Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Í HNOTSKURN
» Yfirtakan á Fannie Maeog Freddie Mac mun kosta
allt að 200 milljörðum dala.
» Yfirtakan á AIG munkosta seðlabankann 85
milljarða dala.
» Fjármálaráðuneytið hefurgefið út skuldabréf að and-
virði 100 milljarða dala til að
styrkja sjóði seðlabankans.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
UNDANFARNAR vikur hafa
bandarísk stjórnvöld hlaupið undir
bagga með illa stöddum fjármálafyr-
irtækjum með einum eða öðrum
hætti og hleypur kostnaðurinn á
hundruðum milljarða dala.
Yfirtakan á lánasjóðunum Fannie
Mae og Freddie Mac mun kosta ríkið
allt að 200 milljörðum dala og yfir-
takan á tryggingafélaginu AIG mun
kosta 85 milljarða til viðbótar.
Þá sagði Henry Paulson, fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, á frétta-
mannafundi í gær að frekari aðgerða
yfirvalda sé að vænta og að þær
muni kosta hundruð milljarða dala
til viðbótar. Koma þær aðgerðir til
viðbótar við 145 milljarða dala að-
gerðir ríkisstjórnarinnar í upphafi
árs og innspýtingar á hundruðum
milljarða dala frá seðlabankanum
undanfarin misseri.
Er nú svo komið að fjármálaráðu-
neytið bandaríska taldi rétt að gefa
út skuldabréf að andvirði 100 millj-
arða dala á þriðjudag og miðvikudag
til að styrkja sjóði seðlabankans.
Samtals er um að ræða hátt í fimm
hundruð milljarða dala hið minnsta.
Þessir peningar vaxa ekki á trjánum,
frekar en annað fé, og á endanum
munu bandarískir skattgreiðendur
þurfa að borga brúsann. Spurningin
er hins vegar sú hve mikið af áður-
nefndu fé er tapað að fullu.
Eitthvað kemur til baka
Gera margir til dæmis ráð fyrir að
„fjárfesting“ hins opinbera í AIG
muni borga sig á endanum. Er mark-
miðið að koma tryggingafélaginu
aftur á réttan kjöl og selja svo þann
80% hlut sem ríkið fékk í kjölfar að-
gerðanna. Óljóst er enn hver áform-
in eru með Fannie Mae og Freddie
Mac, en hugsanlega verður hægt að
bjarga einhverjum verðmætum þar.
Hefur í þessu sambandi verið bent
á að árið 1979 hafi bandaríska ríkið
gengist í ábyrgð fyrir 1,2 milljarða
króna láni til Chrysler bílaframleið-
andans. Fjórum árum síðar komst
fyrirtækið á lappirnar á ný og arður
ríkisins af láninu reyndist um 300
milljónir dala.
Burtséð frá því er ljóst að ekki
munu öll útgjöld ríkis og seðlabanka
verða greidd til baka með þessum
hætti. Munu þarlendir skattborgar-
ar þurfa að standa undir þeim, sem
og áðurnefndum fjárlagahalla.
Hvernig unnið verður úr þeim vanda
er hins vegar óljóst enn. Vandasamt
verður fyrir stjórnvöld að hækka
skatta á fyrirtæki í því árferði sem
nú ríkir á mörkuðum. Fjármagns-
tekjuskattur er nú 15% á eignir sem
viðkomandi hefur átt í meira en ár,
en skemmri fjármagnseignir eru
skattlagðar eins og um venjulegar
tekjur sé að ræða. Spurning er því
hvort samkeppnisstaða Bandaríkj-
anna muni skaðast verði þessi skatt-
ur hækkaður frekar.
Telja verður hins vegar að al-
menningur í Bandaríkjunum muni
taka því afar illa verði tekjuskattur á
einstaklinga hækkaður til að greiða
fyrir mistök auðmanna á Wall
Street.
Skattgreiðendur munu
þurfa að borga brúsann
Björgunaraðgerðir bandarískra stjórnvalda hlaupa á hundruðum milljarða dala
Reuters
Aðgerðir Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Henry Paulson, kynnti í gær
aðgerðir ríkisins til að koma böndum á fjármálakreppuna þar í landi.
*+ *+
!
"#$
"$%
,
,
*+ 1 -+
!&! %
!'
"$(
"$)
,
,
. / 0 12
''&'
!&!()
"$)
"$)
,
,
3456
.7+
&''
#&'%
"$
" $#
,
,
*+ 2#!
*+ 3&
)&% #
!
" $!
"$'
,
,
4
3456" 6 7 3478#97:
; ! "!
&6 %7 %
78 )
7
9
: )
- ;
9
: )
6< )
9
= )
) 6 :> ? @8
9
: )
A:B - )
C= ? )
)
5DE*1
5
F-
3
)=) )
G
)
$6
78 7
/
78 D
D(3
6 -
3H
-
1I
)
4 )
)
& 3' 48 )
J
7 J )
- 9
)
: )
9,: 5
#$(
$'
!$(%
#$
')$)
)$)%
!%$)
(')$%%
!!$(%
%$%%
$%
$)!
)$%%
!%%$%%
' '%$%%
' $%%
'##$ %
!'$(
'$%%
$ %
#'%$%%
:
4=
A: 5 #!%)#')$&K
K)KK)$%$
#&#)%#%)K&$
'K )K#)#
K)K!!)K'&)"!#
$"')'$
K#)K%) %
#)$"!)!K")%K%
K)K$%)K&K)%!"
# K)%'#)K&
#)'&$)'"K
#) "")#!%)&!&
&") %)'%#
K)K"')!
#)K&$)"&K
#)"#)"$"
F
F
F
&)%#!)
F
F
%'
!#!
K%
%!"
#&K&
&K&
&
'#&
'
$
K#
"K'
$K"
%
#!
#'
#%&!
F
F
F
K&"
F
F
%'"
!#%
K'
%%
#&K!
&&
!
'#!
'!
$ %
KK
"&
$&'
#
#!K
#%%!
#'!
#$
F
K!K
# !
!
3 ; :
#$
&#
K$
#K$
#&
#K
!
#&K
##$
#&
"
$#
#K
F
"
K
%
F
F
F
!
F
F
.
; );
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#")$) "
#$)$) "
#$)$) "
#$)$) "
#%)') "
!)") "
K)%) "
#$)$) "
##)$) "
')K) "
74
74
74
ÓHÆTT er að segja að aðgerðir
bandarískra stjórnvalda til þess að
draga úr áhrifum fjármálakrepp-
unnar hafi vakið kæti fjárfesta á
mörkuðum heimsins í gær. Vest-
anhafs tóku markaðir gleðikipp
þegar í fyrrakvöld þegar út spurðist
að stjórnvöld myndu grípa til að-
gerða. Þessi gleði smitaðist yfir á
aðra markaði og víða hækkuðu vísi-
tölur meira en þær hafa gert um
áratugaskeið. Þannig hækkaði
Hang Seng-vísitalan í Hong Kong
um 9,61% í gærmorgun og í Tókýó
hækkaði Nikkei-vísitalan um 3,76.
Þar með var tónninn gefinn og eftir
því sem leið á daginn og vestar var
komið héldu hækkanirnar áfram.
Helstu vísitölur Evrópu hækkuðu
verulega; FTSE-vísitalan hækkaði
um tæp 9%, þýska DAX-vísitalan
um 5,6% og CAC-vísitalan franska
hækkaði um 9,3%.
Lokað þrisvar
Mest allra hækkaði þó RTS-vísi-
talan í Rússlandi. Við lokun mark-
aðar í Moskvu hafði vísitalan hækk-
að um rúm 22%. Ef til vill er réttara
að segja við síðustu lokun dagsins
því kauphöllinni í Moskvu var lokað
þrisvar í gær. Fyrst um klukku-
stund eftir opnun og síðan aftur um
hádegið. Ólíkt því sem gerðist fyrr í
vikunni var það þó hin mikla hækk-
un sem olli lokununum í gær.
Norðurlöndin voru enginn eftir-
bátur annarra markaða. Í Stokk-
hólmi hækkaði aðalvísitalan um
8,2% sem að sögn sænskra miðla er
mesta hækkunin í áratug. Svipaða
sögu er að segja frá Finnlandi,
Danmörku og Noregi og hér á Ís-
landi hækkaði úrvalsvísitalan um
5,23%.
Engum blöðum er um það að
fletta að það eru aðgerðir banda-
rískra stjórnvalda í kjölfar hrunsins
fyrr í vikunni sem ollu þessari gleði-
bylgju en eins og nærri má geta er
alltof snemmt að segja til um hvort
áhrifin verða varanleg. Alltént
hækkuðu helstu vísitölur vestan-
hafs aftur í gærkvöldi, eins og sjá
má efst á síðunni. sverrirth@mbl.is
Gleðistökk á mörkuðum heimsins
Miklar hækkanir í Evrópu og áfram-
haldandi hækkanir í Bandaríkjunum
Reuters
Upp TSX-vísitalan í Kanada hækk-
aði síðast svona mikið árið 1987.
FLEIRI evrópsk flugfélög eiga eftir
að leggja upp laupana á næstu vik-
um, að mati forstjóra Ryanair,
stærsta lággjaldaflugfélags Evrópu,
Michael O’Leary.
Undanfarið hafa flugfélögin Zo-
om, Futura og XL Airways hætt
starfsemi vegna greiðsluerfiðleika.
Eins er útlitið ekki bjart fyrir ítalska
flugfélagið Alitalia og stefnir allt í
gjaldþrot þess.
„Við teljum að fleiri evrópsk flug-
félög eigi eftir að verða gjaldþrota á
næstu vikum á
sama tíma og sí-
fellt fleiri evrópsk
flugfélög sem eru
rekin eru með
tapi verða uppi-
skroppa með fé
og lánstraust
þeirra verður rú-
ið trausti,“ sagði
O’Leary. Hann
sagði einnig að ljóst væri að æ fleiri
evrópsk flugfélög ættu eftir að sam-
einast og verða hágjaldaflugfélög.
Þau félög sem ættu eftir að leiða
þessar breytingar væru British Air-
ways, Air France og Lufthansa.
Hlutabréf í Ryanair hækkuðu
talsvert í verði í gær eftir hluthafa-
fund Ryanair í gær þar sem fram
kom í máli forstjórans að ekki væri
lengur hætta á að Ryanair yrði rekið
með tapi á yfirstandandi rekstrarári
sem lýkur í mars. Skýringuna er að
finna í lækkunum á eldsneytisverði
að undanförnu. guna@mbl.is
Fleiri evrópsk flugfélög
í hættu á gjaldþroti
Forstjóri Ryanair svartsýnn á framtíð evrópsks flugiðnaðar
Michael O’Leary
● VÍSITALA byggingarkostnaðar,
reiknuð um miðjan september
2008, er 447,7 stig. Það er hækkun
um 1,5% frá fyrri mánuði.
Á síðustu tólf mánuðum hefur vísi-
tala byggingarkostnaðar hækkað um
18,8%, en í júní 1987 var vísitalan
100 stig.
Vísitala byggingarkostnaðar mæl-
ir, eins og nafnið gefur til kynna,
heildarkostnað við byggingu íbúðar-
húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Gera má ráð fyrir að gengi krónu og
verðbólga ráði mestu um hækkun
vísitölunnar nú. bjarni@mbl.is
Byggingarkostnaður
hækkar milli mánaða
● HEILDAREIGNIR tryggingafélag-
anna námu 154,9 milljörðum króna í
lok júlí og höfðu þá lækkað um 2,5
milljarða milli mánaða. Frá júl-
ímánuði 2007 hafa eignir trygginga-
félaganna lækkað um 27,7 milljarða
króna, eða um 15%.
Eigin vátryggingaskuld jókst milli
mánaða um 3,4 milljarða króna og
nam 72,3 milljörðum í lok júlí.
Eigið fé tryggingafélaga stóð í
52,6 milljörðum króna í lok júlí og
hafði þá dregist saman um 4,9 millj-
arða, eða 8,5%, frá því í mánuðinum
á undan. bjarni@mbl.is
Minnkandi eignir
tryggingafélaganna
● MEÐAL vinsæl-
ustu hluta til sölu
á uppboðs-
vefnum Ebay eru
nú alls kyns hlutir
merktir fjárfest-
ingarbankanum
Lehman Brot-
hers. Lehman
hefur óskað eftir
greiðslustöðvun
og gera fáir ráð
fyrir að hægt verði að bjarga honum
frá gjaldþroti. Það eykur mjög verð-
mæti hluta sem bera vörumerki
bankans. Á vef danska blaðsins Bør-
sen er talað við fyrrverandi starfs-
mann bankans, sem selur nú m.a.
vatnsflöskur merktar Lehman fyrir
20 dali stykkið. bjarni@mbl.is
Fjármálasagan boðin
upp á Ebay-vefnum
Lehman Verðmæti
í kassanum.
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
hækkaði um 5,23% í gær og stendur
hún nú í 4.055,84 stigum.
Bréf Exista hækkuðu um 17,29%
og SPRON hækkaði um 10,0%. Þá
hækkuðu bréf Føroya Banka um
8,82%, en ekkert félag lækkaði í
verði í gær. Gengi krónunnar styrkt-
ist um 2,15% í gær og var lokagildi
gengisvísitölunnar 172,2 stig. Gengi
dollarans er nú 91,2 krónur.
bjarni@mbl.is
Mikil hækkun
ÞETTA HELST ...