Morgunblaðið - 01.10.2008, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Trölladyngja Holur hafa verið boraðar bæði suðvestan og norðan við Trölladyngju. Hveravirkni hefur aukist á síðustu árum
Frá Reykjanesi að Brennisteins-
fjöllum eru fjögur háhitasvæði. Inn-
an þeirra hafa verið afmörkuð tíu
möguleg vinnslusvæði háhita, en á
tveimur þeirra er þegar orkuvinnsla.
Reykjanesvirkjun
Unnið er að stækkun Reykjanes-
virkjunar, úr 100 MW í 180-200 MW.
Umhverfismatsferli vegna þess er í
gangi en er ólokið. Hitaveita Suð-
urnesja (HS), sem rekur virkjunina,
hefur skilað inn matsáætlun, sem nú
er í umsagnarferli. Orkuna á að selja
til álvers Norðuráls í Helguvík. Í 1.
áfanga rammaáætlunar fékk stækk-
unin umhverfiseinkunn A og hagn-
aðar- og arðsemiseinkunnir C, líkt
og virkjunarkostir við Krýsuvík.
Eldvörp og Svartsengi
Í Eldvörpum, miðja vegu á milli
Reykjaness og Svartsengis, hefur
Hitaveita Suðurnesja hug á því að
reisa allt að 50 MW virkjun. Þar var
boruð öflug hola árið 1982, en áhöld
eru um hvort virkjun þar gæti dreg-
ið úr krafti í Svartsengi. Eldvörp eru
í landi Grindavíkur en HS hefur rétt
til nýtingar skv. samningi við utan-
ríkisráðuneytið, vegna nálægðar við
gamla varnarsvæðið. Sem stendur
er 75 MW raforkuvirkjun og 150
MW varmastöð í Svartsengi. Síðasta
stækkun var gerð í desember 2007
og er ekki frekari stækkun á döfinni
á næstunni. Þó er talið að 20–30 MW
viðbótarafli megi ná með lághita-
stöð, sem tæki gufu frá hverflunum
sem eru þar fyrir.
Krýsuvík
HS hefur rannsóknaleyfi á Krýsu-
víkursvæðinu, t.d. í Seltúni, Hvera-
dal og Austurengjum. Leyfið nær
einnig yfir rannsóknir við Sandfell
og gildir til 2016. Á öllum þessum
svæðum og í Trölladyngju, þar sem
HS hefur sérstakt leyfi, á m.a. að
afla orku fyrir álver í Helguvík, skv.
núverandi áætlunum. Við Krýsuvík
er vonast eftir allt að 200 MW. Þær
rannsóknir sem nú eru í gangi eru á
yfirborðinu, t.d. kortlagning og jarð-
fræðikortlagning. Svo hægt sé að
bora þarf Hafnarfjörður að breyta
aðal- og deiliskipulagi. Svæðin eru
innan Reykjanesfólksvangs og á
þeim hvílir hverfisvernd. Aðalskipu-
lagsbreytingin fer í gegn nú í vetur,
með fyrirvara um skáboranir undir
viðkvæm svæði, að sögn Lúðvíks
Geirssonar bæjarstjóra.
Sandfell
Nokkru austar, við Sandfell, er
sérstakt og aðskilið háhitasvæði.
Það er mest áberandi við norðaust-
urhluta fellsins. Þar hefur verið von-
ast eftir 100 MW.
Trölladyngja
Í Trölladyngju, á mörkum Grinda-
víkur og Vatnsleysustrandarhrepps,
hafa verið boraðar tvær rannsókn-
arholur, heldur kraftlitlar. Upp-
haflega átti að ná þar 100 MW, en sú
tala gæti verið nær 40 MW, miðað
við upplýsingar sem nú liggja fyrir.
Brennisteinsfjöll
Átta til tíu kílómetrum austan
Kleifarvatns er háhitasvæðið í
Brennisteinsfjöllum, á mörkum
Sveitarfélagsins Ölfuss og Grinda-
víkurlands. Svæðið er sérstaklega
verndað í stjórnarsáttmálanum,
undanskilið jarðraski og nýtingu.
Rannsóknarleyfi hefur aldrei verið
veitt á þessu svæði, en Lands-
virkjun, HS og Orkuveita Reykja-
víkur sóttu öll um það á sínum tíma.
Svæðið er lítt rannsakað og þess
vegna óvissa um aflið í iðrum jarðar.
Eins og annars staðar er vonast eftir
100 MW, sem er nánast lágmark til
þess að virkjun borgi sig. Hugsanleg
virkjun þar fékk umhverfiseinkunn
B en hagnaðar- og arðsemiseinkunn
C í 1. áfanga rammaáætlunar.
Litadýrð Horft er í hálfhring fyrir sunnan Trölladyngju. Sogalækur rennur þar framhjá en Keilir drottnar yfir Reykjanessk
Fá að bora í Krýsu-
vík eftir veturinn
Raforka til annars
áfanga álversins í
Helguvík átti að
koma af Reykjanesinu. Hann verður kom-
inn í gagnið 2015, en tekst að útvega orku
af heimaslóðum fyrir þann tíma? Óvissa
um orkuna í jörðu og vernd heitra svæða
hafa seinkað rannsóknum um árabil. Ragn-
ar Axelsson og Önundur Páll Ragnarsson
skoða háhitann á Reykjanesskaga.
Brennisteinsfjöll Hitasvæðið er lítið um sig, en nágrennið allt er óraskað. Austurengjar Hverir suður af Kleifarvatni.
Vinnslu-
svæði
Háhita-
svæði
Fyrir-
hugað lón
Veitugöng
Mörk
friðlanda
Þjóðgarðar
Blátt: Vatnsaflsvirkjun Rautt: Háhitavirkjun R: Framkvæmd er inni á rammaáætlun Stj.: Svæði er verndað í stjórnarsáttmála.
REYKJAVÍK
MOSFELLSBÆR
ÁLFTANES
HAFNARFJÖRÐUR
GARÐABÆR
KÓPAVOGUR
REYKJANESBÆR
GARÐUR
GRINDAVÍK
VOGAR
KLEIFARVATN
SANDGERÐI
HAFNIR
Krýsuvík
R: 1. áf. Stj.: Nei
Trölladyngja
Seltún
Sandfell
Hveradalur
Austurengjar
HERDÍSARVÍK
Eldvörp
R: 1. áf. Stj.: Nei
Reykjanesvirkjun
R: 1. áf. Stj.: Nei
Svartsengi
R: 1. áf. Stj.: Nei
Brennisteinsfjöll
R: 1. áf. Stj.: Já
ReykjanesbærSpákonuvatn
Hvar á að virkja?