Morgunblaðið - 21.09.2008, Page 50

Morgunblaðið - 21.09.2008, Page 50
Hann semur tónlist og spilar á gítar, eins og annar hver Vestmanna- eyingur … 52 » reykjavíkreykjavík A lgjör tilviljun …,“ segir Óttarr þegar hann er inntur eftir því hvernig hann hafi ráðist inn í Dr. Spock á sínum tíma. „Þegar Jonni Sigmars gerði Óskabörn (2000) fékk hann þá snilldarhugmynd að ég myndi syngja með einhverri hljómsveitinni sem legði til lag í myndina, þar sem ég væri nú að leika í henni. Og það var hann sem valdi Dr. Spock. Ég hafði aldrei hitt þessa menn, mætti bara í stúdíó og gargaði yfir eitt- hvert lag („Andskotinn“, innsk. AET).“ Óttarr segir að hann hafi svo kynnst sveitinni hægt og bítandi og hann hafi sungið með henni þetta eina lag nokkrum sinnum á tón- leikum nokkur ár á eftir. „Svo fer líf allra íslenskra hljóm- sveita að snúast um Airwaves og einhverju sinni er okkur boðið ágætis pláss þar. Þá var ég orðinn reglulegur gestur og okkur þótti svo asnalegt að ég syngi bara eitt lag þannig að ég var búinn að læra nokkur til viðbótar. Og mig minnir að þarna, ætli þetta hafi ekki verið 2003, hafi ég verið spurður hvort ég vildi ekki bara ganga í bandið.“ Óttarr lýsir Dr. Spock sem óvenjulegri sveit. „Hljómsveitir eru eins og fjöl- skyldur og þetta er mikið spurning um venjur og fíling. Hver tekur af skarið, hver er hljóðlátur o.s.frv. En það er alveg einstakt með Spock að þetta er ennþá eins og gengi. Eins og gamalt bræðragengi sem hefur sinn eigin sérstaka húmor. Það er mikil hópstemning í gangi. Við höf- um kallað þetta ástand frekar en hljómsveit en nafnið Dr. Spock er órætt, menn vita eiginlega ekki hvaðan það kemur og við ímyndum okkur þetta sem einhvern anda sem er yfir okkur og stjórnar gerðum sveitarinnar. Þetta kemur þá allt af sjálfu sér einhvern veginn, allir eru samstiga í öllu og á æfingum er allt samið í hóp. Það kemur varla fyrir að einhver einn komi með hugmynd inn á æfingu.“ Draumar í rasp Auk þessa er Spock „sársauka- lausasta“ band sem Óttarr hefur starfað með eins og hann orðar það. Blaðamaður spyr þá hvort það verði þægilegra að vera í hljómsveit eftir því sem árin færast yfir? „Að mörgu leyti, já,“ svarar Ótt- arr hugsi. „Menn eru hreinlega með reynslu (brosir), bæði almennt og af því að vera í hljómsveit. Með ár- unum raspast af mönnum draumar um heimsfrægð og slíkt sem er auð- vitað mjög sterkt í ungum hljóm- sveitum. Þegar menn eru komnir á aldur eru þeir búnir að taka þessar dýfur nokkrum sinnum og ég held að þegar menn eru komnir yfir þrí- tugt standi þeir ekki í þessu nema þeim sé fullkomin alvara með til- standinu. Tónlistin er þá orðin aðal- atriðið, þetta snýst ekki um að vera töff eða að bíða eftir milljónasamn- ingi.“ Óttarr var/er annar tveggja söngvara í Ham, fremstu rokksveit Íslandssögunnar að margra mati. Þar tók hann út allt ofangreint. „Við ætluðum ekki að gera neitt, svo ætluðum við að gera voða mikið. Við ætluðum ekki að fara til útlanda en svo var það allt í einu málið. Þetta var fram og til baka og það var mikil togstreita í Ham, við vor- um alltaf að berjast í hlutunum og það var verið að draga menn áfram eða stoppa þá af. Þegar við í Ham spilum í dag er þetta ekki til – það er eins og það sé verið að safna saman gömlum bræðrahópi. Ljúft og gaman.“ En aftur að Spock. Bæði Evró- visjónfár með tilheyrandi gulum hanska og útvarpssmellur í formi hins einkennilega grípandi „Skíta- pakk“ þeyttu sveitinni upp á ókunna strönd almenningsvinsælda. Hvað gerðist? „Þetta var allt saman óvænt … og þetta er styrkur Spocksins. Það er ekkert verið að „reyna“, nema þá að búa til almennilega tónlist. Það kom okkur á óvart að einhver vildi gefa okkur út, hvað þá að einhver vildi kaupa plötuna. Það heyrir þó hver maður að „Skítapakk“ er ekki lag sem er „líklegt til vinsælda“. Evr- óvisjónhugmyndin var þá svo fárán- leg að auðvitað gátum við ekki ann- að en sagt já.“ Óttarr segir sveitina semja vísvit- andi margklofin lög. Ef lögin séu of „línuleg“ séu þau brotin upp með polka, þrassi eða bara einhverju til að setja á þau lit. „Má ekki segja að þetta kallist á við nútímann, þar sem athyglin er bæði lítil og tvístruð og öllu ægir saman. Það er auðvitað frábært að fá þrjú, fjögur lög á tveimur mín- útum í stað þess að þurfa að sitja í gegnum heilt þriggja mínútna lag.“ Tvöfalt líf? Spockarar fóru að semja skipu- lega inn á Falcon Christ fyrir um ári. „Upprunalega átti platan að koma út snemma á þessu ári,“ segir Óttarr. „Tvennt tafði; Evróvisjón og svo reyndist efnið … ég veit ekki hvernig ég á orða þetta … einhvern veginn betra, eða flóknara, en við áttum að venjast. Það hægðist á vinnunni þar sem að efnið sjálft kallaði á meiri og meiri yfirlegu.“ Platan verður tvöföld, í formi geisla- og mynddisks. „Dr. Spock er mikil tónleika- sveit,“ útskýrir Óttarr. „Það eru miklir hljóðfæraleikarar í bandinu en svo kemur ákveðið leikhús yfir okkur á meðan við erum að spila. Við trúum því að þegar fólk er kom- ið á tónleika sé það ekki bara að nota eyrun heldur einnig augun og það þarf þá að gefa því eitthvað að horfa á. Ef þú ætlast til að fólk sé í góðum fíling úti í sal þarftu að vera það einnig. Alveg frá upphafi stóð til að gefa út tónleika á mynddiski en núna verður það loks að veru- leika.“ Óttarr segir að platan sjálf hafi þróast nokkuð undarlega, miðað við þessa miklu áherslu á tónleika- framkomu. „Hún er mjög „unnin“. Áður fyrr tókum við þetta bara beint upp, allir saman, en það er ekki svo núna. Þannig þróaðist þetta bara, þetta er eiginlega svokölluð „hljóðversp- lata.“ Óttarr er í fastri vinnu sem bók- sali, þar sem hann sýpur á ljúfu kaffi í snyrtilega pressuðum buxum en á kvöldin er hann mættur org- andi upp á svið í bleikum strets- buxum og loðkápu, með barða- stóran kúrekahatt. Margir eru heill- aðir af þessu Jekyll/Hyde-ástandi Óttars en hann gerir lítið úr því, enda búinn að svara þessari spurn- ingu í mörg, mörg ár. „Maður er svo sem búinn að pæla þetta fram og til baka, bara af því að það er alltaf verið að spyrja mann að þessu,“ segir þolinmóður Óttarr. „Ég held að allir eigi fleiri en eina hlið, þú ert ekki eins hjá bankastjóranum og í mat hjá mömmu. Ég var unglingur á pönk- tímanum og þá var mjög skýr skipt- ing á milli há- og lágmenningar, markaðs- og jaðarmenningar. Þú varðst að taka afstöðu, þú máttir ekki vera hrifinn af Sex Pistols og ABBA. Þetta fór alltaf mikið í taug- arnar á mér. List sprettur vanalega af sömu þörfinni, þó að túlk- unarleiðirnar séu mismunandi. En þetta með hina meintu tvískiptingu mína, þetta er aðallega diktað upp af fjölmiðlum. Almenningi er slétt sama. Ég segi oft að það sé enginn munur á mér í jakkafötunum á dag- inn og í pels á kvöldin og á rafvirkj- Leitin að prófessornum Að skrítirokkssveitin Dr. Spock hafi náð því sem mætti lýsa sem „almennum vinsæld- um“ er poppfræðileg ráðgáta sem meðlimir sjálfir eiga einna erf- iðast með að botna í. „Þetta er ekki hljóm- sveit. Þetta er ástand,“ segir Óttarr Proppé, annar söngvaranna, í samtali við Arnar Egg- ert Thoroddsen. Önnur plata sveitarinnar, hin snilldarlega nefnda Falcon Christ, er bráð- komandi. Glæsireið Óttars sjálfs um öng- stræti íslenskrar tón- listar síðustu tvo ára- tugina eða svo er þá einnig reifuð. Ljósmynd/Hrafn Thoroddsen Ein stór fjölskylda Spockliðar taka því rólega á búgarði sveitarinnar í Austurríki. „Eins og gamalt bræðragengi sem hefur sinn eiginn sérstaka húmor,“ segir Óttarr. »Ég segi oft að það séenginn munur á mér í jakkafötunum á daginn og í pels á kvöldin og á rafvirkjanum sem er í vinnugalla á daginn og fer svo í önnur föt um kvöldið til að fara upp í hesthús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.