Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 9 Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is LÁGT gengi íslensku krónunnar undanfarið hefur komið sér vel fyrir suma ferðaþjónustuaðila, en ekki aðra, segir Árni Gunnarsson, formað- ur Samtaka ferðaþjónustunnar og framkvæmdastjóri Flugfélags Ís- lands. Þeir sem selja þjónustu sína í er- lendri mynt njóta góðs af lágu gengi krónunnar, en það er misjafnt eftir fyrirtækjum hvort verðlistarnir eru í erlendum myntum eða íslenskum krónum, segir Árni. „Aftur á móti hefur það verið al- gengt undanfarin ár að menn reyni að jafna gengissveiflur með því að taka erlend lán gagnvart tekjum í erlendri mynt,“ segir hann ennfremur. Þessi erlendu lán hafi nú hækkað með lækkandi gengi krónunnar. „En almennt má segja að þeir ferðamenn sem komið hafa til lands- ins hafi notið þess að verðlag er hag- stæðara. Þetta hefur sýnt sig í tölum frá fyrirtækjum sem endurgreiða söluskatt,“ segir Árni. Hvað Flugfélag Íslands varði segir Árni að allur gengishagnaður hverfi þó í skuggann af mikilli hækkun elds- neytisverðs. Aukin framlegð Friðrik J. Arngrímsson, formaður LÍÚ, segir að lágt gengi krónunnar komi að sjálfsögðu vel við sjávar- útveginn, sem og þau fyrirtæki sem framleiða og selja vörur innanlands, og keppa við innfluttar vörur. Vissulega leiði lágt gengi til þess að útgjöld hækki nokkuð, en aukning á framlegð, þ.e. tekjur að frádregnum kostnaði, vegi hækkunina upp, og gott betur, hjá eðlilega skuldsettum fyrirtækjum. „Það má segja að þumalputt- areglan sé sú, að um helmingur tekju- aukningarinnar sem verður vegna lækkunar gengis krónunnar komi fram sem framlegðaraukning. Þær krónur sem þannig bætast við eru mjög mikilvægar því að það verður svo mikið eftir af þeim,“ sagði Frið- rik. Að undanförnu hafi aðstæður að vísu ekki verið með eðlilegum hætti sökum þess hve olíuverð hafi verið hátt en engu að síður sé tekjuaukning sem rekja megi til gengisins. „Eðlilega skráð gengi kemur okkur til góða, rétt eins og háa gengið hefur verið mjög erfitt fyrir okkur. En það sem við viljum auðvitað er geng- isjafnvægi. Svona sveiflur eru slæm- ar fyrir okkur,“ sagði Friðrik. Erlendar skuldir hækka Eggert Claessen, formaður Sam- taka upplýsingafyrirtækja, sagði lágt gengi „enga algjöra blessun“ fyrir hugbúnaðarfyrirtæki sem selji á er- lendum mörkuðum. Flest fyrirtæki hafi skuldir í erlendri mynt, og þær hækki líka með lækkuðu gengi. Hátt gengi krónunnar undanfarin ár hafi staðið hugbúnaðarfyrirtækjum fyrir þrifum, og því sé ljóst að leiðrétting á genginu hafi verið orðin löngu tíma- bær, þótt hún hafi farið út í öfgar undanfarið. Erna Indriðadóttir, upplýsingafull- trúi Alcoa Fjarðaáls, segir að allar tekjur fyrirtækisins séu í dollurum, en það séu stærstu kostnaðarliðirnir líka. Því hafi gengissveiflur lítil áhrif. Mjög mikilvægar krónur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Rígaþorskur Lágt gengi krónu kemur sér vel fyrir sjávarútveginn og þau fyrirtæki sem keppa við innfluttar vörur.  Sum fyrirtæki hafa notið góðs af því hversu lágt gengi íslensku krónunnar hefur verið  Hátt olíuverð vegur þó hið lága gengi upp að einhverju leyti Í HNOTSKURN »Þau fyrirtæki sem seljavörur eða þjónustu í er- lendri mynt njóta góðs af lágu gengi íslensku krónunnar, en ekki þau sem selja í íslenskri mynt. »Skuldir í erlendri mynthækka með lækkun geng- isins. »Gengissveiflur hafa lítilsem engin áhrif á fyr- irtæki hérlendis sem hafa bæði tekjur og helstu kostn- aðarliði í erlendri mynt. HALLDÓR J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, hyggst ekki sækja um forstjórastöð- una hjá Lands- virkjun, en hún er nú laus til um- sóknar. Þær sögur hafa gengið fjöll- unum hærra að Halldór hafi augastað á forstjóra- stólnum en þær eru ekki á rökum reistar. „Ég er mjög ánægður í mínu starfi hjá Landsbankanum. Áhugi minn á málaflokknum og fyrri reynsla kunna að hafa komið slíkum sögum af stað,“ segir Halldór. „Það eru hins vegar mörg aðkallandi og krefjandi verkefni sem ég glími við í bankanum og það er því ekkert far- arsnið á mér,“ bætir hann við. Umsóknarfrestur er til 26. sept- ember. Staðan var auglýst laus til umsóknar í byrjun september en Friðrik Sophusson hefur ákveðið af láta af störfum. Fresturinn átti að renna út 12. þessa mánaðar en var framlengdur m.a. til að sýna að ekki væri búið að ráðstafa starfinu, að sögn Ingimundar Sigurpálssonar, stjórnarformanns Landsvirkjunar. thorbjorn@mbl.is Halldór ekki í stólinn hjá Landsvirkjun Halldór J. Kristjánsson Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Óvæntur glaðningur fylgir hverjum kaupum Komdu og kíktu á nýju vörurnar YFIRHAFNIR frá PAS Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið í dag: Bæjarlind 10-16, Eddufell 10-14. Haustfagnaður Hríseyinga verður haldin í Húnabúð, Skeifunni 11, laugardaginn 4. október nk. Húsið opnað kl. 19. Miðaverð kr. 4.000. Miðapantanir hjá Valgerði í símum 864 3599/566 6610 fyrir 27. september nk. Það er dýrmætt fyrir unglinga að eiga val BORGARALEG FERMING 2009 Skráning er í fullum gangi Upplýsingar á heimasíðu félagsins: www.sidmennt.is og í símum 567 7752, 557 3734 eða 553 0877. Skráning í sömu símum eða á eyðublaði á heimasíðunni. Boðið verður upp á helgarnámskeið, ætlað landsbyggðarfólki. 10 47 82 5 BRIDS SKÓLINN Byrjendur: Hefst 22. september - 10 mánudagskvöld. Framhald: Hefst 24. september - 10 miðvikudagskvöld. Upplýsingar og innritun í síma 564-4247 á milli kl. 14 og 18 um helgina. Sjá nánar á Netinu undir Bridge.is / fræðsla. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ www.fi.is, fi@fi.is sími: 568-2533, m bl 10 19 54 6 Ferðafélag Íslands Jóhannes Ellertsson langferðabílstjóri og ferðafélagi sýnir kvikmyndir úr ferðum félagsins, allt frá árinu 1958. Jóhannes sem var á meðal fyrstu manna á landinu sem eignaðist kvikmyndatökuvél og tók fjölmargar kvikmyndir á ferðum sínum með félaginu. Ótal margir gamlir og góðir félagsmenn koma við sögu í þessari sýningu Jóhannesar sem sýnir á skemmtilegan hátt stemmingu í ferðum, búnað, leiðsögn og fleira. Aðgangseyrir á myndakvöldið er kr. 600. Innifalið er kaffi og meðlæti. Allir velkomnir. Skráðu þig inn – drífðu þig út Kvikmyndir úr ferðasafni F.Í. Myndakvöld FÍ miðvikudag 24. september kl. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.