Morgunblaðið - 01.10.2008, Page 20

Morgunblaðið - 01.10.2008, Page 20
hönnun 20 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is Reynslan er mjög góð, viðsjáum sífellt betur hvaðþessi hlið mála er mikil-væg fyrir heilsuna,“ segir Hjálmar Freysteinsson heim- ilislæknir á Akureyri um fjöl- skylduráðgjöf Heilsu- gæslustöðvarinnar þar í bæ (HAK). Tuttugu ár eru síðan ráðgjöfin var tekin upp. Sálfræðingar og fé- lagsráðgjafar á HAK sinna fjöl- skylduráðgjöfinni og það var einmitt sérstaða stofnunarinnar lengi, að þeir eru hluti starfsliðs heilsugæsl- unnar og síður þarf að vísa þessum málum til annarrra stofnana. Í gegnum tíðina hefur fólk ýmist leitað beint til þessara sérfræðinga eða heimilislæknar eða annað sam- starfsfólk vísað því þangað, sem gerst hefur í meira mæli en áður hin síðari ár, að sögn Hjálmars. Fólk snýr sér til heimilislækna vegna ýmiss konar vandamála, ekki einungis „hefðbundinna“ veikinda og í þeim tilfellum segir Hjálmar mikilvægt að áðurnefndir sérfræð- ingar séu til þjónustu reiðubúnir. Hann segir hugmyndina að ráðgjöf- inni á sínum tíma hafa verið að með þessu móti væri hægt að fyrirbyggja skaða af ýmsum toga og reyndin hafi orðið sú. „Síðustu ár er miklu meiri og opnari umræða en áður um ofbeldi í fjöl- skyldum og þess háttar mál, sem oft er uppspretta að mikilli óheilsu,“ segir Hjálmar Freysteinsson. Nærast á ást og umhyggju Á málþinginu verður fjallað um reynslu HAK af fjölskylduráðgjöf- inni en þar hefur verið boðið upp á meðferð af margvíslegu tagi: við- talsmeðferð, áfallameðferð, para- meðferð og foreldraráðgjöf. Auk þess sem sjónum er beint að nútíð og fortíð með þessum hætti, verður einnig reynt að rýna inn í framtíðina, en tveir erlendir fyrir- lesarar fjalla um það nýjasta í fræð- unun, m.a. um nýjan skilning á til- finningalífi og tengslamyndun sem byggir bæði á fjölfræðilegri þekk- ingu og niðurstöðum rannsókna sem sýna fram á að heilinn og tauga- kerfið beinlínis nærast á ást og umhyggju, sér í lagi á fyrsta ævi- skeiði. Mikil og vaxandi þörf er sögð fyr- Fjölskylduráðgjöf HAK starfandi í 20 ár Góð ráð mikilvæg fyrir heilsu fólks Góð tilfinninga- tengsl eins og bólusetning fyrir áföllum Eftir Svanhildi Eiríksdóttur S kemmtilegast er að prófa eitthvað nýtt, fara út fyrir sín takmörk og færa til það sem maður hefur gert áður. Maður getur alltaf fengið glerið til að ögra sér og það er gaman,“ segir Guðlaug Brynj- arsdóttir glerlistakona í Iceglass í Reykjanesbæ. „Það skiptir miklu að geta fengist við ólíka hluti, ég vil ekki gera neitt eins alla daga. Skúlptúrismi heillar mig mest þar sem nytjagildið víkur fyrir forminu. Maður verður að ögra sér hönnunarlega, annars gerist ekkert nýtt,“ bætti sonur hennar gler- listamaðurinn Lárus Guðmundsson við, en þau mæðgin hafa rekið gler- blástursverkstæðið Iceglass saman í rúmt ár. Iceglass er eina opna gler- blástursverkstæðið á landinu og að- ferðin sem þau nota er 2.000 ára göm- ul. Hver hlutur er handgerður og því er ekkert verk eins. Fann sig í glerinu Glergerðarlist er jafnan fjölskyldu- hefð. Það mynstur er þekkt erlendis langt aftur í aldir þó því sé ekki að heilsa hér á landi. Guðlaug Brynj- arsdóttir er til dæmis brautryðjand- inn í sinni fjölskyldu og hóf iðjuna fyr- ir 10 árum fyrir algjöra tilviljun. „Þegar ég fór til Danmerkur árið 1998 ætlaði ég að læra blómaskreytingar. Ég fann hins vegar strax að þær áttu ekki við mig. Ég var svo heppin að í skólanum var hægt að læra gler- blástur og ég ákvað að slá til. Þegar ég prófaði flæðandi gler vissi ég að þetta vildi ég gera,“ sagði Guðlaug. Hún hefur fengist við glerlist og gler- blástur í flestum myndum síðan 1998 og nam við listaskóla Álaborgar og Nørresundby Daghøjskole. Guðlaug hefur notið tilsagnar hjá fjölmörgum reyndum glermeisturum og segist hafa lagt mikið á sig fyrir glerið – keyrt jafnvel 300 km til að komast til meistara í Danmörku og oft unnið kauplaust, reynslunnar vegna. „Þetta er eiginlega sjúkdómur og ég segi allt- af að það séu galdrar í efninu. Maður sogast að glerinu og það tekur mann. Maður vill alltaf vera með því og horf- ir á það alls staðar þar sem maður er.“ Glerblóm Litríkir smámunir á borð við þessa geta lífgað upp á umhverfi sitt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Glergerðarmeistarinn Guðlaug Brynjarsdóttir fann sig strax í glerinu. Auðvelt að falla fyrir galdrinum í glerinu Reykjanes | Glerlistin krefst mikillar samvinnu hjá mæðginunum Guðlaugu Brynj- arsdóttur og Lárusi Guðmundssyni og segja þau gaman að láta glerið ögra sér. Morgunblaðið/Valdís Thor EINMANALEIKI er oft tengdur kulda í daglegu tali. Tengslin virð- ast hins vegar öllu meiri samkvæmt fréttavef BBC, sem segir sálfræð- inga við háskólann í Toronto hafa komist að því að kuldatilfinning fylgi félagslegri einangrun. Voru 65 námsmenn fengnir til að taka þátt í rannsókn vísindamann- anna og var þeim skipt upp í tvo hópa. Í öðrum hópnum voru þátt- takendur látnir rifja upp aðstæður þar sem þeir upplifðu sig félagslega einangraða, einmana eða utan- garðs. Í hinum hópnum voru þátt- takendur látnir rifja upp aðstæður þar sem þeir voru boðnir velkomn- ir. Báðir hóparnir voru síðan látnir leggja mat á hitann í herberginu sem tilraunin fór fram í og töldu þeir hitastigið vera frá 12°C og upp í 40°C. En það voru þeir þátttak- endur sem rifjuðu upp neikvæðu reynsluna sem mátu hitann lægri. Í öðrum hluta tilraunarinnar voru 52 námsmenn fengnir til að spila boltaútgáfu af tölvuleik og var leikurinn hannaður þannig að bolt- anum var ítrekað kastað til sumra leikmanna en aldrei til annarra. Að leik loknum voru þátttakendur látnir segja hvort þeir vildu heitt kaffi, kex, gos, epli eða heita súpu. Voru „óvinsælu“ leikmennirnir mun líklegri til að velja súpu eða heitan drykk og telja vísindamenn- irnir ástæðuna kulda tengdan fé- lagslegri einangrun. „Við komumst að því að kuldi bókstaflega fylgir félagslegri ein- angrun,“ hefur BBC eftir dr. Chen- Bo Zhong, sem fór fyrir rannsókn- inni. Telja vísindamennirnir að e.t.v. megi draga úr einsemdar- tilfinningu með því að hækka hit- ann, líkt og birta getur hjálpað þeim sem þjást af skammdegis- þunglyndi. Reuters Einmana Það virðast vera tengsl milli hitaskynjunar okkar og fé- lagslegrar einangrunar. Kalt að vera ein- mana Hver er munurinn á massífum hlut og blásnum hlut? Massífir hlutir eru formaðir en blásnir hlutir eru blásnir og form- aðir. Vinnsluferli þeirra er hins veg- ar það sama. Hvert er hönnunarferlið? Fyrst er að teikna upp hlutinn, þá frjálst hugarflæði þar sem farið er í gegnum allar skissur og glerið tekið inn í. Það er kannski bara ein teikn- ing sem verður að hlut. Að lokum er það stíf hönnun. Hvernig er vinnslu- ferli glerhluta? Flæðandi gler kemur úr 1.200°C heitum ofni sem er í gangi allan sólarhringinn. Við sérstakar aðstæður þarf að nota 1.600°C heitan gasofn sem þá er kyntur. Eftir mótun fara verkin í 500°C heitan ofn og kólna þar í 2 sólar- hringa. Hitastigið og vinnsluferlið þarf alltaf að vera rétt til að verkin heppnist. S&S heilsa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.