Morgunblaðið - 30.09.2008, Side 52
Ríkissjóður bjargar Glitni
Samkomulag hefur náðst um að
ríkissjóður leggi Glitni til hlutafjár-
framlag að jafnvirði 84 milljarða
króna. Með því eignast ríkissjóður
75% í bankanum. Tilgangurinn með
aðgerðinni er að tryggja stöðugleik-
ann í fjármálakerfinu.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
segir að hlutabréf í Glitni hefðu farið
í núll ef ekki hefði komið til aðgerð-
anna. Bankinn sé traustur og vel
rekinn og sami forstjóri verði hafður
áfram. Forstjóri Glitnis segir að inn-
koma ríkisins styrki eiginfjárstöðu
bankans mjög, taki af allan vafa um
fjárhagslega stöðu hans og sé í sam-
ræmi við aðgerðir í nágrannalönd-
unum. » Forsíða
Lækka launin sín hjá MS
Stjórnendur Mjólkursamsölunnar
hafa ákveðið að taka á sig 10%
launalækkun frá og með 1. október
en MS hefur verið rekin með tapi.
Fækka á framkvæmdastjórum hjá
fyrirtækinu ásamt því að einfalda
skipurit fyrirtækisins og fækka
millistjórnendum. » 2
Drýgði hetjudáð í bruna
Vegfarandi drýgði hetjudáð í gær
þegar hann bjargaði bílstjóra á síð-
ustu stundu út úr brennandi bíl á
Reykjavegi við Laugardal. Bílstjór-
inn hlaut brunasár og var fluttur á
slysadeild og þaðan á gjörgæslu-
deild Landspítalans. » 9
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 274. DAGUR ÁRSINS 2008
##3 3#!
#3!
#3#
3#
!3 #3 3#!
!3!
!3!
4 %5& . +%
6 # 1
. ##3
#3
#3 #3!
3!
!3!
# 3# !3#
3
- 7 1 & ##3 #3 #3#
#3 3#
!3 # 3###
3
!3 89::;<=
&>?<:=@6&AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@&77<D@;
@9<&77<D@;
&E@&77<D@;
&2=&&@F<;@7=
G;A;@&7>G?@
&8<
?2<;
6?@6=&2+&=>;:;
Leikfélag Akureyrar
Dauða-
syndirnar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ekki ennþá
Forystugrein: Hagur almennings
Ljósvaki: Ómótstæðilegur
breyskleiki
UMRÆÐAN»
Það sem ekki var sagt
Vandaríki Ameríku
Rofar til í Reykjavík
Steypumenning
Heitast 7°C | Kaldast -3°C
Norðan- og norð-
austan 5-13 m/s. Hvass-
ast norðvestan til.
Stöku él og snjókoma
norðan og norðvestan til. » 10
Um þessar mundir
eru 30 ár frá því
Nancy, unnusta Sids
Vicious, fannst látin
með stungusár á
kviði. » 48
AF LISTUM»
Sekur eða
saklaus?
MYNDLIST»
Ungir graffarar sýna
hvað í þeim býr. » 44
Íslendingar hafa svo
gaman af ABBA-
myndinni Mamma
Mia! að elstu menn
muna vart annað
eins. » 49
KVIKMYNDIR»
Mamma Mia!
Mamma Mia!
TÓNLIST»
McCartney semur við
fyrirtæki Bjarkar. » 45
FÓLK»
Kærastinn ældi á Janet
Jackson. » 50
Menning
VEÐUR»
1. Stoðir óska eftir greiðslustöðvun
2. Óttast keðjuverkun
3. Glitnir hefði farið í þrot
4. Ríkið eignast 75% í Glitni
Íslenska krónan veiktist um 3,9%
„LÖMBIN eru betri sem koma þaðan en þau sem ganga heima. Svo er þetta
líka ævintýramennska,“ segir Ragnar Sævar Þorsteinsson, bóndi í Brekk-
um í Mýrdal. Hann smalaði fé úr Hvítmögu, afréttarlandi Sólheimabæj-
anna. Hvítmaga er afgirt jöklum og jökulfjóti og þangað er ekki hægt að
komast með fé nema fara yfir Sólheimajökul, skriðjökul úr Mýrdalsjökli.
Bræðurnir frá Ytri-Sólheimum, Einar Guðni, Ragnar Sævar og Óskar
Þorsteinssynir, ráku fé í Hvítmögu fyrir fjórum árum en þá opnaðist leiðin
yfir Sólheimajökul eftir að hafa verið ófær í þrjátíu ár. Þeir hafa nýtt af-
réttarlandið síðan og fóru með 200 kindur þangað í vor. Smalað var um
helgina og segir Einar Guðni að eitthvað af kindum sé eftir. Féð er vænt
eftir gott sumar. Uppáhaldskindurnar fá gjarnan að fara í Hvítmögu og
fagnaði Óskar þeim með súkkulaði og kökum. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rekið yfir jökul Sólheimajökull er flugháll og illur yfirferðar eftir rigningar. Einar Guðni leiddi hópinn með fjallastöng að vopni og jöklajárn á fótum.
Uppáhaldsféð
fer í Hvítmögu
Varúð Margar hættur eru á leiðinni yfir Sólheimajökul. Ragnar Sævar Þor-
steinsson gætti þess að féð færi ekki í stóra sprungu á Sólheimajökli.
DREGIÐ hefur úr einelti um allt
að 70% í þeim skólum sem hafa
innleitt Olweusaráætlunina, að
sögn Þorláks H. Helgasonar, fram-
kvæmdastjóra verkefnisins, sem
ætlað er að vinna gegn einelti og
andfélagslegri hegðun. Um 90
skólar á Íslandi hafa innleitt áætl-
unina sem nær til um 60% grunn-
skólanemenda landsins.
Ungur maður sem ritaði grein í
sunnudagsblað Morgunblaðsins um
afleiðingar eineltis sem hann varð
fyrir um langa hríð sagði í nið-
urlagi hennar að löngu ætti að vera
búið að innleiða þessa áætlun í alla
skóla landsins.
Áætlunin byggist á því að allir
starfsmenn skólans, nemendur og
foreldrar vinni saman að því að
koma í veg fyrir einelti innan skól-
ans. Þannig gegnumsýrir verkefnið
allt skólastarfið. „Stundum segi ég
að áætlunin sé 95% forvörn og 5%
að takast á við það sem kemur
upp.
Komi hins vegar eitthvað upp,
hvort sem það er grunur eða ein-
elti, er ákveðinn lyfseðill sem menn
fara eftir,“ segir Þorlákur. | 23
Nær til 60% nemenda
Morgunblaðið/ÞÖK
Skólinn Starfsmenn, nemendur og
foreldrar vinna saman gegn einelti.
ÍSLENSKA hljómsveitin Bang Gang
mun hita upp fyrir frönsku hljóm-
sveitina Air á tvennum tónleikum í
Frakklandi dagana 10. og 11. októ-
ber. Uppselt er á tónleikana, enda er
Air ein fremsta hljómsveit Frakk-
lands. Hún öðlaðist heimsfrægð þeg-
ar hún sendi frá sér plötuna Moon
Safari fyrir áratug en platan naut
meðal annars mikilla vinsælda hér á
landi. Air, sem er skipuð þeim Jean-
Benoît Dunckel og Nicolas Godin,
hélt tónleika fyrir fullu húsi í Laug-
ardalshöllinni í júní í fyrra. | 44
Hitar upp
fyrir Air