Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Sumarið 1967 var þrungið eftirvænt- ingu. Von var á góðum vini frá Ís- landi til langdvalar, Óli Guðmunds var að koma! Við hjónin ásamt ung- um syni okkar, höfðum dvalið í Fargo, N-Dakota við nám í eitt ár. Heitir vindar blésu yfir endalaus- ar slétturnar þar sem við stóðum og biðum komu hans í ofvæni, mikið hlökkuðum við til. Þarna urðu fagn- aðarfundir og við drifum Óla heim í stúdentaíbúðina okkar. Þar var hvorki hátt til lofts né vítt til veggja en þar ríkti gleði yfir endurfund- unum. Óli færði okkur langþráðar fréttir af mönnum og málleysingj- um, landsmálum og tilraunum, við drukkum í okkur allt sem hann hafði að segja frá. Óli settist að í næsta nágrenni við okkur og varð strax einn af litlu fjöl- skyldunni okkar. Við settumst niður á kvöldin, snæddum saman og ræddum atburði dagsins og líðandi stundar og Óli var þolinmóður og góður við litla guttann sem klifraði upp á hné hans og lagði sitt til mál- anna. Mánuðir liðu, festa og regla komst á námið en Óli hélt tryggð við okkur og heimili okkar. Um helgar var oft spilað og sungið fram á morgun. Þessi tími mun aldrei hverfa úr minningunni. Sumarið eftir keyptum við bíl saman, Rambler 1959, og ferðuð- umst með Óla vítt og breitt um N- Dakóta, S-Dakóta og Minnesota og heimsóttum sögustaði íslenskra vesturfara. Mér er minnisstætt þeg- ar við knúðum dyra til sveita, hittum aldraða Íslendinga, sem höfðu aldrei til Íslands komið en töluðu miklu fal- legri íslensku en við. Við vorum agn- dofa yfir góðvild þessa gamla fólks og hversu vel íslenskan hafði varð- veist í munngeymd þess. Eitt eftirminnilegasta ferðalag okkar með Óla var til Black Hills í S- Dakóta, að ógleymdum veiðiferðum til Minnesota. Óli var sérstaklega skemmtilegur ferðafélagi, vakandi fyrir umhverfi sínu og um leið mjög duglegur að taka myndir á ferðum okkar. Þær standa eftir ásamt ógleymanlegum minningum sem eru okkur dýrmætar í dag þegar við kveðjum trygglyndan og góðan vin. Síðasta ferðin okkar saman var til Vestmannaeyja í júlí sl. ásamt öðr- um skólasystkinum úr framhalds- deild á Hvanneyri forðum og mök- um þeirra. Til hennar hafði hann hlakkað í heilt ár. Í hjarta okkar gleðjumst við yfir því að hafa getað farið með Óla í þessa ferð. Hún var honum áreiðanlega ekki auðveld en hann hafði óbilandi vilja til að kom- ast í hana og án Óla hefði hún aldrei verið farin, né hefði hún orðið það sem hún varð. Í þessari ferð tókst Ólafur Guðmundsson ✝ Ólafur Guð-mundsson fædd- ist í Reykjavík 16. nóvember 1942. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 11. september síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Kópavogs- kirkju 19. september. Óla að þjappa vina- hópnum enn þéttar saman og við minn- umst hans með virð- ingu. Óli var mikill gæfu- maður í einkalífi sínu, átti ástríkra eigin- konu, mannvænleg börn og barnabörn brátt í vændum. Við slíkar aðstæður þarf sérlega sterkan per- sónuleika og mikinn andlegan styrk til að taka örlögum sínum af því æðruleysi sem við urðum vitni að hjá Ólafi, sem vissi að hverju stefndi. Nú hefur hann lagt einn upp í sína síðustu ferð, þangað sem heitir vind- ar blása um endalausar víðáttur himinsins og þar er hans án efa beð- ið með eftirvæntingu. Þessum fáu orðum fylgja okkar dýpstu samúðarkveðjur til Lilju og barnanna. Guðborg og Þórarinn. Ólafur Guðmundsson, forstöðu- maður Aðfangaeftirlitsins, varð starfsmaður Landbúnaðarstofnunar við stofnun hennar, með samruna ýmissa eftirlitsstofnana landbúnað- arins, í ársbyrjun 2006. Ólafur hafði þá verið forstöðumaður Aðfangaeft- irlitsins í níu ár og bjó yfir yfirgrips- mikilli þekkingu og reynslu í lögum og reglum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Ólafur sótti reglulega sérfræðingafundi Evrópu- sambandsins um fóður, áburð og sáðvöru og vann ötullega að hags- munamálum íslensks landbúnaðar á þeim vettvangi. Hann mætti ávallt vel undirbúinn og hafði með sér þá sérfræðinga íslenska sem hann taldi að gætu styrkt málflutning Íslands. Ólafur var formaður vinnuhóps EFTA um fóður í 10 ár og þar hafði hann tækifæri til að gæta enn frekar hagsmuna Íslands varðandi nýja löggjöf frá Evrópusambandinu. Við stofnun Landbúnaðarstofnun- ar, síðar Matvælastofnunar, varð það hlutverk Ólafs að fylgjast áfram með setningu löggjafar Evrópusam- bandsins og hafa áhrif á gerð henn- ar. Ólafur var áfram um að koma upplýsingum á framfæri við sam- starfsfólk sitt, hann tamdi sér m.a. að dreifa fréttum og fundargerðum af öllum fundum sem hann sat og vörðuðu starfið. Hann var farsæll í störfum sínum enda vann hann þau af alúð og metnaði og var óþreytandi að miðla þekkingu sinni og leggja sitt af mörkum við úrlausn mála hvenær sem var. Ólafur var ákaf- lega jákvæður samstarfsmaður, hvetjandi og léttur í lund. Starfsmenn Matvælastofnunar votta eiginkonu og börnum sína dýpstu samúð vegna fráfalls Ólafs. F.h. starfsmanna Matvælastofn- unar, Þuríður E. Pétursdóttir. Kynni okkar Ólafs hófust árið 1976, er ég hóf störf undir hans stjórn við Rannsóknastofnun land- búnaðarins (RALA). Ólafur stjórn- aði þá viðamiklum beitarrannsókn- um, sem framkvæmdar voru á 9 stöðum á landinu bæði á láglendi og hálendi. Þessar rannsóknir voru settar á laggirnar í tengslum við þjóðargjöfina, er fagnað var 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar með veg- legu fjárframlagi til eflingar gróðurs á landinu og endurheimt horfinna landgæða. Rannsóknirnar voru einnig studdar af Sameinuðu þjóð- unum (FAO) og voru taldar þær viðamestu á þessu sviði í heiminum. Þessum rannsóknum stjórnaði Ólaf- ur af mikilli röggsemi og festu. Hann hafði góða kímnigáfu, sem kemur til góða við lausn ýmissa mála. Vinnan við beitarrannsóknirnar var mjög lífleg, sérstaklega á sumr- in þegar ferðast var á milli rann- sóknastaðanna, sauðfé, nautgripir og hross voru vegin og fylgst með vexti þeirra við misjafnar aðstæður auk þess sem gróðuruppskera var metin. Oft komu erlendir sérfræð- ingar til álitsgerðar og lögðu gott til málanna varðandi framkvæmd og uppgjör rannsóknanna. Mikið hefur verið ritað um þessar rannsóknir og liggur eftir Ólaf fjöldi greina og er- indi, sem birst hafa í íslenskum og erlendum ritum. Margir aðrir hafa birt niðurstöður tilraunanna í ýmsu formi og m.a. nýtt þær til háskóla- gráðu. Enn liggja mikil rannsókna- gögn óuppgerð og var það ein hinsta ósk Ólafs að þau verði tekin fram á ný og unnið úr þeim á verðugan hátt. Vonandi rætist þessi ósk Ólafs. Eftir að meginþunga beitarrann- sóknanna lauk varð Ólafur deildar- stjóri fóðurdeildar RALA og gegndi einnig aðstoðarforstjórastöðu við stofnunina um tíma. Fljótlega eftir að ný lög um Að- fangaeftirlitið tóku gildi gerðist hann forstöðumaður þeirrar stofn- unar. Því starfi sinnti hann í um ára- tug eða þar til hin nýja Landbún- aðarstofnun tók til starfa í ársbyrjun 2006. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að starfa undir hans stjórn þar á ný. Ólafur hafði byggt upp og mótað starf Aðfanga- eftirlitsins af einstökum áhuga og dugnaði. Hann vann mjög skipulega. Því var röð og regla í allri hans vinnu. Aðfangaeftirlitið annaðist eftirlit með fóðri, áburði og fræi, bæði inn- lendri framleiðslu sem og innfluttum vörum. Eftirlitsstarfið er bundið í reglugerðum bæði innlendum og einnig frá Evrópusambandinu. Í starfi hans sem forstöðumaður Að- fangaeftirlitsins fólst m.a. mikil fundarsókn í fastanefnd ESB um fóður. Þar var lagt á ráðin um reglu- gerðasmíð. Markmið þessara reglu- gerða er að efla matvælaöryggi í Evrópu. Ólafur var vel vakandi fyrir sérhagsmunum Íslands og mætti ætíð vel undirbúinn til fundarhalda í Brussel. Við heimkomuna var hann ávallt tilbúinn með minnisblöð frá fundunum og sendi til annarra starfsmanna. Hann var laginn við að fá aðra í lið með sér og átti m.a. ein- staklega gott samstarf við aðra full- trúa Norðurlandanna, einkum Nor- egs og Svíþjóðar. Á þeim vettvangi er hans nú sárt saknað. Ég vil þakka Ólafi fyrir góða vin- áttu og gott samstarf. Fjölskyldu hans votta ég mína dýpstu samúð. Valgeir Bjarnason. Ólafur Guðmundsson var öflugur Rótarýfélagi. Málefni Rótarý- klúbbsins Borga voru honum hug- leikin frá upphafi. Ólafur var einn af stofnfélögum þessa klúbbs karla og kvenna í Kópavogi árið 2000 en hafði áður starfað í Rótarýklúbbi Kópa- vogs. Ólafur var forseti Borga starfsárið 2006–2007 og lagði for- setastarf sitt upp á mjög skipulegan og nákvæman hátt strax frá upphafi. Hann leiddi stjórn sína áfram á þann hátt sem næstu stjórnir og klúbburinn hafa notið góðs af síðan. Ólafur og Lilja kona hans voru dugmiklir þátttakendur í ferðum og samkomum á vegum Rótarýklúbbs- ins Borga. Má þar sérstaklega nefna ógleymanlegar ferðir til Færeyja og á slóðir Vestur-Íslendinga í Norður- Ameríku og Kanada. Í þeirri síð- arnefndu var farið um námsslóðir Ólafs og hádegismatur snæddur í bænum hans þar. Hafði hann sér- staka ánægju af að segja frá náms- árunum og hvað hafði breyst í byggðarlaginu frá þeim árum. Frá sjúkrabeði fylgdist hann náið með starfi klúbbsins. Honum þótti miður að geta ekki mætt á fundi en hann sýndi starfi klúbbsins mikinn áhuga og félagar hans í klúbbnum færðu honum reglulega fregnir af starf- seminni. Ólafur talaði opinskátt um veik- indi sín og hvað hann taldi sig eiga í vændum. Hann reyndi heilbrigðis- kerfið á sjálfum sér og var mjög ánægður með þjónustuna sem hann fékk þar. Ólafur var gerður úr kjarngóðu efni Kjósverja og Austur- Skaftfellings. Þann farareyri varð- veitti hann alla tíð. Samferðarmönn- um birtist uppruninn í samvisku- semi, skyldurækni og velvilja. Kunnugir sáu hvaðan stílför Ólafs komu og við sem fylgdum slóð hans erum þakklát fyrir góðan og traust- an félaga. Eins og Skaftfellingar nefndu skipströnd forðum daga þeg- ar búbjörgin dreifðist um fjörur var Ólafur Guðmundsson gott strand fyrir Rótarýhreyfinguna. Við þökkum Ólafi samfylgdina, manni sem var þakklátur fyrir allt sem lífið gaf honum. Kæra Lilja og fjölskylda, hugur okkar er með ykk- ur. Fyrir hönd Rótarýklúbbsins Borga, Guðlaug B. Guðjónsdóttir og Snorri S. Konráðsson. Það haustar að, kvöldin verða löng og allra veðra er von. Lífsljós náins vinar og samferðamanns, Ólafs Guðmundssonar, er slokknað og söknuðurinn og hryggðin er eins og samofin rökkurstundum hausts- ins. Já, það er nærri hálf öld síðan lítill hópur ungra glaðværra ung- menna innritaðist í framhaldsdeild- ina á Hvanneyri haustið 1961 og í upphafi áttu þau fátt annað sameig- inlegt en áhuga á búfræði. Hvann- eyrardvölin mótaði okkur um margt og við lögðum okkur í líma um að vera hvert öðru fjöregg orðræðulist- arinnar sem smám saman skapaði í senn andrúmsloft sjálfstæðis og samheldni og vináttu sem aldrei rofnaði en óx og dafnaði með ár- unum. Hvanneyrardvölin tók enda og við dreifðumst vítt um til nýrra verk- efna. Aldrei rofnuðu þó tengslin al- veg og smám saman tókum við upp þann sið að hittast reglulega, lengst af á hálfum tug frá því að við kvödd- um skólann okkar á Hvanneyri. Eins og gengur vorum við í marg- víslegum og krefjandi verkefnum og Óli ekki síst sem var fræðimaður fram í fingurgóma og vann sem slík- ur mikil afrek fyrir íslenskan land- búnað og var einnig í erilsömum stjórnunarstörfum mörg ár af starfsævi sinni. Allt slíkt vék á sam- verustundum okkar fyrir því að njóta endurfunda og minninga frá gömlu góðu árunum. Þannig áttum við og makar okkar allra, eftir því sem þeir bættust í hópinn, margar gleðistundir bæði heima og erlendis. Ólafur var gæfumaður í sínu einkalífi, átti yndislega konu þar sem hún Lilja var, sem bjó honum og fjölskyldunni yndislegt heimili. Heimili sem stóð okkur ávallt opið og þau tóku upp þann höfðinglega sið frá sínu fyrsta hjúskaparári að bjóða okkur til sín eina kvöldstund þegar árlegur ráðunautafundur stóð yfir. Ævinlega tóku þau á móti hópnum með gleði og tilefninu snúið upp í veislu þar sem ekkert skorti á til að gleðja hugann og lífga andann. Einmitt við slíkt tækifæri í febr- úar sl. var ákveðið að halda upp á 45 ára útskriftarafmæli okkar með því að sækja Vestmannaeyjar heim. Þegar nær dró áformaðri Eyjaferð, kom í ljós að sá illvígi sjúkdómur, sem hrjáð hafði Óla hin seinni miss- eri, ágerðist svo mjög, að ástæða var til að óttast að ferðin yrði ekki farin. Hafi sá ótti gert vart við sig hjá Óla, bægði hann honum svo gjörsamlega frá sér, að með einbeittum ásetningi og aðdáunarverðri framgöngu hreif hann okkur öll með sér með krafti sannfæringar einum saman. Ásamt Lilju, sem studdi mann sinn við sér- hvert spor, tókst okkur með sam- heldni að láta þennan draum okkar rætast og á þann hátt að í ferðinni ríkti gleðin ein og brá fyrir gömlum töktum frá löngu liðnum tíma. Þegar við nú kveðjum með sökn- uði þennan hugdjarfa vin og félaga, má fullyrða að ekkert okkar hefði getað hugsað sér að hafa sleppt því að fara þessa stórkostlegu ferð, sem var raunar kraftaverki líkust. Á kveðjustund minnumst við góðs vin- ar og félaga og biðjum algóðan Guð að veita Lilju og börnum þeirra Ólafs, Sigríði, Ólöfu og Guðmundi og fjölskyldum, huggun og styrk á sorgarstund. Blessuð sé minning Ólafs Guðmundssonar. Erlendur, Guðrún, Jón Trausti, Jón Snær, Magnús, Þórarinn, Örn og fjölskyldur. Ólafur Guðmundsson var í senn frændi minn og fyrirmynd. Og í báð- um hlutverkunum sómdi hann sér vel. Sem frændi lét hann sig varða um hagi okkar yngri fjölskyldumeð- limanna. Þegar við vorum lítil lánaði hann okkur bækur og tól, svo sem ritvél sem hann átti og þótti mikil gersemi. Á unglingsárunum tók hann okkur með í veiði upp í Með- alfellsvatn. Og betri fyrirmynd var ekki hægt að eiga. Hann var sam- viskusamur í skóla og menntaði sig til góðra verka. Hann var duglegur. Hann hafði skoðanir á öllum hlutum og var ekki feiminn við að fylgja þeim eftir. Í öllu þessu skinu í gegn hin góðu áhrif foreldra hans, Sigríð- ar Pálsdóttur og Guðmundar Ólafs- sonar. Þau voru stoð og stytta sinna stórfjölskyldna, veittu skjól og komu öllum til einhvers þroska. Heimili þeirra á Kópavogsbrautinni var eins og járnbrautarstöð í stórborg; allir áttu þar einhvern tíma viðkomu og sumir oft og lengi. Nú þegar leiðir skilur alltof snemma setur okkur hljóð. Við áttum eftir að gera svo margt. Það hefði til dæmis verið gaman að renna aftur fyrir silung uppi í Kjós. Og eitthvað var ósagt í pólitíkinni. En klukkan hefur hringt Ólafi. Við Dröfn þökkum Guði fyrir hann, óskum sem flestum þess að eiga slíka frændur og fyrirmyndir, og biðjum hinn sama Guð að blessa konuna hans, Lilju Ólafsdóttur, börnin þeirra Sigríði, Ólöfu og Guð- mund og tengdasynina. Guðmundur Einarsson. Minningar um góðan mann leita á mig eftir að ég frétti um andlát Ólafs Guðmundssonar fóðurfræð- ings. Kynni mín af Óla Gúm, eins og hann var alltaf kallaður, hófust árið 1990 er ég byrjaði að vinna á fóð- urdeild RALA. Hann var þá yfir- maður fóðurdeildar og aðstoðarfor- stjóri stofnunarinnar. Undir hans handleiðslu fékk ég tækifæri til að vinna að spennandi verkefnum og kynnast alþjóðlegu samstarfi á sviði vísinda. Óli var einstaklega liðlegur og góður yfirmaður og vel liðinn af þeim sem með honum störfuðu. Það var alveg sama hversu önnum kaf- inn hann var, alltaf gaf hann sér tíma til að hlusta og veita góð ráð. Hann var óspar á að hæla starfsfólki sínu þegar það átti við og sjaldan féll styggðaryrði. Ég er þakklát fyrir þann tíma sé ég fékk að vinna hjá honum á fóðurdeild RALA. Mig langar til að votta Lilju og börn- unum þeirra samúð mína. Kristín Halldórsdóttir í Þýskalandi. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar SVERRIS HARALDSSONAR læknis, Selbrekku 6, Kópavogi. Hjördís Rósa Daníelsdóttir, Ásgeir Sverrisson, Helga Sigurðardóttir, Svandís Sverrisdóttir, Kristján Gíslason, Hasse Svedberg, Annika Svedberg, Kristín Sverrisdóttir, Jón Magnús Jónsson, Arnbjörg Sverrisdóttir, Robin Svendsen, Jóhann Sverrisson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.