Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Guðmund Sv. Hermannsson gummi@mbl.is „ÞAÐ var gott, að þetta gerðist ekki sex spilum seinna,“ sagði Hrannar Erlingsson, einn íslensku bridslandsliðsmannanna, sem halda í dag til Kína til að taka þátt í ólympíumóti. Undirbúningi liðsins lauk í gær með fjögurra spila leik við nokkra velunnara liðsins. Í einu spilinu villtust Hrannar og Sveinn Rúnar Eiríksson, spilafélagi hans, aðeins af leið í sögnum og spiluðu 3 spaða þegar vinna mátti 6 spaða. Landsliðið vann reyndar leikinn 9:1 og þar af komu átta stig í þessu spili. Við hitt borðið voru spilaðir 6 tíglar og þá var ekki hægt að vinna. Heimsleikar í hugaríþróttum Það hafa verið haldin ólympíu- mót í brids á fjögurra ára fresti frá 1960 og Ísland hefur tekið þátt í þeim flestum. Alþjóðabrids- sambandið er aðili að Alþjóðaól- ympíusambandinu og mótin lúta sömu reglum og Ólympíuleikar, m.a. varðandi lyfjanotkun. Í ár er ólympíumótið í brids haldið í Peking eins og Ólympíu- leikarnir en það er að þessu sinni undir nýjum hatti heimsleika í hugaríþróttum. Á sama stað verð- ur m.a. keppt í skák, gó, damm og xiangqi, sem er einnig þekkt sem kínversk skák. Íslensk skáksveit mun keppa í atskák á heimsleikunum en brids- íþróttin verður einna fyrirferðar- mest því auk ólympíumótsins fer einnig fram heimsmeistarakeppni í einmenningi, sem 36 spilurum hef- ur verið boðið til. Ísland á þar einn fulltrúa, Jón Baldursson, sem varð heimsmeistari í einmenningi árið 1994. Þá hefur ungmennalandsliði Íslands í brids verið boðið í sveita- og tvímenningskeppni á leikunum. Erfitt verkefni Auk þeirra þriggja, sem áður hafa verið nefndir, eru Aðalsteinn Jörgensen, Björn Eysteinsson og Sverrir Ármannsson í íslenska lið- inu, sem bíður erfitt verkefni. Ísland hefur á síðustu þremur ólympíumótum í brids náð að kom- ast í úrslitakeppnina. Að þessu sinni mæta lið frá 72 þjóðum til leiks. Þeim er skipt í fjóra riðla og komast fjórar efstu sveitirnar úr hverjum riðli í 16 liða úrslit. Í riðli Íslendinga eru m.a. Norðmenn, nú- verandi heims- og Evrópumeist- arar, Pólverjar sem hafa margoft unnið til verðlauna á stórmótum undanfarin ár og Búlgarar sem náðu 4. sæti á síðasta heimsmeist- aramóti. Þessar þjóðir munu án efa keppa um efstu sætin í riðl- inum við íslenska liðið auk Nýja- Sjálands og Taívans, sem einnig eru sterkar bridsþjóðir. Að riðla- keppni lokinni tekur við útslátt- arkeppni. Hugaríþróttamenn til Kína Morgunblaðið/Kristinn Hugaríþrótt Jón Steinar Gunnlaugsson, einn af vildarvinum landsliðsins, spilar við Jón Baldursson og Hrannar Erlingsson í fjögurra spila leik í gær. Hrafnhildur Skúladóttir og Gunnlaugur Karlsson fylgjast með. FURUSKÓGUM í Evrópu stafar bráð hætta af þráðormi sem áður hefur valdið miklum skemmdum á furutegundum í Austur-Asíu. Nú þegar hafa hundruð þúsunda trjáa í Portúgal drepist af völdum mein- dýrsins. Á skogur.is er haft eftir Aðal- steini Sigurgeirssyni, forstöðu- manni rannsóknastöðvar Skógrækt- ar ríkisins á Mógilsá, að ekki sé ástæða til að hafa miklar áhyggjur af meindýrinu hér á landi. Hins vegar er óttast að það berist um furuskóga Evrópu á næstu árum og muni valda þar óbætanlegum skaða á lífríki og skógariðnaði. Aðalsteinn telur að furuskógar Norður- landanna séu móttækilegir fyrir meindýrinu og að þar gæti skóg- arfuran átt eftir að verða fyrir barðinu á því þegar og ef það berst þangað. Furu stafar ekki hætta af þráðormi LÖGREGLAN í Borgarnesi stöðv- aði í gærkvöldi bifreið á suðurleið skammt ofan við Bifröst. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ökumað- urinn, nítján ára stúlka, var undir áhrifum amfetamíns. Auk ökumannsins var önnur stúlka í bílnum en þær voru á leið frá Akureyri. Þeim var sleppt að loknum sýnatökum og yfirheyrslu en öku- maðurinn á von á að verða sviptur ökuleyfinu og fá sekt. Ók í amfeta- mínvímu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.