Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RAUÐI kross Íslands hvetur alla til þátttöku í söfnuninni Göngum til góðs sem fer fram nk. laugardag. Safnað verður fé til styrktar verk- efni í Kongó þar sem fjölskyldur hafa sundrast. Um 2.500 sjálfboða- liða þarf til að ná til allra heimila á landinu. Hver og einn sjálfboðaliði þarf aðeins að gefa 1-2 klst af tíma sínum. Nánar á rki.is. Morgunblaðið/Ómar Góð þátttaka Ungir sem aldnir gengu til góðs í síðustu söfnun. Sjálfboðaliðar óskast ALÞJÓÐLEG ráðstefna í stein- steypufræðum, sem haldin verð- ur í Singapúr ár- ið 2011, verður helguð dr. Ólafi H. Wallevik, pró- fessor við tækni- og verkfræði- deild Háskólans í Reykjavík. Við- urkenningin er mikill heiður fyrir íslenska vísindamenn og sýnir að rannsóknafé skilar sér í þekkingu sem er viðurkennd á alþjóðlegan mælikvarða, segir í tilkynningu frá HR. Ólafi helguð ráðstefna Ólafur Wallewik STARFSMENNTUNARSJÓÐUR Bandalags kvenna í Reykjavík verður með fata- og nytjamarkað n.k. laugardag að Hallveigar- stöðum, Túngötu 14, kl. 13. Ágóði af markaðnum fer til að styrkja ungar konur til framhaldsnáms. Fjáröflunarnefndin tekur á móti alls kyns varningi á Hallveigar- stöðum á föstudag milli kl. 18 og 22. Nú er tækifærið að grynnka á geymsludóti og styðja gott málefni. Nytjamarkaður 130 ára afmæli Kolfreyju- staðarkirkju við Fáskrúðsfjörð verður minnst nk. sunnudag, en þá verður Pálshús vígt. Húsið er til- einkað skáldinu Páli Ólafssyni. Hólabiskup, Jón Aðalsteinn Bald- vinsson, messar ásamt sóknarpresti sr. Þóreyju Guðmundsdóttur. Eftir messu verður farið yfir byggingarsögu Pálshúss. Arkitekt hússins er Hjörleifur Stefánsson, byggingarstjóri Baldur Rafnsson. Pálshús vígt ÓLAFUR K. Ólafsson, lög- reglustjóri og sýslumaður Snæ- fellinga, hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá 1. október til ára- móta. Þá hefur Jón F. Bjart- marz, yfirlög- regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, verið settur aðstoðarlögreglustjóri embættisins og Halldóri Halldórs- syni, fjármálastjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, verið falið að taka að sér fjármálastjórn. Embætti lögreglustjórans verður auglýst til umsóknar og veitt frá og með næstu áramótum, að því er segir í tilkynningu frá dómsmála- ráðuneytinu. Ólafur settur lögreglustjóri Ólafur K. Ólafsson STUTT Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ANDI kyrrðar sveif yfir vötnunum í Smáranum og Fífunni í Kópavogi í gærmorgun þar sem iðnaðarmenn unnu að undirbúningi Íslensku sjávarútvegssýningarinnar sem hefst þar í fyrramálið. „Ég er alveg róleg því ég veit af gamalli reynslu að allt verður tilbú- ið í tæka tíð,“ segir Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmda- stjóri sýningarinnar. „Í útlöndum væru allir farnir á taugum yfir því hver mikið væri eftir að fram- kvæma tveimur dögum fyrir svona stórsýningu. En Íslendingar hafa sinn hátt á að vinna hlutina og það hefur mér alltaf þótt sjarmerandi.“ Og hér talar Marianne af reynslu eftir að hafa unnið við sýninguna frá árinu 1996. Íslenska sjávarútvegssýningin er haldin á þriggja ára fresti. Breyt- ingar verða á sýningunni frá því hún var síðast haldin árið 2005. Í fyrsta lagi hefur hún verið færð til. Var áður haldin í september en er núna haldin fyrstu vikuna í október. Við það sparast allt að 25% í hótel- kostnaði fyrir gesti sýningarinnar því vetrarverð hefur tekið gildi hjá hótelum borgarinnar. Í öðru lagi hefur sýningin verið stytt um einn dag og stendur frá fimmtudegi til laugardags. Að sögn Marianne var yfirgnæfandi stuðningur sýnenda við þessar breytingar. Um 500 fyrirtæki og samtök taka þátt í sýningunni Að þessu sinni taka um 500 fyrir- tæki og samtök þátt í sýningunni frá 33 löndum. Sýnendur koma úr öllum geirum fiskveiða og vinnslu, auk fyrirtækja sem selja vörur og tæki til greinarinnar. Þarna verða skipasmiðjur með bása, veiðarfæra- framleiðendur, framleiðendur fiski- leitartækja, fiskvinnslutækja margs konar, umbúða fyrir fisk, sölusam- tök og fleiri og fleiri. Nokkrir nýir sýnendur verða með að þessu sinni, svo sem skipasmíðastöðvar í Kanada og Lettlandi og netagerðir frá Rússlandi og Portúgal. Sýningarbásar verða á bilinu 220 til 230 og mörg hundruð manns munu vinna við sýninguna þá daga sem hún stendur yfir. Tæplega 15 þúsund gestir komu á síðustu sýningu og Marianne reikn- ar með því að gestir verði ekki færri í ár, þrátt fyrir óáran í efnahags- málum heimsins. Það hjálpi t.d. til að vegna þróunar á gengi íslensku krónunnar sé ódýrara fyrir útlend- inga að sækja sýninguna. Hún segir að fyrirtæki um allan heim beini sjónum sínum til Íslands því fisk- veiðar séu hér stöðugar og starf- semin öflug. Markmiðið sé að þessi sýning verði sú glæsilegasta og besta hingað til. Það verður Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráð- herra sem opnar sýninguna form- lega kl. 10 í fyrramálið. Allt tilbúið í tæka tíð Morgunblaðið/RAX Undirbúningur Marianne Rasmussen-Coulling fylgdist með undirbúningnum fyrir sýninguna í Kópavoginum í gær.  Búist við 15 þúsund gestum á Íslensku sjávarútvegssýninguna í Kópavogi  Íslenska aðferðin hefur gefist einkar vel við undirbúning sýningarinnar HINN félagslegi þáttur sjávar- útvegssýning- arinnar er síst ofmetinn. Hún er ekki bara sýning á tólum og tækjum heldur veitir hún gestum tækifæri til að hittast og blanda geði. Margir þeirra sem starfa innan sjávarútvegsins hittast jafnvel bara á þriggja ára fresti, einmitt á sjávarútvegsýningunni. Segja má að sýningin sé þeirra árshátíð. Grímsey er dæmigert sjávar- þorp, þar sem undirstaða atvinnu- lífsins er fiskveiðar og vinnsla. Grímseyingar hafa verið duglegir að sækja sýningarnar allt frá upp- hafi. Að sögn Garðars Ólasonar, sveitarstjóra í Grímsey, reiknar hann með að allflestir sjómenn í Grímsey bregði sér á sýninguna, líkt og þeir hafa gert á fyrri sýn- ingum. Garðar segist sjálfur hafa farið á flestar sýningarnar og það sé alltaf jafnskemmtilegt. Hann segir ofmælt að eyjan tæmist þá daga sem sýningin stendur yfir en fáir fullorðnir verði eftir. Marienne Rasmussen-Coulling leggur einmitt sérstaklega áherslu á þennan þátt sýningarinnar. „Allir sem ég hef talað við hlakka óskap- lega mikið til að hitta vini sína og kunningja,“ segir hún. Sýningin er líka eins konar árshátíð Garðar Ólason Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÁRATUGINN eftir lok kalda stríðsins, eftir upplausn Sovétríkj- anna árið 1991, gekk stefna ís- lenskra stjórn- valda gagnvart veru Bandaríkja- hers á Keflavík- urflugvelli upp án vandkvæða. Eftir hryðju- verkaárásirnar á Bandaríkin haustið 2001, þegar varn- arstefna Banda- ríkjanna var tek- in til endurmats, kom hins vegar í ljós að þessi sama stefna gerði ekki lengur sama gagn í þeirri viðleitni að tryggja sýnilegar varnir Banda- ríkjahers hér á landi. Þetta er ein niðurstaða Gunnars Þórs Bjarnasonar sagnfræðings, í bók hans Óvænt áfall eða fyrir- sjáanleg tímamót? Brottför Banda- ríkjahers frá Íslandi: Aðdragandi og viðbrögð, sem fjallað var um á fyrirlestri Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í Öskju í gær. Gunnar Þór rakti þar aðdragand- ann að þeirri einhliða ákvörðun Bandaríkjastjórnar í mars 2006 að kalla herlið sitt af landi brott, ákvörðun sem Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra, meðal annarra, hefði beitt sér fyrir. Að mati Gunnars Þórs var brott- hvarf hersins áfall fyrir íslensk stjórnvöld, sem og þá Íslendinga sem höfðu í áratugi haldið fram málstað vestrænnar samvinnu. „Eftir 2001 breyttist utanríkis- og varnarstefna Bandaríkjanna með róttækum hætti. Hér á landi átti sér þó ekki stað endurmat á ís- lenskri öryggis- og varnarmála- stefnu og Íslendingar skilgreindu ekki varnarþarfir sínar með hlið- sjón af breyttum aðstæðum, þótt Bandaríkjastjórn hafi stundum kall- að eftir því, segir Gunnar Þór. Sveigjanleikann skorti Ósveigjanleiki íslenskra stjórn- valda í varnarviðræðum við Banda- ríkjastjórn hafi ekki skilað árangri og vitnaði Gunnar Þór til ónafn- greinds íslensks embættismanns sem hefði komist svo að orði að fyrir smáríki á borð við Ísland væri betra að sýna sveigjanleika en að ganga ávallt út frá föstum grundvall- arsjónarmiðum í samningum sínum. Engu að síður telur Gunnar Þór að íslenskum stjórnvöldum hafi gengið betur að bregðast við brott- hvarfinu en búast hefði mátt við, þótt ekki hefði farið hátt hversu miklum tímabundnum vandkvæðum brotthvarf bandarískra herþyrlna hefði valdið á haustmánuðum 2006. Komst Gunnar Þór svo að orði að sú staða myndi líklega aldrei koma aftur upp að Íslandi nyti verndar Bandaríkjahers með sama hætti og á sömu forsendum og uppi voru á tímabilinu frá undirritun varnar- samkomulagsins 1951 og þar til her- inn yfirgaf landið 55 árum síðar. Brotthvarf hersins var áfall Morgunblaðið/ÞÖK Ný staða Íslensk stjórnvöld axla nú meiri ábyrgð í varnarmálum en áður.Gunnar Þór Bjarnason Íslensk stjórnvöld vanmátu áhrif hryðjuverkastríðsins á öryggis- og varnar- stefnu Bandaríkjastjórnar að mati Gunnar Þórs Bjarnasonar sagnfræðings

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.