Morgunblaðið - 21.09.2008, Side 52
52 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VINNUVÉLAR
Glæsilegt sérblað um vinnuvélar,
jeppa, atvinnubíla, fjölskyldubíla o.fl.
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn
3. október.
Meðal efnis er:
• Vinnuvélar, það nýjasta á markaðnum.
• Atvinnubílar.
• Fjölskyldubílar.
• Pallbílar.
• Jeppar.
• Fjórhjól.
• Verkstæði fyrir vinnuvélar.
• Varahlutir.
• Græjur í bílana.
• Vinnulyftur og fleira.
• Dekk.
• Vinnufatnaður fyrir veturinn.
• Hreyfing og slökun gegn daglegu álagi
og áreiti.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
og fróðleiksmolum.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16,
mánudaginn 27. september.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG byrjaði á Rás 2 hinn 1. desember árið 1983, ég
var þá í morgunþætti með Páli Þorsteinssyni, Ásgeiri
Tómassyni og Arnþrúði Karlsdóttur. Þetta var bara
fyrsti dagur Rásar 2, og fyrsti þátturinn kl. 10 um
morguninn,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson sem
fagnar 25 ára „útvarpsafmæli“ sínu með því að fara af
stað með útvarpsþáttinn Úr plötuskápnum á Rás 2.
„Ég var þarna í um þrjú eða fjögur ár, en hef rosa-
lega lítið verið í útvarpi síðan því tónlistin tók eig-
inlega yfir, auk þess sem ég fór í sjónvarpið annað
slagið. En það er gaman að vera ekki í tónlistarstúdíói
alla daga,“ segir Jón.
Fyrsti þáttur Jóns er í dag, sunnudag, og hefst
hann kl. 12.45. Eins og nafnið bendir til ætlar Jón að
kíkja í plötuskápa í þáttunum, bæði sinn eigin og ann-
arra.
„Það er búinn að vera þarna þáttur sem heitir Úr
plötuskápnum, og ég er í rauninni að taka við honum.
Mér fannst það ágæt hugmynd, ég hafði alveg frjálsar
hendur en mér fannst það bara fín hugmynd að fá fólk
í heimsókn, því mér finnst svo gaman að spjalla. En
ég nenni ekki að vera með útvarpsþátt án þess að fá
að velja einhverja tónlist sjálfur, enda á ég ansi gott
plötusafn. Ég ætla að reyna að koma með eitthvað
bitastætt í hverjum þætti – eitthvað sem fólk heyrir
kannski ekki á hverjum degi í öðrum útvarpsþáttum,“
segir Jón sem mun taka á móti einum gesti í hverjum
þætti.
„Hann kemur bara með plöturnar sínar til mín og
við spjöllum um þá tónlist sem hann velur. Við komum
náttúrlega líka inn á daglegt líf viðkomandi í leiðinni,
þannig að þetta verði ekki of nördalegt.“
Spilaði með Þrótti
Sá gestur sem ríður á vaðið í fyrsta þættinum er
enginn annar en Vestmannaeyingurinn og fyrrverandi
knattspyrnuhetjan, Tómas Ingi Tómasson.
„Hann er náttúrlega í uppáhaldssjónvarsþættinum
mínum, Landsbankamörkunum, og mér finnst hann
hafa verið alveg frábær þar. Hann er svo hreinskilinn
og með góða kímnigáfu. En svo þekki ég hann frá
fornu fari, hann spilaði eitt eða tvö tímabil með Þrótti,
þar sem hann var frábær. Þannig að ég veit ýmislegt
um hann, til dæmis að hann semur tónlist og spilar á
gítar, eins og annar hver Vestmannaeyingur. Þannig
að ég er spenntur að vita hvað hann býður okkur upp
á,“ segir Jón sem gerir ráð fyrir að þættirnir verði á
hverjum sunnudegi í vetur, þótt hann viti ekki ná-
kvæmlega hversu margir þeir verði.
„Ætli það fari ekki bara eftir frammistöðu?“ segir
hann og hlær.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Vill ráða „… ég nenni ekki að vera með útvarpsþátt án þess að fá að velja einhverja tónlist sjálfur,“ segir Jón.
Kíkt í plötuskápa
Jón Ólafsson fer af stað með nýjan útvarpsþátt í dag
25 ár frá því hann steig sín fyrstu skref í útvarpi