Morgunblaðið - 30.09.2008, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Orð dagsins: En ef einhver elskar
Guð, þá er hann þekktur af honum.
(I.Kor. 8, 3.)
Krossgáta
Lárétt | 1 smjaður,
8 rýr, 9 ástleitni, 10 sár,
11 aumar, 13 peningum,
15 slaga, 18 byrði,
21 blása, 22 toga,
23 yndi, 24 tilbúningur.
Lóðrétt | 2 fiskar, 3 ótti,
4 fiskur, 5 sveipur,
6 rándýrs, 7 íþrótta-
félag, 12 öskur, 14 dvelj-
ast, 15 mett, 16 gljái,
17 aulann, 18 forbjóði,
19 flöt, 20 ástundunar-
sama.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bilar, 4 orlof, 7 sópum, 8 læðan, 9 sló, 11 inna,
13 ansa, 14 kátur, 15 haka, 17 góða, 20 enn, 22 kærir,
23 aumar, 24 róaði, 25 nýrað.
Lóðrétt: 1 bassi, 2 lúpan, 3 róms, 4 Ósló, 5 liðin, 6 fenna,
10 látún, 12 aka, 13 arg, 15 hokur, 16 kurla, 18 ólmar,
19 afræð, 20 ergi, 21 nafn.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Látlaus millileikur.
Norður
♠D10742
♥63
♦Á5
♣KG104
Vestur Austur
♠Á ♠G9
♥KG84 ♥972
♦D107643 ♦K982
♣96 ♣ÁD83
Suður
♠K8653
♥ÁD105
♦G
♣752
Suður spilar 4♠.
Boris Schapiro segir frá þessu spili í
bók sinni Bridge Analysis (1976).
Formið var sveitakeppni og báðir
sagnhafar fengu út smáan tígul gegn
4♠. Annar sagnhafinn náði tíu slögum,
hinn fór einn niður.
Spilarinn sem fór einn niður drap á
♦Á og spilaði strax spaða á kónginn.
Vestur kom sér skaðlaust út á tígli og á
endanum gaf sagnhafi tvo slagi á lauf
og einn á hjartakóng. Hinn sagnhafinn
trompaði tígul í öðrum slag. Spilaði síð-
an spaðakóng (sem er rétta íferðin til
að verjast ♠ÁG9 í vestur). Sá látlausi
millileikur að trompa tígul gerði vestri
erfitt fyrir, því nú gat hann ekki komist
út í þeim lit. Á opnu borði sést að vest-
ur má spila laufi, en lauflitur blinds er
ekki árennilegur og vestur veðjaði
frekar á hjartað – spilaði upp í gaffal-
inn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú fattar strax ef einhver ætlar að
ryðjast fram fyrir og „meika það“. Þú vilt
ekki umgangast fólk sem þú treystir ekki,
en haltu óvininum sem næst þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fátt pirrar þig meira en fólk sem er
betra við þig en þú við það. Gleymdirðu
afmælisdegi eða varstu tillitslaus? Þú get-
ur bætt það upp seinna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það margborgar sig að hafa góð
sambönd. Boð og hádegisverðir ganga svo
vel að þú hefur skrifað undir samning áð-
ur en reikningurinn kemur. Njóttu!
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér er boðið í partí sem kostar inn
í. Það liggur við að þú þurfir að borga fyr-
ir tónlistina. Þú hafðir ætlað að eyða pen-
ingunum í annað. Haltu þig við fyrri plön.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gríptu öll tækifæri sem þú færð til
að vera einn. Sýndu enga miskunn. Sendu
sjálfum þér skilaboð um að þú sért mik-
ilvægur. Aðrir fá þau líka.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Tilfinningarnar toga þig í allar áttir
ef þú leyfir það. Þú getur náð yfirhöndinni
ef þú tekur þér tíma til að kyrra hugann.
Stýrðu þeim á jákvæða braut.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er yndislegt þegar fólk kann að
meta og samþykkir einstaka kosti þína.
Hingað til hefurðu þurft að hafa fyrir því
að koma hæfileikunum á framfæri, en nú
er það auðveldara.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Annaðhvort hefurðu borgað
fyrir sérmeðferð sem þú færð ekki eða
fólk getur ekki þjónað þér á þann hátt
sem þú kýst. Vertu hógvær en stoltur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú kynnist nýju fólki og það er
eitthvað frábært við þetta fólk. Eins og þú
sért umkringdur uppáhaldsfólkinu þínu,
nema þú þekkir það ekki enn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert heppinn þegar kemur að
verkefnum sem þú leysir einn af hendi.
Þar spilla gáfur þínar ekki. Það er helst
að þú þurfir tíma til að æfa þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Verkefni sem tekur þig marga
daga hefur verið troðið á einn dag. Þú
þarft að klára það strax og byrja á nýju
verki. Það er ótrúlegt hverju þú kemur í
verk undir álagi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Margar hugsanir sem skýtur upp í
kollinn á þér enda sem vangaveltur. En
þær eru hvorki þínar né sannar. Hættu að
hugsa og láttu þig frekar dreyma.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
30. september 1949
Stjörnubíó við Laugaveg í
Reykjavík tók til starfa. Það
taldist til tíðinda að loftræst-
ing var í salnum og að gólfið
var hallandi. Sýningum var
hætt vorið 2002, húsið rifið og
bílastæðahús reist á lóðinni.
30. september 1966
Sjónvarpið hóf útsendingar.
Eftirvænting var mikil og dag-
inn eftir sagði Morgunblaðið:
„Auðar götur í Reykjavík, bíó-
in og skemmtistaðir hálftómir,
erfitt að ná í leigubíla.“
30. september 1994
Ný brú yfir Kúðafljót í Vestur-
Skaftafellssýslu var formlega
opnuð. Hún er 302 metra löng.
Með nýjum vegi og brúnni
styttist hringvegurinn um 8
kílómetra.
30. september 1996
Eldgos hófst í Vatnajökli, milli
Bárðarbungu og Grímsvatna.
Það stóð í tvær vikur. Eld-
stöðin, sem nefnd var Gjálp,
bræddi mikið af ís og safnaðist
vatn í Grímsvötn og hljóp það-
an mánuði síðar yfir Skeiðar-
ársand og skemmdi mann-
virki.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
TÖFRAMAÐURINN og athafnamaðurinn Baldur
Brjánsson fagnar í dag sextugsafmæli sínu. Af því
tilefni verður að sjálfsögðu haldið upp á daginn,
nema hvað að Baldur veit ekki nákvæmlega með
hvaða hætti þar sem sambýliskona hans, Birna
Hannesdóttir, ætlar með hann í óvissuferð.
Baldur segist lítið hafa verið gefinn fyrir að
halda upp á afmælið sitt í gegnum tíðina en einn
eftirminnilegasti afmælisdagurinn sé þegar hann
varð fertugur en þá héldu samstarfsmenn Baldurs
honum mikla veislu á Hótel Íslandi.
Baldur er þekktur töframaður en er svo til hætt-
ur að koma fram. Hann segir orðið athafnamann lýsa sér ágætlega
núna þar sem hann er að sýsla í fjárfestingum. Hins vegar mun hann,
ásamt sex öðrum töframönnum, koma fram á sýningu nk. fimmtudag í
Salnum í Kópavogi ásamt Henry Evans, sem er tvöfaldur heimsmeist-
ari í göldrum.
Baldur segist fylgjast vel með því sem er að gerast í töfraheiminum,
t.d. með því að fara á ráðstefnur og sýningar, auk þess sem hann er
enn félagi í Hinu íslenska töframannagildi. „Það má ekki láta þessa
ungu stráka valta yfir mann,“ segir hann. Það eru þó ekki bara töfrar
sem Baldur sinnir í tómstundum. Hann stundar einnig golf og að-
spurður hvort töfrarnir komi að einhverju liði þar svarar hann: „Nei,
það er voðalega lítið en þess væri óskandi!“ ylfa@mbl.is
Baldur Brjánsson töframaður sextugur
Töfrar hjálpa lítið í golfi
Akranes Bjartmari
Pálmasyni og Margréti
Steingrímsdóttur fædd-
ist sonur 9. september
kl. 12.40. Hann vó
5.235 g og var 60 sm
langur.
Grikkland Elena Birna
fæddist 9. júlí í Aþenu.
Hún vó 3.580 g og var 52
sm löng. Foreldrar henn-
ar eru dr. Snorri Björn
Rafnsson og dr. Efrosyni
Argyri búsett í Skotlandi.
Reykjavík Agla Rán
fæddist 20. september kl.
20.54. Hún vó 3.210 g og
var 50 sm löng. Foreldrar
hennar eru Elísabet Iðunn
Einarsdóttir og Georg
Þorkelsson.
7 9 2 1 5 3 8 6 4
6 8 5 2 4 9 3 1 7
4 3 1 6 8 7 5 2 9
2 7 4 3 9 1 6 5 8
8 5 3 4 2 6 9 7 1
1 6 9 8 7 5 2 4 3
3 2 7 9 6 4 1 8 5
5 1 6 7 3 8 4 9 2
9 4 8 5 1 2 7 3 6
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Sudoku
dagbók
Í dag er þriðjudagur 30. september,
274. dagur ársins 2008
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
STAÐAN kom upp í fyrstu skák úr-
slitaeinvígisins á heimsmeistaramóti
kvenna sem lauk fyrir skömmu í Nalc-
hik í Rússlandi. Sigurvegari einvígisins
og heimsmeistari kvenna 2008, hin
rússneska Alexandra Kosteniuk
(2.510), hafði svart gegn hinni 14 ára
Yifan Hou (2.557) frá Kína. 36.
… Rxf3! 37. Dxf3 Bxg4! 38. Df2 d1=D
39. Rxd1 Bxd1 40. De1 Bf3+ 41. Kg1
f5 42. exf5 gxf5 43. Df2 Kg6 44. b3 e4
45. c4 bxc4 46. bxc4 Dg5 47. c5 f4 48.
cxd6 fxg3 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Kolka Máney og Salka Arney
Magnúsdætur og Bryndís Dís Mull-
er voru með tombólu og sölu á berj-
um o.fl. í Húsahverfinu í Grafar-
vogi nýlega. Þær söfnuðu 11.192
kr. sem þær gáfu til Rauða kross-
ins.
Hlutavelta
Nýirborgarar
Er þungarokkið kannski dautt?“spurði Morgunblaðið síðastlið-
inn fimmtudag. Tilefnið var að það
vakti athygli blaðsins að nýjasta
breiðskífa flaggskips hinnar eðlu
stefnu, Metallica, náði aðeins sjötta
sæti á Tónlistanum sem ku mæla
plötusölu hér í fásinninu.
Víkverji er sem kunnugt er einn
mikilvirkasti flösufeykir þessarar
þjóðar og kemur honum spurningin
í opna skjöldu í ljósi þess að nýja
platan, Death Magnetic, var á toppi
vinsældalista í 28 mismunandi lönd-
um í liðinni viku.
Undarleg fjörbrot það.
Hún fór m.a. rakleiðis á topp hins
nafnkunna Billboard-lista í Banda-
ríkjunum og varð þar með fimmta
breiðskífa Metallica í röð sem nær
þeim árangri. Þar með sló sveitin
met sem hún deildi áður með engum
öðrum en Bítlunum, U2 og Dave
Matthews Band.
Death Magnetic skellti sér líka
beint á topp breiðskífulistans í
Bretlandi.
Íslenski listinn stingur þarna í
stúf. Í því sambandi má raunar
velta fyrir sér hvort þjóð sem lítur á
Abba sem upphaf og endi alls í tón-
list sé yfirhöfuð marktæk í þessum
efnum.
x x x
Önnur skrýtin frétt um Metallicabirtist í Morgunblaðinu daginn
áður. Þar var greint frá því að sveit-
in ætti nú möguleika á því að verða
limuð inn í frægðargarð rokksins (e.
Rock and Roll Hall of Fame). Þar
stóð í myndatexta: „Metallica: Tími
til kominn að sveitin komist í frægð-
arhöll rokksins.“
Þetta er merkilega athugað í ljósi
þess að samkvæmt reglum eiga
menn ekki möguleika á því að gera
„garðinn“ frægan fyrr en 25 árum
eftir að fyrsta plata þeirra kom út.
Þeim áfanga náði Metallica hinn 29.
júlí í sumar.
Sannarlega tími til kominn!
Annars ræðst það ekki fyrr en í
janúar hvort Metallica hlotnast
þessi heiður. Inntökuathöfnin fer
svo fram í Cleveland 4. apríl nk.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Frumstig
4 1 8 5 3
6 1 7
7 3 9 1
7 3 8 9
2 7
9 2 1 3
8 9 1 2
2 4 7
6 7 8 5 3
5 1 8 9 7 3 6 2 4
4 3 9 6 2 5 7 8 1
7 6 2 8 4 1 5 9 3
1 9 7 2 3 6 4 5 8
8 5 3 4 1 9 2 6 7
6 2 4 7 5 8 3 1 9
3 8 6 5 9 4 1 7 2
9 7 1 3 6 2 8 4 5
2 4 5 1 8 7 9 3 6
Lausn síðustu Sudoki
4 2 7 5 3 8 6 1 9
3 6 9 1 7 4 5 2 8
1 8 5 9 2 6 4 3 7
2 3 8 4 6 9 1 7 5
7 9 1 2 5 3 8 6 4
5 4 6 8 1 7 3 9 2
8 7 4 3 9 1 2 5 6
9 5 3 6 4 2 7 8 1
6 1 2 7 8 5 9 4 3
Efstastig
7 9 2 6
5 9 7
6 8 5 4
9 8 4
2 6
3 1 7
5 8 2 1
6 8 4
9 4 7 8
Miðstig
6 9 1
3 1 5
9 8 5 4 6
6 3
7 4 8 5
8 9
1 5 8 7 9
4 6 7
8 3 6