Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 29 Elsku Gígja systir, okkur langar að kveðja þig með Guðrún Björg Hafliðadóttir ✝ Guðrún BjörgHafliðadóttir (Gígja) fæddist á Lundeyri við Ak- ureyri 13. júní 1931. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hring- braut 24. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Höfðakapellu á Akureyri 2. sept- ember. nokkrum orðum og þakka þér samfylgd- ina í gegnum árin. Það var alltaf svo frábært að heim- sækja þig og Sigur- vin í Suðurbyggðina á Akureyri. Höfðing- legar móttökur biðu okkar jafnan sem og glæsilegar veitingar og skipti engu hversu margir voru með í för eða hversu lítill fyr- irvarinn var. Það var ávallt glatt á hjalla í þessum heimsóknum, mikið spjall- að og hlegið og oftar en ekki var lagið tekið við undirspil Sigurvins á nikkuna. Þegar viðraði vel nutum við sælureitsins í garðinum sem jafnan gegndi stóru hlutverki í heimilislíf- inu enda mikil rækt lögð við hann eins og annað á heimilinu. Hádeg- isverða og síðdegiskræsinga var neytt á pallinum þegar hægt var og stundum rötuðu baukarnir þangað út líka. Félagsskapurinn í Suðurbyggð- inni var nú heldur ekki af verri endanum, enda varstu þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga einstak- lega samrýnda og skemmtilega fjölskyldu sem hugur okkar er nú hjá. Við kveðjum þig, Gígja, með ást og söknuði og biðjum guð að geyma þig og veita Sigurvin og fjölskyldunni allri styrk. Unnur og Kolbrún. Það hefur verið um 1965 að leiðir okkar Helga lágu fyrst saman. Hann kenndi flug og rak flugþjónustu, ég var að taka mín fyrstu spor sem flugumferðarstjóri – báðir á Reykjavíkurflugvelli. Þótt ekki væri nema nokkurra mínútna gangur milli vinnustaða okkar sáumst við ekki mjög oft en áttum þeim mun oftar samtöl gegnum síma og talstöð. Þannig er þetta oft með flugmenn og flugumferð- arstjóra – þeir þekkja hver annan á röddinni og með slíkum sam- skiptum og samvinnu byggist upp gagnkvæm þekking, kunnings- skapur og traust. Helgi Jónsson var einn af mörg- um flugmönnum sem ég kynntist þannig og varð frá fyrstu kynnum ljóst að þar fór fagmaður í bestu merkingu þess orðs. Traustið kom af sjálfu sér. Helgi var mjög fær flugmaður, vandvirkur og varkár. Hann rak flugskóla sinn og flug- þjónustu í um fjörutíu ár. Hver sem rekur svo viðkvæmt fyrirtæki svo lengi verður óhjákvæmilega fyrir áföllum. Það fékk Helgi að reyna eins og aðrir en merkilega sjaldan, svo var vandað til kennsl- unnar og rekstursins. Þó ekkert flugóhapp yrði rakið til hans per- sónulega, tók hann þau nærri sér. Ekki aðeins vegna þess að stund- um komu samstarfsmenn eða nem- endur við sögu heldur vegna þess að þar sló hjarta hans. Þó Helgi væri farsæll flugmaður blés stundum á móti í rekstri fyr- irtækisins. Flugrekstur er dýr og viðskiptasveiflur geta verið miklar, að ekki sé minnst á aðra þætti. Auk flugkennslu og margskonar innanlandsflugs hélt hann m.a. uppi flugi til Grænlands. Bæði var um að ræða sjúkraflug og farþega- flug. Helgi byggði upp gistiaðstöðu á Grænlandi fyrir farþega sína til að sem best færi um þá. Helgi Jónsson var ekki allra. Hann var fastur fyrir, ekki marg- máll og það fór ekki mikið fyrir honum. Hann barst ekki á og hjal- aði sig ekki inn á áhrifamenn. E.t.v. hefur það staðið fyrirtæki hans eitthvað fyrir þrifum. Það segir meira um þá en hann. Helgi átti hins vegar traust og virðingu okkar sem unnum faglega með honum svo og þeirra hundraða nemenda sem hann „kom í loftið“ og sitja nú margir í flugstjórasæt- um bæði hér á landi og erlendis. Kristmundur Helgi Jónsson ✝ KristmundurHelgi Jónsson fæddist á Neðribæ í Selárdal í Arn- arfirði 11. febrúar 1938. Hann varð bráðkvaddur á vinnustað sínum í lok vinnudags 6. september síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Dómkirkj- unni 16. september. Helgi giftist ungur danskri vinkonu sinni, Jytte Marcher. Í henni átti hann ekki aðeins eiginkonu og þriggja barna móður, heldur einnig vin og starfsfélaga, því Jytte tók full flugréttindi, annaðist kennslu, leiguflug og allan rekstur fyrir- tækisins með honum til síðasta dags. Ég kveð Helga Jónsson með virð- ingu og votta eiginkonu hans, börnum, systkinum og stórfjöl- skyldu samúð mína. Baldur Ágústsson, flugumferðarstjóri. Góður kunningi minn, Helgi Jónsson, var borinn til grafar 16. september sl. Ég var orðinn sæmilega fleygur þegar okkar fundum bar saman, en Helgi kenndi mér ýmislegt um flugvélar, rekstur og umhirðu sem kom sér vel fyrir nýgræðinginn. Um nokkurra ár skeið höfðum við Helgi með okkur óformlegt sam- starf. T.d. flaug Helgi fyrir mig sjúkraflug þegar mín réttindi hrukku ekki til. Eins kom fyrir að ég skaut flug- vél undir Helga þegar ég var af- lögufær. Helgi flaug flugvélinni TF-GOS til Íslands 1. apríl 1974 frá London ásamt Halldóri Bj. Árnasyni. Eitt sinn fluttum við í félagi flugvélahreyfil til landsins frá Long Island. Það kom sér vel fyrir mig þegar ég var veðurtepptur eða var með vél í skoðun að mér stóðu ævinlega alltaf dyr opnar hjá þeim Jytte og Helga hvort sem var á flugvellinum eða á heimili þeirra. Það gerist oftar en tölu verður á komið að ég gisti heima hjá Jytte og Helga og var litið á mig sem einn af fjölskyldunni. Það var eins og þau ættu í mér hvert bein og ber að þakka fyrir það. Á bak við alvarlegt yfirbragð átti Helgi til að vera nokkuð spaugsamur. Þegar hann bauð í mat átti hann það til að spyrja: Viltu koma og kroppa með okkur sviðakjamma? þó eitthvað allt ann- að væri í matinn. Allt kaffibrauð kallaði hann kleinur. Helgi reyndi að telja fólki trú um að blindflug væri fyrir gamla karla sem sæju ekki neitt. Ég verð að viðurkenna að ég hefði getað ræktað betur samband við kunningjana út á velli þó ég væri sjálfur hættur að fljúga. En það kom mér skemmtilega á óvart þegar ég frétti það nýlega að þau Jytte og Helgi ættu orðið níu barnabörn. Sýnir það vel að ég hef ekki verið tíður gestur á flugvell- inum í seinni tíð. Ég votta Jytte, Ester, Astrid og Jóni, mökum þeirra og barnabörn- um samúð mína. Bjarni Jónsson. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÍÐUR PETERSEN, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtudaginn 18. september, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 2. október kl. 13.00. Elín Jóhannsdóttir, Tryggvi Ólafsson, Bryndís Petersen, Leifur Jónsson, Jóhann Petersen, Pétur Jakob Petersen, Auður Héðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra eiginkona, móðir og amma, ÓLAFÍA GUÐRÚN OTTÓSDÓTTIR, Klapparbergi 13, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, mánudaginn 29. september. Hún verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju, miðvikudaginn 8. október kl. 13.00. Hreinn Ómar Sigtryggsson, Ottó Bergvin Hreinsson, Ásdís Hreinsdóttir Snoots, Kevin Brian Snoots Sr., Svandís Hreinsdóttir Danzer, Jeffrey Charles Danzer, Kevin Jr., Ómar Andrés, Krista Sóley, Kristófer Óli og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, JUNYA NAKANO. Eyþór Eyjólfsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN VALDIMARSSON, Brekkuhvammi 5, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 26. september. Hann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 3. október kl. 15.00. Sigríður Björgvinsdóttir, Anna Björg Aðalsteinsdóttir, Jón Arnar Karlsson, Ingibjörg Rósa Aðalsteinsdóttir, Valdimar Aðalsteinsson, Katrín Karlotta Brandsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, SIGRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR kennara, Efstalandi 20, áður til heimilis í Skeiðarvogi 1, Reykjavík, fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 3. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort Félags nýrnasjúkra, s. 561 9244. Sigurbjörg Jónsdóttir, Rafn Haraldsson, Sólrún Björg Kristinsdóttir, Guðmundur Jónsson, Sæunn Kjartansdóttir, Jónína Margrét Jónsdóttir, Bjarni Jónsson, Kolbrún Björnsdóttir, Snjáfríður Jónsdóttir, Hanna S. Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KATRÍN ÁRNADÓTTIR, Hlíð, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, lést sunnudaginn 21. september. Útförin fer fram frá Stóra-Núpi laugardaginn 4. október kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimili aldraðra, Blesastöðum. Páll Ragnar Steinarsson, Sigfríður Lárusdóttir, Tryggvi Steinarsson, Anna María Flygenring, Elín Erna Steinarsdóttir, Indriði Birgisson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.