Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT EFTIR að hafa kannað þúsundir gervihnattamynda fundu vísindamenn út að nautgripir og hirtir hefðu ríka tilhneigingu til að snúa sér eins og átta- vitanál, þ.e. í norður-suður. „Það tók stundum marga klukkutíma að finna nógu skýrar myndir,“ sagði einn vísindamannanna. Vitað er að fuglar, fiskar og nagdýr haga sér eftir segulsviði en þetta er fyrsta vísbendingin um að stór landdýr geri það líka.                                             "  #$%&'      (  )      *  (     (      + &% !  !)                       !"  #$%%       %   "   $   &  "    % # $ % & ' (  ) * + '               ,-%'.,/0(12+(2+ ,            -     !   0  Segulmögnuð landdýr Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is JOHN McCain, forsetaframbjóðandi repúblikana, hefur vakið furðu margra með yfirlýsingum sínum um Spán og forsætisráðherra landsins, Jose Luis Rodriguez Zapatero. Var ekki annað á þeim að skilja en að hann liti á Spán sem fjandsamlegt ríki og hann hafði ekki áhuga á að eiga fund með Zapatero. Grunar marga, að McCain hafi talið NATO- ríkið Spán vera í Rómönsku Amer- íku og skipað Zapatero á bekk með mönnum eins og Hugo Chavez, for- seta Venesúela. Kom þetta fram í viðtali, sem út- varpsstöð á Florida, sem útvarpar á spænsku, átti við McCain en viðtalið fór fram á ensku. „Að lokum, víkjum talinu að Spáni,“ sagði fréttamaðurinn. „Verð- ir þú kjörinn forseti, muntu þá eiga fund með Zapatero í Hvíta húsinu?“ „Ég er fús til að eiga fund með þeim leiðtogum, sem eru vinir okkar og vilja eiga við okkur gott sam- starf,“ sagði McCain og fór síðan að tala um Mexíkó. Fréttamaðurinn ítrekaði spurninguna og þá sagði McCain: „Það þarf að hafa samskipti ríkja og annað í huga en ég get full- vissað þig um, að ég vil treysta tengslin við vini okkar og ég mun snúast af hörku gegn þeim, sem vilja skaða Bandaríkin. Ég kann hvort tveggja.“ Skásti kosturinn? Randy Scheunemann, ráðgjafi McCains í utanríkismálum, vísar því á bug, að forsetaframbjóðandinn hafi verið búinn að gleyma því hvar Spánn er niðurkominn og að landið væri NATO-ríki. Segir hann einnig, að McCain hafi ekki útilokað fund með Zapatero. Vitað er, að bandarískir repúblik- anar hafa ekki fyrirgefið Zapatero að hafa kallað heim spánska her- menn frá Írak og samskipti Banda- ríkjastjórnar og Spánarstjórnar hafa verið heldur stirð. Margir bandarískir fréttaskýrendur telja samt, að McCain hafi orðið alvarlega á í messunni og gagnrýna hann fyrir að vilja ekki gangast við því. Telja sumir, að ráðgjafar hans hafi talið það best fyrir McCain að standa við stóru orðin fremur en að viðurkenna, að hann, sem er kominn nokkuð til ára sinna, hafi talið Zapatero vinstri- sinnaðan „forseta“, eins og hann kallaði hann, í Suður-Ameríku. Yfirlýsingar McCains hafa vakið athygli á Spáni. Er um þær skrifað í spænskum fjölmiðlum, t.d. El Pais, og þar er því velt upp hvort McCain hafi ruglað saman Zapatero og Zap- atista, uppreisnarhreyfingu í Chi- apas, einu fátækasta héraði Mexíkó. Er Spánn óvinaríki? McCain sakaður um að telja Spán vera vinstrisinnað ríki í Rómönsku Ameríku AP Brosmild John McCain ásamt Söru Palin, varaforsetaefni sínu. JÓGÚRT, sem ætluð er dönskum börnum, er ekkert annað en sykur- sprengja og hana ættu börnin alls ekki að fá nema sem eftirrétt um helgar. Er það niðurstaða nýrrar rannsóknar. Jógúrtdósirnar, sem blasa við börnum í verslunum, eru litfagrar og lokkandi og svo er í þeim ýmis holl- usta, kalk og ávextir. Í raun ætti þó að flokka þessa vöru með sælgæti og sætum kökum. Sagði frá þessu á fréttavef Politiken í gær. Sætari en gosdrykkir Sisse Fagt, sem vinnur við neyslu- rannsóknir í matvæladeild DTU, Tækniháskóla Danmerkur, segir, að sykurinnihaldið í lítilli dós sé 14 grömm eða um helmingur þess, sem talið er vera algert hámark fyrir börn, fimm ára og yngri. Þar að auki sé jógúrtin oft allt of feit. Fagt segir, að barnajógúrtin sé í raun sætari en gosdrykkir og rann- sóknir sýna, að dönsk börn neyta að meðaltali 40 g af jógúrt daglega. Rannsóknir sýna líka, að sex af hverjum tíu börnum fá allt of mikinn sykur og sykursýki er vaxandi vandamál hjá börnum. svs@mbl.is Barnajóg- úrtin er syk- ursprengja YFIRVÖLD á Spáni hafa ákveðið að borga atvinnulausum innflytjendum fyrir að koma sér aftur til síns heima. Var það samþykkt á ríkisstjórnar- fundi og er búist við að tillagan fái skjóta afgreiðslu á þingi og verði að lögum eftir mánuð. Tillagan tekur til tugþúsunda manna, sem ekki eru borgarar í öðru ESB-ríki, og fær fólkið strax 40% af þeim atvinnuleysisbótum, sem það hefði annars fengið, og 60% þegar það er komið til síns heimalands. Á móti verður það að afsala sér land- vistarleyfi og heita því að koma ekki til Spánar í þrjú ár. svs@mbl.is Borgað fyrir að fara heim EFNT var til mótmæla í Manila á Filippseyjum í gær en þar er nú að hefjast ráðstefna um farandverka- fólk og þróun. Var þess krafist, að lágmarksaldur þeirra kvenna, sem leyft er að fara til vinnu erlendis, yrði hækkaður úr 23 í 30 ár. Er ástæðan sú, að þær verða margar fyrir kynferðislegu ofbeldi en flestar eru þær í öðrum Asíuríkj- um og í arabaríkjunum. Hefur verið gripið til sams konar ráðstafana og af sömu ástæðum á Sri Lanka. Meira en átta milljónir Filippsey- inga, aðallega kvenna, eru við störf utan heimalandsins en það svarar til 8,8% af heildaríbúatölu eyjanna. Byggist afkoma og lífsviðurværi þúsunda fjölskyldna fyrst og fremst á því fé, sem farandverkafólkið sendir heim. svs@mbl.is AP Kynferðislegu ofbeldi mótmælt í Manila DMÍTRÍ Medve- dev, forseti Rúss- lands, sakaði í gær vestræn ríki um að vera að reyna að girða Rússland af með nýju „járntjaldi“. Lét hann þau ummæli falla daginn eftir að Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði, að yf- irgangur Rússa utan eigin landa- mæra færi vaxandi. „Það er verið að ýta okkur á bak við nýtt járntjald en ég legg áherslu á, að þar viljum við ekki vera. Það er engin skynsemi í því að hverfa aftur til fortíðar,“ sagði Medvedev á fundi með forystumönnum ýmissa óháðra eða borgaralegra samtaka í Rúss- landi. Hét hann því að gera allt, sem í hans valdi stæði, til að koma á eðli- legum samskiptum við stjórnvöld í Georgíu en sakaði NATO um að hafa róið undir með þeim og átt sinn þátt í herhlaupi þeirra í Suður-Osse- tíu. Rice sagði í ræðu í Washington í fyrradag, að viðbrögð Rússa við at- burðunum í Suður-Ossetíu hefðu verið allt of hörð og í innrás þeirra í Georgíu hefði kristallast hin nýja stefna þeirra. Sagði hún, að ástæða væri til að efast um, að þeir vildu hafa fullt samstarf við efnahagsleg- ar og pólitískar alþjóðastofnanir, til dæmis Heimsviðskiptastofnunina og OECD. Sakaði hún einnig Rússa um að beita olíu og gasi sem vopni í samskiptum sínum við önnur ríki. Sagði hún, að þróunin í Rússlandi hefði breyst til hins verra og það birtist m.a. í því, að tjáningarfrelsi borgaranna hefði verið skert með ýmsum hætti. Ekki nýtt, kalt stríð Rice sagði, að þrátt fyrir þetta væri ekkert nýtt, kalt stríð í uppsigl- ingu. Bandaríkjamenn myndu áfram styðja rússneska borgara með ýms- um hætti, t.d. námsmenn, kennara, lækna o.fl. Medvedev hæddist í gær að þess- um orðum Rice og sagði, að kannski væru Bandaríkjamenn fáanlegir til að bæta rússneskum forsetum í þennan hóp. svs@mbl.is Rússar vara við nýju járntjaldi Í HNOTSKURN » Átökin í Georgíu hófust 7.ágúst síðastliðinn þegar georgískir stjórnarhermenn reyndu að endurheimta Suð- ur-Ossetíu. » Rússar, sem styðja að-skilnað S-Ossetíu og Abk- asíu-héraðs frá Georgíu, svör- uðu þá með gagnárás og réðust inn í Georgíu. » Rússar hafa viðurkenntsjálfstæði héraðanna og einnig Nicaragua, eitt ríkja. Dmítrí Medvedev

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.