Morgunblaðið - 21.09.2008, Page 21

Morgunblaðið - 21.09.2008, Page 21
tillit til hans persónuleika. Það gerði skáldið Halldór Laxenss, hann orti álíka hagyrðingahnoð og slíkir karlar gerðu á sinni tíð. Hall- dór setti sig snilldarlega inn í þetta og raunar hvaða stíl sem var, hann kunni þetta,“ segir Atli. En hvaða verkefni unnu þau fyrst saman Edda Heiðrún og Atli Heim- ir? „Á leiksviði var það Mýrarljós,“ svarar Edda. „En þá var ég búin að leika í Sjálfstæðu fólki og við unnið Atli að gerð geisladisks saman; Fagur fiskur í sjó heitir hann. Ég fékk að nota leikhústónlistina „The best of“ úr henni. Ég fékk sjö út- setjara en lögin úr Dimmalimm voru í gömlu útsetningu Atla Heim- is sjálfs. Mig langaði að fá ný lög við gamlar íslenskar vísur og Atli Heimir samdi hana,“ segir Edda. „Ætli það hafi ekki verið eitthvað sem vísaði til barnabarnanna. Þau hafa nú öll fengið gömlu Vísnabók- ina í afmælis- eða jólagjöf,“ segir Atli. Forréttindi að vinna með Atla Edda kveður það viss forréttindi að fá að vinna með Atla. „Hann get- ur sett sig inn í hvaða aðstæður sem er og veit hvaða boðleið hlut- irnir eiga að fara. Við byrjuðum t.d. að vinna að tónlistinni í Mýrarljósi tæpu ári áður en það var frumsýnt árið 2004. Atli fór yfir verkið með mér og í grófum dráttum ákváðum við hvar tónlist kæmi inn. Atli lagði ríka áherslu á að ofnota tónlistina ekki,“ segir Edda. Ég hvái, ofnota tónlist – hvernig? „Það er viss tilhneiging til að troða tónlist alls staðar á bak við allt, kannski án tilefnis,“ svarar Atli og bendir á að þetta megi oft heyra í sjónvarpsmyndum m.a. „Þá spyr maður sig: „Til hvers er allt þetta tónaflóð sem segir ekki neitt. Mér finnst fallegt hve þögin er oft góð í leikhúsi,“ segir Atli „En hins vegar getur einn flautu- tónn á réttum stað á réttum tíma gert kraftaverk. Jónatan Swift, sá sem skrifaði Gúllíver í Putalandi, sagði eitt sinn: Proper words in proper places,“ það er málið,“ bætir hann við og hlær. „Það er svolítið gaman að því að við byrjum dagskrána „Leik- húsperlur“ á ávarpi sem listagyðjan flytur. Eitt af börnunum í barna- kórnum spurði mig: „Hvaðan kem- ur listagyðjan?“ Ég sagði: „Ef hún kemur þá kemur hún vonandi frá Guði,“ segir Edda Heiðrún og bros- ir. Þetta ávarp listagyðjunnar skrif- aði Atli Heimir í tilefni af Degi tón- listar árið 2001. „Þar er hann m.a. að velta fyrir sér rödd Guðs og fegurðinni,“ segir Edda. Og þegar „rödd Guðs“ hefur tal- að þá talar þú til fólks í tónlist – eða hvað,“ segi ég við Atla. „Ja, kannski má segja það,“ svar- ar hann hæversklega. „Kannski verður hann dreginn upp á svið í lokin, hann hefur aldrei fengið að leika,“ segir Edda Heið- rún sposk. „Það stóð nú einu sinni til, en ég komst ekki að. Verið var að leik- gera verk eftir Davíð Oddsson, Hrafn Gunnlaugsson og Þórarin Eldjárn. Það var orðasveimur um að við Sveinn Einarsson kæmum til greina að leika prest sem talaði úr stólnum, en svo gerði Þorvarður Helgason þetta af svo mikilli list að við Sveinn drógum okkur í hlé,“ segir Atli. „Endaávarpið í „Leikhúsperlum“ er dálítið dulrænt. Leikhústónlist ferðast víða ef svo má segja. Hún er yfirleitt tengd skáldskap, á rætur í honum. Svo gerist það stundum að þessi tónlist slítur sig frá leikhúsinu og fer að ferðast um á eigin spýtur, verður viðfangsefni kóra og kannski sungin víða. Oft er um að ræða dramatísk og falleg lög og loks veit enginn hvaðan þau koma,“ segir Edda. Þarf mikið til að drepa gott lag „Atli sagði mér raunar einhvern tíma að það þyrfti ansi mikið til að drepa gott lag,“ bætir hún við. „Ef vel tekst til prýðir rétt tónlist leiksýningu, alveg eins og góð ljósa- hönnun, leikmynd og búningar,“ segir Atli. „Ég hef alltaf sagt að ég hafi lært að skrifa óperur í gegnum mína vinnu í leikhúsi, það var besti skólinn. Þá sér maður hvað á við. Í tónlistarsögunni sést að góð tónlist gerir sig ekki endilega vel á sviði. Svo má finna dæmi um hið gagn- stæða. Carmen er t.d. mjög góð á sviði, hún hefur dramatískan slagkraft. Ég get líka nefnt hinn fræga Bát- söng eftir Offenbach úr Ævintýrum Hoffmanns. Þetta var gamall slag- ari sem hann tók. Þessi melódía passar við það sem er að gerast í óperunni, hún lýsir öllu, segir allt. Kemur á réttum stað og tíma,“ seg- ir Atli Heimir. En má taka laglínur þannig traustataki? „Ég hef stundum gert svona tón- list og sagt þá hreinlega í efnis- skránni: „Þetta er stælt og stolið,“ svarar Atli og hlær. Hann kveðst einnig stundum hafa notað ættjarðarlög en þá hafi hann hringt í viðkomandi og spurt leyfis. „Það er í fyrsta lagi kurteisi og svo eru höfundar verndaðir með lögum. Þjóðlög eru hins vegar brotasilfur sem maður mótar.“ „Við verðum öll fyrir áhrifum, oft sömu áhrifum. En mér finnst leið- inlegt hve tónlist er oft notuð í nú- tímanum til að ergja og pirra, þetta gerist á alls konar stöðum, svo sem í verslunum og víðar,“ segir Edda Heiðrún. „Íslenska orðið yfir þetta er lyftumúsík,“ skýtur Atli Heimir inn í. „Mér finnst gaman að heyra að Atli hafi lært að skrifa óperur í leik- húsi. Sviðið er svolítið heilagt en maður lærir að vinna þar undir aga. Maður býður sviðinu ekki upp á hvað sem er, ella ýtir það manni út af. Þetta er illa launuð köllun en ef fólk skilur ekki að það er þjónn leiksviðsins þá getur það farið. En skilji maður þetta þá lærir maður sífellt eitthvað nýtt,“ segir Edda Heiðrún. Hljómsveit í gryfjunni Það verður líf og fjör í Þjóðleik- húsinu þegar „Leikhúsperlur“ Atla Heimis verða fluttar. „Við fáum hljómsveit í gryfjuna til þess að við sjáum hljóðfæraleik- arana, við notum dans, leik og söng – allt er þetta úr smiðju Atla Heim- is. Elsta verkið er lag sem hann samdi við Dimmalimm,“ segir Edda. „Ég þekkti vel sjálfa Dimmal- imm, Helgu Egilson. Muggur, móð- urbróðir hennar samdi fyrir hana Dimmalimm. Hún var gift píanó- kennaranum mínum, Rögnvaldi Sig- urjónssyni. Ég var nemandi hans á mínum unglingsárum. Í tengslum við þetta varð umrædd tónlist til.“ Hefur alltaf verið iðjumaður En skyldi Atli Heimir vakna með tilbúnar laglínur í höfðinu á morgn- ana? „Mig dreymir stundum músík en sjaldan laglínur. Mig dreymir hins vegar fyrir daglátum og veðri,“ svarar Atli lítillátur. „Ég veit ekki hvernig tónlist verður til hjá mér og hef ekki neinn ákveðinn vinnutíma. Þannig hef ég ekki unnið. En hins vegar verður maður að vera við þetta, þeir fiska ekki sem ekki róa. Ég hef alltaf verið iðjumaður, dugnaðarmaður við vinnu,“ bætir hann við. En hvað varð til þess að hann lagði fyrir sig tónlist? „Ég var í barnamúsíkskóla hjá dr. Edelstein og fór að semja um leið og ég lærði að skrifa nótur,“ svarar Atli. „Síðar fór ég í tónlistarskóla og var látinn læra á píanó. Mamma spilaði prýðilega á píanó og hennar móðurætt var mjög músíkölsk, það er fullt af söngelsku fólki í mínum ættboga. Pabbi var bankamaður en hann söng líka í karlakór. Það þótti því eðlilegt að ég stundaði píanó- nám og þegar ég ákvað að leggja fyrir mig tónlist þá var engin fyr- irstaða frá hendi foreldra minna. Pabbi styrkti mig til náms á þessu sviði.“ Varstu laukur ættarinnar á tón- listarsviðinu? „Kannski má segja það. Amma mín í Flatey hafði bæði píanó og orgel í stofunni sinni. Þetta var gamalt kaupmannsheimili. Svo var amma kirkjuorganisti í þorpinu. Það voru miklir dýrðartímar hjá henni þegar Sigvaldi Kaldalóns bjó í Flatey og mikil vinátta með ömmu og afa og Kaldalónshjónunum. Minn bakgrunnur var þannig að ég naut skilnings.“ Atli Heimir stundaði framhalds- nám í Þýsklandi og er einn braut- ryðjenda á sviði nútímatónlistar – sem ekki rataði beint að hjarta þjóðarinnar strax – eða hvað? „Eftir að ég hafði lært sneri ég mér að nútímatónlist. Það var allt í lagi með þjóðina hvað það snerti, en það voru hins vegar ýmsir sem töldu mig og fleiri boðbera nútíma- tónlistar, vera varga í véum og höfðu um það sterk orð,“ segir Atli. „Ég man eftir að ég hafði í Þýskalandi gamlan kennara sem kenndi mér handverk. Hann hét Günther Raphael. Ég hafði komið með verk til hans. Þá sagði hann brosandi: „Kannski lendið þér í ein- hverjum erfiðleikum með þessa tón- list upp á eyjunni yðar fallegu.“ Jú, ég taldi að þetta myndi fá misjafnar undirtektir þar. „Einu verðið þér að lofa mér Sveinsson – að verða aldrei bitur. Sá sem er bitur getur aldrei búið til neitt fallegt.“ Raphael var gyðingur og stjórnvöld landsins höfðu sóst eftir lífi hans og brennt verk hans. Þetta var hans niðurstaða eftir allt saman. Ég veit ekkert um hjarta þjóðarinnar, hvar það slær,“ segir Atli Heimir. „En þessi orð Raphaels sitja í mér, þau eru á við margar skil- greiningar á hljómfræði. En hann sinnti því svo sem líka, hann var eitilharður. Ég sagði honum að hér væri lítil tónlistarhefð. „Já, þér þurfið nú kannski ekki að ganga í gegnum alla tónlistar- söguna en ég ræð yður að læra gamalt og gott handverk. Svo verð- ið þér bara að hoppa upp á lukku- hjólið og sjá hvert hamingjuhjólið ber yður.“ „Ég tel mikilvægt að gefa fólki ekki of góða dóma áður en það fer í skóla. Skólinn á að setja fólki skorð- ur – síðan springur það út. Ég er ekki viss um að við séum á réttri leið með þetta,“ segir Edda Heið- rún. „Nú er ég kominn á karlagrobbs- stigið og vil halda áfram,“ segir Atli Heimir og setur sig í sögustell- ingar. „Ég man eftir að einn af mínum góðu kennurum þarna, Zimmer- mann, sem var eitt besta tónskáld sinna tíma, sagði einhvern tíma: „Sveinsson, setjum svo að þér hafið hæfileika, setjum svo. Hafið þér nokkurn tíma hugsað um hvernig þér ætlið að nota þá hæfileika?“ Það hafði ég aldrei gert. Þá held ég að ég hafi ekki sofið rótt, ég þurfti að hugsa minn gang.“ Hvernig skynjar fólk hvað er list? „Ef menn ná upphafstóni for- leiksins, t.d. í Carmen sem við ræddum um áðan, sem er sterkur, þá er fólk á valdi verksins allt kvöldið. Gamall og reyndur hljóm- sveitarstjóri sagði: „Ef maður nær ekki þessum fyrsta tóni þannig að allir í leikhúsinu kippist til og hríf- ist, þá er sýningin dauð.“ Edda bætir við að list hljóti að vera tilfinningalegs eðlis. „Það er tvennt sem kemur í veg fyrir að fólk nái hæðum, annars vegar skortur á tækni og svo hins vegar innri erfiðleikar. Þá má skilja eftir á þröskuldinum og tækninni má kippa í liðinn,“ segir Edda. „Það á ekki að stilla upp tækni og tilfinningu sem andstæðum, þetta á að spila saman,“ segir Atli. „Sumir vilja taka listina úr sam- bandi við tilfinningar og ræða um hana sem heimspeki. Þá spyr ég bara: „Er heimspeki ekki tilfinn- ingaleg?“ segir Edda. „Vinur minn sem nú er látinn og ég sakna mjög, Þorsteinn Gylfason heimspekingur, sagði einhverju sinni. „Þegar heimspekin þarf að fjalla um það mikilvægasta í lífinu, ástina og dauðann, þá verður maður bara að grípa til ljóðsins eða tónlist- ar,“ segir Atli. Snert hörpu mína himinborna dís Við ræðum einnig um gildi leik- listar og leiklistarnáms. „Leiklistarnám er eitt það dýr- asta á landinu. En samkvæmt nið- urstöðum Sameinuðu þjóðanna borgar það sig margfalt. Leikurum reiðir afskaplega vel af, í fjölmiðlum, bönkum eða hvaða starfi sem er,“ segir Edda. En hvað þá með tónlistina? Við snúum okkur báðar að Atla! „Ég veit það ekki. Þetta hefð- bundna er þokkalegt iðnnám sem menn geta lokið ef þeir eru sæmi- lega duglegir og stunda það vel. Síðan kemur aðalatriðið – að stilla sinn kompás, nýta hæfileikana. Sennilega þarf einhverja sérhæfi- leika til að semja tónlist. Ýmsir hafa getað gert laglínur sem eru án þyngdarafls og fólk vill heyra aftur og aftur, gott dæmi er Litla flugan eftir Sigfús Halldórsson.“ Í hugann kemur lag Atla Heimis við Kvæðið um fuglana eftir Davíð Stefánsson, lag sem þjóðin hefur svo sannarlega tekið sér að hjarta- stað – hvernig varð það til? „Það varð til á Akureyri. Sveinn Einarsson gerði leikgerð af skáld- sögu Davíðs Stefánssonar, Sólon Ís- landus sem fjallar um Sölva Helga- son og nefndi hana Gull og gersemi. Við höfðum í sýningunni flautuleik- ara og gítarleikara og svo gekk leikflokkurinn fram á sviðsbrúnina og söng þetta lag, þetta er gamalt leikhúsbragð. Prentsmiðjueigendur á Akureyri gáfu út hefti með fjórum lögum úr leikritinu, þar á meðal þessu lagi, hugmyndina átti vinur minn Halldór Blöndal, fyrrum al- þingismaður.“ En hvaðan kom þér þetta lag? „Ég held að stefnan í þessu leik- riti hafi verið að gera einfalda mús- ík sem auðvelt væri að læra, í ein- hverskonar „Kaldalónsstíl“, hafi maður haft eitthvert markmið,“ svarar Atli og hlær. En hvaða sönglag sitt skyldi Atla Heimi þykja vænst um? Hann verður afvísandi og neitar að svara, en þó gætir í neituninni örlítils hiks. Ég spyr því hvort eitt- hvað sé honum nær en annað? „Kannski er í óperunni Silki- trommunni ýmislegt sjálf- ævisögulegt,“ svarar hann með semingi en lætur lítt af við nánari spurn. „Við erum ekki með óperurnar, ég hafði ekki tíma, mér finnst raun- ar að Íslenska óperan ætti að sjá um þá hlið,“ svarar Edda Heiðrún er ég spyr hvort lög úr Silkitromm- unni sé með í „Leikhúsperlum“. „En við erum með lög tengd ýmsum leikverkum. Sum lög bara heimta að komast á svið aftur,“ bætir hún við og að þeim orðum töl- uðum sláum við botninn í samtalið, kveðjum og við Atli Heimir verðum samferða út í afganginn af fellibyln- um Ike. gudrung@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 21 Atli Heimir Sveinsson tónskáld verður sjötugur í dag, 21. sept- ember. „Nokkrir vinir hans hafa tekið höndum saman um að efna til tónleikaraðar, þar sem marg- ir af helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar, Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verk hans,“ segir Áshildur Har- aldsdóttir flautuleikari sem er verkefnisstjóri. „Leikhúsperlur“ Atla Heimis verða fluttar í dag kl. 16 á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Þar koma við sögu leikarar, dansarar, hljóðfæraleikarar, börn úr kór- um Langholtskirkju og Hamra- hlíðarkórinn. Þá verða einnig hátíð- artónleikar í kvöld kl. 20.30 í Salnum í Kópavogi. Þar verður flutt kammertónlist, rapp og kórtónlist sem endurspegla hin ólíku stílbrigði í verkum Atla Heimis. Þá kynnir Áshildur tónleikana Sónata sem verða annað kvöld, mánudag, kl. 20 á Kjarvals- stöðum. „Ný fiðlusónata Atla Heimis verður frumflutt. Flau- tusónata hans er einnig á dag- skrá, en hún var tilnefnd til Ís- lensku tónlistarverðlaunanna sem verk ársins 2006,“ segir Ás- hildur sem er einn fjögurra flutningsmanna ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, Unu Sveinbjarnardóttur og Wolfgang Künl. Þriðjudaginn 23. september kl. 20 verða í Listasafni Íslands tón- leikarnir: „Einleikur tvíleikur“. „Glæný einsöngslög og íhugul einleiksverk,“ að sögn Áshildar. Fram koma söngvararnir Sólrún Bragadóttir, Bergþór Pálsson, Ágúst Ólafsson. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Einleiks- verkin leika Eydís Franzdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Ca- milla Söderberg. Áshildur sagði og að dagana 15. og 16. nóvember yrðu fjöl- skyldutónleikar í hátíðarsal Varmárskóla og í Ráðhúsi Reykjavíkur. Um svipað leyti verður dagskráin flutt fyrir á annað þúsund grunnskólanema á 16 skólatónleikum. Sinfóníuhljómsveit Íslands lýk- ur þessari tónleikaröð með af- mælistónleikum 19. marz á næsta ári. „Af erlendum vettvangi er gaman að geta þess að 27. sept- ember flytur Juilliard New Mu- sic Ensamble í New York „Ice- rapp“ eftir Atla Heimi og 29. nóvember heldur Hyperiontríóið tónleika í Beethovenhalle í Bonn. Hyperiontríóið hefur lokið hljóð- ritun á þremur píanótríóum Atla Heimis, sem koma út á næsta ári hjá CPO-útgáfunni í Þýska- landi.“ Í undirbúningsnefnd vegna af- mælistónleikanna eru Bryndís Schram, Hallveig Thorlacius, Halldór Blöndal, Jón Baldvin Hannibalsson, Ragnar Arnalds, Sveinn R. Eyjólfsson og Styrmir Gunnarsson, vinir Atla Heimis ýmist frá barnæsku eða ung- lingsárum. „Fjölbreytnin í list- sköpun Atla Heimis Sveinssonar er ótrúleg,“ ritar nefndin í inn- gangi að dagskrá tónleikarað- arinnar. „Tónsmíðar hans hljóma í kirkjum landsins, í leikhúsum bregður hann á leik og í stærri tónverkum hans er hið óvænta alltaf á næsta leiti.“ Afmælisveisla í tónum Tónskáldið Atli Heimir hefur staðið keikur í stormum sinnar tíðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.