Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 28
Heyrðu snöggvast Snati minn Sjálfstæðisflokk- urinn á einn vin sem aldrei bregst og kem- ur nú til hjálpar þeg- ar flugfjaðrirnar tæt- ast af fálkanum knáa í hörðum mótvindi. Það er ósýnilegi skrí- bentinn (ÓS) á bak við Staksteina. Við framsóknarmenn fengum kaldar og þóttafullar kveðjur í Staksteinum mið- vikudagsins. Nú var það afbrýðisemi út í faglega skoðun okkar á framtíðarspursmáli Íslendinga í gjaldeyr- ismálum sem Sjálf- stæðisflokkurinn hef- ur ekki innri styrk til að skoða. Færasti og faglegasti ritstjóri ís- lensku blaðaflórunnar tekur annan pól í hæðina sama dag og færir rök fyrir máli sínu, ólíkt Stak- steinum. Í leiðara Fréttablaðsins segir ritstjóri blaðsins skýrslu okkar um gjaldeyrismálin „þakk- arvert pólitískt framlag“ og fer virðingarorðum um Framsókn- arflokkinn. Telur hann flokkinn í rauninni eina stjórnmálaflokkinn sem leggur vinnu í málefnalegar úttektir, bæði hvað varðar evru og Evrópusambandið. Ég vil þakka Þorsteini Pálssyni málefnaleg skrif. Þau eru þeim mun þakkarverðari vegna þeirrar póli- tísku uppdráttarsýki sem einkennir Morg- unblaðið. Ég man eft- ir því frá æsku hvað hann Snati, þessi frá- bæri smalahundur frá Brúnastöðum, fór oft ógætilega að góðum gestum og gelti ógur- lega og beraði tenn- urnar. Það var jafn- framt eins og hann væri harðari við póli- tíska andstæðinga föður míns. Þótt mér þætti vænt um Snata fannst mér þetta ósið- ur hjá greyinu og ómaklega að gestum vegið. Staksteinahöfundur minnir mig oft á þennan trygga fjár- hund. Hann er alltaf verstur þegar hann finnur að Sjálfstæð- isflokkurinn á undir högg að sækja. Aðgerðarleysið er ekki góð aðgerð Sjálfstæðisflokkurinn liggur ein- mitt vel við höggi í pólitískri um- ræðu dagsins í dag. Hann hefur neitað að horfast í augu við og tak- ast á við alvarlegan efnahagsvanda þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn sagði ekkert vera að í fyrrasumar. Hann sagði að ekkert væri að í fyrrahaust. Hann sagði að það væri ekkert að á þorra og fyrir nokkru átti botninum að vera náð. Aðgerðaleysið er enda góð aðgerð til að leysa málin, að mati for- sætisráðherra. Morgunblaðið lýsir reyndar sama dag afleiðingum að- gerðaleysis á forsíðu blaðsins. Þar segir að erlendar skuldir heim- ilanna hafi hækkað um 129% á einu ári, á sama tíma og gengið hefur fallið um 43%. Hjá Láns- trausti koma þær upplýsingar fram að 1100 fyrirtæki stefni nú í vanskil og séu komin á vanskila- skrár til viðbótar við þau sem þar eru fyrir. Þúsundir einstaklinga stefna sömu leið. Er nú að undra þótt einhverjir undrist yfir forystu eða forystuleysi Sjálfstæðisflokks- ins. Hvað myndi höfundur Stak- steina segja ef forystan í ríkis- stjórninni væri Samfylking- arinnar? Staksteinar halda áfram í morgunógleði sinni og telja að 90% lán Íbúðalánasjóðs hafi sett allt af hjörunum hér á landi. Flestir vita hins vegar að það var bankakerfið sem fór út af í offorsi sínu 2004 þegar það tók að veita 100% lán út á íbúðarhúsnæði, án fjárhæðar- takmarkana. Nú þakka heimilin og þjóðin fyrir varðstöðu okkar um Íbúðalánasjóð og er margur feginn að eiga skuldir sínar þar. Sam- kvæmt nýrri könnun Capacent Gallup eru ríflega 9 af hverjum 10 fasteignakaupendum ánægðir með Íbúðalánasjóð og svipaður fjöldi telur að sjóðurinn eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd. Stak- steinasnati ætti að vekja heim- ilisfólkið á bænum, sem stendur í ljósum logum, en ekki urra og gelta að góðum nágrönnum sem mættir eru með skjólur til að hjálpa við að slökkva eldinn. Öðru- vísi koma ekki, kæri minn, „kakan þín og jólin“. Guðni Ágústsson svarar Staksteinum » Staksteina- höfundur minnir mig oft á þennan trygga fjárhund. Hann er alltaf verstur þegar hann finnur að Sjálf- stæðisflokk- urinn á undir högg að sækja Guðni Ágústsson Höfundur er formaður Framsóknarflokksins. 28 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ERLING Ásgeirsson formaður bæjarráðs Garðabæjar og leiðtogi sjálfstæðismanna í bæj- arstjórn skrifar pistil í Morgunblaðið 6. ágúst sl. þar sem hann m.a. kveinkar sér undan úr- skurði samgöngu- ráðuneytisins vegna kæru minnar varðandi ólöglega álagningu fast- eignaskatts í Garðabæ. Málflutningur Er- lings í pistli þessum er vægast sagt ómerki- legur. Hann segist vilja lækka eða fella niður fasteignagjöld en framkvæmir svo allt annað í bæjarstjórn. Kjarni þessa máls er að sam- kvæmt lögum má veita tekjutengd- an afslátt af fasteignaskatti en Er- ling og fylgifiskar hans í bæjarstjórninni hafa hækkað fast- eignagjöld á tekjulágum elli- og ör- orkulífeyrisþegum en á móti veitt öllum eldri en 70 ára ólöglegan fast- an afslátt af fasteignaskatti óháð tekjum. Í pistlinum segir Erling „Á tylli- dögum er rætt um að gera þyrfti átak í málefnum aldraðra. Eitt það fyrsta sem þá kemur til umræðu er að gera þurfi eldra fólkinu kleift að búa sem lengst heima í íbúðum eða húsum sínum.“ Fallega skrifað, en hér er greinilega maðkur í mysunni. Nauðsynlegt er að Erling skýri betur þessi félagslegu viðhorf sín, hvernig það gagnast öldruðum og öryrkjum til að búa lengur í eigin húsnæði að skattpína þá sem litlar tekjur hafa og á sama tíma að hygla þeim sem hafa rúmar tekjur og eng- an lagalegan rétt til ívilnunar. Erling ruglar stöðugt saman fast- eignaskatti og fasteignagjöldum. Það er kannski ástæða þess að í Garðabæ er aðeins veittur afsláttur af fasteignaskattinum en ekki öðr- um fasteignagjöldum eins og gert er í nágrannasveitarfélögunum. Hann virðist ekki vita annað en að þessi mál séu í góðu lagi í Garða- bæ. Ég vil því benda honum á að kynna sér hvernig þessum málum er fyrir komið vítt og breitt um landið. Samkvæmt álagningu ársins 2007 greiddi ég í fasteignagjöld af húsi mínu í Garðabæ kr 159.000. Miðað við reglur nágrannasveita- félaganna hefði ég greitt: Í Reykja- vík kr 77.000 á Seltjarnarnesi kr 82.000, í Kópavogi kr 68.000. Það er því augljóst að skattheimta á lág- tekjufólki er miklu hærri í Garðabæ en hjá þessum sveitarfélögum. Þetta hefur ekkert breyst en hroka- fyllri yfirlýsingar heyrast nú frá valdsmönnum Garðabæjar en áður, gagnvart lágtekjufólki. Það er því ljóst að það er alrangt hjá Er- ling að bæjarstjórn Garðabæjar vilji lækka skatta hjá öldr- uðum Garðbæingum, a.m.k. innan gildandi lagaramma. Svo er hann undr- andi á að ég kvarti! Erling telur að samgönguráðuneytið hafi gert Garðabæ að falla frá frekari af- slætti til 70 ára og eldri. Þetta er aðeins rétt að hluta. Sam- kvæmt lögum má af- slátturinn vera víð- tækari en ekki aldurstengdur. Veita má öllum örorku- og ellilífeyrisþegum af- slátt miðað við tekjur. Upphæð tekjumarkanna skal ákveðin af bæj- arstjórn og er hún án nokkurra há- markstakmarkana frá hendi löggjaf- ans. Eftir lestur á Moggapistli þínum hvarflar það að mér að þú hafir kannski ekki skilið erindið frá mér og þá ekki heldur leiðbeiningar og reglur sem félagsmálaráðuneytið sendi bæjarstjórn Garðabæjar haustið 2005 varðandi álagningu fasteignagjalda. Ég hef ítrekað bæði rætt við þig og aðra bæjarfulltrúa um þetta mál ásamt því að senda bæjarstjórn skrifleg erindi. Þrátt fyrir endurtekin loforð þín um leiðréttingu fasteignagjalda minna varð ekkert um efndir. Því þurfti ég að leita réttar míns hjá æðra stjórnvaldi sem úrskurðaði að Garðabær hefði brotið á rétti mín- um og þar með annarra eldri borg- ara í bænum. Því er það furðulegt að þú skulir tala um kæru mína sem „blauta tusku“ framan í þá sem um málið fjölluðu og ekki síst eldri borgara. Ég held þú ættir að hug- leiða hver kastaði fyrst þessari „blautu tusku“ og í hverja. Margir eldri borgarar í Garðabæ hafa haft samband við mig og þakk- að mér fyrir að hafa hreyft við þessu réttlætismáli, með góðum ár- angri. Einu óánægjuraddirnar sem ég hef heyrt eru frá Ragnheiði Erlu Árnadóttur þingmanni og einstaka bæjarfulltrúa. Ágæti bæjarfulltrúi, Erling Ás- geirsson, hvernig væri að skella sér nú til Vestmannaeyja og kynna sér málin þar? Í Eyjum þyrfti ég engin fasteignagjöld að greiða og fara þeir þó að landslögum. Geta þeir ekki verið góð fyrirmynd fyrir ykkur sjálfstæðismenn í Garðabæ? Mér virðist að eldri borgarar í Vest- mannaeyjum búi í sannkölluðum „blómabæ“ en hjá Garðabæ, bæ í blóma, séu þau farin að visna og deyja. Það má lækka skatta Jón Fr. Sigvaldason svarar grein Erlings Ásgeirssonar »Nauðsynlegt er að Erling skýri betur þessi félagslegu við- horf sín... Höfundur er ellilífeyrisþegi í Garðabæ. Jón Fr. Sigvaldason VARAFORMAÐUR stjórnar Íslandspósts, Guðmundur Oddsson, ritar athyglisverða grein í eitt dagblaðið nýverið um póstþjón- ustu og súr ber. Þar reynir hann að réttlæta niðurskurð og skerð- ingu á póstþjónustu, einkum í dreifbýli. Hann hælir sér af því að hafa verið mörg ár í stjórn Íslandspósts g tekið þátt í að stýra honum inn í „ breytt rekstrarumhverfi,“ les markaðs- væðingu. Það er í sjálfu sér áhyggjuefni þegar maður með svo eindregna af- stöðu markaðshyggju er settur í stjórn almannaþjónustufyrirtækis eins og Íslandspósts. Þess sjást enda ýmis merki að nú eigi að búa í hag- inn fyrir einkavæðingu og sölu fyr- irtækisins á komandi árum. Undan því verður hins vegar ekki vikist enn sem komið er að Íslands- póstur er í 100% eigu ríkisins og samgönguráðherra fer með eina hlutabréfið. Íslandspóstur á að þjóna jafnt öllum landsmönnum óháð búsetu – og óháð duttlungum mismunandi stjórnarmanna eða ráð- herra. Talsmenn landsbyggðarinnar koma úr VG Nú getur það svo sem verið erfitt fyrir þéttbýlisbúann og markaðs- hyggjumanninn Guðmund Oddsson, sem fær sinn póst reglulega inn um bréfalúguna á hverjum degi, að setja sig inn í aðstæður á landsbyggðinni. Ég velti hins vegar fyrir mér hvað Guðmundur í Kópavogi myndi segja við því að vera gert að sækja póstinn sinn í póstkassa sem stæði við þjóð- veginn uppi í Ártúns- brekku. Guðmundur talar um „sjálfskipaða talsmenn landsbyggð- arinnar úr VG“ sem vilja verja þjónustu póstsins á lands- byggðinni. Það er al- veg hárrétt. En þar eigum við samleið með fjölmörgum öðrum íbúum landsbyggð- arinnar, sveit- arstjórnum sem sent hafa bréf, beiðnir og kærur til Íslandspósts, til stjórn- valda um að vera ekki settir á „ dauðalista“ Íslandspósts. Að vera taldir svo óarðbærir og samfélags- lega íþyngjandi að verði að skera af þeim þjónustuna. Hér fylgir úrdrátt- ur úr bréfi sveitarstjóra Reykhóla- hrepps frá 26. ágúst sl., en fleiri slík hafa borist úr öðrum héruðum: 14 kílómetrar í póstkassann „Eins og þér er kunnugt um eru uppi áform um að fækka póstburð- ardögum í hluta Reykhólahrepps úr fimm í þrjá á viku. Mun þetta taka gildi frá 1. sept. 2008 að telja. Sömu- leiðis er búið að ákveða að leggja niður einu póstafgreiðsluna í sveit- arfélaginu sem er í Króksfjarðar- nesi. Við mótmæltum, en árangurs- laust, og bentum á að flytja bæri póstafgreiðsluna úr dreifbýlinu og í þéttbýliskjarnann sem er hér á Reykhólum. Hér búa um 130 manns í þorpinu en engin póstafgreiðsla er hér. Hér eru fyrirtæki í fullum rekstri og við þurfum á þessari þjón- ustu að halda, hvað sem aðrir halda. Hluta af kostnaði við póstdreif- ingu er velt yfir á móttakendur póstsins, t.d. á einum bæ er póst- kassinn í 7 km fjarlægð frá heim- ilinu, þar sem ein ekkja býr og þarf hún að aka 14 km til að tæma póst- kassann sinn eða til að komast að því að hann er tómur. Hingað til hefur þessi kona fengið póstinn sinn heim eins og aðrir.“ Á „dauðalista“ Íslandspósts Þegar nú Íslandspóstur ákveður upp á sitt einsdæmi að fækka póst- ferðum, skilja póstinn eftir úti við þjóðveg langt frá bæjum sem áður var keyrður heim rétt eins og í stór- þéttbýlinu eða loka einu póst- afgreiðslunum í heilum byggð- arlögum, þá er hann að setja þær byggðir á „dauðalista“ sinn: það sé ekki arðbært að þjónusta þær þó svo í lögum sé skýrt kveðið á um að jafn- ræðisregla stjórnarskrárinnar gildi í póstþjónustu landsmanna. Fyrir Kópavogsbúann Guðmund getur það virst einföld aðgerð að loka póstafgreiðslu og skera niður póstferðir í heilum byggðarlögum og segja starfsmönnum upp. En með því er ekki aðeins verið að skera nið- ur þjónustuna og skerða samkeppn- ishæfni búsetunnar heldur er verið gefa skýr skilaboð um að íbúarnir séu annars og þriðja flokks: Guð- mundur í Kópavogi sé þjóðinni miklu mikilvægari og arðbærari en ekkjan í Reykhólasveit; það sé rétt og eðlilegt að mismuna fólkinu í landinu. Þar skilur á milli okkar Guðmundar. Guðmundur í Kópavogi og ekkjan á Reykhólum Jón Bjarnason skrif- ar um póstþjónustu á landsbyggðinni » Fyrir Kópavogsbú- ann Guðmund getur það virst einföld aðgerð að loka póstafgreiðslu og skera niður póst- ferðir í heilum byggð- arlögum... Jón Bjarnason Höfundur er þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi. MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðu- greinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefn- um mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráð- stefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvu- pósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.