Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is ■ Á morgun kl. 19.30 Í austurvegi Tónlist innblásin af austurlenskri Gamelantónlist sem hafði mikil áhrif á vestræn tónskáld í lok nítjándu aldar og allt fram á þennan dag. Stjórnandi: James Gaffigan Einleikarar: Roland Pöntinen og Love Derwinger. Nico Muhly: Wish You Were Here Francis Poulenc: Konsert fyrir tvö píanó Colin McPhee: Tabuh-Tabuhan Claude Debussy: La Mer ■ Föstudagur 3. október kl. 21.00 Heyrðu mig nú - Gamelan James Gaffigan, Roland Pöntinen og Love Derwinger. Tónlist eftir Nico Muhly og Colin McPhee. Í heyrðu mig nú - tónleikaröðinni er hefðbundið tónleikaform brotið upp. Stuttir tónleikar þar sem tónlistin er kynnt á undan flutningi og boðið í eftirpartý í anddyri Háskólabíós á eftir. Tilvalið fyrir forvitna tónlistarunnendur. Miðaverð aðeins 1.000 krónur. STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS Fólk HJALTALÍN er fráleitt fyrsta hljómsveitin sem reynir sig við hljómsetningu þögulla kvik- mynda. Hér koma þrjú dæmi um svipaðar til- raunir. múm – Beitiskipið Potemkin Þessi vaska forystusveit krúttanna lék undir þessu tímamótaverki Sergeis Eisensteins frá 1925 í febrúar 2002. Tónleikarnir fóru fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði og voru partur af verk- efninu Ný tónlist – gamlar kvikmyndir sem Kvikmyndasafn Íslands stóð að. Sveitin end- urtók svo leikinn í New York og á Spáni. Ólög- legar upptökur með leik sveitarinnar eru í um- ferð hjá eitilhörðum múmaðdáendum. Barði Jóhannsson – Häxan Barði, jafnan kenndur við Bang Gang, samdi tónlist við þennan þögla frum-hrylli og flutti ár- ið 2004 í Forum des images í París. Verkið kom svo út á plötu tveimur árum síðar og sér kamm- ersveit Búlgaríu um undirleikinn. Þetta er eina sólóplata Barða til þessa. Benni Hemm Hemm – Fjalla-Eyvindur Flutningur Benna og félaga fór fram á RIFF fyrir tveimur árum. Sautján manna sveit lék undir myndinni sem er frá árinu 1918. Myndin er sænsk og eftir hinn virta Victor Sjöström, byggð á leikriti Jóhanns Sigurjónssonar. Fleiri hafa hljómsett þöglar kvikmyndir Morgunblaðið/G.Rúnar Benni Hemm Hemm Lék undir Fjalla-Eyvindi ásamt sveit sinni fyrir tveimur árum.  Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur nú yfir og enn eru fimm sýningardagar eftir. Leikstjóri heimildarmyndarinnar Generation ’68, Simon Brook er staddur hér á landi og í gær bárust honum þær fréttir að dómnefndin á kvikmyndahátíðinni í Lissabon hefði verðlaunað kvikmyndina. Fleiri myndir sem sýndar eru á há- tíðinni hafa verið sigursælar á kvik- myndahátíðum í ár en fyrr í vikunni vann Askja Pandóru aðalverðlaun- in í San Sebastian en fyrir hafði Skelfilega hamingjusamur (Frygte- lig lykkelig) unnið Kristalshnöttinn á Karlovy Vary og Tulpan Un Certain Regard-verðlaunin á Cann- es. Þá var umfjöllun um hátíðina í IndieWire, þar sem Ernu Ómars- dóttur er m.a. líkt við David Lynch og mynd hennar sögð líkjast kvik- myndinni Exorcist. Loks voru tvær myndir á hátíðinni, Snjór og Tulp- an, nýlega tilnefndar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í flokkn- um European Discovery. Þá má ekki gleyma Smáfuglum Rúnars Rúnarssonar sem frumsýnd verður hér á landi á föstudag. Verðlauna- kvikmyndir á RIFF  Eins og fram kemur í Af listum- pistli Jóhanns Bjarna Kolbeins- sonar í blaðinu í dag eru margar spennandi plötur væntanlegar fyrir jól og ljóst að mömmur og ömmur þessa lands munu klóra sér í hausn- um þegar kemur að jólagjafainn- kaupunum. Á hinn bóginn virðist sem árið í ár verði með lakara móti hvað fjölda titla varðar. Morg- unblaðið gagnrýnir að jafnaði 90% allra platna sem út koma á landinu og undanfarin ár hefur þeim fjölg- að jafnt og þétt. Í fyrra gagnrýndi Morgunblaðið um 140 plötur og ár- ið þar á undan var talan litlu lægri. Nú lítur út fyrir að gagnrýnendur Morgunblaðsins muni eiga rólega tíð framundan því samkvæmt út- reikningum blaðsins munu aðeins um 90 titlar koma út. Vonandi aukast gæðin fyrir vikið. Færri plötutitlar væntanlegir fyrir jól MENNING MUGISON er aftur rokinn af stað í fjögurra daga tónleikaferð um Bandaríkin og kemur hann fram ásamt hljómsveit á staðnum Plush í Tuscon, Arisona í kvöld. Am- eríkuferðinni lýkur með tónleikum í Los Angeles hinn fjórða október og er þá ferðinni heitið til Þýskalands þar sem Mugison kemur fram í Menningarbruggverksmiðjunni svo- kölluðu í Berlín. Í næsta mánuði hefst svo aftur Evróputúr en áður en Mugison ræðst í þá ferð kemur hann fram á tónlistarhátíð í Beirút í Líb- anon. Hátíðin, sem kallast því kald- hæðna nafni Big Bang, mun vera í umsjón einnar ríkustu konu Beirút en hún mun vera mikil áhugamann- eskja um íslenska list. Fjölmargir þekktir tónlistarmenn koma fram á hátíðinni ásamt Mugison. Heldur tónleika í Beirút Morgunblaðið/G.Rúnar Mugison Ekki er vitað til þess að annar íslenskur tónlistarmaður hafi kom- ið fram á tónleikum í Beirút, enda kannski ekki í alfaraleið. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í Reykjavík eða RIFF er nú í fullum gangi. Í ár hefur verið lögð sér- stök áhersla á tengsl kvikmynda og tónlistar og að því marki mun hljómsveitin Hjaltalín flytja frum- samda tónlist við kvikmyndina Saga Borgarættarinnar en það var fyrsta kvikmyndin sem var tekin hérlendis og byggist á samnefndri bók Gunnars Gunnarssonar. Flutn- ingurinn fer fram föstudaginn 3. október í Bæjarbíói, Hafnarfirði, á afmælisdag Högna Egilssonar, meginlagasmiðs Hjaltalín. Óvenjulegt Að sögn Högna var þessi hug- mynd borin undir sveitina í sumar. „Okkur fannst þetta spennandi og fórum óðar að semja. Um er að ræða frumsamda tónlist í margs konar búningi.“ Hjaltalín hefur sýnt meist- aralega takta í samslætti klassíkur og popps, sveitin er fjölmenn og fjölsnærð og því ýmsir möguleikar fyrir hendi er ráðist var í verk- efnið. „Við tökum þetta bæði sem rokkhljómsveit og svo í meiri kammerbúning. Þetta verður bæði flutt á staðnum og svo nýtum við okkur fyrirfram upptekin hljóð. Ben Frost verður með okkur og leggur til þykkan hljómvegg sem við leikum ofan í á köflum. Það verður mikil gagnvirkni á milli okkar og Ben.“ Högni segir að hann og félagar hans hafi forðast að skreyta myndina þannig að þegar leikið sé á píanó leiki þau á píanó eða að vindhviða sé undirstrikuð með við- eigandi hætti. „Við vorum á tímabili að pæla í því hvort við ættum að undirstrika ákveðnar persónur með ákveðnum hljóðfærum en féllum frá því. Við erum að fara óvenjulegar leiðir að þessu, þetta er ekki það sem mætti kalla hefðbundna kvik- myndatónlist sem undirstrikar ein- hverja stemningu. Þetta er meira afstrakt.“ Púsluspil Högni segir þetta hafa verið „svolítið“ erfitt. „Við erum að tala um tvo og hálfan tíma af tónlist. Þetta er bú- inn að vera nokkuð massífur pakki og heilmikið púsluspil í gangi. Það var snúið að hafa ein- hverja heildarsýn yfir þetta og freistandi að „gera bara eitthvað“. En það gengur náttúrlega ekki.“ Högni lýsir því þá að samstarf sveitarinnar hafi aldrei verið jafn náið, allur hópurinn hafi unnið sem einn maður að verkinu. Ríkisútvarpið mun taka herleg- heitin upp en engin sérstök áform eru um útgáfu. „Það eru einhverjar þreifingar í gangi,“ segir Högni. „Það væri flott ef þetta væri gefið út á mynddisk. En við sjáum hvað set- ur.“ Áður en sýningin hefst flytur Jón Yngvi Jóhannsson stutt ávarp þar sem hann segir frá Sögu Borgarættarinnar og kvikmynda- gerð verksins. Sýningin fer fram í Bæjarbíói, Hafnarfirði, eins og áð- ur segir og hefst kl. 20. Tveir og hálfur tími af tónlist Hjaltalín flytur frumsamda tónlist við Sögu Borgarættarinnar á RIFF Morgunblaðið/Kristinn Högni „Við erum að tala um tvo og hálfan tíma af tónlist. Þetta er búinn að vera nokkuð massífur pakki og heilmikið púsluspil í gangi.“ Sjá nánar á www.riff.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.