Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
EMMA ROBERTS ER
NÝJA STELPAN, Í
NÝJA SKÓLANUM
ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU
TIL VANDRÆÐA!
STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR. YFIR 69.000 MANNS
EIN BESTA MYND ÁRSINS!
SÝND Í KRINGLUNNI
WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
JOURNEY TO THE C... kl. 63D - 8:103D LEYFÐ 3D - DIGITAL
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SMART PEOPLE kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
DARK KNIGHT kl. 10:10 LEYFÐ
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
CHARLIE BARTLETT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
DEATH RACE kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
STAR WARS: C. W. kl. 5:50 LEYFÐ
WALL • E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
WILD CHILD kl. 8 - 10:10 LEYFÐ LÚXUS VIP
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
JOURNEY TO THE C... kl. 5:50 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL
SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 LEYFÐ LÚXUS VIP
SÝND Í ÁLFABAKKA
-DV
-S.V., MBLSÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ÍSLE
NSK
T TA
L
FRÁ MANNÖPUNUM SEM FÆRÐU OKKUR
SHREK
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND
ÞAR SEM ALLIR SKEMMTA
SÉR KONUNGLEGA.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
„VIÐ byrjuðum með ákveðna hug-
mynd, sem var um leikhúsið sem
vél og stilltum því upp gagnvart
leikaranum sem manneskju og
fjöllum um þá togstreitu sem get-
ur myndast þarna á milli,“ segir
Bjartur Guðmundsson, einn leik-
aranna í uppfærslu Nemendaleik-
hússins á verkinu Gangverkið sem
leikhópurinn semur sjálfur. Hóp-
urinn vann og samdi verkið á átta
vikum í samstarfi við Kristínu Ey-
steinsdóttur leikstjóra með svo-
kallaðri „devised“ aðferð.
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir
lýsir vinnuferlinu nánar. „Við
byrjuðum á því að safna að okkur
efni sem okkur datt í hug að við
gætum notað,“ segir hún. Það
voru jafnt myndir, textabrot,
myndbönd og hlutir sem leiklist-
arnemendurnir lögðu í þetta púkk
í byrjun. Síðan var spunnið út frá
því og valin atriði enduðu svo í
fullbúnu leikritinu. „Þetta er ekki
hefðbundið leikrit þar sem er upp-
haf, miðja og endir, en það er
samt ákveðinn þráður sem liggur í
gegnum allt verkið,“ segir Þor-
björg.
Auk þeirra Bjarts og Þor-
bjargar skipa leikhópinn þau
Hannes Óli Ágústsson, Lilja Nótt
Þórisdóttir, Stefán Benedikt Vil-
helmsson, Vigdís Másdóttir og
Walter Geir Grímsson.
Tilraunir með leikhúsformið
Gangverkið fjallar um leikhúsið
sjálft, en Bjartur vill samt meina
að það eigi erindi langt út fyrir
veggi þess. „Ég myndi ekki segja
að þetta sé sjálfhverft, en við er-
um að rannsaka starfsumhverfi
leikarans, leikhúsið, velta upp
hliðum sem sjaldan sjást út á við
og gera tilraunir með leiklist-
arformið.“
Hvorki Þorbjörg né Bjartur
hafa gert neinar fastar áætlanir
um það sem tekur við þegar nám-
inu lýkur í vor. Þau horfa bæði á
verkefnin sem framundan eru í
vetur og síðan kemur í ljós hvað
tekur við. „Það er ennþá smá-tími
til stefnu,“ segir Bjartur. „En ég
er með kollinn fullan af hug-
myndum sem mig langar að koma
í framkvæmd.“
Gangverkið verður frumsýnt
næstkomandi föstudag.
Leikararnir í vélinni
Útskriftarnemar í
leiklistardeild LHÍ
rannsaka leikhúsið
sjálft í Gangverkinu
Gangverkið „Þetta er ekki hefðbundið leikrit,“ segir Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir.
Samstarf Walter Geir í hlutverki sínu. Útskriftarárgangur LHÍ samdi verkið í sameiningu.
Í UMRÆÐUM
um íslenskt
leikhús heyr-
ist æ oftar tal-
að um „dev-
ised“
aðferðina,
sem enn hefur
ekki fengið
nógu gott ís-
lenskt nafn.
Kristín Ey-
steinsdóttir, leikstjóri Gang-
verksins, segir að með þessari
aðferð sé alræði leikritaskálds
og leikstjóra yfir leikurunum
afnumið og sköpunarkraftur
allra fái að njóta sín. „Við vor-
um með spunavinnu í fjórar til
fimm vikur þar sem allar hug-
myndir fengu að koma upp á
borðið. Síðan er valið úr og
sýning búin til úr því efni sem
er komið. Allir leikararnir eru
því líka sýningarhöfundar,“
segir Kristín. „Grunnurinn að
verkinu er ekki endilega línu-
leg frásögn, heldur er frekar
verið að miðla einhverju
ástandi eða andrúmslofti.“
Allar hug-
myndir á borðið
Kristín
Eysteinsdóttir