Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 25 Júlíus Allir sem einn Nemar í Lögregluskólanum, sem taka þátt í löggæslu við setningu Alþingis í dag, voru brosmildir við æfingar á heiðursverði en þegar að stóru stundinni kemur mega þeir ekki hreyfa sig nema samkvæmt skipun. Blog.is Baldvin Jónsson | 30. september Hæstvirtur forsætisráð- herra, Geir Haarde, Mig langar til þess að nota þetta tækifæri til þess að biðla til þín í ein- lægni. Þannig er mál með vexti að ég, eins og stór hluti þjóðarinnar, á skuldir meðal annars í erlendum gjaldeyri. Nú er svo komið að blessaður bíllinn sem stendur sem veð að baki skuldinni hríðlækkar í verði sök- um þess að það er nákvæmlega engin bílasala að mér skilst, á sama tíma og skuldin sjálf hækkar gríðarlega dag frá degi, og er ástandið reyndar orðið grát- broslegt bara. Á meðan ég horfi á höf- uðstólinn nálgast fasteignaskuldina mína les ég um að gengisvísitalan sé að slá ný met á hverjum degi. … Meira: baldvinj.blog.is Fall krónunnar og háir vextir Dofri Hermannsson | 30. september … Það sem kemur harð- ast niður á fólki í dag er fall krónunnar og him- inháir vextir. Þessi staða er komin upp vegna þess vítahrings sem peninga- málastefna Seðlabankans hefur komið okkur í. Seðlabankinn á að halda verðbólgu niðri með því að hækka vexti. Þegar þensla vegna stór- iðjuframkvæmda, afnáms bindiskyldu og innrásar banka á íbúðalánamarkaðinn með ódýrt lánsfé fór að keyra upp verð- bólguna brást Seðlabankinn við með því að hækka vexti. Áhættufjárfestar nýttu sér þetta til að græða á vaxtamun og fjárfestu grimmt í íslenskum krónum.Við það hækkaði gengi íslensku krónunnar, magn peninga í umferð jókst … Meira: dofri.blog.is Hallur Magnússon | 30. september Er orð að marka ráðherranna ? Það er tilbreyting að sjá Samfylkinguna sem þátttakanda í þjóð- nýtingu Glitnis og atburðarás henni tengdri. Nú hefur bankamála- ráðherrann fullvissað okkur um að engar viðræður séu á milli ríkis- stjórnar og Landsbankans um sameiningu bankanna. Ég veit ekki – miðað við það að bankamálaráðherrann virðist ekkert hafa kom- ið að þjóðnýtingarferli Glitnis og lítið um það vitað – hvort stað- hæfingar þess ágæta ráðherra um þróun mála milli Sjálfstæðis- flokks og Landsbanka hafi eitthvert gildi. Ætli hann viti nokkuð hvað raunverulega er í gangi! … Meira: hallurmagg.blog.is Guðmundur Jónas Kristjánss. | 30. sept. Krónuna af markaði Það gengur alls ekki lengur að vera með nánast minnstu mynt í heimi, í frjálsu falli nær dag eftir dag. Það gengur ekki lengur að hafa krón- una lengur ALGJÖRLEGA FLJÓTANDI í þeim hrika- lega ólgusjó sem nú er á peningamörkuðum heimsins. Það gengur ekki lengur að halda úti peninga- málastefnu sem er gjörsamlega gjald- þrota … Meira: zumann.blog.is Kristbjörg Þórisdóttir | 30. september Hvað skiptir máli? ... Nú er tækifæri til breyt- inga. Nú þurfa stjórnvöld að einblína á sam- vinnustefnuna. Það þarf að koma í veg fyrir það að menn geti skammtað sér ógnarfjárhæðir í laun á kostnað skattborgara en það hefur orðið raunin í dag að einhverju leyti. Við höfum sennilega greitt stóra hluta í þeim Bent- ley-um og Range Roverum sem keyra um götur borgarinnar. … Meira: kristbjorg.blog.is BANDARÍSKA þingið er ekki ginn- keypt fyrir 700 millj- arða dala björg- unarpakka Hank Paulson, fjár- málaráðherra Banda- ríkjanna. Með réttu því pakkinn er illa ígrundaður. Þingið myndi segja af sér ábyrgðarstöðu með því að gefa fjár- málaráðuneytinu óútfyllta ávísun. Orðalag frumvarpsins er meira að segja á þann hátt að hvorki dóm- stólarnir né stjórnsýslustofnanir gætu rannsakað aðgerðir ráð- herrans – draumur Bush- stjórnarinnar um óskipt fram- kvæmdavald. Ferill Paulson bendir ekki til þess að hann ætti að njóta þess trausts sem er nauðsynlegt til þess að hann fái yfirráð yfir 700 milljörðum dala. Aðgerðir hans í síðustu viku urðu til þess að björgunaraðgerðir eru nauðsyn- legar. Á mánudag fyrir viku leyfði hann Lehman Brothers að verða gjaldþrota og neitaði að leggja fé til bjargar AIG. Á þriðjudeginum varð hann að skipta um skoðun og lána AIG 85 milljarða dala með refsingarkjörum. Lausnin gerði illt verra Fall Lehman truflaði við- skiptabréfamarkaðinn. Stór pen- ingamarkaðssjóður rauf eins dals múrinn og fjárfestingarbankar sem reiddu sig á viðskiptabréfa- markaðinn áttu í erfiðleikum með að fjármagna starfsemi sína. Á fimmtudeginum var áhlaup hafið á peningamarkaðssjóð- ina og markaðurinn hefur ekki verið jafn- nærri því að falla saman síðan á 4. ára- tug síðustu aldar. Paulson skipti aftur um skoðun og lagði til kerfislæga björg- unaraðgerð. Paulson hafði einu sinni áður fengið óút- fyllta ávísun frá þinginu, þegar taka þurfti á málum Fan- nie Mae og Freddie Mac. Lausn hans á vandanum gerði slæmt ástand fasteignamarkaðarins enn verra. Stjórnendur Fannie og Freddie vissu að þeir myndu missa vinnuna yrði ávísunin fyllt út þannig að þeir grófu sig aftur í skotgrafirnar og gerðu lán dýrari og erfiðari að fá. Innan nokkurra vikna þvingaði markaðurinn Paul- son til þess að taka Fannie og Freddie yfir. Tillaga Paulson um að kaupa lé- leg veðlánatengd skuldabréf er sí- gilt dæmi um vandræði vegna ósamhverfra upplýsinga. Erfitt er að verðmeta bréfin en seljend- urnir vita meira um þau en kaup- endurnir og í hvaða uppboði sem er mun fjármálaráðuneytið sitja uppi með dreggjarnar. Tillagan er einnig gegnumsýrð af hugs- anlegum hagsmunaárekstrum. Greiði ráðuneytið ekki yfirverð fyrir verðbréfin mun aðgerðin ekki létta á markaðnum en hvað fá skattgreiðendur í sinn hlut verði féð notað til þess að bjarga greiðsluþrota bönkum. Fjögur skilyrði Barack Obama hefur nefnt fjög- ur skilyrði sem fylgja ættu allri aðstoð: auk þess að tapa á henni eiga skattgreiðendur að hagnast, þverpólitísk eftirlitsnefnd, aðstoð til húsnæðiseigenda auk lánaeig- enda og takmarkanir á stuðningi til þeirra sem hagnast á fé skatt- greiðenda. Þetta eru réttar meg- inreglur og þeim ætti að beita á skilvirkari hátt með því að leggja stofnunum sem eru í vandræðum vegna lélegra verðbréfa til eigið fé í stað þess að taka verðbréfin út úr þeim. Innspýting opinbers fjár mundi valda mun minni vandræðum ef því yrði bætt við eigið fé í stað efnahagsreikningsins. 700 millj- arðar dala í forgangshlutafé með ábyrgð gæti dugað til þess að fylla upp í holuna sem húsnæðisbólan hefur skilið eftir. Að bæta 700 milljörðum dala inn á eftirspurn- arhliðina gæti hins vegar ekki dugað til þess að koma böndum á lækkun húsnæðisverðs. Eitthvað þarf einnig að gera á framboðs- hliðinni. Til þess að koma í veg fyrir of mikla lækkun húsnæð- isverðs þarf að lágmarka fjölda nauðungaruppboða. Skilmála veð- lána þarf að aðlaga greiðslugetu lánþegans. Björgunarpakkinn gerir ekki ráð fyrir þessu og það er vanda- samt verk að gera þær breytingar sem eru nauðsynlegar. Sér- staklega er það vandasamt þar sem mörg veðlán hafa verið sneidd niður og endurpakkað í mynd skuldabréfavafninga og hagsmunir handhafa mismunandi sneiða rekast á. Það myndi taka of langan tíma að leysa úr þessum árekstrum til þess að pakkinn geti innihaldið þessar breytingar. Pakkinn getur, hins vegar, lagt grunninn með því að breyta lögum um gjaldþrot tengd íbúðar- húsnæði. Ætti að hvetja einkageirann Stór björgunarpakki er senni- lega ómissandi eigi að koma bönd- um á krísuna sem nú hefur verið drepin úr dróma. Rétt leið er að byggja aftur upp hina tómu efna- hagsreikninga bankakerfisins. Ekki eiga þó allir bankar rétt á björgun en treysta má dómgreind sérfræðinga seðlabanka Banda- ríkjanna, með réttri yfirumsjón. Hægt er að refsa stjórnendum sem eru tregir til þess að taka af- leiðingum mistaka sinna með því að svipta þá möguleikum á lánal- ínum seðlabankans. Fé hins op- inbera ætti einnig að hvetja einka- geirann til þess að taka þátt í endurfjármögnun bankageirans og ljúka þar með fjármálakreppunni. Eftir George Soros » Stór björgunarpakki er sennilega ómiss- andi eigi að koma bönd- um á krísuna sem nú hefur verið drepin úr dróma. Rétt leið er að byggja aftur upp hina tómu efnahagsreikninga bankakerfisins. George Soros Höfundur er stjórnarformaður Soros Fund Management. © 2008 Project Syndicate Millifyrirsagnir eru Morgunblaðsins. Ekki afhenda Paulson óútfyllta ávísun Reuters Fjármálakrísa Gorge Soros segir að ferill Paulson bendi ekki til þess að hann ætti að njóta þess trausts sem er nauðsynlegt til þess að fá yfirráð yfir 700 milljörðum dala.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.