Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 51
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
Taxi Driver
Myndin sem kom Scorsese og De Niro
endanlega á kortið og inniheldur ein-
hverja frægustu setningu kvikmynda-
sögunnar.
Alveg þokkaleg ræma framan af en lokaatriðið
er eitt það tilgangslausasta í gervallri kvik-
myndasögunni og skilur mann eftir með
óbragð í munni, auk þess að vera í engum takti
við hegðun aðalpersónunnar fram að því.
The Godfather
Fékk Óskarsverðlaun sem besta
mynd og er ósjaldan efst á topplista
IMDb.com.
Heil kynslóð bíóspe-
kúlanta fær óstjórn-
legt bræðiskast í
hvert skipti sem listi
yfir bestu myndir
allra tíma birtist og
Guðfaðirinn er ekki á
toppnum. Vissulega
góð bíómynd en ekki
meistaraverk og
langt frá toppnum,
auk þess sem það má
draga hana til ábyrgðar fyrir óteljandi skelfi-
lega ofmetnar mafíumyndir og sjónvarpsþætti
á borð við Goodfellas og Sopranos.
Mýrin
Tekjuhæsta mynd Íslandssögunnar sem
hlaut 5 Edduverðlaun og vann Krystals-
hnöttinn á Karlovy Vary-hátíðinni.
Kostirnir við Mýrina eru margir. Ágætis saga
og mögnuð tónlist. En að mögnuðu upphafs-
atriðinu slepptu passar tónlistin sjaldnast við
myndina, eins og þegar hádramatísk tónlist
skekur bíósalinn meðan þeir félagar Erlendur
og Sigurður […] eru að rúnta. Við þetta bætist
að Ingvar E. Sigurðsson virkar að minnsta
kosti tuttugu árum of ungur í hlutverk Erlend-
ar og niðurstaðan er einhver mestu vonbrigði
íslenskrar kvikmyndasögu.
The Last Emperor
Vann níu Óskarsverðlaun árið 1987,
þar á meðal sem besta mynd.
Ég get því miður ekki sagt ykkur hvað er
svona vont við þessa mynd, ég man nefnilega
ekkert eftir henni. Ég mundi heldur ekkert um
hvað hún var fimm mínútum eftir að ég sá
hana og ég er ennþá að leita að einhverjum
sem man eitthvað. Prófið að „gúgla“ henni, það
hlýtur einhver að vita þetta þarna úti.
Lost in Translation
Skaut Scarlett Johansson upp
á stjörnuhimininn og fékk fjórar
Óskarstilnefningar.
Charlotte og Bob eru í erlendri stórborg, með
næg fjárráð og enga sjáanlega ástæðu til þess
að njóta ekki alls þess sem Tókýó hefur upp á
að bjóða, en nei, best að hanga heima á hót-
elherbergi á bömmer yfir nákvæmlega engu.
Verstir eru þó brandararnir um að, jeremías! –
það tala ekki allir ensku hérna! Að auki ber
myndin ábyrgð á hróðri ofmetnustu leikkonu
sinnar kynslóðar, Scarlett Johansson.
Listi yfir vanmetnustu myndir kvikmynda-
sögunnar birtist í Morgunblaðinu næsta
mánudag.
Tíu ofmetnustu bíómyndir sögunnar
The Graduate
Mynd sem skilgreindi heila kynslóð og
kom Dustin Hoffman á kortið.
Saga um ráðvilltan ungan mann sem finnur sér
ekki stað í samfélaginu – lætur það þó á end-
anum buga sig og velur ranga konu af því hann
er of hræddur við álit annarra til þess að
ganga gegn viðteknum borgaralegum gildum.
Í stuttu máli, Dustin Hoffman var of mikil
gunga til þess að velja frú Robinson og endaði
með gufunni dóttur hennar.
Napoleon Dynamite
Mynd sem allir nördar elska og þeir voru
margir enda kom hún út þegar nörda-
tískan reis hvað hæst.
Allir nördar
nema þessi.
Það hefur
komið út fjöldi
frábærra
nördamynda
undanfarna
áratugi, bæði
um gáfunörda
(Rushmore)
og aulanörda
(Bill & Ted og
Wayne’s
World) en
Dýnamíts-Napóleon er einfaldlega móðgun við
alla heiðarlega nörda. Napoleon er guð-
hræddur og íhaldssamur, þetta er nörd að
hætti Bush.
Traffic
Færði Steve Soderbergh Óskars-
verðlaun og sýnir mikinn metnað í því að
takast á við fíkniefnaheiminn frá öllum
hliðum.
Þetta er væntanlega handritshöfundinum,
Stephen Gagan, að kenna enda leikstýrði hann
sjálfur Syriana sem er gölluð á nákvæmlega
sama hátt. Hann er fullur metnaðar og reynir
því að tvinna saman fjölda lítið tengdra sagna í
hverri mynd, en ólíkt mörgum færari kollegum
sínum ræður hann ekki við það og útkoman er
að handritshöfundurinn virðist haldinn athygl-
isbresti á háu stigi.
A Beautiful Mind
Óskars-
verðlaun sem
besta mynd
ársins 2001.
Lélegasta mynd
sem hlotið hefur
styttuna gylltu síð-
asta aldarfjórðung-
inn. Russel Crowe,
þú ert betri en
þetta! Ron Howard,
hættu að gera bíó-
myndir!
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 51
Viltu hætta að reykja?
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 29. september 2008.
Hægt er að skrá sig í síma 540 1900 eða á netfangið reykleysi@krabb.is
Nánari upplýsingar á www.krabb.is
Gone With the Wind
Langvinsælasta mynd allra tíma
og vann til tíu Óskarsverðlauna.
LISTINN yfir vinsælustu bíómyndir allra tíma miðast oftast við tekjur
og er sjaldnast framreiknaður. Það má færa góð rök fyrir því að það sé
ósanngjarnt gagnvart eldri myndum en það eru ein mótrök sem
trompa allar slíkar sanngirniskröfur – ef við framreiknum verðum við
föst með þessa ofmetnustu mynd allra tíma á toppnum til eilífðarnóns.
Hún hefði sloppið fyrir horn ef síðasti klukkutíminn hefði verið skor-
inn af, hann er fullkomlega óþarfur. Þeim annars ágæta leikara Clark
Gable (leigið ykkur It Happened One Night til að sannfærast um leik-
hæfileika hans) leiðist allan tímann og þótt Vivienne Leigh sýni magn-
aðan leik þá breytir það engu um að Scarlett O’Hara er, rétt eins og
Rhett Butler, ekkert annað en orðheppinn vælukjói á bömmer yfir að
geta ekki haldið áfram að lifa þægilegu yfirstéttarlífi með þræl við
hvert fótspor. Myndin er í raun ósköp svipuð Scarlett, falleg og vinsæl
en alveg skelfilega leiðinleg og siðlaus í kaupbæti.
Það hlýtur að vera smekksatriði hvað er ofmetið og hvað vanmetið. Margir upphefja tiltekin verk á stall, og eru kvikmyndir eng-
in undantekning. Þeir sem viðra aðra skoðun teljast þá til helgibrjóta. En eru þetta ekki örugglega ofmetnustu kvikmyndirnar?