Morgunblaðið - 21.09.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.09.2008, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ G etur verið að tignarleg nef líbanskra kvenna séu á góðri leið með að heyra sögunni til? Kann að vera að sú staðlaða ímynd fegurðar sem dregin er upp á síðum glanstímarita og í kvikmynd- um frá draumaverksmiðjunni í Holly- wood hafi skotið slíkum rótum í hug- arheimi kvenna í þessu óvenjulega arabalandi að þær séu almennt sam- mála um nauðsyn þess að láta breyta á sér nefinu og að rétt sé að nota tækifærið til að fá eins og eina sprautu í varirnar um leið? Það er ekki laust við að slíkum spurningum skjóti niður í kollinn á manni á rölti um götur Beirút, höf- uðborgar Líbanons, en hér er það nánast daglegur viðburður að rekast á konu með plástur á nefinu eftir fegrunaraðgerð. Fegrunaraðgerðir virðast alls ekki vera neitt feimnismál hér í París Mið-Austurlanda, sem svo var kölluð, og konur gera ekkert til að fela ummerkin á meðan sárin eru að gróa. Fegrunaraðgerðaáhugi líbanskra kvenna var í forgrunni málverkasýn- ingar ungrar listakonu, Tagreed Darghouth, síðsumars og augljóst að henni er mikið niðri fyrir í þessum efnum. Sýninguna kallaði Darghouth „Spegill, spegill“ en hún er þeirrar skoðunar að fjöldi lýta- og fegrunar- aðgerða undanfarin ár sé slíkur að um einhvers konar menningarlegt furðufyrirbæri sé að ræða. „Ég held satt best að segja að meirihluti líb- anskra kvenna hafi gengist undir ein- hvers konar fegrunaraðgerðir, stórar eða smáar, til að bæta útlitið – allt frá botox til andlitslyftinga, brjósta- stækkunar eða magaminnkunar,“ sagði Darghouth þegar ég hitti hana að máli nýverið og orð hennar eru lík- lega ekki svo ýkja fjarri raunveru- leikanum. Það er nefnilega talið að árlega séu framkvæmdar 1,5 millj- ónir fegrunaraðgerða í Líbanon, auk um 10 milljóna minniháttar inngripa (t.d. þar sem botoxi er sprautað í enni eða kinnar), en hafa ber í huga í þessu sambandi að fjöldi íbúa í Líb- anon er ekki nema um fjórar og hálf milljón manna. Flest verka Darghouth á þessari sýningu sýna konur fyrir eða eftir nefaðgerðir og það er engin tilviljun. Nefaðgerðirnar eru langvinsælastar. Þetta staðfestir lýtalæknirinn Ziad Feghali og bætir við að Líbanon sé sérstakt að þessu leyti. Þegar litið sé á tölur um fegrunaraðgerðir á heims- vísu séu nefnilega algengastar skurð- aðgerðir þar sem fita er fjarlægð af ákveðnum líkamshlutum en brjósta- stækkanir eru næstalgengastar. Trúarbrögð og stétt virðast ekki skipta neinu sérstöku máli, kristnar konur jafnt sem múslímskar eru það sem Tagreed Darghouth kallar „fórnarlömb dýrkunar hins nýja Guðs fegurðarinnar“. Kannski glittir hér í nýja vídd umræðunnar um hnattvæðingu: Það hefur lengi verið rætt um að menningarleg sér- einkenni eigi á hættu að þurrkast út í hnattvæddum heimi nútímans, þ.e. menning og tungumál. En kannski er hætta á því að útlitseinkenni ólíkra þjóða gætu einnig horfið. Listakonan Darghouth hefur sannarlega áhyggj- ur af þessari þróun: „[Líbanskar kon- ur] láta minnka á sér nefið og breyta löguninni þannig að það líti út eins og nef kvenna á Vesturlöndum. Það er ekki okkar náttúrulega útlit hér í Mið-Austurlöndum en konurnar trúa því að þannig nef séu fallegri en þau sem náttúran gaf okkur.“ Til að skýra hinn gríðarlega fjölda fegrunaraðgerða í Líbanon hlýtur þó fleira að koma til en áhrif frá Vest- Nefið sem þær allar óska Minna Nef líbanskra kvenna fær ekki að halda náttúrulegri tign sinni, því þær leita allar eftir vestrænna útliti. Listakonan Tagreed Darghouth við eitt verka sinna, þar sem hún deilir á lýtaaðgerðir í Líbanon. Fegrunaraðgerðir eru áberandi algengar í Líb- anon, eins og Sigrún Erla Egilsdóttir komst að þegar hún flutti til Beirút í sumar. Á göngu um miðbæinn rekst hún iðulega á konur með plástur á nefinu eftir nefaðgerð og tölurnar tala sínu máli: á hverju ári eru framkvæmdar 1,5 milljónir fegr- unaraðgerða í landinu. Kann hagstætt verð og sárin sem Líbanar bera á sálinni eftir átök liðinna áratuga að skýra þessa undarlegu þróun eða eru líbanskar konur einfaldlega „fórnarlömb dýrk- unar hins nýja Guðs fegurðarinnar“? „Við hér á þessari stofu erum farin að auglýsa í öðrum arabalöndum það sem kalla mætti fegurðar-túrisma Líb- anons. Það sama gætum við einnig gert í Evrópu,“ segir dr. Wael Khatib, eigandi Den- tal and Beauty Clinic í Bei- rút. „Tökum sem dæmi breska konu sem vill láta laga á sér nefið. Vegna þess hve miklu ódýrari slík aðgerð er hér gæti viðkomandi kom- ið í frí hingað með alla fjöl- skylduna og látið laga á sér nefið í leiðinni. Samanlagt væri það ódýrara en nef- aðgerðin ein og sér myndi kosta í Bretlandi. Við gætum boðið Íslendingum upp á sömu kjör.“ „Gætum boðið Íslendingum sömu kjör“ Dive Deeper 08 Tækninámsstefna í Smárabíó 9-10 október Microsoft sérfræðingar, ekki missa af þessu! Nánari upplýsingar og skráning í síma 544 4500 og www.ntv.is/divedeeper grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli NÁMSAÐSTOÐ íslenska - stærðfræði - enska - danska franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl. greining á lestrarerfiðleikum Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.