Morgunblaðið - 21.09.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.09.2008, Blaðsíða 17
Þótt hún stæri sig frekar en hitt af að vera smábæjarstúlka að upplagi, hef- ur henni efalítið fundist hálfhallær- islegt í ljósi sinnar nýju stöðu að hafa lítið ferðast til útlanda. Til að sýna fram á að hún væri ekki reynslulaus á alþjóðavettvangi voru þau boð látin út ganga að í júlí í fyrra hefði hún heim- sótt hermenn frá Alaska í Kúveit, bandarískar herstöðvar í Þýskalandi og Kúveit og einnig Írland. Boston Globe, CNN og fleiri fjölmiðlar upp- lýstu að hún fór aldrei yfir landamæri Kúveit og Íraks, og millilenti bara í Dublin til að taka eldsneyti. Vinsælasti ríkisstjórinn Sarah Palin er sannarlega mið- punktur athyglinnar um þessar mundir og virðist njóta sín prýðilega, þrátt fyrir óvægna gagnrýni úr öllum áttum. Hér skal því þó haldið til haga að hún er einn vinsælasti ríkisstjóri Bandaríkjanna, næstum 90% kjós- enda hafa lýst yfir ánægju með hana. Því meira sem ráðist er á hana, þeim mun þéttari er stuðningurinn við hana, sagði The Boston Globe í vik- unni og vitnaði í nýlega könnun Fox fréttastöðvarinnar þar sem hlutfall hliðhollra var 54 á móti 27 óhliðholl- um. Þá nefndu 33% hana sem þann frambjóðanda, sem „best skilji vandamál venjulegs fólks í Banda- ríkjunum“. Svo alþýðleg er hún líka að hún tel- ur sér til tekna að vera ekki í elítunni í Washington, þótt „sumir fjölmiðlar telji frambjóðanda ekki hæfan af þeirri ástæðu einni saman“, eins og hún heldur fram. Í stuttu máli kveðst hún gefa lítið fyrir álit þeirra á sér, markmið hennar sé að þjóna þegnum landsins, sem vænti þess að hún fari til Washington á réttum forsendum, ekki til að blanda geði við „rétta fólk- ið“. Hún lét einhverju sinni hafa eftir sér að hún hefði aldrei hitt þjóðhöfð- ingja, sem er rangt því fundum henn- ar og forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, bar saman þegar hann tók við umhverfisverðlaunum Norð- urslóða sl. haust! Harðsnúin fegurðardrottning Trúlega hefur skrápurinn harnað eftir því sem Sarah Palin hófst til meiri metorða. Hún þótti snemma kappsfull og fylgin sér, enda ekki alin upp við neinn pempíuskap. Fjöl- skyldan var mikið útivistarfólk, hljóp marga kílómetra á dag, og stundum reif hún sig upp fyrir allar aldir til að fara á elgsveiðar með föður sínum áð- ur en hún mætti í skólann. Hún var fyrirliði í félagsskap kristilegra íþróttamanna í mennta- skólanum í Wasilla og einnig körfu- boltaliðs stúlkna, sem hún sá um að bæði bænir fyrir leiki. Vegna keppn- ishörku sinnar fékk hún viðurnefnið „barrakúða“ eftir grimmum vatna- fiski. Þrátt fyrir að vera að flestu leyti til fyrirmyndar viðurkennir Palin að hafa prófað marijúana á yngri árum og – öfugt við Bill Clinton, tekið ofan í sig, en ekki þótt gott. Því er mikið haldið á lofti að Palin var fegurðardrottning Wasilla 1984 og jafnframt kosin vinsælasta stúlk- an, og hafnaði í öðru sæti í fegurð- arsamkeppni Alaska. Sjálf vill hún sem minnst úr þessu ungæðislega til- tæki sínu gera. „Þeir létu okkur raða okkur upp á sundbolum og snúa baki að karlkyns dómurum svo þeir gætu skoðað á okkur rassinn. Mér fannst þetta alveg ótrúlegt,“ sagði hún ný- verið í viðtali við tískuritið Vogue. Henni þótti og lítið til titilsins „Ungfrú Vinsæl“ koma eins og fljót- lega kom í ljós þegar hún fór að hasla sér völl í pólitíkinni. Palin fer sínu fram og í stríð ef nauðsyn krefur, sögðu blaðamenn Newsweek, sem fylgdu henni eftir dagstund í leik og starfi ríkisstjórans. Giftist „Gaurnum“ Áður en hún lét til sín taka á þeim vettvangi, lauk hún háskólanámi, gift- ist æskuástinni,Todd Palin, ári síðar, 1988, og svo komu börnin eitt af öðru, fimm talsins. Það yngsta er aðeins fjögurra mánaða og með Downs- heilkenni, eins og Palin-hjónin vissu á meðgöngunni. Fóstureyðingu segja þau aldrei hafa komið til greina. Þremur dögum eftir fæðinguna hélt Palin ríkisstjórafund. Eiginmað- urinn, sem vinnur fyrir BP- olíufélagið sem olíuframleiðslustjóri og rekur sjávarútvegsfyrirtæki, er hálfur Yupik-eskimói, fjórfaldur sig- urvegari í 2.000 mílna svokallaðri Iron Dog snjósleðakeppni og hefur viðurnefnið The Dude, eða Gaurinn. Þau hjónin eiga von á sínu fyrsta barnabarni um áramótin þegar Bri- stol, sautján ára dóttir þeirra, verður léttari. Íhaldssömustu repúblikarnir hafa sumir fjallað um þungunina eins og ljóð á ráði varaforsetaefnisins, kannski vegna þess að Palin hefur lýst sig hlynnta áherslum Bush for- seta, um algjört skírlífi ungmenna. Bót í máli þykir að Bristol hyggst giftast barnsföður sínum. Þótt Palin hafi lítið rætt um trú sína eftir að hún varð varaforsetaefni er vitað að hún var lengi í hvítasunnu- söfnuðinum Wasilla Assembly of God Church, en sleit tengsl við söfnuðinn fyrir sex árum og og gekk í Biblíu- kirkjuna í Wasilla þar sem hún sækir reglulega messur. Komist hefur í há- mæli að innan safnaðarins starfi hóp- ur sem álítur samkynhneigð synd sem hægt sé að „biðja burt“. Bæjarstjóri tvö kjörtímabil Palin hafði fyrst afskipti af stjórn- málum 1992, aðeins 28 ára, þegar hún bauð sig fram í bæjarráð Wasilla og sigraði mótframbjóðandann. Og aftur að þremur árum liðnum, en hún klár- aði ekki kjörtímabilið því hún hafði augastað á bæjarstjórastólnum, sem hún hreppti 1996. Hún hóf strax að taka til hendinni, rak mann og annan, t.d. lögreglustjórann og bókavörðinn, sem hún réð reyndar aftur, og skipaði starfsmönnum sínum að biðja sig um leyfi hygðust þeir tala við fréttamenn. Slíkt fannst henni ótækt áður en þeir hefðu kynnst stjórnarháttum sínum. Hún lækkaði skatta, lagfærði vegi, holræsi og þvíumlíkt og tókst að spara töluvert. Á móti kom að hún stöðvaði til að mynda byggingu nýs bókasafns, lækkaði útgjöld til bæj- arsafnsins og laun sín um 4.000 doll- ara. Þrátt fyrir róttækar aðgerðir ávann hún sér traust bæjarbúa, sem kusu hana annað kjörtímabil. Íþrótta- höll borgarinnar er helsti minnisvarði hennar frá þeim tíma. Hlífði ekki flokks- bræðrum sínum Árið 2002 sóttist Palin eftir útnefn- ingu Repúblikanaflokksins sem vara- ríkisstjóri Alaska en hafði ekki árang- ur sem erfiði. Frank Murkowski ríkisstjóri skipaði hana í olíu- og gas- verndarnefnd Alaska, þar sem hún var stjórnarformaður til 2003 og jafn- framt siðferðiseftirlitsmaður. Árið eftir sagði hún upp vegna siðferð- isbrests flokksfélaga sinna í nefnd- inni, að eigin sögn. Í kjölfarið ásakaði hún háttsetta og gamalgróna emb- ættismenn og flokksbræður sína um fjárdrátt og spillingu af ýmsu tagi. Dómsmálaráðherra Alaska, Gregg Renkes, varð fyrir barðinu á henni og þurfti að segja af sér eftir að hún kærði hann fyrir að eiga fjárhags- legra hagsmuna að gæta í samn- ingum um kolaútflutning. Frá 2003 til 2005 var Palin einn þriggja stjórnenda hjá fyrirtæki Ted Stevens, öldungadeildarþingmanns Alaska, sem sérhæfði sig í pólitískri þjálfun kvenna í Repúblikaflokknum. Ekki slæm reynsla fyrir metn- aðarfulla konu, sem bauð sig fram gegn Murkowski, sitjandi ríkisstjóra, í forkosningum flokksins. Og sigraði. Eins og demókratann Tony Knowles, fyrrum ríkisstjóra, sem aftur hafði skellt sér í kosningaslaginn. Þegar Palin tók við embættinu, 4. desember 2006, var hún bæði yngst og fyrst kvenna ríkisstjóri Alaska. Helsta baráttumál hennar í kosninga- baráttunni voru siðferðislegar um- bætur og lagði hún strax kapp á frumvarp um tveggja flokka siða- reglur, sem varð að lögum 2007. Liður í þessum pólitísku siðbótum var að fara fram með góðu fordæmi og selja þotu fráfarandi ríkisstjóra, sem henni þótti hið mesta bruðl og sóun á almannafé. Salan gekk ekki eftir á eBay, en þotan seldist síðar fyrir 2,1 milljón dollara gegnum einkamiðlunarstofu. Einnig samdi Palin um fjárveitingu í lagningu jarðgasleiðslna frá Norð- urslóðum til 48 ríkja Bandaríkjanna gegnum Kanada. Fleira mætti tína til af ferilskrá ríkisstjórans í Alaska, sumt umdeilt, annað eflaust þjóðþrifaverk. Til að ná sínu fram virðist Sarah Palin hafa þurft að stíga á margar tær. En það hafa líka margir gert í launhálum metorðastiganum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 17 Síðan John McCain, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, tilnefndi Sarah Palin varaforsetaefni sitt hefur eitt og annað vafasamt úr fortíð hennar verið dregið fram í dagsljósið, auk þess sem fjölmiðlar þrástagast á ummælum hennar, sem þykja bera vott um fáfræði. Þetta var helst: 1. „Troopergate-málið“ Palin er ásökuð og sætir opinberri rannsókn fyrir að reka Walter Monegan yf- irlögreglumann vegna þess að hann neitaði að víkja Mike Wooten, fyrrverandi eiginmanni systur hennar, Mike Woo- ten, úr starfi ríkislögreglumanns í Alaska. Niðurstaðna rannsóknarinnar er að vænta nokkrum dögum fyrir for- setakosningarnar 4. nóvember. 2. Heima á dagpeningum Washington Post greindi frá að Palin hefði krafið Alaska-ríki um ferðadagpeninga í 312 daga, 1,6 milljónir kr., sem hún dvaldi á heimili sínu í Wa- silla. Dagpeningar eiga að vera fyrir mat og tilfallandi kostn- aði á ferðalögum í embættiserindum. Sem ríkisstjóri hefur Palin höfuðstöðvar í höfuðborginni, Juneau, skrifstofur í Anchorage, en býr í Wasilla. Einnig greindi blaðið frá um 4 milljóna kr. ferðakostnaði vegna manns hennar og barna. 3. Fávís um fjármál Fjármálaskýrendum í Bandaríkjunum svelgdist hvað eftir annað á herfilegum rangfærslum Palins um Fannie Mae og Freddie Mac, íbúðalánasjóðina. Í ræðu í Colorado Springs, fullyrti hún að sjóðirnir væru of stórir og dýrkeyptir skattgreiðendum. Þá var ríkissjóður ekki enn búinn að yfirtaka sjóðina og þar af leiðandi íþyngdu þeir ekki skattgreiðendum. Öfugt við það sem nú blasir við þegar ríkisstjórnin hyggst hjálpa lánarisunum úr klandrinu, sem þeir sjálfir komu sér í. 4. Fórnarlömb nauðgana rukkuð Fyrstu fjögur árin þegar Palin var bæjarstjóri Wasilla rukkaði lögreglan fórnarlömb nauðgana um 27-110 þús. kr. fyrir læknisrannsókn. Bæjarblaðið, Frontiersman, hafði eftir lögreglustjóran- um, Charlie Fannon, að tryggingafélög fórnarlambanna hefðu verið krafin um gjaldið þegar því varð við komið. Palin er sögð bera ábyrgð á þessu skammarlega fyrir- komulagi, sem henni hlaut að vera kunnugt um í svo fá- mennum bæ sem Wasilla. 5. Hyglaði vinum sínum The New York Times skýrði frá að Palin hefði sem ríkisstjóri veitt a.m.k. fimm vinum sínum stjórnunarstöður á vegum hins opinbera. M.a. skipaði hún vinkonu sína í vel launaða stjórnunar- stöðu innan landbúnaðarráðuneytis- ins. 6. „Ekki benda á mig“ „Þegar bent er á einhvern annan er hún ábyrgðin upp- máluð. Þegar bent er á hana, er annað uppi á teningnum,“ sagði Andree McCleod, „sjálfskipaður varðhundur“ sem fór fram á að skoða innanbúðarplögg ríkisstjóraemb- ættisins, þar sem hana grunaði að verið væri að leggja á ráð- in um að bola flokksritara Repúblikanaflokksins í Alaska frá völdum. Henni var neitað um aðgang að 1.100 tölvupóstum að sögn Mother Jones (sem er eitt víðlesnasta tímarit Bandaríkjanna, frjálslynt og þekkt að rannsóknarblaða- mennsku), á þeirri forsendu að þeir væru trúnaðarmál. Tölvupóstarnir voru þó sendir í afriti til eiginmanns Palin, sem ekki gegndi opinberri stöðu. 7. Barnabók á rangri hillu? Þegar Palin varð bæjarstjóri Wasilla spurði hún bæjarbókavörðinn, Mary Ellen Em- mons, hvort hún væri á móti því að safnið sætti ritskoðun. Emmons hafnaði því, var rekin, en bæjarbúar mótmæltu ákaft og Palin sá sér ekki annað fært en að endurráða hana aftur daginn eftir. Þegjar hún var bæjarráðsmaður hafði hún látið þau orð falla að barnabókin Daddy’s Roommate ætti ekki heima í hillum safnsins, en hún kom út 1991 og fjallar um samband drengs við samkynhneigðan föður sinn og kærasta hans. Ekki einni einustu bók var úthýst úr safninu. 8. Palin = Hagsmunir olíurisanna „Hún er ákafur stuðnings- maður þess sem olíurisarnir þrá helst; að framleiða meiri ol- íu og gas í Alaska [. . . ] Hún gæfi olíufélögunum frjálsar hendur án tillits til áhrifanna á umhverfið,“ segir í tímaritinu Mother Jones, sem jafnframt upplýsti að í vor hefði Alaska- ríki tilkynnt að það hygðist stefna US Fish- og Wildlife- Service til að hnekkja þeirri ákvörðun að setja hvítabirni á lista um dýr í útrýmingarhættu. Slíkt stæði í vegi fyrir lagn- ingu leiðslna og öðrum framkvæmdum. Í viðtali við dagblaðið Fairbanks fyrir tæpu ári sagðist Palin ekki vera einhver Al Gore, svartsýnisumhverfissinni, sem kennir manninum um loftslagsbreytingar. Í viðtali á ABC sjónvarpsstöðinni eftir tilnefninguna kvaðst hún ekki andmæla þeim vísindamönnum, sem héldu því fram að lofts- lagsbreytingar væru að einhverju leyti af mannavöldum. klúður eða slúður?8 MENNTAMÁLA RÁÐUNEYTIÐ IÐNAÐAR RÁÐUNEYTIÐ ...www.rannis.is/visindavaka H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Allir velkomnir ! Kaffistjóri er Davíð Þór Jónsson, þýðandi Mánudagur 22. september Líkami og losti á upphafsöldum kristni Dr. Clarence E. Glad sjálfstætt starfandi fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni fjallar um hvernig hugmyndir manna á Vesturlöndum um meinlæti, skírlífi, fjölskyldulíf og samskipti kynjanna hafa mótast út frá orðræðunni um líkama og losta í frumkristni. Þriðjudagur 23. september Hver á að passa mig? Alyson Bailes og Silja Bára Ómarsdóttir frá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fjalla um öryggismál út frá nýju sjónarhorni – það er alveg öruggt! Miðvikudagur 24. september Náttúruhamfarir - hvað svo? Dr. Guðrún Pétursdóttir forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða, Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur hjá áfallaþjónustu LSH, Ragnhildur Guðmundsdóttir og Edda Björk Þórðardóttir frá Miðstöð í lýðheilsuvísindum við HÍ og Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og Fimm fræknar konur kafa ofan í snjóflóð og undir jarðskorpuna og velta upp sálfræðilegum áhrifum náttúruhamfara. Fimmtudagur 25. september Má bjóða þér sláturtertu og rabarbarakaramellur? Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor við Listaháskóla Íslands, Brynhildur Pálsdóttir vöruhönnuður og Guðmundur H. Gunnarsson frá Matís þróuðu frumlegar og girnilegar nýjungar í rannsókna- samstarfi við bændur. Vísindakaffið 2008 Vísindamenn segja frá rannsóknum sem koma öllum við - á mannamáli... Listasafni Reykjavíkur kl. 20.00 – 21.30 hvert kvöld 22. 23. 24. & 25. september Dagskrá Vísindakaffikvöldanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.