Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist töl- urnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Sudoku dagbók Í dag er miðvikudagur 1. október, 275. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr- ir vini sína. (Jh. 15, 13.) Þarf ég að hafa áhyggjur“ er yf-irskrift fundar, sem haldinn verður á vegum Glitnis í kvöld. Á þessum fundi munu almennir spar- fjáreigendur geta sótt sér ráðgjöf um „tækifæri og áhættur“ og leitað svara við spurningunni um það hvernig takast eigi á við fjármálin. Í tilkynningu, sem send var um fund- inn til viðskiptavina Glitnis, segir að Lárus Welding, forstjóri bankans, muni halda erindi með heitinu „Staða Glitnis í breyttu umhverfi“. Þetta málefni hyggst forstjórinn af- greiða á fimmtán mínútum. Mörgum kann að virðast kaldhæðnislegt að Glitnir skuli halda fund með þessari yfirskrift eftir atburði helgarinnar og mánudagsins. Víkverji er hins vegar þeirrar hyggju að hafi þessi fundur einhvern tímann verið tíma- bær sé það nú. x x x Sarah Palin, varaforsetaefnidemókrata, hefur aldeilis vakið athygli. Palin er guðhrædd kona. Í júní tók hún til máls á samkomu í byggðarlagi sínu, sem heitir Wasilla og minnir nafnið óneitanlega á ógn- valdinn Godzilla, sem í eina tíð hrelldi gesti kvikmyndahúsa. Í guðs- þjónustu hjá Söfnuði Guðs í Wasilla fjallaði hún um viðleitni sína til að leggja gasleiðslu þvert yfir Alaska. „Ég held að það þurfi að framfylgja vilja guðs með því að skapa einingu með fólki og fyrirtækjum til þess að þessi gasleiðsla verði lögð – þannig að þið skuluð biðja fyrir því,“ sagði hún. „Guð býr í garðslöngunni, amma,“ söng Megas. Guð hefur greinilega líka hug á að setjast að í gasleiðslunni. Palin hefur lýst því að í þessu umhverfi hafi heimssýn hennar mótast. Í sömu guðsþjónustu spáir presturinn því að Alaska verði griðastaður fólks „á hinum hinstu dögum“, þar verði þúsundum manna frá ríkjunum, sem liggja sunnar, þjónað við endalok heimsins. Þetta er rifjað upp í tímaritinu The New Yorker og bætt við tilvitnun í Palin: „Ég ólst upp í Söfnuði Guðs í Wasilla – í guðsþjónustu getur ekkert komið mér á óvart.“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 berja, 4 hörf- ar, 7 fylgifiskar, 8 ósvip- að, 9 nóa, 11 vesælt, 13 drepa, 14 ryskingar, 15 mjúk, 17 klúryrði, 20 hryggur, 22 lestr- armerki, 23 tínir, 24 hrörna, 25 vafra. Lóðrétt | 1 jarðeign, 2 hittum, 3 hina, 4 tafl- mann, 5 klifrast, 6 valska, 10 hættulega, 12 verkfæri, 13 tjara, 15 bifar, 16 trjátegund, 18 skemma, 19 drepa, 20 aðeins, 21 útungun. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fagurgali, 8 léleg, 9 daður, 10 und, 11 sárar, 13 aurum, 15 sagga, 18 baggi, 21 púa, 22 draga, 23 nautn, 24 ósannindi. Lóðrétt: 2 aflar, 3 uggur, 4 gedda, 5 liður, 6 úlfs, 7 Fram, 12 arg, 14 una, 15 södd, 16 glans, 17 apann, 18 banni, 19 grund, 20 iðna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. d4 Rxe4 4. Bd3 d5 5. dxe5 Be7 6. O–O Rc6 7. Rc3 Rxc3 8. bxc3 Bg4 9. He1 Dd7 10. h3 Be6 11. Hb1 Hb8 12. Rg5 Bxg5 13. Bxg5 O–O 14. Df3 Hfe8 15. Hbd1 Re7 16. c4 Dc6 17. cxd5 Bxd5 18. Dg3 Rg6 19. h4 h5 20. f4 Dc5+ 21. Kh2 Bxa2 Staðan kom upp í heimsmeist- aramóti kvenna sem lauk fyrir skömmu í Nalchik í Rússlandi. Sig- urvegari mótsins, Alexandra Koste- niuk (2.510) frá Rússlandi, hafði hvítt gegn Atousa Pourkashiyan (2.269) frá Íran. 22. Bf6! gxf6 23. Bxg6 fxe5 svartur hefði einnig tapað eftir 23. … fxg6 24. Dxg6+. 24. Hd7 Kh8 25. Dg5 Df8 26. Dxh5+ Kg7 27. Dh7+ Kf6 28. fxe5+ Hxe5 29. Hf1+ Ke6 30. Hfxf7 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Of mikil pressa. Norður ♠DG62 ♥105 ♦Á852 ♣K62 Vestur Austur ♠K7 ♠983 ♥96 ♥ÁKG873 ♦D10743 ♦G6 ♣D1073 ♣85 Suður ♠Á1054 ♥D42 ♦K9 ♣ÁG94 Suður spilar 4♠. „Hvað getur hann átt mikið fyrir 2♥?“ Sagnhafi var staddur á kross- götum og vildi fara yfir stöðuna. Eftir tvö pöss vakti austur á 2♥, suður do- blaði, norður krafði með 3♥, suður sagði 3♠, sem norður hækkaði í 4♠. Út kom hjartanía, austur tók á ♥Á-K, spilaði þriðja hjartanu og vestur trompaði með sjöunni. Góð vörn, en nú var vestur kominn í þriðju gráðu yfirheyrslu um styrkinn á tveggja hjarta sögn austurs. „Hann var í þriðju hendi,“ svaraði vest- ur pirraður og strauk svitann af enninu. Það hafði reynt á taugarnar að trompa hiklaust með sjöunni og þetta röfl um styrkinn var meira en vestur þoldi. Sagnhafi skynjaði bylgjurnar við borðið og spilaði spaða á ásinn. Tók tvö tromp í viðbót og sendi svo vestur inn á tígul til að spila upp í laufgaffalinn. Óþolandi – fyrir vestur. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það sem kann að vera í gangi er tímabundið. Sjálfsmynd einhvers gæti skaðast, annars er lítið í húfi. Treystu á innsæið, komdu þér í gegnum þetta. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þegar þú heldur þig við upphaflega áætlun verður einhver fúll. Breytingar myndu hins vegar valda fleira fólki ónæði. Vertu ánægður með ákvörðun þína. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það ríkir meiri samkeppni á markaðinum en þig grunaði. Þekktu vel og nýttu þá kosti sem þú býrð yfir. Það eru góð tækifæri alls staðar þegar augað lærir að nema þau. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Viss iðja á hjarta þitt og huga og það er kominn tími til að þú fáir kennara sem leiðbeinir þér í gegnum næsta skref. Skrifaðu bréf til þeirra er veita þér inn- blástur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Biddu um það sem þú virkilega vilt. Þú veist ekki hvað er mögulegt fyrr en þú lætur á það reyna. Takmörk eru sjón- hverfingar einar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ástvini þínum virðist ganga allt í haginn, en hann þjáist. Þú ert sá sem get- ur hjálpað honum. Bíddu með spurning- arnar. Læknaðu hann með athygli þinni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér leiðist vanagangurinn. Opnaðu hugann og breyttu áætlunum. Að upp- götva eitthvað á eigin spýtur er dásam- legt og þú vilt gera það aftur og aftur. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Mikið er búið að vera í gangi og langar þig helst að fá að vera einn í ró og næði í nokkra daga. Smávegis redd- ingar fyrir friðinn, þú meikar það alveg. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Annaðhvort ertu með frábært tengslanet eða ótrúlega heppinn. Dífðu þig út og heilsaðu upp á mann og annan. Þú gætir gert bestu kynni lífsins. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert í millibilsástandi. Hluta af þér líður eins og barni og sá hluti vill koma út. Þér gengur vel ef þú sýnir þörf þinni til að leika þér þolinmæði. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú sendir frá þér sam- úðarbylgjur. Fólk sem er að kynnast þér á það til að opna sig fyrir þér. Þú verður að þegja yfir öllum upplýsingunum sem þú færð. Líka þeim sem sjokkera þig. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú byrjar með endinn í huga sem er besta leiðin til að ráðast á neikvæðar hugsanir. Mundu að verkið breytir miklu. Stjörnuspá Holiday Mathis 1. október 1846 Hús Hins lærða skóla við Lækjargötu í Reykjavík (nú Menntaskólans) var vígt, en skólinn hafði áður verið á Bessastöðum. Þetta var lengi stærsta hús bæjarins. 1. október 1933 Ásta Magnúsdóttir, 45 ára fulltrúi, var skipuð ríkisfé- hirðir og gegndi stöðunni í aldarfjórðung. Hún var fyrsta konan sem hlaut opinbera embættisstöðu hér á landi. 1. október 1947 Skömmtun á ýmsum nauð- synjavörum var tekin upp til að spara gjaldeyri. Meðal vörutegundanna voru korn- vara, búsáhöld, kaffi, hrein- lætisvörur, sykur, brjóstahald- arar og vatnsfötur. 1. október 1952 Hljóðritun á ræðum alþing- ismanna hófst, en áður höfðu þingskrifarar séð um að skrá ræðurnar jafnóðum og þær voru fluttar. 1. október 1963 Risasæskjaldbaka fannst á reki skammt frá Grímsey á Steingrímsfirði. Hún var 157 sentimetra löng og á fjórða hundrað kílógrömm. Þetta var talin fyrsta skepna sinnar teg- undar sem fundist hefur hér við land. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Elísabet Jó- hanna Sigurð- ardóttir, hús- freyja á Akureyri, er 95 ára í dag, 1. októ- ber. Afmæl- isbarnið býður fjölskyldu og vin- um í kaffiboð í hátíðarsal Hlíðar, laugardaginn 4. október kl. 15. 80 ára AFMÆLISVEISLA Margrétar verður ekki smá í sniðum þó hún sé eingöngu fyrir fjölskyldu og vini. Margrét býst við að á annað hundrað manns mæti en það kemur fáum á óvart sem hana þekkja þar sem hún hefur komið víða við. T.a.m. hefur hún unnið með Soroptimistahreyfingunni og að störfum í þágu golfíþróttarinnar auk þess sem hún er mörgum kunn innan hönnunargeirans. Margrét fæddist á Hánefsstöðum við Seyðis- fjörð. Hún er dóttir Árna Vilhjálmssonar og Guð- rúnar Þorvarðardóttur frá Keflavík. Hún á þrjú börn, átta barnabörn og eitt langömmubarn. Margrét er þekkt fyrir hönnun á fatnaði úr íslenskri ull en hún hannar undir merkinu M-design. „Ég er búin að vera í hálfa öld í þessu og hef aldrei haft meira að gera en nú,“ segir hún. Margrét kemst þó sérstaklega á flug spurð um golfíþróttina sem hún hefur stundað með hléum undanfarin 40 ár. „Golfið er það skemmtilegast sem til er í lífinu. Maður verður heimsmeistari bara prívat,“ segir hún. Þegar Margrét flutti til Ísafjarðar 1977 stofnaði hún Golfklúbb Ísafjarðar. Á 30 ára afmæli klúbbsins var henni boðið til Ísafjarðar á afmælisgolfmót. „Það var gerður flottur verðlauna- bikar sem kallast Margrétarbikar. Mér fannst ég hafa verið að fá Ósk- arinn eða fálkaorðuna, mér varð svo mikið um þetta og það var stutt í tárin.“ ylfa@mbl.is Margrét Árnadóttir hönnuður áttræð Aldrei verið meira að gera Nýirborgarar Keflavík Thelma Katrín fæddist 28. janúar kl. 21.37. Hún vó 3.715 g og var 53 sm löng. Foreldrar hennar eru Kristín Eik Gústafsdóttir og Grétar Þór Guðjónsson. Keflavík Auður Líf fædd- ist 22. apríl kl. 15.55. Hún vó 5.210 g og var 57 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigríður María Ey- þórsdóttir og Benedikt Kristbjörnsson. Reykjavík Hreiðar Már fæddist 14. maí kl. 21.50. Hann vó 3.725 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Hanna B. Hreið- arsdóttir og Pétur Óli Jónsson. 4 1 9 6 8 1 2 3 5 8 2 4 8 5 6 7 9 2 8 5 4 6 1 5 9 6 6 7 4 8 1 2 Frumstig 1 2 7 6 4 4 2 6 9 6 3 1 3 8 7 4 1 2 6 8 3 3 8 6 7 7 4 3 5 9 Miðstig 7 2 8 8 9 1 7 7 2 6 9 3 4 6 5 1 2 5 1 2 7 9 4 8 6 3 1 1 5 8 7 3 1 7 Efstastig 4 1 2 8 5 7 9 3 6 5 9 6 4 1 3 2 8 7 7 3 8 9 6 2 5 4 1 6 4 7 3 8 5 1 2 9 3 2 1 6 9 4 8 7 5 9 8 5 7 2 1 3 6 4 8 7 4 5 3 9 6 1 2 2 5 3 1 4 6 7 9 8 1 6 9 2 7 8 4 5 3 7 4 9 3 1 2 5 8 6 1 2 5 8 6 4 9 7 3 6 8 3 9 5 7 2 1 4 2 5 6 1 9 3 8 4 7 8 9 7 2 4 6 1 3 5 4 3 1 5 7 8 6 9 2 5 7 4 6 8 9 3 2 1 3 6 8 7 2 1 4 5 9 9 1 2 4 3 5 7 6 8 2 6 5 7 4 9 3 1 8 3 4 8 6 1 2 7 9 5 9 1 7 8 5 3 2 4 6 5 2 4 9 7 1 6 8 3 6 7 1 4 3 8 9 5 2 8 3 9 5 2 6 1 7 4 1 5 6 2 8 7 4 3 9 4 9 3 1 6 5 8 2 7 7 8 2 3 9 4 5 6 1 Lausn síðustu Sudoku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.