Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Raðauglýsingar 569 1100 Tilboð/Útboð Sveitarfélagið Ölfus Deiliskipulag, greinargerð og umhverfisskýrsla fyrir Hellisheiðarvirkjun, 5. breytingu Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir hér með tillögu á deiliskipulagi, samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Gögn vegna 5. breytingar á deiliskipulagi Hellisheiðarvirkjunar. Um er að ræða deiliskipulags- uppdrætti ásamt greinargerð sem inniheldur m.a. umhverfisskýrslu vegna breytingarinnar. Breytingar frá fyrra deiliskipulagi Deiliskipulagsbreyting þessi er fimmta breyting á deiliskipulagi sem upphaflega var samþykkt 24.06. 2004 og öðlaðist gildi 20.07 2004. Gildandi deiliskipulag var samþykkt 29.03. 2007 og öðlaðist gildi 02.11 2007. Breytingin er háð lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana og er umhverfisskýrsla vegna breytingarinnar hluti af greinargerð. Breytingar frá gildandi deiliskipulagi eru eftirfarandi: 1. Vélasalir fyrir vélar 5 og 6, ásamt kæliturnum og öðrum tilheyrandi mannvirkjum, verða staðsett austar á virkjunarsvæðinu, þar sem ekki er nægjanlegt rými á núverandi lóð við Kolviðarhól. Fyrir- huguð staðsetning er við Hamragilsveg vestan skiljustöðvar B, þar sem gert er ráð fyrir nýrri lóð og byggingarreit fyrir mannvirkin. Stærð lóðar er 10,5 ha en stærð byggingarreits 7,5 ha. Færsla á vélum á nýjan stað kallar á breytta staðsetningu á mannvirkjum sem tengjast vélunum. Eftirfarandi mannvirki verða staðsett innan sömu lóðar og byggingarreits: Vélasalur. Grunnflötur hans er að hámarki 4.000 m². Gufuháfar. Tveir háfar sem verða að hámarki 20 m. Lokahús. Stærð þess er að hámarki 400 m². Kæliturnar.Tveir kæliturnar sem verða að hámarki 20 m háir og 1.500 m² að grunnfleti. Mannvirki fyrir H2S hreinsibúnað:Tveir háfar sem verða að hámarki 12 m háir og bygging sem er að hámarki 500 m² að grunnfleti. Vegna fyrirhugaðrar færslu á vélum 5 og 6 mun gufuaðveituæðum að stöðvarhúsi við Kolviðarhól fækka úr sex í fjórar miðað við fyrri áform.Tekin er burt 11 kV raflína sem liggur um svæðið en er ekki lengur þörf á. Skíðaskáli Vals sem staðsettur er norðan lóðarinnar mun verða fjarlægður. 2. Vegna nýrrar lóðar þarf að færa tvö geymslusvæði / efnislagera sem eru alls um 2,9 ha. Gert er ráð fyrir nýjum geymslusvæðum og efnislagerum á þremur stöðum á skipulagssvæðinu. Staðsetningu svæðanna má sjá á uppdrætti með deiliskipulagsbreytingu. Samanlögð stærð þessara svæða er um 4,4 ha. 3. Fyrirhugað er að færa veg, sem liggur inn í Sleggjubeinsdal, til að beina almennri umferð vestur fyrir og framhjá fyrirhugaðri lóð véla 5 og 6 fremur en í gegnum hana. Nýr vegur verður um 550 m að lengd og 6,5 m að breidd. Þá er gönguleið hliðrað að vegi á þessum kafla. 4. Lagður verður jarðstrengur frá vélasal að tengivirki Landsnets innan virkjunarsvæðis. 5. Fyrirhugað er að bæta við tveimur nýjum niðurrennslissvæðum við Hellisheiðarvirkjun, en þau svæði eru norðvestan við Kolviðarhól, beggja vegna tengivirkis Landsnets. Svæðin eru innan virkjunarsvæðisins á Hellisheiði og eru samtals 6,5 ha. Framkvæmdin felur í sér gerð borteiga og borun borhola á nýju niðurrennslissvæði. Borholur verða á borteigum innan niðurrennslissvæða. Þá er ráðgert að leiða affallsvatn að nýju niðurrennslissvæði frá skiljuvatnsaðveitu og frá stöðvarhúsinu við Kolviðarhól og mögulega frá fyrirhuguðum vélasal við Hamragilsveg. 6. Gert er ráð fyrir nýju borsvæði í Hamragili. Stærð borsvæðis er 1 ha en borholur verða á bor- teigum innan borsvæðis. Safnæðar verða tengdar inn á skiljustöð B. 7. Reiðleið sem liggur vestan lóðar stöðvarhúss við Kolviðarhól hliðrast til austurs og mun liggja innan lóðar stöðvarhúss að hluta. Reiðleiðin verður vestan bílastæða og aðkomusvæðis eftir breytingu. 8. Leiðrétt er staðsetning fyrir neyðarlosun skiljuvatns (svelgholur). Gert er ráð fyrir lóð og bygg- ingarreit sem ná mun yfir lokahús (og sambyggða hljóðdeyfa) sem nauðsynlegt er til að verja stjórnloka og annan búnað. 9. Borteigur austan í Stóra Reykjafelli stækkar úr 1,7 ha í 2,2 ha vegna áforma um að koma þar fyrir fleiri borteigum og borholum. Borholur verða á borteigum innan borsvæðis. Deiliskipulagið verður til sýnis í Ráðhúsi Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn frá og með 1. okt- óber 2008 til 29. október 2008. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 12. nóvember 2008. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Ölfuss, skipulags- og byggingarfulltrúi, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, á skrifstofutíma. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Sigurður Jónsson skipulags- og byggingarfulltrúi. Smáauglýsingar Dýrahald Hreinræktaðir Labrador hvolpar- til sölu Tilbúnir til afhendingar 21. okt. Mælt með gotinu af Ræktunarráði Retrie- verdeildar HRFÍ. Sjá myndir www.blaskoga-tinna.blog.is og frekari uppl. í 898-0655 Auður Heilsa Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og öflugur. Aukin orka, betri svefn og aukakílóin hverfa. Dóra 869-2024, www.dietkur.is Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvk. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Sumarhús Stórglæsilegt sumarhús til leigu Til leigu 97 fm sumarhús, þar af 25 fm milliloft. Húsið er staðsett í Brekkuskógi, um 15 mínútna akstur frá Laugarvatni. Þau gerast ekki mikið flottari! Heitur pottur. Sími 841 0265. Rotþrær, heildarlausn (“kit”) á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör, fráveiturör og tengistykki. Einangrunarplast og takkamottur. Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími 561 2211. Heimasíða: www.borgarplast.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Leðurskógerð Langar þig að læra að sauma þína eigin leðurskó? Söðlasmiður kemur til okkar og heldur námskeið helgina 4.- 5. október og 11.-12. október. Nánari upplýsingar á www.leduroglist.is eða í síma 578-1808. Leður & List - Frakkastíg 7. Langar þig að læra spænsku? Frú Mínerva reddar því! Grúskarinn hefst 20. okt. Nánari upplýsingar á www.fruminerva.is og í síma 552 3578. Þjónusta Myndatökur www.lgi.is Ýmislegt Ökukennsla Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.