Morgunblaðið - 21.09.2008, Side 2

Morgunblaðið - 21.09.2008, Side 2
2 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FJÖLMARGIR tóku þátt í útivistardegi sem vinir Gísla Sverrissonar og fjölskyldu hans efndu til á Akureyri í gær. Gísli hryggbrotnaði og hlaut al- varlegan mænuskaða á dögunum þegar hann datt af hjóli við Kjarnaskóg ofan Akureyrar og er lamaður fyrir neðan brjóst. Fólk gekk, hjólaði eða fór á hestum upp í Hlíðarfjall í gær og var þátttökugjald frjálst framlag. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gengið fyrir Gísla GANGNAMENN í Bárðardal fundu í gærmorgun, laugardag, spænsku- mælandi mann sem talið er að hafi fest bílinn sinn á fjallvegi, sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík. Gangnamenn rákust á hann við ár- bakka en talið er að hann hafi verið á reiki á hálendinu í nokkra daga. Fara átti með hann á Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga á Húsavík þar sem hlúð verður að honum. Fundu mann á reiki Talinn hafa verið́ í villum dögum saman „ÞAÐ er ekki gert af tillitssemi við eigendur eða stjórnendur fjár- málastofnana heldur til að freista þess að varðveita fjármálastöð- ugleikann því ef hann brestur er mikil vá fyrir dyrum hjá íslenskum almenningi,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í ræðu sinni er hún setti flokksstjórnarfund Samfylking- arinnar í Hafnarfirði í gær. Sú ein- arða afstaða ríkisstjórnarinnar að standa við bakið á íslenska fjár- málakerfinu þegar á brattann hafi tekið að sækja hafi verið rétt og frá henni verði hvergi hvikað. Hún sagði jafnframt að í við- skiptafréttum heims hefði enginn heyrst neita því að „góðu fréttirnar núna séu einmitt íhlutun og inngrip almannavaldsins.“ Við það hafi gjaldmiðlar styrkst og hlutabréf hækkað. Leikreglurnar verði skýrar Ingibjörg sagði mikilvægt að leik- reglur væru skýrar á öllum mörk- uðum. „Vegna þess að skortur á þeim veitir þeim sem hafa sterkasta stöðu – í skjóli fjármuna, valda, að- stöðu eða hefðarréttar – óréttmætt forskot til að notfæra sér frelsi markaðarins, stundum á kostnað skattgreiðenda,“ sagði hún. Þær leikreglur ættu jafnt við í auðlinda- málum, umhverfismálum, sjúkra- tryggingum sem og á fjár- málamarkaði. „Einkavæðing bankanna fór fram í skugga skorts á leikreglum. Það sem hefur einmitt einkennt flesta markaði undanfarin ár er skortur á regluverki – sem nú er kallað eftir.“ Gjaldmiðilsmálin verði skýr Ingibjörg sagði að því bæri að fagna að umræðan um Evrópumál væri að komast á hreyfingu. Verk- efni Evrópunefndar ríkisstjórn- arinnar sem færi til Brussel í næstu viku yrði að því virtist tvíþætt: „Að kanna og meta afstöðu ESB og stofnana þess til einhliða eða tví- hliða upptöku evru og að fram- kvæma hagsmunamat fyrir Ísland á aðild að Evrópusambandinu. Ég legg áherslu á að sú könnun fari fram hið fyrsta svo eyða megi allri óvissu um þá valkosti sem Íslend- ingar hafa í gjaldmiðilsmálum.“ Hún sagði að tengsl Íslendinga við ESB snérust um langtímahags- muni, að tryggja stöðugleika og sjálfbæran hagvöxt til lengri tíma. „Slíkt mat er gríðarlega mikilvægt því sá sem ekki veit hvert hann stefnir veit í raun ekki hvað best er að aðhafast.“ Engar töfralausnir væru til á vanda hagstjórnar Íslands. „Við sem byggjum þetta land þurfum að þétta raðirnar, taka höndum saman, senda áhættufíklana í meðferð og bjóða þá velkomna aftur í uppbygg- inguna þegar runnið hefur af þeim. Hreinsum til í hugarfari, lífsstíl og neyslu.“ jmv@mbl.is Hraða ber könn- un á evrukostum Vill skýrar reglur á mörkuðum Morgunblaðið/Frikki Einörð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir setti flokksstjórnarfund Samfylking- arinnar í gær og kom þar inn á fjármálavanda og gjaldmiðilsmál. FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÞEGAR Björn Bjarnason var menntamálaráð- herra var hann með til skoðunar hvort setja ætti þá verklagsreglu að auglýsa ávallt laus til um- sóknar embætti forstöðumanna að liðnum tíma- bundnum skipunartíma þeirra. Þetta sagði Björn í ræðu á fundi Félags forstöðumanna ríkisstofnana árið 2002. Hann kynnti sjónarmið sín innan rík- isstjórnarinnar en hafði ekki erindi sem erfiði, að fengnu áliti þáverandi fjármálaráðherra. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að hann hefur nú ákveðið að auglýsa lausa stöðu lögreglustjórans á Suð- urnesjum í apríl nk. en þá lýkur fimm ára skip- unartíma núverandi lögreglustjóra þar. Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Björns- syni, skrifstofustjóra starfsmannaskrifstofu fjár- málaráðuneytis, er afskaplega sjaldgæft að aug- lýstar séu stöður áður en sá skipunartími rennur út, en hann getur ekki staðfest að ákvörðun Björns sé einsdæmi. Ekkert óeðlilegt við þetta Í 23. gr. laga um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins segir að tilkynna skuli eigi síðar en sex mánuðum áður en skipunartími viðkomandi embættismanns rennur út, hvort embættið verður auglýst laust til umsóknar. Sé það ekki gert fram- lengist skipunartíminn sjálfkrafa um fimm ár. Gunnar segir allan gang á því hvernig ráðuneytin hagi sínum málum hvað þetta ákvæði varðar. Hjá sumum þeirra er hálfgert „viðvörunarkerfi“, þ.e. að ráðherrum er gert viðvart um að skipunartíma embættismanns fari að ljúka. „Þannig að ef þeir vilja skoða það, þá geta þeir það. En sumir eru ekki með neitt svona. Framkvæmdin er því jafn- fjölbreytt og ráðuneytin eru mörg,“ segir Gunnar. Í frétt Morgunblaðsins í gær um stöðu lög- reglustjórans var haft eftir dómsmálaráðherra, að verið væri að auglýsa stöðu sýslumannsins á Suð- urnesjum. Þar átti að standa lögreglustjórans á Suðurnesjum, og er Björn beðinn afsökunar. Í tölvubréfi til Morgunblaðsins segir Björn eðli- legt að auglýsa embættið og tiltekur tvær ástæð- ur. „Með því að sýslumannsembættið á Keflavík- urflugvelli var aflagt gjörbreyttist embættið, þar á meðal kjör þess, sem gegnir því,“ segir Björn og einnig: „Ég hef boðað enn frekari breytingar á embættinu, það er aðskilnað löggæslu, tollgæslu og öryggisgæslu við flug. Sé ástæða til að auglýsa embætti samkvæmt starfsmannalögum á það við í þessu tilviki og í sjálfu sér ekkert óvenjulegt við það.“ Guðbjörn Guðbjörnsson, formaður Tollvarða- félags Íslands, segir Jóhann R. Benediktsson hafa lyft grettistaki í málefnum tollgæslu á Keflavík- urflugvelli. „Við höfum verið mjög ánægðir undir hans stjórn og stoltir af þeim afrekum sem við höfum náð.“ Hann tekur hins vegar fram að ákvörðunin sé á ábyrgð ráðherrans, og vill því lítið tjá sig um hana. Ráðuneyti með „viðvörunarkerfi“ vegna skipunartíma forstöðumanna Ráðherra hafði til skoðunar hvort ávallt ætti að auglýsa að loknum skipunartíma „BREYTINGAR sem lúta í þá átt að landið verði gert að einu toll- umdæmi hafa verið orðaðar við stjórn Tollvarðafélagsins,“ segir Guðbjörn Guðbjörnsson, for- maður Tollvarðafélags Íslands. Hann telur að slíkar breytingar verði tollgæslunni í heild til framdráttar og styrkingar. Eftir því sem hann kemst næst eru tollverðir á Suðurnesjum og yf- irmenn tollgæslunnar því jafn- framt hlynntir. Guðbjörn segir breytingarnar allt annars eðlis en þær sem kynntar voru í vor, þegar rætt var um að sameina tollstjóra- embættin á Suðurnesjum og í Reykjavík, og að mati félagsins sé mikilvægt að ráðast í breyt- ingarnar sem fyrst. Eitt tollumdæmi GANGSETNING nýs tækjabúnaðar á Erpsstöðum í Dölum fór úrskeiðis og hlaust af því nokkurt tjón á tækj- um. Þorgrímur E. Guðbjartsson, bóndi á Erpsstöðum, segir í samtali við Skessuhorn.is að ætlunin hafi verið að setja allt af stað í fyrradag en ekki hafi farið betur en svo að það rauk úr öllu. Um er að ræða mikinn tækjabún- að í nýju fjósi á Erpsstöðum, en það er eitt stærsta og fullkomnasta fjós landsins. Til þess höfðu Þorgrímur og kona hans, Helga Elínborg Guð- mundsdóttir, tekið á leigu svokallað- an rafmagnshrút frá RARIK þar sem búnaðurinn krefst þriggja fasa rafmagns sem ekki er í boði á svæð- inu. Í fjósinu er yfir 100 milljóna króna fjárfesting hjónanna á Erps- stöðum og ætlunin m.a. að fullvinna þar mjólkurafurðir. Þorgrímur segir óþolandi að allt strandi nú á rafmagni. „Mér var boð- ið þriggja fasa rafmagn á bæinn fyrir 6 milljónir króna,“ segir hann. „Til- boðið lækkuðu RARIK-menn í 1,8 milljónir. Málið er hins vegar að ef þeir ákveða að leggja þriggja fasa rafmagn hér á næstunni mun það ekki kosta mig krónu. Þeir vilja hins vegar ekki gefa upp hvort né hvenær það standi til.“ Rauk í gegnum raf- magnshrút

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.