Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 15% afsláttur af stökum jökkum JÓHANN R. Benediktsson, fráfar- andi lögreglustjóri á Suðurnesjum, kvaddi samstarfsfólk sitt við tilfinn- ingaþrungna athöfn í gær. Sagði hann þakklæti vera sér efst í huga á tímamótunum en hann hefur gegnt sýslumanns- og lögreglustjóraemb- ætti frá 1999. Framhaldið er óljóst hjá Jóhanni. „Það verður bara að koma í ljós en ég helli mér fljótlega í eitthvað,“ sagði hann. Í stað Jóhanns, til áramóta, kemur Ólafur K. Ólafsson, lögreglustjóri og sýslumaður Snæfellinga. Jafnframt hefur Jón F. Bjartmarz, yfirlögreglu- þjónn hjá ríkislögreglustjóra, verið settur aðstoðarlögreglustjóri Suður- nesja og Halldór Halldórsson fjár- málastjóri embættisins. Sæmdur gullmerki tollvarða Á mánudag var Jóhann sæmdur gullmerki af Tollvarðafélagi Íslands fyrir vel unnin störf í þágu tollgæsl- unnar í landinu. „Við erum að sæma hann gullmerki því hann er að hætta, ekki út af neinu pólitísku máli,“ segir Guðbjörn Guðbjörnsson, formaður Tollvarðafélags Íslands. „Jóhann er búinn að setja mark sitt á tollgæsluna undanfarin ár með þessi stóru fíkniefnamál og uppbygg- ingu tollgæslunnar á Keflavíkurflug- velli,“ segir Guðbjörn og bætir við að þá sé alveg sjálfsagt að heiðra hann. orsi@mbl.is Ljósmynd/Víkurfréttir Kveðjur Lögregluþjónar og annað samstarfsfólk kvaddi Jóhann R. með viðhöfn í Keflavík í gær. Kveður samstarfsfólk sitt HÓPUR presta og guðfræðinga sem leggur áherslu á réttindabaráttu samkynhneigðra í kirkju og sam- félagi stendur fyrir málþingi um kynheilsu og mannréttindi í Þjóð- minjasafninu föstudaginn nk. kl. 14:00 - 16:00. Staðsetning þingsins misritaðist í Morgunblaðinu í gær. LEIÐRÉTT Málþing í Þjóðminjasafni AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 HANNA Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, opnaði í gær nýja viðbyggingu við leikskólann Rofaborg og naut við það dyggilegrar að- stoðar leikskólabarna. Viðbyggingin hýsir tvær deildir, fjölnota sal og listasmiðju auk skrif- stofu leikskólastjóra. Í eldra húsnæði skólans voru jafnframt gerðar end- urbætur á eldhúsi og aðstöðu starfsfólks. Öll lóð skólans hefur verið endur- gerð. Framkvæmdir hófust í lok árs 2006 og lauk í september 2008. Í leikskólanum dvelja að meðaltali 110 börn og leikskólastjóri er Þórunn Gyða Björnsdóttir. Leikskólabörnin aðstoðuðu borgarstjóra við opnunina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.