Morgunblaðið - 01.10.2008, Side 10

Morgunblaðið - 01.10.2008, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR David Brooks ritar grein á leið-araopnu The New York Times í gær, þar sem hann fer afar gagn- rýnum orðum um fulltrúadeild Bandaríkjaþings og þá þingmenn sem höfnuðu í atkvæðagreiðslu í fyrradag þeim björgunaraðgerðum bandarísks fjármálalífs sem unnið hafði verið að undanfarna daga.     Í Bandaríkj-unum og víðar hafa seðlabankar yfirtekið eða þjóðnýtt banka sem römbuðu á barmi gjaldþrots, ávallt undir þeim formerkjum að verið væri að hugsa um hag al- mennings og við- skiptavina bankanna. Hluthafar í bönkunum hafa tapað öllu sínu hlutafé og sitja auðvitað margir eft- ir með sárt ennið.     Í þessu samhengi má kannski segjaað sú aðgerð ríkisstjórnar og Seðlabanka að yfirtaka 75% hlut í Glitni á genginu 7,5 hafi ekki verið jafnharkaleg og margir hafa viljað vera láta.     Geir H. Haarde forsætisráðherrabenti á þetta í Kastljósi í fyrra- kvöld, þar sem hann sagði að vissu- lega hefði einnig komið til greina að ríkið hefði yfirtekið 100% hlut í bankanum, en það hafi einfaldlega þótt of harkaleg aðgerð gagnvart hluthöfunum. Hann benti á, að það væri skylda stjórnvalda að hugsa fyrst og fremst um hag almennings. Hlutafjárkaup væru áhættu- fjárfesting, stundum færi vel, stundum illa, og við því væri í raun- inni ekkert að gera.     Er ekki staðreynd málsins að úrþví sem komið var, voru allir kostir sem staðið var frammi fyrir slæmir kostir og ríkisstjórnin valdi að fara að ráðum Seðlabanka og velja þann kost sem líklega var illskástur? STAKSTEINAR Geir H. Haarde Allir kostir slæmir                      ! " #$    %&'  (  )               *(!  + ,- .  & / 0    + -                               12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (     !      "##  $%% #    "##        :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?    &  &  & & & &   & &   & &&                        *$BC                       ! ! "  # $% "     & '  *! $$ B *! '( ) %  %( %  *  + <2 <! <2 <! <2 '*) %, # -%.$/  !-           /     % $ " (%     )    *   +$,   * !  -    #!( <7   % $  . (  *   !   $, "   * , / # $% "   <     *   (%  0  * ,  !1     2    % "  0" %%11  %%2  $%, # Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is HAFI stundum verið gengið of langt í símahlerunum og öðru eftirliti á Ís- landi um miðja síðustu öld „ættum við þó að forðast að fordæma það sem merki um ofsóknir og ofstæki. Það var miklu frekar ótti sem lá að baki“, sagði Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur í fyrirlestri sínum í gær þar sem hann fjallaði um ástæður símahlerana í kalda stríðinu. Einn helstu baráttumannanna gegn aðild að Atlantshafsbandalag- inu 1949 sagði á þeim tíma að „vissu- lega [væri] margt uggvænlegt í sam- tíðinni. En eitt er ég hræddastur við og það er hræðslan. Hræðslan hefur valdið meiri óhöppum en vísvitandi hatur eða grimmd“. Guðni sagðist standa við þá nið- urstöðu bókar sinnar, Óvinir ríkisins, að „hafi einhvern tíma verið rík ástæða fyrir stjórnvöld og lögreglu að hlera síma hafi það verið við inn- gönguna í Atlantshafsbandalagið [1949]. Heiftin var slík“. Þeir atburðir er urðu við Alþing- ishúsið 30. mars það ár hafi fest í minni valdamanna, er hafi óttast að það gæti gerst aftur að stjórnlaust of- beldi brytist út. Þess vegna hafi á ný verið gripið til símahlerana nokkrum árum síðar, en Guðni kvaðst telja að þá hefði ekki verið jafn rík ástæða til og verið hefði 1949. En 30. mars 1949 hafi verið „ein- stakt tilfelli og óheppilegt að það skyldi vera svo fast í minni“. Guðni fjallaði í fyrirlestri sínum um hleranir 1951 vegna komu Dwights D. Ei- senhowers, yfirhershöfðingja Atl- antshafsbandalagsins, til Íslands og vegna undirritunar varnarsamnings- ins við Bandaríkin og endurkomu Bandaríkjahers hingað til lands; einnig um hleranir vegna sam- komulags við Breta í deilunni vegna útfærslu landhelginnar í 12 mílur 1960; og einnig um hleranir sem heimilaðar voru 1963 og 1968. Guðni sagði að um þessi tilvik yrði „ekki sagt að athafnir eða skrif sósí- alista og annarra hefði staðfest að loft væri eða yrði eins lævi blandið og það var árið 1949“. En óttinn hefði verið samur. Lög- regla og dómsmálaráðuneytið fengu heimild til hlerana vegna landhelg- ismálsins 1960 „með þeim rökum að óttast megi „tilraunir til að trufla starfsfrið Alþingis á næstu dögum“, enda hefðu deilur um landhelgismál þegar „valdið hótunum um ofbeldis- aðgerðir“. „En var … nóg að óttast? Þurfti ekki ríkari rök?“ spurði Guðni í fyr- irlestri sínum. „Eitthvað meira en at- burðina 1949, notaða eins og óútfyllta ávísun?“ Hinn almenni dómur sögunnar sé sá að með auknum skilningi minnki óttinn og hræðslan. Guðni vitnaði í óbirt eftirmæli Andrews Gilchrist, sem var sendiherra Breta á Íslandi, um Bjarna Benediktsson forsætis- ráðherra, þar sem Gilchrist segir frá samtali sínu við Bjarna sem endað hafi á þá lund að hann hafi spurt Bjarna hvort kommúnistarnir hafi breyst. Bjarni hafi svarað: „Já þeir hafa breyst aðeins.“ Og svo bætti hann við, með þeirri sanngirni sem ein- kenndi Bjarna: „Eða kannski er ástæðan sú að ég er farinn að skilja þá betur“. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Átök Lögreglumenn búnir kylfum og svörtum stálhjálmum hrekja andstæðinga aðildarinnar að Atlantshafs- bandalaginu á brott frá Austurvelli 30. mars 1949. Ótti fremur en ofstæki Ofstæki var ekki meginástæða hler- ana í kalda stríðinu NOTKUN á neftóbaki er talsvert meiri meðal ungmenna í Árborg en annars staðar á landinu. Þetta kemur m.a. fram í niðurstöðum rannsóknar um hagi og líðan nem- enda í 8., 9. og 10. bekk í Árborg sem gerð var í febrúar 2008 og Rannsóknir og greining kynnti ný- lega.. Munntóbaksneysla 20 sinnum eða oftar um ævina kemur ekki fram hjá nemendum í 8. bekk í Árborg frekar en síðastliðin tvö ár sem er mjög jákvætt. 9. og 10.bekkur koma hins vegar að sama skapi illa út miðað við lands- meðaltal árið 2008, segir á ar- borg.is Fram kemur að 5% af 9. bekk- ingum í Árborg hafi neytt munn- tóbaks 20 sinnum eða oftar um ævina en landsmeðaltalið er 2%. Af 10. bekkingum í Árborg var hlutfallið 6% í sama flokki en landsmeðaltalið er 5%. Árið 2006 og 2007 hafði enginn 9. bekkingur í Árborg neytt munntóbaks 20 sinnum eða oftar um ævina og því eru þessar niðurstöður mikil von- brigði. Munntóbaksnotkun í 10. bekkj- um Árborgar stendur í stað frá árinu 2007 en hafði þá lækkað um helming frá árinu 2006. Lands- meðaltalið hefur staðið í stað hjá 9. og 10. bekkjum yfir sama tíma- bil og hefur því einhver árangur náðst en gera þarf enn betur til að ná viðunandi árangri. Á heimasíðu Árborgar segir Bragi Bjarnason íþrótta- og tóm- stundafulltrúi meðal annars: „Það er dapurt að sjá afreks- íþróttamenn í samfélaginu með munntóbak í vörinni, því þar fara á ferð fyrirmyndir yngri iðkenda sem verða fyrir áhrifum. Hvort sem það er heima, í skólanum, á íþróttaæfingu eða annars staðar ætti munntóbak eða önnur vímu- efni ekki að sjást hjá ungmennum í Árborg og ef allir leggjast á eitt þá náum við þeim árangri.“ aij@mbl.is Ungmenni í Árborg taka oft í nefið Morgunblaðið/Jim Smart Vera kann að heimild hafi verið fengin fyrir að hlera síma Hanni- bals Valdimarssonar alþingis- manns sumarið 1960 til þess að hlera símtöl sonar hans, Jóns Baldvins, „sem þá bjó í foreldra- húsum og vann ötullega fyrir her- námsandstæðinga“, sagði Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur m.a. í fyrirlestri sínum í gær. Heimild var fengin fyrir hlerun síma Hannibals vegna ótta stjórn- valda við að andstæðingar samn- inga við Breta í landhelgisdeil- unni myndu efna til óeirða til að trufla störf Alþingis. Samtök her- stöðvaandstæðinga höfðu þá ver- ið stofnuð og börðust gegn hvers konar málamiðlun í deilunni við Breta vegna útfærslu land- helginnar í 12 mílur. „Það breytir því þó ekki að ákveðið var að hlera heima hjá alþing- ismanni, og „sonarástæða“ af þessu tagi er ekki til staðar í sambandi við Lúðvík Jósepsson, annan þing- mann sósíalista sem úrskurðað var um hlerun hjá. Lögregla, dómsmálaráðuneyti og saka- dómari fóru svo sannarlega út á hálan ís.“ Átti að hlera Jón Baldvin fremur en Hannibal? Guðni Th. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.