Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 42
Þetta er nákvæmlega myndin sem myndi slá í gegn ef hún fengi almennilega kynningu … 43 » reykjavíkreykjavík KVIKMYNDHÁTÍÐ í Reykjavík verður sett með pomp og prakt á fimmtudaginn, og er dagskrá hátíð- arinnar fjölbreytt að vanda. Einn af skemmtilegri liðum hátíðarinnar verður haldinn strax á sunnudaginn, en þá verður efnt til bílabíós. Í tilkynningu frá hátíðinni segir að menn þurfi ekki fimm háskólapróf til að koma á bílabíó, bara bílpróf (eða keyrandi vin) og miða. Í bílabíóinu býðst hátíðargestum að berja augum nýja og eldri klassík, en næturlíf Reykjavíkur og dagvinna á landsbyggðinni sameinast á hvíta tjaldinu fyrir utan Kringluna. Sýndir verða gullmolar í íslenskri kvikmynda- og þáttagerð, þar á með- al er frumsýning á einum eft- irvæntasta sjónvarpsþætti Íslands á seinni tímum. Annar þáttur Dagvaktarinnar verður frumsýndur samhliða sýn- ingum í sjónvarpinu og hin ódauð- lega klassík Sódóma Reykjavík snýr aftur á hvíta tjaldið í kjölfarið. Sódómu þarf vart að kynna fyrir ís- lenskum kvikmyndaáhugamönnum, en þar er á ferðinni óborganleg gam- anmynd Óskars Jónassonar frá árinu 1992. Myndin segir frá ótrúlegum ævintýrum Axels sem ferðast vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið í leit að sjónvarpsfjarstýringu móður sinnar. Með aðalhlutverkin fara Björn Jör- undur Friðbjörnsson, Sigurjón Kjartansson, Helgi Björnsson, Egg- ert Þorleifsson og Sóley Elíasdóttir. Bílabíóið fer fram á annarri hæð Kringlubílastæðisins. Verður þá öllu hljóði sýningarinnar útvarpað á tíðninni 91.9 svo allir kvikmynda- unnendur geti komið sér vel fyrir í bílum sínum, kveikt á græjunum og notið krásarinnar. Herlegheitin hefjast kl. 20 og miðaverð er 1.000 kr. á bíl. Sódóma Reykjavík sýnd í bílabíói Í Hafnarfirði Einhverjir skemmtilegustu karakterarnir í Sódómu eru smá- krimmar sem falsa peninga og brugga landa í heimahúsi í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á riff.is.  Ein ástsælasta gamanmynd þjóðarinnar sýnd fyrir utan Kringluna  Annar þáttur Dagvaktarinnar einnig sýndur  Hljómsveitin Sigur Rós er nú á leið til Kanada, en Norður-Ameríku- hluti tónleika- ferðar sveitar- innar hófst með tónleikum í New York á miðviku- dagskvöldið. Þar lék sveitin í hinu stórglæsilega United Palace leik- húsi og endurtók svo leikinn á sama stað kvöldið eftir, en í gær- kvöldi hélt sveitin tónleika í Bost- on. Sigur Rósar-menn fara svo til Kanada í dag, en þeir verða með tónleika í Montreal í kvöld. Alls verður um 17 tónleika að ræða á þessum hluta tónleikaferðalagsins, og er uppselt á nánast alla tón- leikana. Strákarnir eru einir á svið- inu að þessu sinni því þeir njóta hvorki aðstoðar Amiinu né blásara- sveitar. Hins vegar hitar hljóm- sveitin Parachutes upp fyrir þá, en svo skemmtilega vill til að einn meðlimur þeirrar sveitar heitir Alex Somers og er kærasti Jónsa, söngvara Sigur Rósar. Kærasti Jónsa hitar upp fyrir Sigur Rós Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þ að hefur verið heilmikill slagur að ná því markmiði að gera hátíðina hnit- miðaðri og það felst m.a. í því að það getur ekki allur heimurinn og amma hans verið með,“ segir Kira Kira, þ.e. Kristín Björk Kristjánsdóttir, listrænn stjórnandi Sequences-listahátíðarinnar sem brestur á 11. október og lýkur þann 17. Á hátíðinni er lögð áhersla á gjörninga, myndbandslist og hljóðverk, auk þess sem myndlist og tónlist er oft tvinnað saman. „Við erum að pródúsera 27 verkefni,“ segir Kristín. Fjöldi þeirra segi þó ekki alla söguna um umfang hátíðarinnar. „Lortur leggur t.d. undir sig Kling & Bang og þar inni verður afar krassandi dagskrá, mjög spennandi,“ nefnir Kristín til dæm- is. Af öðrum spennandi verkefnum megi nefna flutning Hildar Ingveldar- og Guðnadóttur selló- leikara og Caput-hópsins á verki Brians Eno, „Music for Airports“, í útsetningu Hildar. Elín Hansdóttir myndlistarmaður kemur að flutningi verksins með myndlistarverki en hún og bróðir hennar Úlfur verða einnig með listrænan gjörning í Gróttuvita, sem byggist á hljómi sem fer enda- laust upp eða niður, e.k. hljómblekking. Myndlist- armaðurinn Rúrí er heiðurslistamaður hátíðar- innar í ár og flytur gjörninginn Vocal IV í Hafnarhúsi við tónverk Jóhanns Jóhannssonar, 12. september kl. 20. Inngrip í umhverfið „Svo erum við mjög spennt fyrir því að ganga í eina sæng með Bedroom Community (plötuútgáf- unni) og Airwaves í Iðnó, föstudaginn 17. október. Við sláum upp audio-visual tónleikum, fljúgum til landsins nokkrum frönskum og þýskum myndlist- armönnum. Þarna verða t.d. þýskir, experimental kvikmyndagerðarmenn,“ heldur Kristín áfram. Þá mun Egill Sæbjörnsson einnig flytja efni af nýrri plötu, með nokkrum Flís-liðum, og bjóða upp á eitthvert myndrænt góðgæti um leið. En veit fólk hvað Sequences er? „Algjörlega, ég held að hátíðin hafi snúið bæn- um algjörlega á hvolf seinustu tvö ár,“ svarar Kristín. Krafturinn hafi verið mikill í listamönn- um sem hafi verið með inngrip í umhverfið. Heil- mörg verkefni séu því þess eðlis að fólk gangi fram á þau á götuhornum. „Hátíðin er í hörku blóma og verður helvíti massífur pakki.“ Afar krassandi dagskrá  Þriðja Sequences-listahátíðin verður haldin í október  27 verkefni og viðburðir verða í boði víða um Reykjavík, tón- og myndlist gjarnan í bland Morgunblaðið/Valdís Thor Kira Kira Listræni stjórnandinn tók sér örstutta hvíld í gær, á fagurbláu kaffiborði í safninu sem kennir sig við nýlist, þ.e. Nýlistasafninu. Ítarlega dagskrá með staðsetningu viðburða og tímasetningum verður að finna innan skamms á vefsíðu Sequences, sequences.is.  Allt bendir til þess að barátta Sjónvarpsins og Stöðvar 2 um áhorfendur verði harðari í vetur en nokkru sinni fyrr, og þá sérstak- lega á sunnudagskvöldum þegar fyrrnefnda stöðin sýnir Svarta engla og sú síðarnefnda Dagvakt- ina, en báðir þættirnir hefja göngu sína annað kvöld. Upphaflega stóð til að þættirnir hæfust á sama tíma, en Stöð 2 ákvað að færa Dagvakt- ina 10 mínútum framar til þess að ná áhorfendum áður en Svartir englar hefjast. Nú hefur Sjónvarpið hins vegar bætt um betur og fært Svarta engla enn framar, og verða þeir á dagskrá löngu áður en Dag- vaktin hefst. Allt útlit er því fyrir að áhorfendur missi ekki af neinu. Svartir englar færðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.