Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 25
urlöndum. Konur hvarvetna í heim- inum hafa ofurfyrirsætur og Holly- wood-stjörnur fyrir augunum daglega án þess að ganga svo langt að leggjast undir hnífinn í jafn ríkum mæli og líbanskar konur virðast gera. Bankar bjóða aðgerðalán Án efa spilar hér inn í hversu auð- velt er orðið að undirgangast fegr- unaraðgerðir, ekki bara í Líbanon, heldur alls staðar í heiminum. Það sem í upphafi kallaðist lýtaaðgerð snýst ekki lengur um að lagfæra lýti vegna fæðingargalla, slysa eða sjúk- dóma. Í dag getur í reynd hver sem er gengist undir fegrunaraðgerð, ef viðkomandi telur sig þurfa á því að halda og hefur til þess fjárhagslegt bolmagn. Hvað þróunina í Líbanon varðar skiptir hins vegar máli að fegrunar- aðgerðir eru hér talsvert ódýrari en til að mynda í Evrópu. Lýtalæknirinn Ziad Feghali nefnir sem dæmi að nef- aðgerð kostar 500 til 5.000 Banda- ríkjadali, þ.e. á bilinu 43.000 til 430.000 íslenskar krónur, en í París aldrei minna en 3.000 evrur, þ.e. um og yfir 370.000 íslenskar krónur. Þar við bætist svo hversu mjög fegrunar- aðgerðir eru í reynd viðurkenndar, fáir kipptu sér til dæmis upp við það þegar einn líbönsku bankanna tók í fyrra að auglýsa sérstök lán fyrir slíkum aðgerðum. Í auglýsinga- herferð bankans, First National Bank, var viðskiptavinum boðið upp á lán til að „eignast það líf sem [þeir] hefðu alltaf óskað sér.“ Viðbrögðin létu ekki á sér standa og í kjölfarið fékk bankinn daglega um 200 fyr- irspurnir símleiðis varðandi lánin. Fram kemur á heimasíðu bankans að viðskiptavinir geti fengið frá 500 til 5.000 dollara lán fyrir aðgerð og til- tölulega einfalt virðist vera að fá slíkt lán, skilyrðin eru þau helst að við- skiptavinurinn sé líbanskur rík- isborgari í fastri vinnu með tiltekin lágmarkslaun. Kannski verðu ekki aftur snúið þegar boltinn er farinn að rúlla. Eftir því sem fleiri gangast undir fegr- unaraðgerðir verður það kannski smátt og smátt jafn „eðlilegt“ og við- tekið í samfélaginu og að kaupa sér gallabuxur samkvæmt nýjustu tísku. Listakonan Darghouth telur þetta a.m.k. sennilega skýringu, segir að sökum þess hversu fegrunaraðgerðir eru algengar í Líbanon séu þær orðn- ar reglan frekar en undantekningin. Sjálf segist Darghout hafa skömm á þessari þróun. „Mín skoðun er sú að það sé alls ekki eðlilegt að fólk vilji breyta útliti sínu til að líkjast meira poppstjörnum eða kvikmynda- leikkonum frá Hollywood,“ segir hún. Brotin sjálfsmynd þjóðar? Ef kafa ætti dýpra eftir hugs- anlegri skýringu á hinni óvenjulegu en afar áberandi þróun sem orðið hefur í þessum efnum í Líbanon mætti leiða að því líkur að það ástand sem varað hefur í landinu um árabil – öll togstreitan, spennan, stríðsátökin – valdi einhvers konar klofningi í þjóðarsálinni. Sandra Mackey lýsir líbönsku þjóðinni reyndar með þess- um orðum í nýlegri bók, Mirror of the Arab World: Lebanon in Conflict, en þar sýnir hún fram á hversu brotin sjálfsmynd líbönsku þjóðarinnar er; þ.e.a.s. ef hægt er í reynd að tala um líbanska þjóð. Kjarni vandans er kannski sá að Líbanon er byggt mörgum hópum sem í borgarastríð- inu 1975-1990 bárust á banaspjót og togast enn á um áhrif og völd. Þótt þeir lýsi sig stolta líbanska þegna eiga ólíkir hópar stundum litla eða enga samleið með öðrum sem hafa fylkt sér undir sama þjóðfána. „Ég held að við vitum ekki alveg hvaða augum við eigum að líta okkur sjálf. Við eigum í erfiðleikum með að skilgreina okkur,“ segir Darghouth og hefur ennfremur orð á því hversu mjög Líbanar séu undir áhrifum frá öðrum löndum. Það er ekki nóg með að Líbanar hafi þurft að ganga í gegnum fimmtán ára borgarastríð. Þeir hafa auk þess í reynd verið leik- soppar annarra ríkja, Ísraels, Sýr- lands, Írans og Bandaríkjanna sem virðast hafa kosið að heyja baráttu sína um áhrif í heimshlutanum á líb- anskri jörð. Slíkt hlýtur óneitanlega að hafa einhver áhrif á sálarlíf fólksins í land- inu. Stríð út af fyrir sig er síðan lík- legt til að valda sálrænum skaða, bæði hjá einstaklingum sem og heil- um þjóðum, og um það er raunar rætt að fjöldi fegrunaraðgerða hafi aukist til muna eftir að Ísraelar létu sprengjunum rigna yfir Líbanon í 34 daga löngu stríði sumarið 2006. „Líb- anon hefur í gegnum tíðina alltaf ver- ið undir stjórn annarra ríkja, vest- rænna þjóða eða annarra arabaríkja. Ég held að líbanska þjóðin líti ekki enn á sig sem sjálfstæða þjóð,“ segir listakonan Darghouth. Það kann að vera að allir þessir þættir skýri að einhverju leyti þann gríðarlega fjölda fegrunaraðgerða sem framkvæmdar eru í Líbanon ár- lega. Vegna þeirra gætu náttúruleg nef líbanskra kvenna verið í útrým- ingarhættu. Hjá þeim fáu sem enn hafa ekki lagst undir hníf skurðlækna er nefið tignarleg miðja andlitsins, minnir að einhverju leyti á styttur af grískum gyðjum. Á göngu um götur Beirut er erfitt að stilla sig um að stöðva þessar ör- fáu náttúrulegu gyðjur Mið- Austurlanda og segja einfaldlega: „Nefið á þér er fullkomið. Í öllum bænum leyfðu því að njóta sín eins og það er.“ sér © Stephane Reix/For Picture/Corbis Lagfærð? Líbanska söngkonan og stórstjarnan Haifa Wehbe er talin hafa breytt útliti sínu með skurðaðgerðum, m.a. fært nefið í vestrænna horf. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 25 B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys tá n fy rir va ra . Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Sikileyjar í beinu flugi 14. október á yndislegum tíma. Hitinn er um 25-28 gráður og hentar bæði til sólbaða og til skoðunar á þessari stórbrotnu eyju. Dvalið er á Hotel Santa Lucia le Sabbie d’Oro, góðu þriggja stjörnu hóteli, rétt við hinn einstaka bæ Cefalú, um 70 km. frá Palermo. Hótelið býður góðan aðbúnað og fyrir gesti og er fullt fæði innifalið. Cefalú bærinn, sem er einstök perla, var t.d. tökustaður hinnar vinsælu kvikmyndar Cinema Paradiso sem margir þekkja. Sikiley er sannkölluð perla. 2.700 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð, ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn, ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu mannlífi. Sikiley býður góðar baðstrendur og góða þjónustu við ferðamanninn. Spennandi kynnisferðir í boði (háð lágmarksþátttöku 20 manns). Einstakursumaraukií beinumorgunflugi! • Stórkostlegir bæir • Stórbrotin náttúrufegurð • Einstök matarmenning • Ótrúlegar fornminjar • Baðstrendur • Góð gisting • Spennandi kynnisferðir Frá aðeins kr. 98.900 Ótrúlegt sértilboð – vikuferð með fullu fæði Sikiley 14.-21. október Hotel Santa Lucia - með fullu fæði Aðeins 15 herbergi í boði! Gott hótel við stórkostlegan bæ Gríptu tækifærið og tryggðu þér frábært frí og sumarauka á einstökum stað. Bókaðu strax! www.heimsferdir.is Frá kr. 98.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með fullu fæði í viku. Aukagjald fyrir einbýli kr. 29.000. E N N E M M / S IA • N M 3 55 0 3 STUNDUM fær fólk lög „á heilann“ og getur alls ekki losnað við þau þaðan. „Popplag í G-dúr“ grefur sig dýpra og dýpra í vitundina og ryðst út um munninn í söngli og flauti, gái fólk ekki að sér. Sams konar fjötra getur „Don’t worry, be happy“ lagt á saklausar sálir. Sumir stökkva að útvarpstækjunum og slökkva um leið og „Traustur vinur“ byrjar að óma, en eru svo ekki betur settir þegar þeir kveikja aftur og eru þá komnir í miðju „Bahama“. Auðvitað hefur þetta fyrirbæri, að fá lög á heilann, verið rannsakað í bak og fyrir. Í Bandaríkjunum eru ákveðin lög kölluð „eyrnaormar“ (e. earworms) vegna þess að þau bora sig öðrum fremur inn í hlustina og setj- ast að í heilanum. Og eru bráðsmitandi. Einfalt og endurtekið Ein rannsókn sýndi fram á að líklegast er að tónlistin, sem fólk fær á heilann, sé einföld og sama stefið end- urtaki sig í sífellu. Oft er textinn óvenjulegur eða stingur í stúf við máltilfinningu fólks og verður þannig ógleym- anlegur. Og óþolandi. Í grein í Los Angeles Times á dögunum voru nefnd nokkur lög, sem geta eyðilagt heilu dagana hjá þarlend- um. Í þeim hópi er „Who let the dogs out (woof, woof, woof, woof)“, en engu líkara er en það hafi verið samið sérstaklega til að gera fólki lífið leitt. Önnur lög sem sýkja fólk eru til dæmis „We will rock you“ og „Y.M.C.A.“ Vísindamenn láta ekki deigan síga og fullyrða, eftir ít- arlegar rannsóknir að sjálfsögðu, að dæmi séu um að lög geti farið illilega á heilann á sumu fólki, en aðrir séu al- sælir með þau. Enginn nýr sannleikur á ferðinni þar, en núna studdur vísindalegum sönnunargögnum. Rannsóknir hafa líka sýnt fram á að konur eru líklegri til að fá lög á heilann en karlar. Og tónlistarmenn búa frekar við þessa sýkingu en fólk í ómúsíkalskari störfum. Af einhverjum ástæðum hættir áhyggjufullu fólki líka fremur til að fá lög á heilann en þeim sem taka lífinu af meiri ró. Þetta er sem sagt ekki bara misgóðum lögunum að kenna, heldur er einstaklingsbundið á ýmsan hátt. Óbrigðul ráð? Lög geta setið föst á heilanum í nokkrar mínútur og allt upp í nokkra daga. Vísindamenn leita þó ekki ein- ungis upplýsinga um það fyrirbæri, heldur reyna líka að gefa góð ráð. Og svona er hugsanlegt að drepa „eyrna- orminn“:  Reyndu að hugsa um annað lag, sem fer ekki eins mik- ið í taugarnar á þér.  Gerðu eitthvað til að dreifa athyglinni frá laginu.  Gakktu við annan takt en þann sem er í laginu. „Don’t worry, be happy.“ Með leiðindalag á heilanum Sjúklegt Mesti smellur The Village People, Y.M.C.A., kom út árið 1979 og er enn á heilanum á mörgum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.