Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ ALDARMINNING Jóhannes Gunnar Brynjólfsson fæddist í Bólstað í Vestmannaeyj- um 20. september 1908. Hann andaðist í Reykja- vík 27. maí 1973. Foreldr- ar hans voru hjónin Brynj- ólfur Stefánsson frá Teigi í Vopnafirði, síðar skósmið- ur og kaupmaður á Akur- eyri, og Halla Jónsdóttir frá Dölum í Vestmanna- eyjum. Hálfsystkin hans, börn Höllu, d. 1918, og seinni manns hennar Guð- laugs Brynjólfssonar, þá í Odda og síðar á Lundi, voru Svein- björn Óskar og Halla Bergsteina. Pabbi (Jóhannes Gunnar) ólst upp hjá Guðlaugi og Valgerði Guðmunds- dóttur, seinni konu hans; börn þeirra Valgerðar og Guðlaugs voru níu. Val- gerður reyndist honum sem besta móðir. Pabbi var börnum Guðlaugs hinn besti bróðir og hafa þau margoft haft orð á því. Heimilið var mannmargt eins og títt var hjá formönnum á þeim tíma. Guðlaugur sagði okkur systk- inunum að hann hefði sannarlega unnið fyrir sínu, því hann hafi verið svo bóngóður, m.a. ræsti hann iðulega sjómennina á báti Guðlaugs. Pabbi fór í Samvinnuskólann í Reykjavík, var þar tvo vetur, 1930– 32. Að námi loknu varð hann fram- kvæmdastjóri Ísfélags Vestmanna- eyja og vann þar mestalla sína starfs- ævi. Árið 1935 kvæntist hann Öldu Björnsdóttur, f. 20 apr. 1915, frá Kirkjulandi í Vestmannaeyjum. Börn þeirra eru Lára Halla, gift Páli Sig- urðarsyni, börn þeirra eru þrjú, Birna Valgerður, gift Jóhanni Inga Einars- syni, þau eiga tvær dætur, Guðbjörg Ásta, gift Adolf Bjarnasyni, þeirra börn eru þrjú, Jóhannes Sævar (lést sl. vor), kvæntur Ágústu Ágústsdótt- ur, þeirra dætur eru tvær, og Brynj- ólfur, kvæntur Maríu Filippusdóttur, eiga þau þrjú börn. Ungur var hann í 6 manna hópi sem kallaði sig Hóla- menn, markmið þeirra var að græða og snyrta landið og þar voru þeir á undan sinni samtíð. Sér til ánægju fóru þeir fé- lagar saman í smá- ferðir um Eyjuna, m.a. hestaferðir. Pabbi var félagslynd- ur, var m.a. í Oddfel- lowstúkunni Herjólfi, Akoges og Knatt- spyrnufélaginu Tý og oft í Þjóðhátíðarnefnd. Elsku pabbi, þegar mamma veikt- ist í blóma lífsins og þurfti að fara á Vífilsstaði, þar sem hún dvaldist í eitt ár, stóðst þú þig eins og hetja og hugsaðir um hópinn ykkar, eldaðir hafragrautinn áður en þú fórst í vinn- una og sást um að við færum snyrtileg og ekki svöng í skólann. Ekki var verra að amma og afi voru í næsta húsi, á Kirkjulandi, þar sem mamma átti sín bernskuár. Á þessum tíma var það nánast eins og dauðadómur að fá berkla eða í besta falli að hún myndi lifa en koma ekki heim aftur. Pabba var gefinn slík ró að aldrei vorum við látin finna annað en að hún kæmi heim. Það var hringt einu sinni í viku og öll fengum við að tala við mömmu, og óstaðfestan grun höfum við að við- talsbilin hafi verið extra löng. Elsku pabbi, árið sem mamma var í burtu var okkur öllum erfitt og ekki síst þér, þú hjálpaðir okkur systkinunum að takast á við þennan tíma, eins alla tíð sem þú lagðir okkur lið. Í dag eru liðin 100 ár síðan þú fæddist. Þú lést snögglega og allt of fljótt. Mikið hefði verið frábært að þið mamma hefðuð átt fleiri ár saman. Nú situr hún og raular með handa- vinnuna sína og lætur hugann reika til liðinna ára. Það er gott að rifja upp gleðistundir og kærar minningar. Börnin þín. Jóhannes Gunnar Brynjólfsson HJÖRVAR Steinn Grétarsson er í baráttunni um efstu sætin á Evrópu- meistaramóti barna og unglinga í flokki keppenda 16 ára og yngri. Mót- ið fer fram í smábænum Herceg Novi í Svartfjallalandi en Íslendingar eiga tíu keppendur á mótinu. Í fyrra þegar mótið fór fram í Króatíu voru íslensku þátttakendurnir aðeins þrír en þar sem Skáksamband Íslands hefur þeg- ar tekið þá ákvörðun að senda ekki keppendur á heimsmeistaramót ung- linga sem fram fer í Víetnam seinna í haust var ákveðið að gefa fleirum kost á að fara með nú. Herceg Novi er lítill bær sem liggur við strendur Adría- hafsins. Bærinn er einkum þekktur í skáksögunni fyrir fyrsta óopinbera heimsmeistaramótið í hraðskák sem fram fór árið 1970 og Bobby Fischer vann með fáheyrðum yfirburðum. Keppendur á Evrópumótinu eru tæp- lega þúsund talsins og er keppt í fimm aldursflokkum pilta og stúlkna. Elsti aldursflokkurinn er skipaður kepp- endum 18 ára og yngri en sá yngsti inniheldur börn 10 ára og yngri. Mót- ið er geysilega sterkt því meirihluti keppenda kemur frá fyrrverandi lýð- veldum Sovétríkjanna. Rússar, Úkra- ínumenn og Aserar koma hingað í hópum. Ýmsar aðrar þjóðir eru sífellt að bæta hlut sinn, t.d. Tyrkir. Hjörvar Steinn Grétarsson teflir í flokki pilta 16 ára og yngri og eftir fjórar umferð- ir hefur hann hlotið 3 vinninga, með tvo sigra og tvö jafntefli. Hann hefur teflt af miklu öryggi. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir hefur einnig farið vel af stað með sigur og þrjú jafntefli eða 2 ½ vinning. Hún hefur átt sigurmöguleika í öllum jafnteflis- skákunum. Skák hennar í fyrstu um- ferð gegn stigahæsta keppandanum og heimsmeistaranum í flokki 14 ára og yngri frá mótinu í Tyrklandi í fyrra vakti mikla athygli. Lítill tími var til undirbúnings fyrir þessa skák en skákin sem hér fer á eftir einkennist af miklum skotgrafahernaði en and- stæðingur Hallgerðar kemur frá höf- uðvígi skáklistar kvenna í Georgíu og er öllum hnútum kunnug. Hallgerður reyndist vandanum vaxin og á einu augnabliki missti hún af vænlegum millileik í snúnu miðtafli, 27. Bxf6 gxf6 28. Kxf3 og hvíta staðan er betri. Þeg- ar fram sótti teygði Paikidze sig of langt og taldi sig vera að vinna með 44. … Hf1 en sást yfir bráðsnjallan millileik Hallgerðar, 45. Re7+ sem byggist á hugmyndinni 45. … Kh8 46. Rf5! og vinnur. Hin leiðin var ekkert björgulegri og Hallgerður var með gjörunnið tafl þegar hún leyfði Pai- kidze að sleppa með þráskák. Hún var í smávegis tímapressu en gat tryggt stöðu kóngsins með ýmsum hætti t.d. 54. f5+ og 55. Df3 í stað 54. Dc2 eða 58. Dc8+ og 59. Dg4. En skákin segir manni hinsvegar að hún hefur í fullu tré við stöllur sínar frá austurblokk- inni enda komst rússneski andstæð- ingur hennar í 2. umferð ekkert áfram gegn henni. EM ungmenna 2008; 1. umferð: Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – Nazi Paikidze ( Georgíu ) Sikileyj- arvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Bd7 4. Bxd7+ Rxd7 5. O–O Rgf6 6. He1 e6 7. c4 Be7 8. d4 cxd4 9. Rxd4 a6 10. b3 O–O 11. Rc3 Hc8 12. Bb2 Dc7 13. Kh1 Hfe8 14. Dd2 Db8 15. Had1 Bd8 16. f4 Bc7 17. g3 Da7 18. Kg2 Hcd8 19. He2 Rf8 20. f5 Ba5 21. Dd3 R8d7 22. fxe6 fxe6 23. a3 Re5 24. Dc2 Bc7 25. Ra4 Db8 26. Rf3 Rxf3 27. Kxf3 b5 28. cxb5 axb5 29. Rc3 Hf8 30. Kg2 Db7 31. Dd3 Hb8 32. Ra2 Rd7 33. Rb4 Hf7 34. Hf1 Hbf8 35. Hxf7 Hxf7 36. Kh3 Rc5 37. De3 Bb6 38. Dd4 Dd7 39. Kg2 Dd8 40. Dc3 Da8 41. Dd4 Df8 42. Rc6 Rd7 43. Dd3 Rc5 44. Dxb5 Hf1 45. Re7+! Dxe7 46. Kxf1 Rd7 47. a4 Dd8 48. b4 Re5 49. Bxe5 dxe5 50. Kg2 h6 51. Dxe5 Dd1 52. Dxe6+ Kh8 53. Dc8+ Kh7 54. Dc2 Dg1+ 55. Kh3 Df1+ 56. Hg2 Df7 57. e5+ Kh8 58. He2 Df1+ 59. Kg4 h5+ 60. Kxh5 Dh3+ 61. Kg6 Dg4+ 62. Kf7 Dd7+ 63. Kg6 Dg4+ – Jafntefli. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir hafa báðar 50% vinningshlutfall en skákir Jóhönnu eru yfirleitt afar við- burðaríkar og skemmtilegar. Frammistaða Geirþrúðar er frábær því hún hefur enga reynslu af svo sterku móti. Daði Ómarsson er einnig með 2 vinninga og hefur teflt vel en Sverrir Þorgeirsson og Dagur Andri sem voru með á HM í Tyrklandi í fyrra hafa enn ekki náð sér á strik. Friðrik Þjálfi Stefánsson hefur einnig staðið sig vel en skortir reynslu úr svo harðri keppni eins og Tinnu Kristínu Finnbogadóttur og Patrek Maron Magnússon. Þjálfarar íslensku kepp- endanna eru undirritaður og Davíð Ólafsson. Hjörvar Steinn í toppbaráttunni SKÁK Herceg Novi, Svartfjallalandi EM ungmenna 15. – 24. september 2008 Helgi Ólafsson | helol@simnet.is Við kynntumst Sveppa þegar hann byrjaði í Langholts- skóla og urðum strax bestu vinir. Okkur langar, með þessum fáu orð- um, að þakka fyrir allar góðu stund- irnar sem við höfum átt með honum, og þær eru ekki fáar. Hann var sá sem fékk okkur alltaf til að brosa og hlæja þegar við þurftum á því að halda. Hann gat endalaust prakkarast í kennurum og bekkjarfélögum en auð- vitað fyrirgáfu það allir vegna þess að hann var svo yndislegur og góður strákur. Við gátum talað saman í sím- ann heilu kvöldin og næturnar, alltaf fundum við eitthvað til að tala um. Síðustu ár hefur sambandið kannski ekki verið eins náið og áður, en þegar við hittumst þá var alltaf eins og við hefðum hist í gær. Það var yf- irleitt Sveppi sem hóaði hópnum sam- an til að gera eitthvað skemmtilegt, passaði alltaf upp á að missa ekki sam- bandið. Þó að það sé erfitt að átta sig á því að hann sé farinn og við eigum ekki eftir að hitta hann aftur, þá reynum við bara að rifja upp góðu stundirnar sem við áttum saman. Það verður allt- af bara einn Sveppi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar, göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja‘ í friðarskaut. (V. Briem) Elsku Gunnar, Guðný, Ari og Vala, við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Silja og Sigurborg. Elsku vinur, það er erfitt að trúa því að þú sért farinn og það svona fljótt. Núna hefur maður bara minningarnar um þig og þær eru rosalega margar. Ég hef síð- ustu daga hugsað mikið til baka og áttaði mig á því að ég á aðeins góðar minningar um þig, og það sýnir hversu frábær þú varst í alla staði. Það var alltaf hægt að treysta þér fyrir öllu því ég vissi að það færi ekk- ert lengra, við vorum kannski miklar Sverrir Franz Gunnarsson ✝ Sverrir FranzGunnarsson fæddist á Sjúkra- húsinu á Akranesi 19. maí 1986. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 8. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Langholtskirkju 19. september. andstæður í útliti og áhugamálum, en húm- orinn var sá sami. Okk- ur fannst fátt skemmti- legra en að stríða fólki og hvor öðrum. Ég á aldrei eftir að finna annan vin eins og þig, enda sjaldgæft að eign- ast vini sem maður get- ur sagt að sé vinur í raun. Sverrir ég á eftir að sakna þín mjög mikið, það hefur verið mjög skrítið þessa síðustu daga að hafa ekkert heyrt í þér og á söknuðurinn eflaust eftir að verða meiri þegar dagarnir verða fleiri. Guðný, Gunnar, Ari og Vala, ég samhryggist ykkur innilega og veit að söknuðurinn hefur og á eftir að vera mikill, en vonandi er að ykkar minn- ingar um Sverri hjálpi ykkur að kom- ast í gegnum þessa tíma eins og þær hafa hjálpað mér. Takk fyrir allar góðu tímana, Sverrir, ég mun aldrei gleyma þeim. Þinn vinur, Óskar Jón. Elsku Sverrir minn. Ég sit hér með tárin í augunum og veit ekki hvar ég á að byrja að minn- ast þín, elsku frændi minn. Ég bíð eft- ir að þú komir inn um dyrnar hjá mér, setjist á gólfið og byrjir að leika við hana Helgu Marý mína eins og þú varst vanur að gera. En það gerist ekkert, þú kemur ekki, þú ert farinn og ég vil ekki trúa því að svona ynd- islegur og hugljúfur drengur hafi ver- ið tekinn frá okkur. Það er erfitt að hugsa sér lífið án þín en ég á minningarnar okkar og þær tekur enginn frá mér, þegar sorg- in verður mér erfið og mér finnst eins og hjarta mitt þoli ekki meiri sorg hugsa ég bara um gleðistundirnar okkar og hvernig þú komst mér til að hlæja með fyndnum tilsvörum, hvern- ig þú gerðir grín að öllu og öllum, hvernig þú gast tuðað í henni Völu þinni eins og þið væruð búin að vera gift í 25 ár og alltaf endaði það með hlátri. Þú varst einstakur gleðigjafi sem mér þótti óendanlega vænt um, þú varst svo hlýr og með alveg ein- staklega gott hjarta þó svo það hafi verið það sem gaf sig á endanum. Þú komst alltaf að passa þegar ég bað þig um og aldrei með hangandi hendi. Þú gerðir allt sem þurfti að gera hvort sem það var að baða hana, gefa henni að borða eða hugga hana þegar hún var veik. Eina sem þú baðst mig sérstaklega um var að hafa mat- seðilinn ekki mjög flókinn þegar þú áttir að elda ofan í hana. Mikið sem ég var öfunduð af svona einstakri barna- píu eins og þér. Þegar þú fórst svo til Brasilíu með Völu að passa frænd- systkini hennar biðum við mæðgur eftir því að þú kæmir heim því ég fann sko fyrir því að þú værir ekki á staðn- um. Ég fann hvað þú varst búinn að vera mér mikil stoð og stytta, alltaf tilbúinn að koma og hjálpa mér. Þú skrifaðir á heimasíðuna hennar Helgu Marý: „Sverrir frændi í Brazil 1.7.2008 23:54 Hæhæ litla. Er hún mamma þín alveg að fara yfir um nú þegar barnapían þín er í Brasilíu??“ Ég hugsaði brosandi með mér að þú hefðir hitt naglann á höfðið þar, enda í gríni kvartaði ég statt og stöðugt við þig hvurslags þetta væri að vera að fara alla leið til Brasilíu til að passa börn þegar þessi stutta frænka þín væri nú rétt við fætur þína. Ég er feg- in að þú og Vala þín fenguð þetta tæki- færi til að upplifa ævintýrið í Brasilíu. Ég bið guð að geyma þig, elsku frændi minn. Þínar frænkur Ingveldur Oddný (Inga Odda), Helga Marý. Kveðja frá Menntaskólanum í Kópavogi Á þessum fallegu haustdögum þeg- ar skólastarfið er að hefjast og nem- endur að koma til baka úr sumarleyf- um berst sú harmafregn að nemandi Menntaskólans í Kópavogi Sverrir Franz Gunnarsson hafi látist skyndi- lega í lok skóladags 8. september. Við erum óþyrmilega minnt á hve lítils megnug við erum andspænis dauðan- um. Einu sinni enn verður okkur sú spurn á vörum því forsjónin hrífi svo skyndilega brott ungan og efnilegan mann í blóma lífsins frá ástvinum og ættingjum. Þegar slíkir sorgaratburð- ir gerast verður mönnum orðs vant. Sverrir Franz Gunnarsson hóf nám við Menntaskólann í Kópavogi haustið 2006 á félagsfræðibraut eftir náms- dvöl í Iðnskólanum í Reykjavík. Sverrir Franz var ljúflyndur, íhugull og dagfarsprúður piltur og tók virkan þátt í starfi og leik skólasystkina. Hann var farsæll námsmaður og hafði allt til að bera til að farnast vel í lífinu. Það var því mikið áfall þegar okkur barst fregnin af andláti hans. Sverris er sárt saknað af starfsfólki og nem- endum Menntaskólans í Kópavogi en eftir lifir minning um góðan dreng og þakklæti fyrir að hafa mátt njóta sam- vistanna við hann í tvo vetur. Fyrir hönd allra í Menntaskólanum í Kópa- vogi sendum við aðstandendum Sverris Franz okkar dýpstu samúðar- kveðjur og biðjum algóðan guð að styrkja þá og blessa í óbærilegri sorg þeirra. Margrét Friðriksdóttir skólameistari. MINNINGAR ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR JÓNU JÓNSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Höfða, fyrir góða umönnun. Börn, tengdabörn og ömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.