Morgunblaðið - 21.09.2008, Side 38

Morgunblaðið - 21.09.2008, Side 38
38 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í einkasölu glæsileg 3-4ra herb. 105 fm íb. á 3ju hæð í góðu velstaðs. húsi ásamt bílskýli. Vand. innrétt. Ísskápur og uppþvottavél fylgja eign- inni. Parket, Mjög gott skipul. Stutt í mjög góðan skóla og leiksk. Ein- stakt útsýni á fjallahringinn og Heiðmörkina.Hér getur þú flutt inn við kaupsamning. Einstakt verð aðeins 27,0 millj. Ekki missa af fráb. Tæki- færi. Eign á frábæru verði. Opið hús í dag sunnudag frá kl. 14-15. Þórarinn M. Friðgeirsson, Sölumaður, sími 899-1882 Opið hús í dag Rauðavað 23, íb. 0302 m.bíl- VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍMI 588-4477 Mjög falleg og afar sérstök, rúmgóð 2ja herbergja risíbúð á 3. hæð í góðu timburhúsi í hjarta Miðbæjarins. Íbúðin er skráð 68 fm en gólfflötur er ca 90 til 95 fm. Viðargólfborð á gólfum. Fallegar innrétting- ar. Verð 24,6 millj. HVERFISGATA 37 - RVK Opið hús í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 17 M bl1048447 Gjörið svo vel að líta við Kristrún tekur vel á móti ykkur. Nýjar og glæsilegar 4ra-5 herb. lúxusíbúðir í nýju fjölbýlishúsi, tvær íbúðir á hæð, á fallegum og grónum stað í hjarta Hafnarfjarðar. Hver íbúð er um 180 fm að stærð og fylgir þeim stúdíóherbergi og sérgeymsla á jarðhæð auk bílastæðis bílageymslu. Að innan verður hverri íbúð skilað fullfrágenginni á vandaðan hátt. Hvítlakkaðar innréttingar frá INNX, granít borðplötur og sólbekkir og vönduð tæki bæði í eld- húsi og baðherbergi. Þvottaherb. verða lögð granít í gólf og veggi. Lofthæð íbúðanna er minnst 2,70 cm, innihurðir eru extra háar og breiðar og hitakerfi verður í gólfum íbúðanna. Arkitekt hússins er Haraldur Ingvarsson, byggingatæknifræðingur er Emil Þór Guðmundsson og húsa- meistari er Benedikt Sveinsson. Verðtilboð. Húsið er afar vel staðsett á hornlóð, örstutt frá miðbænum, skólum og annarri þjónustu. SÖLUMENN Á STAÐNUM. Íbúðirnar verða til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 13-16 • Verið velkomin Op ið hú s Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Álfaskeið 31 - Hf. Lúxusíbúðir Faxafen 10 - 108 Reykjavík - eignir@eignir.is Sími 580 4600 Aðalheiður Karlsdóttir, lögg.fasteignasali www.eignir.is GOTT VERSLUNARHÚSNÆÐI Á BESTA STAÐ VIÐ LAUGAVEG Til leigu gott 200 fm verslunarhúsnæði á besta stað við Laugaveg. Góðir gluggar. Gæti einnig hentað fyrir kaffihús eða veitingastað. Upplýsingar gefur Aðalheiður í síma 893 2495 og á skrifstofu Eignaumboðsins. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÓMAR Ragnarsson er byrjaður að vernda Bjallasvæðið fyrir Lands- virkjun og skrifar af því tilefni gegn grein minni um Bjallavirkjun. Í grein sinni á miðvikudag telur hann „feg- ursta svæði Tungnár“ í hættu. Af hverju var þjóðin ekki upplýst um þetta fegursta svæði fyrr en Lands- virkjun fór að hreyfa málinu? Lónið er búið að vera á teikniborðinu í 40 ár. Það stoðar lítt að telja ferkíló- metra sem fara undir lón Lands- virkjunar. Lónin eru vötn eins og önnur vötn, Ísland er fremur fátækt af vötnum miðað við nágrannalöndin, Íslensk vötn eru ekki náttúruspjöll þau eru fremur náttúruprýði, lónin líka. Sem dæmi má taka Elliðavatn, eina af náttúruperlum Reykjavík- ursvæðisins, miðlunarlón fyrir El- liðaársöð, byggt laust fyrir 1930. Undir það fór jafnmikið gróðurland í kaf og lónið er stórt. Ómar Ragnarsson er fréttamaður og listamaður sem þjóðin metur mik- ils þó ekki kunni hún að meta pólitík hans. Þetta er pólitík sem berst gegn áliðnaði og Landsvirkjun sem orku- birgi hans, en fer fram með nátt- úruverndartali sem er löngu komið í ljós að nær ekki millimetra út fyrir virkjunarsvæði Landsvirkjunar. Baráttan gegn álinu minnir á þá tíma þegar barist var sem hatramm- ast gegn togaraútgerðinni. Sú bar- átta þagnaði ekki fyrr en búið var að koma nær öllum togurum í bæj- arútgerðir, en síðan hefur botnskaf þeirra verið meðal helgra véa. Það er e.t.v. lækning á þessu að gera Straumsvíkina að Bæjarbræðslu Hafnarfjarðar, Grundartangann að Sveitabræðslu Skilamannahrepps o. s. frv. Það er orðið tímabært að spyrja hvað það á lengi að líðast að mót- mælaflokkur sé með höfuðatvinnu- veg þjóðarinnar í pólitísku einelti og kalli það náttúruvernd. Lands- virkjun hefur sýnt og sannað að hún getur lyft Grettistaki í gróðurvernd og uppgræðslu ef hún kærir sig um. Það er kominn tími til að nátt- úruverndarumræðan snúi sér að ein- hverju alvörumáli eins og t.d. því hvort ekki sé tímabært að virkj- anagerð og vegagerð taki að sér verkefni í uppgræðslu og gróð- urvernd svo eitthvað annað gerist í náttúruverndarmálum en að mót- mælaflokkur hrekist með fána sína og spjöld frá einu virkjunarsvæðinu á annað. Þetta fólk er pólitískir mót- mælendur en ekki verndarar helgra véa eins og það gefur sig út fyrir að vera. JÓNAS ELÍASSON, prófessor. Bjallar Frá Jónasi Elíassyni ÓTRÚLEGT finnst mér hvernig álagning olíufélagana virkar hér á landi. Þeir eru fyrstir til af öllum til að hækka og eru svo tregir til að lækka aftur. Þetta finnst mér sérlega undarlegt á þessum tímum, því ég man vel eftir því þegar fulltrúi N1 sagði í fréttaviðtali (þegar bensínverðið var helsta fréttaefnið), að „væntingar mark- aðsins væru að dæluverð okkar endurspeglaði heimsmarkaðsverð.“ Fyrst hélt ég að ástæðan fyrir því að bensínverðið hafi einungis lækkað um 8–10% í sjálfsafgreiðslu frá því að það var um 180 kr. á lítra væri sú, að Bandaríkjadalur væri orðinn svo sterkur að hann væri að éta upp mismuninn á tunnuverðinu. Nú, þótt Bandaríkja- dalur hafi hækkað um næstum 20 kr. þá er það samkvæmt einföldum útreikningum ekki nægilegt til að éta upp svona mikinn mun. Ég skal sýna ykkur hvað ég á við: Heimsmarkaðsverð á olíu er samkvæmt nýjustu fréttum 89 doll- arar. Heimsmarkaðsverð á olíu fór hæst upp í 150 dollara einhvern tímann í júlí. Bensínverð á dælu er nú á bilinu 163–167 kr. á lítrann. Sem sagt að meðaltali 165 kr. Bensínverð var hæst í júlí um 180 kr. á lítra. Samkvæmt núverandi gengi, þegar þetta er skrifað, er Banda- ríkjadollar 92,2 kr. íslenskar. Gengið var í júlí u.þ.b. 80 kr. ís- lenskar. Sem sagt er heimsmarkaðsverð nú 8.205,8 krónur á tunnuna en var 12.000. Það gerir semsagt 31,6% mun á verði. Það sem maður rekur þá augun í er að heimsmark- aðsverð samkvæmt íslensku gengi er 31,6% lægra heldur en það var en samt er bensínverð á dælu að- eins 8–10% lægra? Af hverju er þessi gífurlegi munur? Nú hvet ég forsvarsmenn olíufélagana til að lækka bensínverð „í takt við kröfu neytenda“ eins og þeir sögðu sjálf- ir. BRYNJAR JÓHANNESSON, nemandi við Tækniskólann. Bensínverð á Íslandi Frá Brynjari Jóhannessyni Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 Sími 551 3010

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.