Morgunblaðið - 01.10.2008, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 01.10.2008, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Fyrir rétt rúmum tíu árum kynntist ég Sverri eða Sveppa eins og hann var oftast kallaður. Það var upphafið að góðri vináttu sem litaði árin mín í grunnskóla af mörgum yndislegum stundum sem ég mun alltaf geyma í hjartanu. Sverrir var snillingur í að stríða, en stríða á góðan hátt. Stríðni sem fékk mann til að brosa, hlæja og gleðjast. Þannig var hann og það var hans aðaleinkenni, glettna brosið og góðlátlega stríðnin sem smitaði um- hverfið í kringum hann. Hann var líka mjög traustur vinur sem alltaf var hægt að treysta á. Þótt við hitt- umst ekki eins oft undanfarin ár héldum við alltaf einhverju sam- bandi og oftar en ekki lumaði hann á einhverjum hrekk sem maður gat hlegið að lengi á eftir. Þegar við útskrifuðumst úr Lang- holtsskóla með hátíðlegri athöfn í Langholtskirkju hefði mér aldrei getað flogið í hug að næst þegar ég kæmi þangað væri verið að jarða Sverri. Undanfarna daga hef ég verið að Sverrir Franz Gunnarsson ✝ Sverrir FranzGunnarsson fæddist á Sjúkra- húsinu á Akranesi 19. maí 1986. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 8. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Langholtskirkju 19. september. láta hugann reika og það koma margar góð- ar minningar í hug- ann. Ég minnist hans með trega og söknuði en líka stóru brosi, því allar minningarnar um hann framkalla bros. Ég er Guði þakklát fyrir að hafa fengið að þekkja Sverri og bið Hann að blessa alla ástvini hans og styrkja í sorginni. Hanna Lísa. Það er nú ótrúlegt hversu hratt þú komst inn í líf okkar. Á einu augna- bliki náðirðu að verða besti vinur og það var fullvíst að þú myndir aldrei hætta því. Það var svo notalegt að sjá hvað þú hafðir gaman af lífinu og talaðir mikið um að við ættum að nýta lífið til fulls meðan við gætum. Þú sagðir mér oft frá því hvað þig langaði að klára skólann sem allra fyrst til að flytja að heiman og stofna fjölskyldu með Völu. Þú hreinlega gast ekki beðið. Það var augljóst að Vala var sú sem hélt þér gangandi. Það sást langar leiðir hvað þér þótti vænt um hana. Þegar hún varð 18 ára baðstu mig að mála fyrir hana mynd sem þú varst búinn að velja sjálfur, því þú vissir að hún myndi vilja hana í af- mælisgjöf. Þá varstu nýfluttur í Árbæinn og fannst tilvalið að halda surprise-afmæli fyrir hana þar. Við fórum saman í partíbúðina og keypt- um fullt af blöðrum og skrauti. Þú bjóst líka til stóra bleika súkku- laðiköku handa henni. Við földum myndina og fleiri pakka inni í skáp og þú bjóst til ratleik fyrir Völu, svo hún myndi finna pakkana, og þurfti hún að fara út um allt hús. Svo vor- um við vinahópurinn inni í einu her- berginu með slökkt ljósin og þú baðst Völu að koma og þrífa með þér húsið áður en húsgögnin yrðu sett inn. Vala fraus þegar hún opnaði dyrnar og sá okkur, og þú hlóst þig máttlausan. Þetta er nú bara eitt af fjölmörgum uppátækjum hjá þér og verður þeim seint gleymt. Þú náðir svo sannarlega að gleðja líf okkar allra. Munum við ávallt hugsa hlýlega til þín. Þínir vinir Helena Sif Magnúsdóttir og Karl Valdimar Kristinsson. Elsku Sverrir. Það var erfitt að meðtaka þær fréttir að einn af starfsmönnum okkar væri farinn frá okkur fyrir fullt og allt. Við kveðjum þig með miklum trega enda frábær persóna sem og starfsmaður sem þú varst. Þú sýndir starfi þínu mikinn áhuga og viðskiptavinurinn var alltaf númer eitt hjá þér. Þú sýndir einnig mikla ábyrgð í starfi sem er ekki sjálfgefið á þessum aldri. Ekki þurfti að hafa áhyggjur af því að þið Vala væruð að vinna sam- an, þið stóðuð ykkur bæði rosalega vel og létuð ekki hvort annað trufla ykkur, kepptuð frekar um það í gríni hvort ykkar væri í meira uppáhaldi hjá öðrum yfirmönnum. Við eigum ótal góðar minningar um þig sem munu ávallt lifa með okkur. Takk fyrir samstarfið. Elsku Vala Hrönn og aðrir að- standendur, við sendum ykkur okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Hagkaupa í Skeifunni, Lilja Ósk Kristbjarnardóttir, rekstrarstjóri. Mig langar til þess að minnast hennar Siggu hans Dóra, eins og við sögðum oft. Ég hafði oft séð hana úr fjarlægð og setið við sama borð á skemmtunum hjá Faxaflóahöfnum, mennirnir okkar unnu saman. En síðan fór hún að vinna á mínum vinnustað hjá Sigríður Sigurgeirsdóttir ✝ Sigríður Sig-urgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 17. apríl 1950. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut að kvöldi 20. ágúst síðastliðins og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 1. september. Vinnumiðlun og unn- um við saman í ein átta ár. Ég hafði vitað að hún væri með sjúk- dóm, en ekkert var talað sérstaklega um það en eftir stuttan tíma var mér ljóst að hún var ekkert að flíka sínu, en það var annað sem ég tók fljótt eftir, það var blikið í augunum og þetta að geta fangað augnablikið (the mo- ment), það eitt og sér gefur mikla lífsfyllingu, og það er ekki öllum gefið. Við vorum þess aðnjótandi að vera erlendis með þeim og maður sá hvað hún hafði gaman að ferðast, einnig hvað hún var næm fyrir list- um enda bar heimili hennar þess alls staðar merki. Sigga var ein af þessum hetjum sem maður kynnist of sjaldan. En stundum hrannast upp óveðursský, þau misstu Dag einkason sinn 1. apríl 2005 og blikið hvarf úr augunum hennar um tíma, en það kom aftur. Ég sá það aftur á skemmtun hjá Höfninni 07 þegar sungin var syrpa af Abba-lögum, þá fannst mér hún upplifa gamla tíma í Svíþjóð þegar þau voru með Dag lít- inn. En það á ekki fyrir öllum að liggja að eiga langa ævi og Sigga gat ekki tekist á við ófétið þegar það bankaði upp á í vor. Við töluðum oft saman í síma eftir að ég hætti á Vinnumiðlun fyrir um 3 árum, alveg fram á síðustu dagana. Oft átti ég erfitt um þann tímann og Sigga gaf mér styrk. Ég hef lært að ekkert er sjálfgefið og það vissi hún líka. Við hjónin viljum þakka fyrir að fá að vera samferða Siggu og Dóra, við vitum í hvaða faðmi hún er. Ingibjörg og Örn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar                                       ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INDIANA BJÖRG ÚLFARSDÓTTIR, Hraunbúðum, áður Heiðarvegi 48, Vestmannaeyjum, er lést fimmtudaginn 25. september, verður jarðsungin frá Landakirkju Vestmannaeyjum, laugardaginn 4. október kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd annarra vandamanna, Eygerður Anna Jónasdóttir, Þorsteinn Gísli Þorsteinsson, Ingimar Jónasson, Fríða Sverrisdóttir. ✝ Ástkær bróðir okkar, GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON, Baldursgötu 27, Reykjavík, er látinn. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Við þökkum auðsýnda samúð og sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunarkonum Karítas og starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun og alúð. Fyrir hönd systkina, Guðrún Guðmundsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, afi, langafi og langalangafi, SVEINN HRÓBJARTUR MAGNÚSSON, Kleifahrauni 3, áður Hvítingavegi 10, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja föstudaginn 26. september. Útför hans verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 4. október kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á unglingastarf Golfklúbbs Vestmannaeyja, reikningsnr. 0582-14-400216, kt. 300160 5499. Sigríður Steinsdóttir, Steinn Sveinsson, Ólína Margrét Jónsdóttir, Magnús Sveinsson, Katrín Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Sigurður Þór Sveinsson, Sigríður Þórðardóttir, Birgir Sveinsson, Ólöf Jóhannsdóttir, Lilja Sveinsdóttir systir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, sem lést á dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík, laugar- daginn 27. september, verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 4. október kl. 14.00. Jenný Guðmundsdóttir, Jónas Gunnarsson, Bára Guðmundsdóttir, Kristín E. Guðmundsdóttir, Pétur F. Karlsson, Metta S. Guðmundsdóttir, Sigurður P. Jónsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, Aflagranda 40, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi, fimmtu- daginn 25. september. Útför hans verður frá Fossvogskirkju, föstudaginn 3. október kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna. Ásgerður Gísladóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Brynjúlfur Sæmundsson, Gíslína Guðmundsdóttir, Haraldur Dungal, Ólöf og Axel, Ragnar, Sigurður Ásar, Hrafn og langafabörnin. ✝ Faðir minn, afi okkar, bróðir og mágur, ÞORBJÖRN GUÐFINNSSON rennismiður, varð bráðkvaddur fimmtudaginn 25. september. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 3. október kl. 15.00. Arnþrúður Lilja Þorbjörnsdóttir, Oddrún Þorsteinsdóttir, Gunnbjörn Þorsteinsson, Vigdís Guðfinnsdóttir, Pétur Guðfinnsson, Loftur J. Guðbjartsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.