Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ÍBÚAR á Bakkabraut í Kópavogi eru afar ósáttir við frágang á lóð steypustöðvarinnar Borgar. Úlfar Eysteinsson matreiðslumaður býr tveimur húsum frá steypustöðinni. Hann segir fráganginn alls ekki til fyr- irmyndar og séu íbúar í hverfinu orðnir langþreyttir á ástandinu sem hefur varað í fjögur ár eða síðan steypustöðin tók til starfa í húsnæðinu. Hægt að rita nafn sitt í sementsrykið Úlfar segir íbúana búna að kvarta til steypustöðvarinnar og bæjaryfirvalda en ekkert hafi verið að gert. Sú skýring hafi fengist að fyrirtækið ætli að færa starfsemi sína en Úlfar segir ástandið ólíðandi. Ekki aðeins sé steypuúrgangur við gangstéttina heldur fylgi honum mikið ryk sem setjist á bíla, skó og fatnað íbúanna og allra þeirra sem leið eigi hjá. „Maður getur skrifað nafnið sitt í gluggakistuna þegar þurrt er því sementið svífur inn um allt,“ segir Úlfar og bætir við að slíkt sé ekki mannsæmandi og geti ekki verið gott fyrir heilsuna. „Fólk sem er með fyrirtækið verður að ganga frá eins og við hin,“ segir Úlfar en að hans mati er þolinmæði íbúanna í nágrenn- inu á þrotum. Hann segir að svona um- gengni sjáist t.d. ekki fyrir framan bíla- verkstæði eða bílapartasölur. Þar sé mun snyrtilegra en hjá steypustöðinni þar sem ljóst sé að enginn metnaður sé til að halda svæðinu snyrtilegu. Úlfar segist hafa skoð- að lóðina hjá steypustöðinni Vallá og þar sé allt til fyrirmyndar. „Hjá Borg virðist enginn huga að því að ganga vel um. Þeim ber að virða umhverfið og leyfa okkur öllum að líða vel í hverfinu.“ Ekki náðist í forsvarsmenn steypustöðv- arinnar Borgar við vinnslu fréttarinnar. Geta skrifað í sementsrykið í gluggum  Íbúar í grennd við steypustöðina Borg eru afar ósáttir við fráganginn á lóð stöðvarinnar  „Fólk sem er með fyrirtækið verður að ganga frá eins og við hin,“ segir Úlfar Eysteinsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Ósnyrtilegt Afgangssteypa blasir við vegfarendum og íbúum Bakkabrautar í Kópavogi. Í HNOTSKURN »Úlfar býr tveimur húsum frásteypustöðinni. »Hann segist finna fyrir miklumóþægindum af völdum rykisins sem berst inn til hans. Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og Ylfu Kristínu K. Árnadóttur „ÉG hélt þetta væri náttúrulega bara eitthvert grín fyrst,“ segir Hildigunnur Hafsteinsdóttur, lög- fræðingur hjá Neytendasamtök- unum, en þegar hún fékk reikning- inn frá Tryggingamiðstöðinni (TM) í ágúst sá hún að hann hafði hækkað um 100 þúsund krónur. Forsendur þær sömu Í fyrra greiddi Hildigunnur 222 þúsund kr. fyrir dæmigerðan heim- ilispakka með tveimur bifreiðum. Upphæðin á reikningnum nú í ár sýndi hins vegar mun hærri tölu eða 320 þúsund krónur – og hafði þá þegar verið gefinn um 30 þúsund kr. afsláttur. Þær skýringar voru gefn- ar að hækkun hefði orðið á vísitölu og gjaldskrá en samkvæmt útreikn- ingum Hildigunnar hækkaði vísital- an einungis um 14%. Hildigunnur segir ekkert í for- sendunum hafa breyst. „Við búum á sama stað, við áttum sömu bílana, það var sama bótaupphæð á líf- og sjúkdómatryggingum og innbúið var metið á það sama. Mér sýnist fast- eignatryggingin hafa fallið niður þannig að þetta hefði kannski átt að vera ennþá hærra.“ Leituðu annað Hildigunnur varð fyrir tjóni í fár- viðri í febrúar þegar bílhurð fauk upp. Í kjölfar þess bætti TM álagi upp á 20 þúsund kr. við reikninginn. „Við fengum þetta foktjón fellt niður þannig að við fengum áfram tjón- leysisafsláttinn fyrir eitt ár,“ segir Hildigunnur og eftir það stóð reikn- ingurinn frá TM í rúmum 298 þús- und kr. Fjölskyldan ákvað að leita tilboða og er nú í viðskiptum við annað tryggingafélag sem rukkar þau um 260 þúsund fyrir sömu tryggingar. Hjá TM fengust þær upplýsingar að félagið tjáði sig ekki opinberlega um málefni einstakra tryggingataka og viðskiptavina. Að öllum líkindum verður gefin út tilkynning eftir helgi. Hækkaði um 100 þúsund  Fjölskylda sem greitt hafði 222 þúsund kr. á ári fyrir heimilistryggingapakka fékk reikning upp á 320 þúsund kr.  Útskýrt með hækkun vísitölu og gjaldskrár Morgunblaðið/Kristinn Dýrt Tryggingar fjölskyldunnar hækkuðu um rúm 40% milli ára. TVEIR litháískir karlmenn, sem nú sitja bak við lás og slá á Litla- Hrauni, verða væntanlega send- ir til föðurlands síns í vikunni þar sem þeir munu ljúka við af- plánun á dómum sem þeir hlutu hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun. Þetta eru fyrstu fangarnir sem sendir eru til Litháens samkvæmt samkomulagi við þarlend stjórnvöld. Litháísk stjórnvöld samþykktu í febrúar að Litháar sem dæmdir eru til refsingar hér á landi taki út refs- ingu sína í heimalandi falli þeir und- ir ákvæði samnings Evrópuráðsins um flutning dæmdra manna. Verið er að vinna að því að ljúka formsatriðum til að hægt sé að flytja fimm aðra litháíska fanga. Páll Winkel, forstjóri Fangels- ismálastofnunar, segir að búast megi við því að styttri tíma taki að afgreiða mál þeirra. Litháarnir tveir sem væntanlega fara utan í vikunni eiga, hvor um sig, eftir að afplána um fimm ár af sinni refsingu. runarp@mbl.is Tveir fyrstu til Litháen í vikunni RENNSLIÐ í Jökulsá í Fljótsdal varð á skömmum tíma allt að átt- falt meira en að jafnaði sl. mið- vikudag. Flóðið var sannkölluð eldskírn fyrir nýju stíflumann- virkin sem mynda nýtt Ufsarlón Jökulsárveitu Kárahnjúkavirkj- unar, að því er segir á vef virkj- unarinnar, karahnjukar.is. Telst til 25 ára flóða Flóðið telst til svokallaðra 25 ára flóða, þ.e. rennslis sem má reikna með á aldarfjórðungs fresti. Byrj- að var að safna vatni árinnar í Ufs- arlón hinn 11. september og vatns- borð látið hækka í áföngum. Hinn 16. september var lónið að yfirfyll- ast og vegna vatnsveðurs varð rennsli í yfirfalli á fyrsta sólar- hring margfalt á við það sem ger- ist. Mannvirkin stóðust þó próf- raunina. Meðalrennsli Jökulsár í Fljótsdal er 40-50 rúmmetrar á sekúndu en á miðvikudag fór það upp í um 330 rúmmetra á sekúndu. Stíflur fengu eldskírn í flóði HÓPSLYSAÆFING fór fram á Landspítalanum í gær. Handrit æfingarinnar gerði ráð fyrir 45 manna rútuslysi og voru viðbrögð starfsmanna spítalans æfð á slysa- og bráðadeildinni í Foss- vogi, bráðamóttökunni við Hringbraut og á bráðamóttöku barna við Hringbraut. Að æfingunni komu einnig lögreglan í Reykja- vík, slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Rauði krossinn, Samhæfingarstöðin, Landsbjörg o.fl. Æfðu undirbúning fyrir stórt rútuslys Morgunblaðið/Frikki Tryggingar hækkuðu um 100 þúsund mbl.is | Sjónvarp

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.