Morgunblaðið - 01.10.2008, Page 18

Morgunblaðið - 01.10.2008, Page 18
Reuters Lífshætta Röntgenmyndir af höfð- inu með eldhúshnífsblaðinu. SEXTÁN ára drengur í London er heppinn, hann hélt lífi þótt hann fengi nýlega nær 13 sentimetra langt hnífsblað í höfuðið. Dreng- urinn náði sér en þarf að fara í reglulegt eftirlit hjá lækni. Hann reyndi ásamt tveim fé- lögum sínum að stöðva rán við strætóbiðstöð í Walworth en ræn- inginn réðst þá á þremenningana með hníf og særði þá alla. kjon@mbl.is Ekki feigur 18 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is ÞAÐ kom flestum á óvart, að full- trúadeild Bandaríkjaþings skyldi fella frumvarpið um 700 milljarða dollara aðstoð við fjármálalífið í landinu og viðbrögðin létu heldur ekki á sér standa. Eitt mesta gengishrun í Wall Street, sem um getur, og mikil lækkun á mörk- uðum um allan heim. Víða erlendis eru menn gapandi af undrun og lýsa þeim þingmönnum, sem sner- ust gegn frumvarpinu, sem „brjál- uðum“ en allt á þó sínar skýringar. Segja má, að í þessu máli hafi orð- ið árekstur margra ólíkra afla; þingmanna í völtu sæti; óvinsæls og veiks forseta, kosningabarátt- unnar sjálfrar; hugmyndafræð- innar og síðast ekki síst áhrifa- máttar netsins. Skoðanakannanir í Bandaríkj- unum hafa sýnt mikla andstöðu meðal almennings við björgunar- áætlunina, sem svo er kölluð, en hún er mesta inngrip ríkisins í fjármálamarkaðinn frá því í krepp- unni miklu. Almenningi blöskrar, að hann skuli nú þurfa að borga brúsann fyrir ofurlaunaliðið, og ekki er að undra þótt mörgum hægrimanninum svelgist á þessum „sósíalisma“, sem þeim finnst vera. Þegar svo til kastanna kom greiddu tveir þriðju þingmanna repúblikana í fulltrúadeildinni at- kvæði gegn frumvarpinu og 40% demókrata, 228 gegn 205. Mikill andróður Sterkur flokksagi og sterkur forseti hefðu komið frumvarpinu heilu í höfn en meðal repúblikana er hvorugu til að dreifa. Þar við bætast miklar tölvupóstsendingar til þingmanna frá óánægðum kjós- endum og mikill og skipulagður áróður gegn frumvarpinu á netinu. Sem dæmi má nefna The Club for Growth, íhaldssaman frjáls- hyggjuhóp, sem heitir því að berj- ast gegn hverjum þeim þingmanni, sem styður björgunaráætlunina, og kunnan hægrimann, Richard Vigu- erie, sem hótar því sama. Áróð- urinn gegn frumvarpinu kemur líka frá vinstri og hafa ýmis sam- tök á þeim vængnum, t.d. Move- On.org, birt áróður sinn í sjónvarpi og gengist fyrir undirskriftasöfn- un. Atkvæðagreiðslan á þingi endur- speglaði þetta. Þar tóku höndum saman íhaldssamir repúblikanar og frjálslyndir demókratar, meðal annars meirihlutinn í Black Cau- cus, samtökum þingmanna af afr- ískum uppruna. Móðgaðir repúblikanar Óvíst er hvaða afleiðingar þetta mál hefur fyrir forsetaframbjóð- endurna, þá John McCain og Bar- ack Obama, en báðir beittu þeir sér fyrir samþykkt frumvarpsins án þess að hafa erindi sem erfiði. Kenna þeir hvor öðrum um hvern- ig fór og sumir repúblikanar skella skuldinni á Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildarinnar. Fyrir at- kvæðagreiðsluna flutti hún afar harða ræðu þar sem hún kenndi ríkisstjórn George Bush og re- públikönum um ófarnaðinn og það varð til þess, segja sumir repúblik- anar, að eitra andrúmsloftið. Þess vegna hefðu allt að 12 repúblik- anar, sem ætluðu að styðja frum- varpið, snúist gegn því. Barney Frank, demókrati frá Massachusetts og formaður banka- málanefndar fulltrúadeildarinnar, sagði um þessar yfirlýsingar, að þær jafngiltu því, að repúblikanar hefðu ákveðið að ná sér niðri á þjóðinni fyrir að hafa verið móðg- aðir. Þótt björgunaráætlunin hafi ver- ið felld á mánudag er unnið hörð- um höndum að því að breyta frum- varpinu þannig, að þingmenn geti betur fellt sig við það. Meðal ann- ars hafa Obama og McCain lagt til, að þær bankainnstæður, sem ríkið tryggir, verði 250.000 dollarar, um 25 millj. kr., í stað 100.000 dollara eða 10 millj. kr. nú. Almennt er talið víst, að frum- varpið verði á endanum samþykkt vegna þess, að verði það ekki gert, blasi ekki annað við en langvar- andi kreppa. Of stór biti að kyngja – í bili Óánægja almennings með aðstoð við ofurlaunaliðið; hugmyndafræðin, veikur forseti og áhyggjur margra þingmanna af endurkjöri réðu mestu um að 700 milljarða dollara björgunaráætlunin var felld AP Andstæðingar björgunaráætlunarinnar fagna Todd Platts, þingmanni repú- blikana, er hann hafði ákveðið að greiða atkvæði gegn henni. Sjö hundruð milljarðar dollara eru mikið fé og ef ekki þyrfti að koma ábyrgðarlausum fjármálamönnum til bjargar, þá mætti nota það til margra góðra verka. Sem dæmi er nefnt, að fyrir þessa upphæð mætti tryggja heilsugæslu fyrir alla Bandaríkja- menn í sex ár; endurnýja allar brýr í landinu fjórum sinnum eða greiða 22 millj. launþega laun í heilt ár. Upphæðin er meiri en Franklin Roosevelt varði til endurreisn- aráætlunarinnar New Deal í Krepp- unni en þá fór helmingur framlags- ins í opinberar framkvæmdir. Fyrir aðeins 250 milljarða dollara nú mætti koma upp 8.000 almenn- ingsgörðum, 40.000 opinberum byggingum og 72.000 skólum. Árleg framlög til Bandaríkjahers á fjárlögum eru 140 milljarðar dollara og þessi upphæð gæti borgað herkostnaðinn í Írak í sjö ár enn. Hann er nú áætlaður 648 milljarðar dollara. Þetta fé svarar líka til meira en tvöfaldrar þjóð- arframleiðslu Dana. Hvað mætti gera fyrir 700 milljarða dollara? Uppreisn skattborgaranna BRESKA leikkonan Joanna Lumley (ljóshærð t.h.) fagnar ásamt fyrrverandi gúrka-hermönnum í breska hernum í gær. Ástæðan var úrskurður hæstaréttar um að gúrkarnir geti fengið landvist. Gúrkar frá Nepal hafa þjónað í herjum Breta síðan á 19. öld, þeir þykja afburða hermenn og mjög tryggir Bretum. Reuters Gúrka-hermenn fá að vera í Bretlandi Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HAMID Karzai, forseti Afganistan, segist hafa gert margar tilraunir á undanförnum tveim árum til að fá Sádi-Araba til að koma á friðarvið- ræðum við talíbana. Enn hefði þó ekki tekist að koma á beinum við- ræðum. Forsetinn skýrði frá þessu í ávarpi sínu í tilefni einnar af mestu hátíðum múslíma, Eid al-Fitr, sem haldin er við lok föstumánaðarins ramadan. „Sendimenn okkar hafa farið marg- sinnis til Sádi-Arabíu og Pakistans en viðræðurnar hafa ekki hafist enn. Við vonum að það gerist senn,“ sagði Karzai. Sádi-Arabía var eitt örfárra ríkja sem viðurkenndu ríkisstjórn talíb- ana sem réðu í Afganistan 1996- 2001. Karzai vill að reynt verði að fá hófsöm öfl innan hreyfingar talíbana til að semja. En að sögn fréttavefs breska útvarpsins, BBC, eru stjórnir vestrænna ríkja, sem sent hafa her- lið til Afganistan, ekki sáttar við þær leiðir sem Karzai hefur valið. Forsetinn segist hafa beðið leið- toga talíbana, múlla Ómar, sem sennilega hefst við í Pakistan, um að vinna að friði. „Fyrir nokkrum dögum beindi ég orðum mínum til leiðtoga þeirra, múlla Ómars, og sagði: „Kæri bróðir, komdu aftur til ættjarðar þinnar, komdu til að vinna að friði og hag- sæld þjóðar þinnar og hættu að drepa bræður þína,“ sagði forsetinn. Ómar sendi frá sér yfirlýsingu á net- inu í gær þar sem hann hét því að tækifærið yrði ekki notað til að ráð- ast á erlenda herliðið ef það hyrfi frá Afganistan. Karzai vill friðarviðræður SÓMALSKIR sjóræningjar halda enn úkraínska flutningaskipinu Faína með vopnafarm, þ.á m. 33 skriðdreka, skammt fyrir utan borgina Hoboyo. Krefjast þeir 20 milljóna dollara, um tveggja millj- arða króna, í lausnargjald. Nokkur bandarísk og eitt rússneskt herskip hafa umkringt Faína en talsmenn sjóræningjanna segjast munu verj- ast til síðasta manns. Sameinuðu þjóðirnar skilgreina nú hafið úti fyrir strönd Sómalíu sem hættulegustu siglingaleið heims vegna sjóránanna. Alger upplausn hefur ríkt í sjálfu landinu í 17 ár. Talið er að vopnin hafi átt að fara til Kenýa, einnig er hugsanlegt að áfangastaðurinn hafi verið Suð- ur-Súdan. Fréttamaður The New York Times ræddi símleiðis við talsmann ræningjanna. Sagði tals- maðurinn þá ekki hafa vitað að vopn væru um borð í Faínu. „Við sáum bara stórt skip og stöðvuðum það,“ sagði maðurinn, Sugule Ali. „Við lítum ekki á okkur sem glæpamenn á hafinu. Við álít- um að þeir sem veiða ólöglega í landhelgi okkar, fleygja þar sorpi og sigla með vopn séu glæpamenn á hafinu. Við erum einfaldlega að halda uppi eftirliti. Þið getið litið á okkur sem strandgæslu.“ Auðug túnfiskmið eru við Sómal- íu og einn af sendimönnum landsins í Kenýa segir sjóránin hafa byrjað með því að sjómenn hafi vopnast til að hrekja burt ólöglega fiskibáta. „En síðan urðu þeir gráðugir, þeir fóru að ráðast á alla.“ kjon@mbl.is „Sáum bara stórt skip“ Sómalskir ræningjar sinna „strandgæslu“ HÖFRUNGAR í japönskum sjáv- ardýragarði fá nú ekkert nema megrunarfæði en þeir voru komn- ir með ístru og orðnir ófærir um að leika listir sínar í lauginni. Talsmaður Kinosaki-sjávar- dýragarðsins sagði, að höfrung- arnir hefðu verið hættir að geta troðið marvaðann og þegar þeir áttu að stökkva upp úr vatninu og snerta ákveðna hluti, hefði allt farið í handaskolum hjá þeim. Í ljós kom, að þeir höfðu þyngst um allt að 10 kg frá því fyrr í sumar. Allir höfðu þeir fengið sama matarskammtinn, 14 kg af makríl og dálítið af öðrum fiski daglega. En makríllinn var feitari en áður. svs@mbl.is Höfrungar í megrun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.