Morgunblaðið - 20.09.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 21
fjárfestingastarfsemi. Það á að vera eitt fyrsta
verk okkar á þingi að samþykkja lög um að-
greiningu á viðskiptastarfsemi bankanna ann-
ars vegar og fjármálastarfsemi þeirra hins veg-
ar, eins og ég hef lagt til frá árinu 2003.“
Hugsunarháttur græðginnar
Nú er þjóðin að upplifa mikla efnahagserf-
iðleika en var ekki alltaf ljóst að verið væri að
fara of geyst?
„Ekki var öllum það ljóst. Þeir sem haldið
hafa um stjórnartaumana á undanförnum árum
sáu ekki hvað framundan var og því miður hafa
fjölmiðlar um of manað upp ranghugmyndir
með því að mæra fjárfestingar spekúlanta út í
hið óendanlega. Það var talað af geysilegri lotn-
ingu um útrásarvíkingana sem voru að kaupa
og yfirtaka stórfyrirtæki víðs vegar um heim-
inn á lántökum. Núna þegar aðgengi að lánum
á heimsmarkaði er ekki það sama og áður var
þá blasir við að spilaborgin getur hrunið. Við
höldum niðri í okkur andanum í von um að svo
verði ekki.
Ég orðaði einhvern tíma þá hugsun að ef ég
stæði frammi fyrir því að senda annaðhvort
þotuliðið úr landi eða íslenska jafnaðarmanna-
samfélagið þá myndi ég frekar vilja að þotu-
mannskapurinn hefði sig á brott. Þá fékk ég
það til baka að ég vildi alla bankastarfsemi úr
landi. Það er af og frá. Ég vildi úr landi þann
hugsunarhátt græðginnar sem leitt hefur til
geigvænlegrar misskiptingar í samfélaginu. Ég
er fylgismaður þess að við rekum hér öfluga,
trausta og góða viðskiptabanka og er alls ekki
andvígur því að til séu fjárfestingasjóðir. En ég
vil hafa skýr greinarmörk þarna á milli. Eins og
stendur eru íslensku bankarnir að lang-
stærstum hluta fjárfestingarsjóðir, sem róa líf-
róður. Þeir geta ekki sinnt viðskiptabanka-
hlutverki sínu og soga til sín allan gjaldeyri til
að standa skil á eigin skuldum. Staðan í banka-
og gjaldeyrismálum er svo myrk í augnablik-
inu, þokan mikil, sögusagnirnar margar. Það
þarf að rannsaka gjaldeyrisviðskiptin þegar í
stað. Íslenskir fjármálamenn þurfa að fá tæki-
færi til að afsanna þann áburð að þeir séu að
vinna að veikingu krónunnar. “
NATÓ aldrei hættulegra
Verða Vinstri-grænir ekki að viðurkenna
að það sé gott mál að vera í NATÓ og varn-
arsamstarf sé nauðsynlegt?
„Ég held að NATÓ hafi aldrei verið hættu-
legri félagsskapur en einmitt núna. Ég byggi
það á því að NATÓ hefur breyst í eðli sínu. Í
varnarsáttmála NATÓ segir að árás á eitt ríki
jafngildi árás á annað. NATÓ hefur þróast frá
þessu fyrirkomulagi yfir í allt aðra hugsun. Í
stað þess að sagt sé að árás á eitt ríki sé árás á
öll er sagt að ógnun við eitt ríki sé ógnun við
þau öll. Samhliða þessu er talað um fyrir-
byggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir ógn
og síðan árás. Þessara fyrirbyggjandi aðgerða
megi grípa til hvar sem er á jarðkringlunni. Þá
spyr ég: Hverjum er líklegast til að verða ógn-
að í heiminum nú um stundir? Gæti það verið sá
aðili sem ásælist hráefni, olíu og auðlindir ann-
arra ríkja? Ætli stórveldin séu ekki þar fremst í
flokki. Formúlan er orðin sú að við eigum allt
okkar undir því hver stýrir för í Bandaríkj-
unum og því hversu árásargjarn og yfirgang-
samur hann er í heiminum. Ef honum er ógnað
þá er okkur líka ógnað og við tökum þátt í öllum
þeim fyrirbyggjandi aðgerðum og í kjölfarið
árásarstríðum sem honum þóknast að grípa til.
Þá spyr ég: Er þetta líklegasta leiðin til að
gæta varnarhagsmuna Íslands? Ég held ekki.
Ég held að það sé til önnur leið sem er miklu
vænlegri og hún er sú að fylgja réttlátum mál-
stað.“
Það eru deildar meiningar um Evrópusam-
bandið hjá Vinstri grænum en fer ekki svo að
stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar muni
hafa sigur í því máli?
„Ég skal ekki um það segja hver þessi þróun
verður. Verkstjórarnir í efnahagsmálum á und-
angengnum tveimur áratugum, og þá horfi ég
til Sjálfstæðisflokksins, hafa sett hér allt á hvolf
í efnahagslífinu. Menn leita leiða til að end-
urreisa samfélag okkar og efnahagslíf og líta til
Evrópusambandsins sem töfralausnar sem öllu
eigi að bjarga. Við getum aldrei og eigum ekki
að reyna að flýja okkur sjálf. Vandinn er að
uppistöðu til hér innanlands. Hér á landi eru
allar aðstæður til að reka mjög kröftugt sam-
félag. Við höfum farið út af brautinni með óhófi
og ekki sést fyrir í allri þessari einka- og mark-
aðsvæðingu og með því að gefa græðginni og
þotuliðinu lausan tauninn. Að þessu eigum við
að beina sjónum okkar. Við megum heldur ekki
gleyma því að innan Evrópusambandsins, eins
og reyndar víða um heim, er fólk að glíma við
gríðarleg vandamál. Umræðan um evruna er
allt of einfölduð enda þjónar slíkt tilteknum
valdahagsmunum. Tökum dæmi. Hérlendis
hefur hingað til verið sátt um að það sé for-
gangsverkefni að halda fullri atvinnu. Á evru-
svæðinu má segja að atvinnuleysi sé nánast
notað sem hagstjórnartæki. Þar er langtum
meira atvinnuleysi en hér. Viljum við slíkt?“
Dómgreindarleysi í stóriðjustefnu
Þú ert virkjanaandstæðingur. Hvað viltu
gera til að efla efnahagslífið ef ekki á að
virkja?
„Virkjanir eru ekki skynsamleg lausn í efna-
hagslegu tilliti. Staðreyndin er sú að virðisauk-
inn af álframleiðslu í eigu erlendra auðhringa
er miklu minni en af nánast allri annarri at-
vinnustarfsemi. Varnaðarorð okkar í Vinstri-
grænum voru á þann veg að ef geysilegum fjár-
munum yrði hent í stóriðju skapaðist þensla
sem myndi þrýsta vaxtastiginu upp og þar með
ryðja annarri atvinnustarfsemi út. Þetta er allt
að ganga eftir. Það hafa verið að birtast mjög
athyglisverðar greinar, í Morgunblaðinu til
dæmis, þar sem menn vara við að haldið sé
áfram á þessari braut. Ragnar Önundarson,
Þröstur Ólafsson og Jónas Haralz hafa meðal
annarra skrifað á þennan veg. Fjölmargir sem
eru ekki endilega á sömu pólitísku línunni sjá
dómgreindarleysið í áframhaldandi stór-
iðjustefnu.“
Ertu alfarið á móti virkjunum eða skiptir
máli til hvers er virkjað?
„Við eigum að draga andann djúpt og ekki
ráðast í frekari virkjanir fyrr en sátt hefur
náðst um náttúruvernd og rammaáætlun um
nýtingu orkunnar. Slíkt þarf tíma, yfirlegu og
vönduð vinnubrögð. Orkuauðlindir okkar verða
bara dýrmætari með árunum, náttúru-
gersemar sömuleiðis. Við eigum ekki að ana
áfram út í fenið og verðum að gæta okkur á því
að gerast ekki of frek gagnvart öðrum kyn-
slóðum. Hér er verið að virkja og festa orkuna
áratugi fram í tímann og það nánast eingöngu í
álframleiðslu. Það er ekki skynsamlegt.“
Þjórsá heldur með okkur
Þú ert formaður BSRB. Það hefur verið
gagnrýnt að BSRB hafi boðið sérfræðingum í
heilbrigðismálum hingað til lands, sérfræð-
ingum sem sagðir eru vinstri sinnaðir og sam-
mála Vinstri-grænum.
„Mér finnst uggvænlegur sá ofsi sem rís
vegna gesta sem hafa komið í boði okkar í
BSRB til að upplýsa um reynslu annarra.
Menn leyfa sér að gera lítið úr þeim, jafnvel
sverta mannorð þeirra og gera þeim upp skoð-
anir í stað þess að mæta þeim með rökum. Hjá
BSRB erum við að gera nákvæmlega það sama
og verkalýðshreyfingin í heiminum öllum sem
lætur sig samfélagið varða, framtíð þess,
skipulag og hvort við höfum velferðarkerfi sem
er skynsamlega fjármagnað eða kerfi sem er
ávísun á mismunun í samfélaginu.“
Það er stundum talað um stjórnmálamenn
eins og þeir tilheyri spilltri stétt. Hvernig eiga
þingmenn að losa sig undan slíkum stimpli?
„Það sem mér finnst skipta mestu máli er að
upplýsingar um fjármálatengsl, hagsmuna-
tengsl og pólítísk tengsl séu uppi á borðinu.
Það er besta vörnin. Þegar við horfum nú upp á
markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins þá þurf-
um við að vita hver tengslin eru út á markaðinn
og inn í þingið, inn í borgarstjórn, inn í bæj-
arstjórnirnar. Þetta á allt að liggja uppi á
borði. Ég hvet fjölmiðla til að knýja þá stjórn-
málaflokka sem þráast við til að opinbera öll
sín tengsl og fylgja því eftir með kortlagninu.
Stærstu hætturnar felast í upplýsingaleynd – í
þögninni. Í skjóli leyndar þróast spilling. Síðan
er náttúrlega hitt að stjórnmálamenn mega
aldrei falla í þá gryfju að nota aðstöðu sína til
að hygla sjálfum sér. Þannig eru eftirlaunalög-
in svartur blettur sem verður að þvo af Al-
þingi“
Eiga Vinstri grænir erindi í ríkisstjórn? Er-
uð þið ekki bara stjórnarandstöðuflokkur sem
getur haldið í prinsipp í stjórnarandstöðu en
yrði að víkja frá þeim í ríkisstjórn?
„Ég held að það sé rangt að stilla þessu
svona upp. Hverjir hafa verið hinir ábyrgu að-
ilar í efnahagsmálum, í fjármálum ríkisins og
skattamálum? Það erum við. Við höfum fylgt
mjög ábyrgri stefnu og höfum aldrei verið með
yfirboð. Varðandi umhverfismál þá held ég að
flestir myndu skrifa upp á það að stefna okkar
er ábyrg og yfirveguð. Ég er auk þess sann-
færður um að Þjórsá heldur með okkur og
hefði ekkert á móti því að við færum í rík-
isstjórn.“
En er ekki nokkuð þreytandi til lengdar að
vera í stjórnarandstöðu?
„Það er þreytandi að horfa upp á vanhugs-
aðar hugmyndir keyrðar í gegn með offorsi.
Mér finnst hins vegar ekki erfitt að lúta tíma-
bundið í lægra haldi. Ég er vanur því að eiga
við fólk og virði leikreglur lýðræðisins. Ef ég
verð undir eftir átök og upplýsta umræðu þá
verð ég að taka því. Ég held áfram og gefst
ekki upp. Mér finnst hins vegar óþolandi þegar
upplýst umræða fær aldrei að eiga sér stað.
Það gerist iðulega þegar við trúmenn markaðs-
hyggjunnar er að glíma. Þeir horfa fjarrænum
augum út í loftið og segja: Þetta er best komið í
höndum markaðarins. Hvort heldur er að baða
gamla konu, taka við slösuðum manni á bráða-
vakt, reka kaffihús eða róa til fiskjar. Sumt á
heima á markaði og sumt ekki. En það er ekki
hægt að tala við ofsatrúarfólk. Það horfir
framhjá manni og endurtekur trúarjátninguna.
Ef maður meðtekur ekki fagnaðarerindið þá er
maður vantrúaður. Á móti öllu. Stalínisti. Í
svona ástandi er erfitt að halda uppi upplýstri
umræðu. Þegar menn eru komnir í þrot þá eru
uppnefnin ein eftir. Reductio ad Stalinum,
myndi það kallast á latínu, að trompa með Stal-
ín héti það á íslensku.
Ég er fyrst og fremst í þessari pólitísku bar-
áttu vegna þess að ég get ekki annað. Ég yrði
alveg óþolandi ef ég yrði settur í pólitískt bind-
indi. Ef einhver stendur í þeirri trú að ég vilji
kyrrstöðu þá er það misskilningur. Ég vil kraft
og líf á öllum sviðum þjóðlífsins, endurnýjun og
nýsköpun. Ég er fylgjandi margbreytileik-
anum og vara við einsleitninni. Með einkavæð-
ingu og markaðsvæðingu er því miður verið að
keyra okkur inn í slíkan farveg. Gildismat okk-
ar verður að vera byggt á heilbrigðum og sann-
gjörnum grunni til frambúðar. Jöfnuði og jafn-
rétti má aldrei aftur fórna á altari græðgi,
spákaupmennsku og auðkýfingadýrkunar.“
æðgi
Morgunblaðið/Kristinn
» Mér finnst hins vegar óþolandi þegar upplýst umræða fær aldrei aðeiga sér stað. Það gerist iðulega þegar við trúmenn markaðshyggj-unnar er að glíma. Þeir horfa fjarrænum augum út í loftið og segja:
Þetta er best komið í höndum markaðarins. Hvort heldur er að baða gamla
konu, taka við slösuðum manni á bráðavakt, reka kaffihús eða róa til fiskjar.
Sumt á heima á markaði og sumt ekki. En það er ekki hægt að tala við ofsa-
trúarfólk. Það horfir framhjá manni og endurtekur trúarjátninguna. Ef mað-
ur meðtekur ekki fagnaðarerindið þá er maður vantrúaður. Á móti öllu. Stal-
ínisti. Í svona ástandi er erfitt að halda uppi upplýstri umræðu.
» „Við erum vel menntuð,eigum gríðarlegar
auðlindir. En við höfum verið
að fara afturábak undanfarin
ár vegna þess að vírus frjáls-
hyggjunnar hefur hreiðrað
svo rækilega um sig. Þeir sem
ráða eru hættir að trúa á
heilbrigða skynsemi, hættir
að trúa á skapandi atvinnu-
rekstur. Nú er það bara
braskið sem blívur.“
» „Það kom mér á óvarthversu mjög það fór
fyrir brjóstið á sumum að sjá
Guðlaug Þór skeytt saman við
Sarkozy Frakklandsforseta á
góðri stundu suður í Líbýu.
Þarna var að sjálfsögðu um
að ræða pólitískt skop. Menn
sem ég met mikils í
Sjálfstæðisflokknum hafa
komið til mín og beðist
afsökunar á húmorsleysi í
sínum flokki.“