Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 33
Í bókinni Afdrif Hafskips í boði
hins opinbera rekur Stefán Gunn-
ar Sveinsson umræður á Alþingi
um Hafskipsmálið ítarlega.
10. desember 1985 var utandag-
skrárumræða um málið. Þann
sama dag birtist í Þjóðviljanum
leiðari eftir Össur Skarphéðins-
son.:
Óstjórn og spilling þeirra sem
stjórnuðu Hafskip veldur því að
við, fólkið á götunni, fáum reikning
upp á 400 milljónir. Það erum við
sem eigum að borga Hafskips-
skattinn sem ósvífnir fjármála-
menn í stjórn skipafélagsins og
brestasamt bankakerfi bjuggu í
sameiningu til.
Hafsskipsskatturinn er ekkert
smáræði. Hann leggur sig á mörg
þúsund krónur á hvert heimili í
landinu, og eru þó útgjöldin ærin
fyrir. Á meðan ganga þeir heilir
hildi frá og brosa í auraðan kamp-
inn sem eiga í rauninni sökina.
Pólarispallarnir og herðirnir og
sveinarnir sem stjórna Hafskip og
sáu ósköpin koma án þess að
bregðast við, þeir sleppa jafn ríkir
og áður. Þeir aka áfram um á
Range Roverunum sínum, halda
áfram að fara í skíðaferðir til
Austurríkis með fjölskyldur sínar
tvisvar á vetri, kaupa sér einbýlis-
hús fyrir tugmilljónir og halda
veislur með þjónum í kjól og hvítu
fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins
eins og sumir stjórnendur Haf-
skips gerðu. Þessir menn munu
halda áfram að fara í „viðskipta-
ferðalög“ til útlanda til að sukka á
kostnað fyrirtækjanna og stela
þannig undan skatti ómældum
fjárhæðum. Þessir menn halda
áfram að braska. Við borgum.
Í bókinni segir að það sé eflaust
ekki tilviljun að þennan sama dag
stóð Ólafur Ragnar Grímsson upp
á Alþingi og hélt ræðu í sama dúr.
Þá segir: „Í ræðunni komu fram
margvíslegar ásakanir sem flest-
um var það sameiginlegt að eiga
upptök sín í Helgarpóstinum. Þá
reyndi Ólafur Ragnar á margvís-
legan hátt að tengja Sjálfstæðis-
flokkinn við gjaldþrot Hafskips,
líkt og upphaf ræðu hans sýnir:
Herra forseti. Hafskipsmálið er
stærsta gjaldþrotamál í sögu ís-
lenska lýðveldisins. Fjölmargir
forustumenn Sjálfstæðisflokksins,
stærsta flokks þjóðarinnar, ráð-
herrar, þingmenn, formenn stórra
flokksfélaga, fyrrv. framkvæmda-
stjórar flokksins og formenn kjör-
dæmissambanda eru flæktir í mál-
ið á margvíslegan hátt. Annar
stærsti banki þjóðarinnar, eign al-
mennings í landinu, tapar hundr-
uðum milljóna kr. sem lagðar
verða á fólkið í landinu í formi
skattlagningar, og það sem meira
er, að framtíð bankans virðist vera
í stórfelldri hættu.
Þess vegna yrði að mati Ólafs
Ragnars að leggja á sérstakan
„Hafskipsskatt“ sem gæti „numið
10 þús. kr. á hverja fjölskyldu í
landinu“. Ólafur Ragnar myndi
„hins vegar hér á eftir leiða rök að
því að staða Útvegsbankans sé í
reynd enn verri en fram hefur
komið nú þegar, þannig að ætti al-
menningur í landinu að reiða fram
allt það fjármagn, sem þyrfti til að
styrkja stöðu bankans á ný, myndi
þessi Hafskipsskattur á hverja
fjölskyldu í landinu þurfa að nema
um 20 þús. kr.““
Ræða Ólafs Ragnars var löng og
ítarleg. Hann kallaði eftir skipan
rannsóknarnefndar þingsins, m.a.
á aðgerðum og aðgerðaleysi fjöl-
margra aðila, stöðu Útvegsbank-
ans, viðskiptum Hafskips almennt,
afskiptum forystumanna Sjálf-
stæðisflokksins og hvaða fyrirtæki
önnur væru í „biðsal dauðans“.
Eftir ræðu Ólafs Ragnars tók
Matthías Bjarnason viðskiptaráð-
herra til máls. Hann þakkaði Ólafi
Ragnari fyrir „mjög ítarlega og
stórmerkilega ræðu að mörgu
leyti“ og bætti við:
Sérstaklega finnst mér hann
hafa verið athafnasamur í rann-
sókn þessa viðamikla máls því
hann sagði frá mörgu í þessari
ræðu sem ég hef aldrei heyrt fyrr
um. Ég ætla ekki að draga í efa
sannleiksgildi hans frásagnar, en
það hvarflaði að mér hvort nokkur
þörf væri á skiptaráðanda eða
þingnefnd, hvort ekki væri nóg að
fela einum manni þessi mál öll
sömul.“
Margir tóku til máls í utandag-
skrárumræðunni og þung orð féllu.
Albert Guðmundsson var harðorð-
ur í garð félaga sinna á þingi, sem
veittust að honum: „Ykkur er
fjandans sama um einstaklinginn
sem hefur reynst ykkur vel ef það
getur orðið ykkur tímabundið til
framdráttar. Þetta er ljótt!"
„Þetta er ljótt!“
Á þingi Þingmenn létu til sín taka í umræðum um Hafskip. Þar var vara-
þingmaður Alþýðubandalagsins, Ólafur Ragnar Grímsson, atkvæðamikill.
Þegar dómur féll loks í
Hafskipsmálinu þótti eft-
irtekja ákæruvaldsins rýr. Í
bókinni segir um dóm
Sakadóms Reykjavíkur:
„Miðað við umfang máls-
ins í byrjun þótti ljóst að
Hafskipsmálið sjálft og
ásakanir um blekkingar og
fjárdrátt upp á mörg
hundruð milljónir hefðu
ekki staðist fyrir Saka-
dómi, og að einungis hefði
verið dæmt fyrir minni
háttar misfellur, sem
tengdust upphaflega Haf-
skipsmálinu lítið sem ekki
neitt.“
Dagskrá:
11:30 Skráning og léttur hádegisverður
12.00 Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, setur ráðstefnuna
12.10 Peter Dyrberg, Evrópuréttarstofnun HR: The legal possibilities for adopting the Euro under
European law
12.50 Eiríkur Bergmann Einarsson, Evrópufræðasetur, Bifröst: Er sjálfkrafa evruvæðing farin af
stað?
13.30 Kaffihlé
13.50 Friðrik Már Baldursson, Rannsóknarstofnun í fjármálum, HR: Evruvæðing og fjármála-
stöðugleiki
14.30 Emil B. Karlsson, Rannsóknarsetur verslunarinnar, Bifröst: Áhrif fjölmyntasamfélagsins á
vörumarkað
15.10 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri: Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital
Tekið er við skráningum í skraning@ru.is
EVRA Á ÍSLANDI
HVORT - HVERNIG - HVENÆR?
Ráðstefna á vegum Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og
viðskiptaráðuneytisins, 23. september kl 12:00 - 15:10, í Þjóðmenningarhúsinu
Fréttir í tölvupósti