Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 11
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
140 NAUTGRIPIR drápust í stór-
bruna í útihúsi í Vestra-Fíflholti í
Landeyjum í gærmorgun. Ekki
urðu slys á fólki en eldurinn var
gífurlega mikill og aðkoman hrika-
leg. Er þetta enn einn stórbruninn
sem verður í útihúsi hjá íslenskum
bæjum á liðnum misserum.
Útihúsið sem brann er sérhæft
eldishús og voru 200 nautgripir þar
inni. Tókst að bjarga út 60 gripum
á blönduðum aldri, kálfum og eldri
gripum.
„Það var gríðarlegur eldur í hús-
inu og ég hélt að allt væri dautt
þegar ég kom að en við uppgötv-
uðum síðan að það voru lifandi
gripir í enda hússins og fórum að
koma þeim út,“ sagði Ágúst Rún-
arsson, bóndi í Vestra-Fíflholti.
Eldurinn hafði uppgötvast um
klukkan 7 þegar vegfarandi á bíl sá
brennandi útihúsið og hringdi í
Neyðarlínuna sem setti viðbúnað í
gang og lét Ágúst vita.
„Það var ekkert hægt að fara
þarna inn til að byrja með,“ sagði
Ágúst. „Slökkviliðið kom fljótt á
staðinn og hóf strax slökkvistörf.“
Ágúst segir að honum hafi mætt
dauðaþögn þegar hann kom að hús-
inu og því hafi hann talið að allir
gripirnir væru brunnir en annað
kom þó ljós þegar gripirnir sextíu
voru lifandi, þrátt fyrir allt.
Útihúsið var nýtt en lokið var við
byggingu þess á síðasta ári.
Þurfti að aflífa nokkra gripi
Þótt mönnum tækist að koma út
tugum gripa voru sumir þó það illa
á sig komnir að dýralæknir og hér-
aðsdýralæknir töldu best að aflífa
þá.
Að sögn Ágústs virðist mesti eld-
urinn hafa verið í kringum raf-
magnstöflu í útihúsinu. Rannsókn-
arlögreglumenn frá Hvolsvelli
ásamt tæknideildarmönnum úr lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
munu kanna vettvanginn nánar til
að grafast fyrir um eldsupptökin.
Að sögn Ágústs var skyldutrygging
á útihúsinu og einnig var hann með
landbúnaðartryggingu.
Eldurinn byrjaði að krauma á ný
undir hádegið og var slökkviliðið
kallað á staðinn að nýju til að
slökkva glæður.
Nágrannar Ágústs á næstu bæj-
um brugðust strax við og hjálpuðu
til á brunavettvangi og hýstu þá
gripi sem tókst að bjarga.
Veggir útihússins voru brunnir
niður og við augum blasti ófögur
sjón þar sem dauðir og brunnir
nautgripir lágu hver um annan
þveran.
Gríðarlegur eldur í húsinu
140 nautgripir brunnu inni í Vestra-Fíflholti en 60 gripir björguðust „Hélt að
allt væri dautt þegar ég kom að“ Nágrannar brugðust strax við og hjálpuðu til
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í HNOTSKURN
»Stórtjón varð í október2004 þegar 600 ær brunnu
inni í fjárhúsinu á bænum
Knerri á Snæfellsnesi.
»Mikið tjón varð á bænumHúsatóftum í Árnessýslu
þegar 33 nautgripir drápust í
bruna þar í ágúst 2006.
» Í árslok 2007 varð geysi-legt tjón á bænum Stærri-
Árskógi í Dalvíkurbæ þegar
200 gripir brunnu í há-
tæknifjósi.
Morgunblaðið/RAX
Eldur Veggir útihússins í Vestra-Fíflholti voru brunnir niður og við augum blasti ófögur sjón þar sem brunnir nautgripir lágu hver um annan þveran.
Morgunblaðið/RAX
Rannsókn Eldsupptök í útihúsinu eru til nánari rannsóknar hjá lögreglu en aðkoman var hrikaleg þar sem á annað
hundrað nautgripa lá í valnum. Mesti eldurinn virðist hafa verið í kringum rafmagnstöflu í útihúsinu.
Stórtjón Bruninn er enn einn stórbruninn í útihúsi við íslenska bæi.
EFTIR því sem tré hækka hér á
landi er líklegt að stormfall verði al-
gengara rétt eins og það er í ná-
grannalöndunum. Í hvassvirðinu 16.
og 17. september síðastliðinn varð
víða tjón í skógum landsins, en
sennilega urðu verstu skemmdirnar
í litlum lerkilundi í Ásbyrgi þar sem
hæstu trén eru um 18 metra há.
Lerkið var enn allaufgað 17. sept-
ember og tók því allan vindinn á sig,
en þarna er einnig jarðvegsgrunnt
og höfðu mörg trén því lítið hald. Í
storminum myndaðist u.þ.b. 50 m
breið geil í gegnum lundinn þar sem
flest trén rifnuðu upp með rótum,
segir á skogur.is. Ásbyrgi er meðal
skjólsælustu staða landsins í flestum
vindáttum, en þó getur suðvestan-
áttin skollið þar á með miklu offorsi
þegar þannig liggur á henni.
Fljótlega verður hafist handa við
að hreinsa til í lerkilundinum í Ás-
byrgi. Föllnu trén verða fjarlægð og
hallandi tré felld.
Stormfall
í skógum
mun aukast
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur úrskurðað karlmann á þrítugs-
aldri í gæsluvarðhald til 7. október
fyrir meinta aðild að fíkniefnamálinu
sem upp kom á Seyðisfirði í byrjun
þessa mánaðar.
Maðurinn, sem er erlendur ríkis-
borgari en búsettur hérlendis, var
handtekinn á mánudagskvöld.
Málið varðar smygltilraun á um 20
kg af hassi og 1,7 kg af amfetamíni í
bíl þýsks karlmanns á sjötugsaldri
sem kom hingað til lands með ferj-
unni Norrænu.
Tekinn
vegna Seyðis-
fjarðarmáls
Á VETTVANGI félags- og trygg-
ingamálaráðuneytisins er nú unnið að
því að færa umsjón með vinnumálum
fatlaðra, sem svæðisskrifstofur hafa
m.a. haft, til Vinnumálastofnunar.
Gert er ráð fyrir því að þessi breyting
geti átt sér stað um næstu áramót.
Þetta kom fram í ávarpi Jóhönnu Sig-
urðardóttir, félags- og trygginga-
málaráðherra, á ráðstefnunni „Að
vita sjálfur hvar skórinn kreppir“ sem
félagið Fræðsla fyrir fatlaða og að-
standendur hélt. Í ávarpinu fjallaði
ráðherra einnig um mikilvægi þess að
opin umræða færi fram um kosti og
galla notendastýrðrar þjónustu og
lagði áherslu á að Íslendingar lærðu
af reynslu nágrannaþjóðanna þegar
næstu skref í þróun þjónustunnar
yrðu tekin.
Vinnumál
fatlaðra flutt
LYFJAVERSLUNIN Apótekið hef-
ur opnað nýja póstverslun á vefnum
þar sem viðskiptavinir geta keypt lyf
og fengið send heim að dyrum.
Þegar viðskiptavinur skráir sig á
heimasíðu verslunarinnar verða
upplýsingar um notandanafn og lyk-
ilorð sendar í heimabanka hans en
það er gert til að tryggja öryggi við-
skiptanna þar sem oft er um að ræða
lyfseðilsskyld lyf. Eftir að aðgang-
urinn virkjast geta læknar sent lyf-
seðla til Apóteksins en kerfið byggist
að miklu leyti á rafrænum lyfseðlum
sem nýverið voru teknir í notkun.
Lyfin send heim að dyrum
Upplýsingar um lyfin birtast á
heimasvæði notandans, sem og upp-
lýsingar um ódýrustu samheitalyfin
þegar þau eru í boði. Í kjölfarið getur
viðkomandi klárað viðskiptin á vefn-
um og fengið lyfin sín send heim að
dyrum í pósti. ylfa@mbl.is
Lyfin pöntuð
af netinu