Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er laugardagur 20. september, 264. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. (1Pt. 1, 6.) Víkverji hitti á dögunum fyrrumskólasystur sína við heldur óvenjulegar aðstæður. Kona þessi er vel menntuð og hæfileikarík og hef- ur gegnt skapandi og eftirsóknar- verðum störfum. Þegar Víkverji hitti hana var hún við störf en starfið slíkt að Víkverji myndi aldrei taka það að sér, of vandur er hann að virðingu sinni. Starf sem engrar menntunar krefst, hæfileika eða hugsunar. Víkverji ræddi um daginn og veginn við þessa gömlu skólasyst- ur, en forðaðist að spyrja hana út í hið nýja starf. Þegar heim kom sagði Vikverji sínum betri helmingi frá þessum óvenjulega fundi og kom þá ágætis skýring og líkleg. Konan var líklega í þegnskylduvinnu, hafði sjálfsagt hlotið dóm og þurfti að taka hann út í hinu hrútleiðinlega starfi. Víkverji er þó ekki laus við að skammast við þennan hugsunarhátt. Þegar hann var yngri, á mennta- skólaaldri, gegndi hann ýmsum störfum ekki ósvipuðum og hug- leiddi þá aldrei hvort þau væru virðuleg eða ekki. Þau voru líka betri en núverandi starf Víkverja að því leyti að þau kröfðust hreyfingar og reyndu oft mjög á skrokkinn. Þessi hugsunarháttur, að ákveðin störf séu fyrir neðan virðingu ákveðins fólks, er auðvitað fáránlegur. x x x Eitthvað lærist af hverju starfi ogþað er deginum ljósara að margar skrifstofublókir hefðu gott af því að dýfa hendi í kalt vatn, míga í saltan sjó, moka skurð eða flytja pí- anó. Fjölbreytt starfsreynsla hlýtur að gagnast mönnum, líkt og fjöl- breytt lífsreynsla almennt. Ekki svo að skilja að forstjóri fyrirtækis sinnti sínu starfi betur fengi hann að vinna á lager eða skúra gólf. En hann myndi ábyggilega eiga auð- veldara með að setja sig í spor undir- manna sinna. Kannski varð gamla skólasystirin einfaldlega atvinnulaus og tók því starfi sem gafst, fjárþurfi og ekki mátt vera að því að bíða vik- um eða mánuðum saman eftir svör- um við atvinnuumsóknum. Ekkert að því. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 duglaus mað- ur, 8 fugl, 9 óframfærnir menn, 10 raklendi, 11 kremja, 13 fífl, 15 lífs, 18 lúin, 21 ætt, 22 bál, 23 fiskar, 24 hryssingslegt. Lóðrétt | 2 gangfletir, 3 garma, 4 haf, 5 land, 6 hæðum, 7 vex, 12 hestur, 14 andi, 15 ágeng, 16 bárur, 17 rusl, 18 mat- arsamtíningur, 19 heið- arleg, 20 dauft ljós. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kólga, 4 flæsa, 7 impra, 8 úðinn, 9 lýk, 11 aðan, 13 stór, 14 áliti, 15 gnoð, 17 flas, 20 ógn, 22 Regin, 23 orkan, 24 aurar, 25 paufa. Lóðrétt: 1 keipa, 2 loppa, 3 aðal, 4 fjúk, 5 æsist, 6 agnar, 10 ýfing, 12 náð, 13 Sif, 15 gúrka, 16 orgar, 18 lukku, 19 senda, 20 ónar, 21 norp. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 Rc6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 g6 6. Rc2 Bg7 7. e4 O–O 8. Be2 d6 9. O–O b6 10. Be3 Bb7 11. Dd2 Hc8 12. b3 He8 13. Had1 Dc7 14. f4 Db8 15. Bf3 Da8 16. Rd5 Rb8 17. Bd4 Rbd7 18. Ba1 e6 19. Rxf6+ Rxf6 20. e5 dxe5 21. Bxb7 Dxb7 22. fxe5 Re4 23. Df4 Hed8 24. Re3 h5 25. Df3 Rc5 26. Hxd8+ Hxd8 27. Dxb7 Rxb7 28. Hd1 Hxd1+ 29. Rxd1 Rc5 30. Rf2 g5 31. Bd4 Rd7 32. Rd3 Kh7 33. b4 Rb8 34. b5 Rd7 35. a4 Kg6 36. a5 Kf5 37. a6 Ke4 Staðan kom upp í landsliðsflokki Skák- þings Íslands sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Guðmundur Kjartansson (2328) hafði hvítt gegn Róberti Lager- man (2354). 38. c5! bxc5 svartur hefði einnig haft tapað tafl eftir 38… Kxd4 39. c6 Rxe5 40. c7. 39. Rxc5+ Rxc5 40. Bxc5 og svartur gafst upp enda óumflýjanlegt að hvítur komi öðru hvoru peði sínu á drottningarvæng upp í borð. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Þreföld merking. Norður ♠7653 ♥-- ♦ÁKG63 ♣K976 Vestur Austur ♠Á9 ♠D1084 ♥DG1097 ♥ÁK85432 ♦10974 ♦82 ♣D10 ♣-- Suður ♠KG2 ♥6 ♦D6 ♣ÁG85432 Suður spilar 4♠. Hver sögn hefur þrjár merkingar, skrifaði Eddie Kantar eitt sinn í frægri grein. Fyrst er að telja hvað sögnin þýðir samkvæmt kerfinu, í öðru lagi hvernig sögnin er meint og loks hvern- ig hún er skilin. Í fullkomnum heimi fara þessar þrjár merkingar saman, segir Kantar, en eins og allir vita þá er bridsheimurinn ekki fullkominn. Ragn- ar Magnússon og Páll Valdimarsson eru enn að ræða um kerfisbundnu merkinguna, en þeir voru ekki sam- mála um hinar tvær við borðið í spili dagsins, sem er frá úrslitaleik bik- arkeppninnar. Páll vakti í suður á Precison 2♣ og Ragnar stökk í 3♥ á móti – meint sem “splinter“, skilið sem litur. Páll sagði 3G og allir pass. Hjarta út og vörnin tók átta fyrstu slagina, en hinum megin fórnuðu AV í 6♥ yfir laufslemmunni sem stendur í NS. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er mikil vinna að vera heillandi og skemmtilegur á öllum mannamótum. Þú þarft að kunna að brydda upp á samræðum. Hvernig væri að ræða stjörnumerkin? (20. apríl - 20. maí)  Naut Þig langar helst til að jarða sam- band - koma því undir græna torfu að ei- lífu. Reyndu að standast þá freistingu. Kannski er egóið að tala, ekki hjartað. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Vanalega viltu leyfa fólki að vera í friði með sín mál. En sumir þurfa greini- lega á afskiptum þínum að halda. Réttu hjálparhönd og drífðu þig svo í burtu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Eftir fundarhöld, samræður og íhugun veistu enn ekki hvert næsta skref ætti að vera. Það er góð vísbending um að þú eigir ekki að gera neitt. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Eyddu tíma í að líta geðveikt vel út. Útlitið skiptir miklu máli, ekki af því að öðrum er ekki sama, heldur líður þér best þegar þú ert ánægður með sjálfan þig. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ástin kemur við sögu. Ekki bæla tilfinningarnar til að koma í veg fyrir hjartasár. Þú gætir misst af miklu. Ef þú vilt ekki virka of æstur, skaltu fela þær. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ert líklegur til að ganga út á ystu nöf. Þótt þú sért tilfinngaríkur í dag, skaltu ekki leyfa þeim að taka yfirhöndina - þú róast niður seinna. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Heimurinn á svar við skörp- um húmor þínum. Útpældur húmor bætir einkalífð og vinnuna. Ný sambönd hefjast á því að þú kemur fólki til að hlæja. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert til í að lenda í ævintýr- um, eins og vanalega. Allt fer vel ef þú spilar af fingrum fram. Samt myndu 20 mínútur af skipulagningu ekki spilla fyrir. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert sagnfræðingurinn í hópnum: sá sem man áríðandi smáatriði sem aðrir virðast gleyma. Sumt sem þú manst kemur sér mjög vel. Deildu öllu sem þú veist. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú treystir innsæi þínu. Stund- um er þó erfitt að greina muninn á innra hjali yfir hugsunum og rödd innsæisins. Æfðu þig með andlegri íhugun. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert eins og kúrekahetjan sem bjargar rænda póstvagninum. Þú bjargar deginum. Með þig við stjórn slakar fólk á og öll verkefni ganga upp. Stjörnuspá Holiday Mathis 20. september 1900 Ofsaveður olli slysum og tjóni á skipum og húsum. Meira en þrjátíu manns fórust, þar af drukknuðu átján menn á Arn- arfirði. Kirkjurnar á Urðum og Upsum í Svarfaðardal fuku og brotnuðu í spón. 20. september 1917 Bæjarstjórn Rekjavíkur sam- þykkti að leigja Eimskipa- félagi Íslands til 90 ára lóð „á uppfyllingunni“ við Hafnar- stræti. Þar voru höfuðstöðvar félagsins í marga áratugi. 20. september 1963 Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti að leyfa kvöldsölu gegnum lúgu í söluturnum til kl. 22. Afgreiðslutími var gef- inn frjáls rúmum aldarfjórð- ungi síðar. 20. september 1979 Flóttamenn frá Víetnam, alls 34, komu til landsins. Þetta var þá stærsti flóttamanna- hópur sem hingað hafði kom- ið. 20. september 1995 Ný brú yfir Jökulsá á Dal var formlega tekin í notkun. Hún er 125 metra löng og er hærra yfir vatnsborði en nokkur önn- ur brú, um 40 metra. Eldri brú var frá 1931. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Edna Sólbrún Falkvard verður sjötug 22. sept- ember mæstkom- andi. Í tilefni þess tekur hún á móti gestum á heimili dóttur sinnar, Vest- urfold 15 í Graf- arvogi, á morgun, laugardaginn 20. september frá kl. 17 til 20. 70 ára „ÉG ætla að fara út úr bænum og hafa það gott með fjölskyldu minni í sumarbústað,“ segir grín- istinn, söngvarinn og þáttagerðarmaðurinn Sig- urjón Kjartansson sem í dag fagnar fertugsafmæli sínu. Aðspurður segir hann einna eftirminnileg- asta afmælisdaginn vera þegar hann varð 11 ára. „Þá leystist afmælisveislan upp í slagsmál. Það var mjög skemmtileg afsmælisveisla fannst strákun- um. Þeir nauðuðu í mér í skólanum marga daga á eftir að endurtaka afmælisveisluna því það var svo gaman að geta slegist.“ Sigurjón hefur haft í nógu að snúast að skrifa og framleiða sjónvarpsþætti sem ýmist fara fljótlega í sýningu eða verða teknir upp fljótlega. Má þar helst nefna Ástríði, spennuþættina Svarta engla sem fara í sýningu annað kvöld og byggjast á bókum Ævars Arnar Jósepssonar og loks réttardramað Rétt. Sigurjón hefur einnig tekið að sér það vandasama verk að skrifa áramótaskaupið ásamt Hjálmari Hjálmarssyni. „Það er mjög spenn- andi verkefni,“ segir Sigurjón. „Það er mikið „brainstormað“ um þessar mundir. Þetta á eftir að verða asskoti gott enda valinn maður í hverju rúmi. Ég get ábyrgst að þetta áramótaskaup verður með nýju sniði.“ Þegar blaðamaður rifjar upp Nýársbombu Fóstbræðra fyrir næstum tíu árum segir Sigurjón: „Það var okkar áramótaskaup en nú fær maður tækifæri til að búa til alvöru áramótaskaup.“ | ylfa@mbl.is Sigurjón Kjartansson fertugur Veislu lauk með slagsmálum Frumstig Miðstig Efstastig Lausn síðustu Sudoku. 9 5 2 1 8 6 3 8 1 6 2 9 5 3 7 6 8 7 3 2 4 3 7 8 1 6 1 5 7 8 3 4 1 3 9 5 Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Sudoku 5 9 8 3 4 4 7 1 7 9 6 3 5 2 9 8 9 4 7 4 8 6 1 8 3 1 1 5 9 9 6 7 5 8 8 1 6 9 5 9 2 8 7 8 1 4 1 8 6 8 2 2 3 4 3 6 8 1 6 5 9 8 9 1 6 7 1 3 6 8 2 7 5 9 4 7 9 8 5 4 1 2 6 3 4 2 5 3 6 9 1 8 7 2 4 1 6 3 8 7 5 9 6 8 7 4 9 5 3 2 1 3 5 9 7 1 2 6 4 8 5 1 3 9 8 6 4 7 2 9 6 2 1 7 4 8 3 5 8 7 4 2 5 3 9 1 6 3 9 6 2 4 1 7 5 8 8 2 7 5 6 9 4 1 3 1 5 4 8 3 7 2 6 9 5 4 2 6 1 8 3 9 7 9 8 1 7 5 3 6 2 4 7 6 3 4 9 2 5 8 1 2 1 5 9 7 4 8 3 6 6 7 9 3 8 5 1 4 2 4 3 8 1 2 6 9 7 5 5 6 2 4 9 3 7 8 1 7 1 9 6 5 8 4 2 3 4 3 8 2 7 1 9 6 5 8 9 7 1 3 5 6 4 2 3 2 5 7 6 4 8 1 9 1 4 6 9 8 2 5 3 7 6 5 3 8 2 9 1 7 4 9 7 1 3 4 6 2 5 8 2 8 4 5 1 7 3 9 6 ;) Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn foreldra, á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.