkýfingadýrkunar.“ æðgi Morgunblaðið/Kristinn » Mér finnst hins vegar óþolandi þegar upplýst umræða fær aldrei aðeiga sér stað. Það gerist iðulega þegar við trúmenn markaðshyggj-unnar er að glíma. Þeir horfa fjarrænum augum út í loftið og segja: Þetta er best komið í höndum markaðarins. Hvort heldur er að baða gamla konu, taka við slösuðum manni á bráðavakt, reka kaffihús eða róa til fiskjar. Sumt á heima á markaði og sumt ekki. En það er ekki hægt að tala við ofsa- trúarfólk. Það horfir framhjá manni og endurtekur trúarjátninguna. Ef mað- ur meðtekur ekki fagnaðarerindið þá er maður vantrúaður. Á móti öllu. Stal- ínisti. Í svona ástandi er erfitt að halda uppi upplýstri umræðu. » „Við erum vel menntuð,eigum gríðarlegar auðlindir. En við höfum verið að fara afturábak undanfarin ár vegna þess að vírus frjáls- hyggjunnar hefur hreiðrað svo rækilega um sig. Þeir sem ráða eru hættir að trúa á heilbrigða skynsemi, hættir að trúa á skapandi atvinnu- rekstur. Nú er það bara braskið sem blívur.“ » „Það kom mér á óvarthversu mjög það fór fyrir brjóstið á sumum að sjá Guðlaug Þór skeytt saman við Sarkozy Frakklandsforseta á góðri stundu suður í Líbýu. Þarna var að sjálfsögðu um að ræða pólitískt skop. Menn sem ég met mikils í Sjálfstæðisflokknum hafa komið til mín og beðist afsökunar á húmorsleysi í sínum flokki.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.