Morgunblaðið - 21.09.2008, Page 16

Morgunblaðið - 21.09.2008, Page 16
16 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Svipmynd Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur vjon@mbl.is S á gamli bragðarefur John McCain, forsetaframbjóð- andi Repúblikaflokksins 2008 í Bandaríkjunum, kom flestum í opna skjöldu þegar hann kynnti varafor- setaefni sitt til leiks í lok síðasta mán- aðar. Hin lítt þekkta Sarah Palin, rík- isstjóri Alaska til næstum tveggja ára, steig keik fram á sjónarsviðið á landsþingi flokksins í St. Paul í Minnesota 3. september og hélt ræðu, sem bandarískir fréttaskýr- endur gerðu góðan róm að. Sumum þótti hún að vísu nokkuð innihalds- rýr, en þó hafi komist til skila nokkur mikilvæg atriði þegar Palin kynnti sjálfa sig, fjölskyldu sína og helstu lífsviðhorf – og svaraði að nokkru leyti fyrir gagnrýni á þau, mærði hetjuskap McCains og hnýtti pent í Barack Obama, forsetaframbjóðanda demókrata. Síðan hafa fjölmiðlar gengið býsna hart að Palin og lagt svo mikið kapp á að draga eitthvað gruggugt úr fortíð hennar fram í dagsljósið að stuðn- ingsmenn líkja við einelti. Hún er jafnt vænd um embættisglöp, spill- ingu og yfirgang í starfi sínu sem bæjarstjóri í heimabæ sínum, Wal- issa, og sem ríkisstjóri í Alaska – svo fátt eitt sé talið. „Hokkímamma“ til hægri Margir draga í efa að „hokkí- mamman“ eins og hún kallar sig gjarnan – væntanlega til að leggja áherslu á að hún sé á sama báti og aðrar mömmur, nái til markhópsins; þeirra 18 milljóna kvenna, sem studdu Hillary Clinton. John McCain bindur vonir við að Palin, sem er heittrúuð og kirkjurækin, laði að kristna hægrimenn, sem hann sjálfur virðist ekki sérstaklega í náðinni hjá. En Sarah Palin er umdeild og vandi er um að spá. Einstrengings- legar og afturhaldsamar skoðanir hennar fara fyrir brjóstið á fem- ínistum sem og mörgum sem þykir hún hægrisinnaðri en góðu hófi gegn- ir. Og kalla Bandaríkjamenn ekki allt ömmu sína í þeim efnum. Nægir að nefna að hún er svo harð- ur andstæðingur fóstureyðinga að hún telur þær ekki einu sinni réttlæt- anlegar eftir nauðgun, einungis ef líf móður er í hættu. Stofnfrumurann- sóknir og hjónabönd samkyn- hneigðra eru henni ekki að skapi. Samt var eitt hennar fyrstu verka sem ríkisstjóra að hindra að frum- varp um að hætta að heilsutryggja maka samkynhneigðra opinberra starfsmenn næði fram að ganga. Hún er hlynnt dauðarefsingum og byssueign, enda sjálf mikil áhuga- manneskja um skotveiðar, og styður stríðið í Írak. Þegar hún tók við til- nefningunni lýsti hún því stolt yfir að þangað héldi nítján ára sonur hennar, Track, innan skamms til að þjóna ættjörð sinni sem fótgönguliði. Miðað við hvernig hún svaraði Charles Gibson á ABC-sjónvarps- stöðinni í fyrsta viðtalinu, sem hún veitti, eru þó áhöld um að hún viti raunverulega hvers vegna hún styður Íraksstríðið. Innt eftir áliti sínu á Bush-kenningunni svokölluðu, sem gengur út á að „fyrirbyggjandi stríð“ sé réttlætanlegt, og var notuð til að réttlæta innrás Bandaríkjamanna í Írak, var eins og hún kæmi af fjöllum þegar hún spurði á móti: „Að hvaða leyti, Charlie?“ Í sama viðtali tengdi hún Íraks- stríðið við hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 sem og Saddam Hussein. Eftir þáttinn hneyksluðust fjölmiðlar á fáfræðinni. Einstaka tók þó upp hanskann fyrir Palin, t.d. blaðamaður The Wall Street Journal, sem sagði menningarlega pótintáta hafa farið offari í fárinu kringum framboð hennar. Gibson væri einn þeirra sem hefði boðið sig fram á alt- ari skrumskælingarinnar í poppaðri spurningakeppni með varafor- setaefninu. Hann sagði það þvert á móti hafa verið skynsamlegt af Palin að spyrja Gibson hvað hann ætti við. Bagalegt reynsluleysi Svona er höggvið á báða bóga. Og af því að kona á í hlut er hárinu, snyrtingunni og klæðaburðinum lýst af innlifun. Þótt hárgreiðslunni sé líkt við „býflugnahreiður“, flykkjast kon- ur á hárgreiðslustofur til að fá eins og að sögn tískurýnis LA Times er aukin eftirspurn eftir Kawasaki 704, jap- önskum gleraugnaumgjörðum úr tít- an. Annars þykir reynslu- og þekking- arleysi Palin, sérstaklega á utanrík- ismálum, hvað bagalegast og hefur McCain verið brigslað um dóm- greindarskort og ábyrgðarleysi að treysta Palin til að gegna jafn- valdamiklu embætti á viðsjárverðum tímum eins og nú væru og færu í hönd. McCain er að vanda kok- hraustur, segir Palin gáfaða, hæfi- leikaríka og fljóta að læra, nógur sé tíminn. Sem er vitaskuld ekki raunin því McCain er 72 ára og dauðlegur eins og aðrir. Að því gefnu að hann verði forseti Bandaríkjanna blasir við að Palin verður forseti falli hann frá. McCain er líka legið á hálsi fyrir að velja Palin sem varaforsetaefni eftir að hafa aðeins hitt hana einu sinni. Slíkt á sér nokkur fordæmi í sögunni, til að mynda hafði Franklin D. Roose- velt aðeins hitt Harry S. Truman einu sinni þegar hann valdi hann varafor- setaefni sitt 1944. Reyndar bar Palin sjálfa sig saman við Truman í ræðu sinni á landsþinginu. „Fyrir löngu fetaði ungur bóndi og vefnaðarvörusali ólíklega slóð til varaforsetaembættisins,“ sagði hún og vísaði í orð ónafngreinds rithöf- undar, sem sagði: „Við ræktum gott fólk í litlu bæjunum okkar, heið- arlegt, einlægt og sómakært.“ „Ég þekki einmitt slíkt fólk, sem rithöf- undurinn hafði í huga þegar hann hrósaði Harry Truman,“ sagði Palin. Barrakúðan bítur frá sér Fjölmiðlar hafa ekki farið mjúkum höndum um Sarah Palin, varaforsetaefni Johns McCains  Sarah Heath fæddist 11. febrúar 1964 í Sandpoint, Idaho.  Hún var þriðja af fjórum börnum hjónanna Sarah, skólarit- ara, og Charles R. Heath, kennara og þjálfara í frjálsum íþróttum.  Fjölskyldan fluttist til Alaska þegar hún var smábarn.  Hún hefur BS-gráðu í blaðamennsku frá Idaho-háskóla 1987, þar sem hún tók stjórnmálafræði sem aukafag.  Giftist Todd Palin 1988.  Þau eiga tvo syni og þrjár dætur: Track, f. 1989, Bristol f. 1990, Willow f. 1994, Piper f. 2001 og Trigs Paxon Van f. 2008. Bristol á von á barni, fyrsta barnabarni Palin- hjónanna, öðru hvorum megin við áramótin  Hún var íþróttafréttamaður sjónvarps 1987-1989, meðeig- andi sjávarútvegsfyrirtækis tengdafjölskyldunnar 1988- 2007, eigandi leigumiðlunar fyrir sportbíla 1994-1997, stjórnarmaður Olíu- og gasverndarnefndar 2003-2004.  Sat í bæjarráði í Wasilla, um 7.000 manna heimabæ sínum, 1992-1996.  Bæjarstjóri Wasilla 1996-2002.  Ríkisstjóri Alaska, þar sem íbúar eru um 670 þúsund, frá 4. desember 2006.  29. ágúst 2008 tilkynnti John McCain, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, að hann hefði valið Palin sem varafor- setaefni sitt.  Palin þáði tilnefninguna 1. september 2008 og ávarpaði landsþing Repúblikanaflokksins í St. Paul í Minnesota. Sarah Palin Reuters Fjölskyldan Hokkímamman ásamt eiginmanni og börnum. REUTERS Umsetin Sarah Palin heilsar stuðnings- mönnum eftir fund Repúblikanaflokks- ins í Ohio í vikunni. Einelti? Óprúttnir hafa oft gert sér að leik að falsa myndir af varafor- setaefninu og birta á netinu. Fegurst fljóða Palin var fegurð- ardrottning Wasilla 1984.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.